Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2001, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2001, Blaðsíða 2
22 i FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001 I>V Sport Ef þetta er rangt verða eftirmál „Þetta eru vissulega vonbrigði," sagði Geir Sveinsson, þjálfari Vals, eftir leikinn, en Geir kom inn á um miðjan seinni hálfleik og lék í vörn- inni hjá sínum mönnum. „f mínum huga var það aldrei spurning um hvort þetta væri hægt heldur hvern- ig við ættum að gera þetta. Við stóð- um vaktina vel í vörninni en feng- um á okkur —5 hraðaupphlaups- mörk strax í upphafi. En frá þeim tímapunkti er ég mjög sáttur við okkar leik. Fyrir utan erfiðan upp- hafskafla þar sem við vorum bæði of ragir og of hægir þá follum við á því af misnota of mikið af góðum fær- um. Ég vil meina að við höfum ekki verið að tapa fyrir betra liði heldur einfaldlega á eigin mistökum. Við fóllum í raun á tvennu, við nýttum það illa að vera einum fleiri og mis- notum of mikið af vitaköstum." Um rauða spjaldið á Eradze sagði Geir. „Þetta gerist auðvitað í hita leiksins en eins og þetta atvik sneri að mér frá bekknum þá var maður- inn einfaldlega að hlífa sér. Ég ætla rétt að vona það þeirra vegna að þeir hafi haft rétt fyrir sér. Ég á eft- ir að skoða þetta atvik aftur en ég get lofað því að ef þeir hafa haft rangt fyrir sér verða eftirmál af þessu af minni hálfu,“ sagði Geir að lokum. Yndislegt „Þetta var alveg yndislegt,“ sagði Bjarni Frostason, markvörður Hauka, eftir leikinn en hann varði frábærlega í leiknum. „Bikarúrslit er það skemmtilegasta sem hægt er að hugsa sér og það er frábært að vera kominn þangað. Við byrjuðum vel en svo tvíeflast þeir við að missa Eradze útaf á meðan við slök- um á. Við skutum varla á markið það sem eftir var fyrri hálfleiks." Um vítið sem Bjarni varði undir lok leiksins sagði hann. „Maður hefur ákveðna tilfmningu og svo reynir maður líka að veiða aðeins. En það var alveg ljóst að það þurfti að verja þetta víti og því kom ekk- ert annað til greina." Um úrslitaleikinn segir Bjarni. „Ég hefði helst viljað hafa þennan leik sem bikarúrslitaleik. Við spil- uðum í bikarúrslitaleik 1997 á móti KA þar sem við áttum að vera litla liðið en við komum þá vel stemmd- ir og unnum. í fyrra var það öfugt, við áttum að vinna og það var bar- átta við að ná upp stemningu og passa sig á að vanmeta ekki and- stæðinginn. Nú er að sjá hvort við getum ekki mætt með réttu hugar- fari í leikinn þó að við eigum að vinna.“ -HI Bjarni Frostason átti stórleik í marki Hauka í gærkvöidi. Margir hafa talað um að leikur Hauka og Vals í undanúrslitum bik- arkeppninnar hafi verið raunveru- legur úrslitaleikur keppninnar í þeim skilningi að sigurliðið ætti bikarinn næsta vísan. Hvort sem það mun reynast rétt eða ekki er það þó staðreynd að það var sann- kölluð bikarstemning aö Ásvöllum í gærkvöldi þegar þessi lið áttust við. Spenna, dramatík og umdeild atvik, þetta var allt að flnna i þessum leik, en það voru Haukar sem stóðu uppi sem sigurvegarar, 30-27. Það var jafnræði með liðunum framan af en í stöðunni 4-4 fékk Sig- fús tveggja mínútna brottvísun og Haukar nýttu sér það, skoruðu þrjú mörk í röð meðan hann var utan vallar og síðan þrjú í viðbót eftir að hann kom inná. En í stöðunni 9-4 gerðist umdeilt atvik. Jón Karl Björnsson brunaði upp í hraðaupp- hlaup en Roland Eradze markvörð- ur hljóp úr teignum og fyrir Jón Karl sem lenti beint á honum á fullri ferð, enda horfði hann ekki fram fyrir sig og sá Roland ekki. Góðir dómarar leiksins, þeir Guð- , jón L. Sigurðsson og Ólafur Haralds- ' son, sýndu Roland rauða spjaldið og varð hann, sem og aðrir Valsmenn, ósáttur mjög. En að mati undirrit- aðs gerðu dómararnir það eina rétta í stöðunni því þetta athæfi Rolands var stórhættulegt og hafði þann til- gang einan að stöðva manninn sem var á fullri ferð. Við þetta atvik tvíefldust Vals- menn og breyttu stöðunni úr 11-5 í 11-10 þegar þeir skelltu í lás í vörn- inni og þar með var komin spenna í leikinn aftur. Staðan í leikhléi var 13-12 Haukum í vil. í síðari hálfleik var það reynslan og frábær leikur Rúnars Sigtryggs- sonar sem tryggði Haukum sigur umfram annað. Hafnfirðingar voru með 1-3 marka forskot mestallan leikinn og þó að Valsmönnum tæk- ■ist einstaka sinnum að jafna leikinn .vantaði þá herslumuninn til að komast yfir. Reyndar fengu þeir nokkur tækifæri til þess en nýttu þau ekki og því fór sem fór. Spenn- an hélst allan síðari hálfleikinn þrátt fyrir að Haukar væru yfir all- an tímann en úrslitin réðust þegar mínúta var til leiksloka er Bjarni Frostason kórónaði stórleik sinn með þvi að verja vítakast frá Bjarka Sigurðssyni. Þegar á heildina er litið eru Haukar vel að þessum sigri komnir. Þeir höfðu frumkvæðið nánast allan leikinn og þrátt fyrir að Valsmenn hefðu afltaf átt möguleika á sigri gerðu Haukarnir alltaf nóg til að þeir kæmust ekki yfir. Bjarni Frostason átti stórleik í markinu og Rúnar Sigtryggsson fór hamförum í síðari hálfleik og gerði þá átta mörk. Þá átti Jón Karl einnig góðan leik. Valsmenn átti sína möguleika á að fá meira úr þessum leik og til marks um það þá misnotuðu þeir íjögur vítaköst í leiknum. Slikt gengur ekki á móti liði eins og Haukum. Sigfús Sigurðsson lék best Valsmanna og Pálmar Pétursson markvörður stóð sig vel við erfið skilyrði. Mörk Hauka: Rúnar Sigtryggsson 9, Jón Karl Björnsson 8/1, Halldór Ingólfsson 5/3, Aron Kristjánsson 3, Aliaksandr Shamkuts 2, Einar Örn Jónsson 2, Sigurður Þórðarson 1. Varin skot: Bjarni Frostason 28/3. Mörk Vals: Snorri Steinn Guðjónsson 7/1, Sigfús Sigurðsson 6, Freyr Brynjarsson 4, Markús Máni Michaelsson 4 /1, Bjarki Sigurðsson 4/2, Einar Gunnarsson 2. Varin skot: Roland Eradze 5/1, Pálmar Pétursson 8. -HI Eins og sjá má var ekkert gefið eftir að Ásvöllum í gærkvöldi. Hér sést Halldór Ingólfsson reyna að komast í gegnum Valsvörnina og það er engu líkara en aö hann ætli að taka Markús Mána Michaelsson með sér í gegn. DV-mynd Pjetur Bikarstemning - aö Ásvöllum þegar Haukar tryggðu sér sæti í bikarúrslitunum með sigri á Val, 30-27

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.