Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2001, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001
23
I>V
Sport
Framarar
komnir í gang
Fram er komið í úrslitaleikinn í
SS-bikarnum eftir góðan sigur á
Stjörnunni i Garðabænum í gær-
kvöld. Stjarnan hafði eins marks for-
skot í hálfleik, 13-12, en vörn Framara
lét til sín taka í seinni hálfleik með
Sebastian Alexandersson í ham fyrir
aftan og skoruðu heimamenn aðeins
sex mörk í seinni hálfleik. Lokatölur
urðu 19-26 en sjö marka sigur gefur
kannski ekki alveg rétta mynd af
leiknum sem var spennandi þar til
þegar um sjö mínútur voru eftir. Þá
sigu gestirnir fram úr og skoruðu
hvert markið á eftir öðru.
Hjálmar skoraði grimmt
Stjarnan brá á það ráð að taka
Björgvin Björgvinsson úr umferð i
byrjun leiks þar sem hann hafði verið
að leika vel að undanfórnu. Vörnin
virtist hins vegar hafa litlar áhyggjur
af Hjálmari Vilhjálmssyni sem skor-
aði fyrstu þrjú mörk Fram i leiknum.
Hinum megin var Sæþór Ólafsson að
fmna David Smedsvik á línunni og
Smedsvik brást ekki bogalistin. Birk-
ir fvar Guðmundsson varði mjög vel
framan af í fyrri hálfleik sem varð til
þess að Stjaman leiddi með 1-3 mörk-
um. í stöðunni 7M fóru varnarmenn
Fram að týnast útaf í tvær mínútur og
útlitið ekki gott. Þeir bitu þó í skjald-
arrendurnar og með mikilli baráttu
tókst þeim að jafna, 8-8, þrátt fyrir að
vera einum færri. David Kekelia sá þó
til þess að Stjarnan var yfir í hálfleik,
13-12, með tveimur góðum mörkum.
Vörnin small saman
Framarar ná aftur að jafna, 14-14,
og var nánast jafnt á öllum tölum þar
til 10 mínútur voru eftir. Þá lokaði
vörn Fram algjörlega á heimamenn,
sem ásamt ráðleysi í sóknarleik
Stjömunar gerði út um leikinn. í kjöl-
farið fengu Framarar hraðaupphlaup
og Róbert 'Gunnarsson og Hjálmar
fóru á kostum í sókninni.
Þeir Róbert og Hjálmar áttu frábær-
an leik og getur Róbert þakkað félaga
sínum Björgvini fyrir mörg mörkin
en Björgvin var duglegur að mata Ró-
bert allan leikinn. Hjálmar skoraði
mörg falleg mörk fyrir utan og var að
spila einn sinn bestá leik í vetur.
Þrátt fyrir að skora „aðeins" fjögur
mörk þá átti Björgvin stóran þátt í
sigri Fram og er hann að sýna mikinn
stöðuleika í nýju hlutverki sem
skytta. Þá átti Sebastian góðan leik í
markinu og varði góða bolta.
Framliðið hefur verið að koma til
að undanfórnu eftir slaka byrjun í
haust. Mikill stígandi er í leik liðsins
og ekki ósennlegt að liðið sé komið í
gang og allt saman byrjar þetta í vörn-
inni.
Eftir að hafa spilað ágætan sóknar-
leik í fyrri hálfleik þá var ráðleysi
allsráðandi í þeim seinni. Framarar
lokuðu á Smedsvik á línunni og að-
eins fjögur mörk komu utan af velli.
Þá var Stjarnan einum færri í 10 mín-
útur í seinni hálfleik og hjálpaði það
ekki.
Mörk Stjörnunar: Ronnie Smeds-
vik 5, Zoltan Belany 5/2, Vilhjálmur
Halldórsson 4/1, David Kekelia 3, Sæ-
þór Ólafsson 2.
Varin skot: Birkir ívar Guðmunds-
son 17/2, Árni Þorvarðarson 2.
Mörk Fram: Hjálmar Vilhjálmsson
10, Róbert Gunnarsson 9/2, Björgvin
Þór Björgvinsson 4/1, Þorri Bjöm
Gunnarsson 1, Hafsteinn Ingason 1,
Maxim Fedieovkine 1.
Varin skot: Sebastian Alexanders-
son 21/1. -Ben
Liðsmenn Manchester United fagna hér einu marka sinna gegn Boavista i
gærkvöldi. Reuters
Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi:
United og Bayern
í góðum málum
- Barcelona slapp vel gegn Galatasaray
Þorri Björn Gunnarsson reynir hér að komast fram hjá Bjarna Gunnarssyni. Þorri Björn og félagar hans í Fram höfðu betur í leiknum og eru komnir í
úrslitaleikinn. DV-mynd Pjetur
Vörnin small í seinni hálfleik
Heimir Ríkharðsson, þjálfari
Fram.
Heimir Ríkharðsson, þjálfari
Fram, var að vonum sáttur með að
vera kominn í úrslitaleikinn og
einnig með þann stiganda sem hef-
ur veriö hjá liðinu að undanfómu.
„Það er framar björtustu vonum að
vera kominn í úrslitaleikinn. Þetta
er samstilltur hópur sem ég er með.
Það eru margir nýir leikmenn en
menn hjálpast allir að og allir leggja
sig vel fram. Við lentum í vandræð-
um vamarlega í fyrri hálfleik en í
seinni hálfleik small vömin saman.
Vörnin hefur verið góð að undan-
förnu og þegar Sebastian er í ham
fáum við nokkur hraðaupphlaup.
Það hefur verið mikill stígandi í
okkar leik frá því þegar við spiluð-
um við Paris SG þó svo að allir leik-
ir hafi ekki unnist. Við höfum gam-
an af því sem við erum að gera og
ætlum að gera það áfram. Við feng-
um frábæran stuðning frá áhorfend-
um sem fjölmenntu á leikinn og er-
um við þakklátir fyrir það,“ sagði
Heimir við DV-Sport eftir leikinn.
Viss um aö þetta sé komið
hjá okkur
Róbert Gunnarsson hefur verið
að leika einstaklega vel að undan-
fomu og gerði enga undantekningu
í þessum leik. „Þetta var virkilega
sætt og hjálpar án efa upp á fram-
haldið. Björgvin var að fmna mig
vel á línunni og hann sýndi það að
hann er frábær leikmaður. Þá small
vömin vel saman í seinni hálfleik
og Sebastian varði vel. Ég var alltaf
að bíða eftir að við myndum ná góð-
um kafla og ég var farinn að halda
að hann kæmi ekki. Lokatölurnar
gefa kannski ekki alveg rétta mynd
af leiknum og var Stjaman að berj-
ast vel. Ég er viss um að þetta sé
komið hjá okkur núna og við erum
á réttri leið,“ sagði Róbert.
En hverjir eru möguleikar Fram
í sjálfum úrslitaleiknum gegn
sterku liði Hauka? „Leikurinn byrj-
ar 0-0 og fyrir fram eigum við
jafnmikla möguleika og þeir.“
-Ben
Man. Utd og Bayern Munchen eru
í góðri stöðu eftir leiki gærdagsins i
A-riðli meistaradeildarinnar og
bendir flest til þess að þessi tvö lið
fari áfram í átta liða úrslit. Man.
Utd svaraði gagnrýnendum sínum
fullum hálsi með frábærum leik og
sannfærandi sigri gegn Boavista.
Portúgalarnir voru reyndar líflegri
framan af en síðan ekki söguna
meir og tvö mörk frá Ruud van Ni-
stelrooy og eitt frá Laurent Blanc
tryggðu sigurinn. Þá vann væng-
botið lið Bayern góðan útisigur á
Nantes, 0-1.
I B-riðli er Barcelona í góðri stöðu
eftir leiki gærdagsins en komst þó í
hann krappan gegn Galatasaray sem
komst 2-0 yflr á Nou Camp. Þeir
hresstust hins vegar töluvert í síðari
hálfleik og náðu að bjarga stigi með
tveimur mörkum frá Javier Daviola.
ÍRóm gerðu AS-Roma og Liverpool
markalaust jafntefli í tilþrifalitlum
leik þar sem Liverpool var betri aðil-
inn í fyrri hálfleik en Roma í þeim
síðari og því verða jafntefli að teljast
sanngjörn úrslit. Sókn Roma var bit-
laus og sterk vörn Liverpool átti I
litlum vandræðum með sóknartil-
burði þeirra auk þess sem Jerzy
Dudek markvörður varði vel þegar
reyndi á hann. -HI
Xf meistarapeildin
A-riðill:
Man. Utd-Boavista .....3-0
1-0 van Nistelrooy (31.), 2-0 Blanc
(55.), 3-0 van Nistelrooy (62.)
Nanets-Bayem Miinchen . . . O-l
0-1 Pauolo Sergio (65.)
Staðan:
Man. Utd 2 11 0 4-1 4
Bayern 211 0 2-1 4
Boavista 2 10 1 1-3 3
Nantes 2 0 0 2 0-2 0
B-riðiU:
AS Roma-Liverpool . . 0-0
Barcelona-Galatasaray . 2-2
0-1 Karan (5.), 0-2 Flerquin (41. Saviola (49.), 2-2 Saviola (66.) ), 1-2
Staðan:
Barcelona 2 11 0 5-3 4
Galatasaray 2 0 2 0 3-3 2
AS Roma 2 0 2 0 1-1 2
Liverpool 201 1 1-3 1