Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2001, Síða 4
FÖSTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2001
Shaquille O'Neal.
Shaq á leið í lögguna
Miðherjinn tröllvaxni Shaquille
O’Neal, sem leikur með Los Angeles
Lakers, er með það á hreinu hvað
hann ætlar að gera eftir að körfuknatt-
leiksferlinum lýkur.
Sestur á skólabekk
Hann ætlar sér að verða lögreglu-
stjóri og er þegar sestur á skólabekk í
þeim tilgangi. „Lögreglumenn hafa
alltaf verið mínar hetjur," sagði
Shaquille O’Neal og bætti við að hann
myndi gjaman vilja vera lögreglustjóri
í Flórída.
Lögreglumenn víðs vegar um Banda-
ríkin eru kampakátir með þennan ný-
liða í lögreglunni.
-ósk
Kristinn Björns
son, i nyja skiöa
gallanum, og Juli
us Vífill Ingvars
kvæmdastjóri Bíl
Helgason
Skautahöllinni i
Gyifi Orrason, miliirikjadomari i knattspyrnu
er mikiil ábugamaður um enska
knattspyrnu. Hann er einn margra hér a
íandi sem halda með West Ham United og
hefur haldið með liðinu í gegnum súrt og
■; -.sáeít nánast frá því hann man eftir sér.
Getraunaspekingur JJW fSjpmíi spair i
leiki helgarinnar í enska boltanum
Gylfi Orrason, milliríkjadómari í knattspyrnu og aðdáandi West Ham:
Byrjaði þegar Hammers urðu
„heimsmeistarar landsliða"
Paulo di Canio, bestur.
Að mati
Gylfi Orrason, milliríkjadómari í knattspyrnu, hefur fylgst með enska bolt-
anum um langt árabil. Hann er mikill stuðningsmaður West Ham United og
hefur haldið með liðinu frá því hann fór að fylgjast með knattspyrnu.
„Ég hef haldið með þessu stórmerka liði frá 1966. Þá má segja að West Ham
hafi orðið „heimsmeistari landsliða". Geoff
Hurst skoraði þá þrennu í úrslitaleiknum fyrir
Englendinga og Martin Peters eitt, báðir vita-
skuld leikmenn West Ham. Síðan var það Bobby
Moore, fyrirliði enska landsliðsins, sem tók við
dollunni, líka West Ham-maður. Eftir þessa
frammistöðu var varla hægt annað en halda með
þessu frábæra liði og það hef ég gert síðan,“
sagði Gylfi Orrason í samtali við DV-Sport.
Spá Gylfa Orrasonar um leiki helgarinnar er
þessi:
Aston Villa - Leicester
„Hér verður um öruggan heimasigur að
ræða. Einfaldlega vegna þess að líð Leicester
getur ekki neitt. Lið Aston Villa hefur hins
vegar verið að braggast og John Gregory er að
fít/IfH" búa til býsna gott lið úr þeim mannskap sem
Wy 11 Ha hann hefur yfir að ráða.“
Blackburn - Middlesborough
„Lið Middlesborough er afar slakt á útivelli og
þess vegna er fyrirhafnarlítið að spá Blackburn
sigri. Mér finnst Blackburn hafa verið að sýna
mikinn styrk í deildinni miðað við að þeir komu
upp úr 1. deild í vor.“
Charlton - Newcastle
„Hér gæti orðið um markaleik að ræða.
Newcastle hefur ekki unnið í London í 19 síð-
ustu heimsóknum og það verður engin breyt-
ing á því núna.“
Derby - Liverpool
„Jafiitefli. Liverpool verður í erfiðleikum með
að skora eftir að Fowler er farinn til Leeds. Það
býr meira í liði Derby en það hefur verið að sýna
og það vinnur ekkert lið auðvelda sigra á heima-
velli Derby."
Besta liðið: West Ham.
í hvaða sæti í vor: 5.
sæti.
Bestur í West Ham:
Paulo di Canio.
Hvem viltu helst selja:
Shaka Hislop.
Hvaða leikmann viltu
helst kaupa: Myndi vilja
leikmann eins og
Helgueira og Makelele hjá
Real Madrid.
Styrkur liðsins: Spila
skemmtilegan sóknarleik.
Veikasti hlekkurinn í
liðinu: Vamarleikurinn í
heild.
Ipswich - Arsenal
„Arsenal vinnur góðan útisigur. Lið Ipswich hefur átt annríkt undanfarnar
vikumar og leikmannahópur liðsins er einfaldlega of lítill til að standaast slík
átök. Þá hafa mikil meiðsli hrjáð liðið og ég held að leikmenn Arsenal mæti fuil-
ir af sjálfstrausti og vinni öruggan sigur.“
Manchester United - Chelsea
„Manchester United vinnur þennan leik. Leikmenn iiðsins koma til leiks eins
og sært dýr og það, er aldrei erfiðara að eiga við United en eftir slæman tapleik.
United hefur ávallt komið sterkt til baka eftir slæmt tap eins og gegn Arsenal
um síðustu helgi. Hins vegar vona ég að Eiður Smári standi sig vel. Hann átti
góðan leik gegn Leeds á dögunum og sýndi þar vel hvers hann er megnugur. Það
er mikil hugsun í öllu sem hann gerir og áð því leyti er hann á hærra plani en
margir aðrir sóknarmenn. Og stundum skilja samherjar alls ekki hvað hann er
að gera.“
Sunderland - West Ham
„Eigum við ekki að spá útisigri hér þrátt fyrir að sterka leikmenn muni
vanta í lið West Ham, þar á meðal Di Canio.
Því verður trúað og treyst í blindni að leik-
menn West Ham leggi sig alla fram í þessum
leik og skili þremur stigum í höfn. Til þess
þarf Trevor Sinclair að eiga góðan leik. Og
kannski ýtir það við honum að andstæðingur-
inn er Sunderland þar sem félagið hefur áhuga
á að kaupa hann en vill lítið borga. Hér hefur
Sinclair svo sannarlega tækifæri til að hækka
sig í verði.“
Everton - Southampton
„Eftir mikla yfirlegu og djúpar pælingar er
niðurstaðan jafntefli. Everton er ekki með
skemmtilegustu liðum deildarinnar og hefur lið-
inu gengið afleitlega að skora. Lið Southampton
hefur aðeins verið að braggast og því er jafntefli
ekki vitlausara en hvað annað.“
Fulham - Leeds
„Þetta verður spennandi leikur og getur far-
ið hvemig sem er. Fulham er með mjög
skemmtilegt lið og greinilegt að Tigana þjálf-
ari er að búa til mjög gott knattspyrnulið.
Leeds er líka sterkt þó að það sé ekki eins
sterkt og margir halda.“ -SK
Stórsigur
Juventus
Færri áhorfendur en venjulega
leggja leið sína á Alpaleikvanginn til
að fylgjast með Juventus í meistara-
deild Evrópu en sáu sína menn valta
yfir toppliðið í Þýskalandi, Bayer
Leverkusen, í tvífrestuðum leik lið-
anna í D-riðli.
Leiknum var aftur frestað í gær
vegna þoku, eins og fyrir viku, en
ekkert bar á slíku í blíðskaparveðrinu
í Tórínó í gær.
Leverkusen hefur ekki tapaði í 14
leikjum í röð heima fyrir en að sama
skapi hefur Juventus aðeins unnið 1
af síðustu 6 leikjum sínum í itölsku
deildinni. Það kom þó ekki í veg fyrir
stórsigur Juventus, 4-0, þó svo að
leikurinn hafi verið jafnari en tölurn-
ar gefa til kynna.
David Trezeguet kom sínum mönn-
um yfir snemma í leiknum og á næsta
hálftíma fengu Þjóðverjarnir fjölda
tækifæra til að jafna leikinn og það
var gegn gangi leiksins þegar annað
markið kom.
Juventus komst svo í 3-0 rétt fyrir
hlé með marki af stuttu færi eftir
hornspyrnu og sló það Þjóðverjana al-
gerlega út af laginu. Síðari hálfleikur
var aðeins formsatriði fyrir ítalina og
bættu þeir einu marki við. -esá
Oflugt
starf SKÍ
Á blaðamannafundi Skiðasam-
bands íslands sem haldinn var á svell-
inu í Skautahöllinni í Laugardalnum
var greint frá vetrarstarfi sambands-
ins, keppendum íslands á Heimsibik-
ars- og Evrópukeppnum og að síðustu
voru undirritaðir samstarfssamning-
ar við fjöida styrktaraðila.
Aðalstyrktaraðilar SKÍ þetta
keppnistímabilið eru Landssíminn,
Samskip, Bakkavör, Flugleiðir,
Domino’s Pizza og Halti en
siðastnefnda fyrirtækið umannaðist
hönnun nýja keppnisgalla íslenska
liösins. Er búningurinn sérsniðinn af
hverjum keppanda og er hann í
fánalitum íslands ásamt því að
samspO elds og íss var ein forsendan
fyrir útliti búningsins.
Aðrir styrktaraðilar eru Nanoq,
Everest, Ingvar Helgason og Úrval
Útsýn.
Vetrarstarfið framundan er
fjölbreytt og ásamt því að kynna
íþróttina verður haldinn fjöldi móta,
farið verður í hópferð til Austurrikis
og bókin „Á skíðum 2002“ verður
gefin út. -esá