Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2001, Blaðsíða 5
24
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001
25
Sport
DV DV
Sport
Menn fengu uppvakningu
- sagði Friðrik Stefánsson, leikmaður DV-Sport í nóvember
Tryggði sætið í
úrslitaleiknum
Friðrik Stefánsson var lykil-
rnaðurinn á bak við frábæran
nóvembermánuð Njarðvikinga en
liðið vann alla níu leiki mánaðar-
ins og tryggði félaginu fyrsta
Kjörísbikarinn frá upphafi. Frið-
rik tryggði liði sínu sæti í úrslita-
leiknum með sigurkörfu í úrslita-
leiknum og tók síðan 20 fráköst í
úrslitaleiknum gegn Keflavík, þar
af níu í sókn. í átta deildar- og
Kjörísbikarleikjum nýtti Friðrik
56% skota sinna, tók 12,8 fráköst
að meðaltali í leik, þar af 4,8 i
sókn og skoraði 11,9 stig i leik.
Friðrik Stefánsson, Njarðvik, var
besti leikmaður nóvembermánaðar
í úrvalsdeild karla í körfuknattleik
að mati blaðamanna DV-Sport.
„Það hefur gengið vel bæði hjá mér
og Njarðvíkurliðinu í nóvember og
við erum á ágætissiglingu eftir að
byrjunin hafði ekki verið eins góð
og við höfum vonast eftir.“
Friðrik telur að tapið gegn Kefl-
víkingum hafi verið það sem til
þurfti til að snúa blaðinu við. „Sá
leikur var góður prófsteinn á
karakterinn í liðinu. Þarna fengu
menn smá-uppvakningu og menn
fóru að spila betur eftir þetta.“
Njarðvíkingar unnu Kjörísbik-
arinn í síðasta mánuði í fyrsta
sinn í sögu félagsins og kom Frið-
rik þar nokkuð við sögu. Hann
skoraði m.a. sigurkörfuna i undan-
úrslitaleiknum á móti KR. „Ég var
réttur maður á réttum stað á rétt-
um tíma. Það var alltaf stefnan að
taka titilinn en maður bjóst
kannski ekki við að úrslitaleikur-
inn yrði jafn óspennandi og raunin
varð, þ.e. að við skyldum vinna
Keflavik með 40 stigum."
Friðrik segir að framhaldið legg-
ist vel í sig. „Við vorum dálítið
værukærir í byrjun tímabilsins og
töpuðum m.a. fyrir Hamri í Hvera-
gerði og Keflavík heima. Nóvember-
mánuður er hins vegar búinn að
vera frábær hjá okkur og stefnan er
að halda okkar róli og vera í öðru af
tveimur efstu sætunum um jólin.“
-HI
Friðrik Ragnarsson, besti þjálfarinn í nóvember hjá
DV-Sport í 1. deild karla í körfuknattleik:
Spark í rassinn
að tapa stórt
Njarðvíkurliðið undir stjórn Frið-
riks Ragnarssonar hefur verið á
mikilli siglingu í nóvembermánuði.
Ekki nóg með að liðið hafi unniö
alla leiki sína í úrvalsdeildinni
heldur vann liðið fyrirtækjabikar-
inn, sem nú heitir Kjörísbikar, í
fyrsta sinn í sögu félagsins.
„Nóvembermánuður er búinn að
vera mjög góður og við höfum unn-
ið tíu leiki í röð,“ segir Friðrik.
„Við höktum dálitið strax í byrjun
og urðum hreinlega að fara að spýta
í lófana áður en þetta færi hreinlega
að lita illa út. Menn hafa hins vegar
svarað kallinu mjög vel og ég er
ánægður með hvemig þeir hafa spil-
að í nóvembermánuði."
Friðrik nefnir að tapið stóra fyrir
Keflavík hafi sviðið sárt. „Það var
kannski það spark í rassinn sem við
þurftum. Og það var kannski gott
mál fyrst við þurftum að tapa á ann-
að borð að fá alvöru rassskell til að
koma mönnum alveg niður á jörð-
ina.“
Um deildina almennt sagði Frið-
rik: „Þau þrjú lið sem nú eru efst og
jöfn, Keflavík, Njarðvik og KR,
skera sig úr að mínu mati. Þau hafa
verið áberandi sterkust framan af
en það gæti þó alltaf breyst. Ég
hafði aldrei áhyggjur af því að KR
myndi stinga af þrátt fyrir góða
byrjun. Öll þessi lið geta misst fót-
anna á slæmum degi og það hefur
reyndar verið að gerast í vetur. En
þessi þrjú lið munu berjast um
deildarmeistaratitilinn. Svo getur
alltaf allt gerst í úrslitakeppninni.
ÍR-ingar hafa hins vegar komið mér
á óvart því ég átti von á þeim sterk-
ari. Þá eru Þórsarar með mjög
skemmtilegt lið og Hjörtur er að
gera góða hluti með liðið,“ segir
Friðrik að lokum. -HI
| .ZfKSKETBALE
í i
Nafnarnir og Njarðvíkingarnir Friðrik Ragnarsson og Friðrik Stefánsson, besti þjálfari og besti leikmaður nóvembermánaðar
í úrvalsdeild karla í körfuknattleik. DV-mynd Halldór
farnjí mtinnn ;
jTríTýTt
f t y Á
Ragnheiður Stephensen
Ragnheiður gerði 14 mörk að meðaltali í
tveimur deildarleikjum Stjömunnar í nóvember
og var í báðum leikjunum kosin best á vellinum
af blaðamanni DV-Sport, útnefning sem hún
hefur alls hlotið fjórum sinnum í átta leikjum
vetrarins. Ragnheiður nýtti 17 af 26 skotum utan
af velli og 11 af 12 vítum i deildarleikjunum sem
gerir 65% skotnýtingu og 92% vítanýtingu.
Leikmaður nóvember í 1. deild kvenna:
Mitt hlutverk
er að skora
- segir Ragnheiður Stephensen hjá Stjörnunni
„Jú, því er ekki að neita að
okkur gekk flest í haginn í sl.
mánuði og það er bara vonandi
að liðið haldi áfram á sömu braut
það sem eftir er mótsins. Það er
mikið eftir enn og við þurfum að
hafa fyrir því að halda okkur í
því sæti sem við erum í núna.
Við erum samt að leika vonum
framar,“ sagði Ragnheiður Steph-
ensen, leikmaður Stjörnunnar I
Garðabæ, en hún var valin leik-
maður nóvembermánaðar í 1.
deild kvenna.
Hún var innt eftir þvi hverju
hún þakkaði þetta góða gengi
liðsins fram að þessu í deildinni.
Hún sagði hópinn vera einfald-
lega góðan og það væri engin
drottning í liðinu. Það væri bara
sterk liðsheild sem skilaði liðinu
í toppsætið.
Markmiöiö alltaf aö vera í
toppbaráttunni
„Markmiðið hjá okkur eins og
reyndar alltaf er að vera í topp-
baráttunni. Við settum markið
fyrir mótið að vera í toppbaráttu
en bjuggumst allt eins við því að
það tæki lengra tíma að slípa lið-
ið saman og stilla saman strengi.
Deildin er enn fremur sterkari en
ég átti von á. Ég held eins og mál-
in líta út i dag að það verði auk
okkar Haukar, Grótta/KR og ÍBV
sem berjast um íslandsmeistara-
titilinn," sagði Ragnheiður.
Bjartsýn á framhaldið í
deildinni
Hún sagði að ef ekkert kæmi
upp á hjá framangreindum liðum
væri það sín sannfæring að þessi
fjögur lið eigi eftir að berjast hat-
rammri baráttu um titilinn.
- Ert þú sjálf ánægð með þína
spilamennsku til þessa?
„Svona á heildina litið er ég
ánægð með hana. Auðvitað koma
upp atvik og leikir sem ég er ekki
sátt með eins og gengur og gerist
hjá öllum. Mitt hlutverk í liðinu
er að skora mörk og ég hef verið
dugleg við það. Það er alltaf gam-
an að skora en það sem skiptir þó
öllu máli er að leikirnir vinnist.
Markmiðið er að halda liðinu á
sömu braut og ef við komumst í
gegnum deildina áfallalaust hvað
meiðsli og annað áhrærir get ég
ekki annað en verið bjartsýn á að
við förum alla leið,“ sagði Ragn-
heiður Stephensen.
-JKS
—
Siggeir Magnússon, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í handknattleik, ánægður með
viðurkenningu sína fyrir nóvember. DV-mynd Pjetur
Siggeir Magnússon:
Þetta hefur
smollið
vel saman
„Ef leikurinn við ÍBV er und-
anskilinn hefur liðið verið að
leika vel og ég er mjög ánægður
með stelpurnar. Það væri bara
hræsni ef ég viðurkenndi það
ekki. Þetta hefur smollið vel
saman en hræddur er ég um að
róðurinn verði þyngri eftir sem
á mótið líður. Mér sýnist að önn-
ur lið séu að bæta sig vel og get
ég í þvi sambandi bent á ÍBV og
einnig á Haukana og Gróttu/KR.
Mótið á eftir að verða mjög
spennandi og skemtilegt," sagði
Siggeir Magnússon. Hann var út-
nefndur þjálfari nóvembermán-
aðar í 1. deild kvenna en Siggeir
þjálfar Stjörnuna sem trónir í
toppsætinu í deildinni.
Nýta pásuna eins og
kostur er
- Mannskapurinn er til staðar
til að gera góða hluti í vetur ...
„Það má segja það og liðið er
góð blanda af efnilegum og
reyndari leikmönnum. Nú stytt-
ist í pásuna og hana ætlum við
að nýta eins og kostur er. Það
fer samt í hönd erfiður tími þar
sem leikmenn eru margir hverj-
ir í prófum. Það verður umfram
allt að hafa þetta skemmtilegt og
það er markmiðið hjá okkur að
liðið mæti öflugt til leiks eftir
áramótin," sagði Siggeir Magn-
ússon.
-JKS
Höfum haldið okkar striki
„Þetta hefur gengið vel hjá okkur,
við höfum haldið okkar striki og
ætlum að gera það áfram. Það er
góð liðsheild og góður andi í lið-
inu,“ sagði Halldór Ingólfsson, leik-
maður nóvembermánaðar að mati
blaðamanna DV-Sport.
Hann segir það síðan hafa verið
toppinn á tímabilinu að leika gegn
Barcelona. „Það var frábært að fá að
spila við eitt besta félagslið í heimi
og gera það sem maður gerði þar.
Maður þurfti að taka af skarið og
tókst það vel. Það var bara leiðin-
legt að við skyldum ekki vinna
seinni leikinn."
Halldór hefur ekki áhyggjur af að
þessi langa sigurganga sé á enda. „Á
meðan við hugsum bara um næsta
leik og látum aðra leiki ekki skipta
máli strax þá á okkur eftir að ganga
vel. Við ætlum okkur að standa okk-
ur vel, fara alla leið í deildinni og
taka hvem leik fyrir sig.“ -HI
Halldór með 26 mörk í
tveimur Evrópuleikjum
Halldór Ingólfsson skoraði 23 mörk í þremur
deildarleikjum (7,7 að meðaltali) og 26 mörk i tveimur
Evrópuleikjum gegn Barcelona (13 að meðaltali) í
mánuðinum. Halldór gerði meðal annars 14 mörk í
útileikjum í Barcelona. Halldór nýtti 13 af 21 skoti utan
af velli og 10 af 12 vítum í deildarleikjunum sem gerir
62% skotnýtingu og 83% vítanýtingu.
-ÓÓJ
Halldór Ingólfsson, leikmaöur nóvembermánaöar hjá Viggó Sigurösson, besti þjálfari nóvembermánaöar.
DV-Sport í 1. deild karla í handknattleik. DV-mynd Pjetur DV-mynd Pjetur
Viggó Sigurðsson, besti þjálfarinn í nóv-
ember hjá DV-Sport í 1. deild karla:
Evrópuleikurinn
toppaði allt
Viggó Sigurðsson hefur náð frá-
bærum árangri með Haukaliðið i
vetur, rétt eins og í fyrra. Liðið hef-
ur enn ekki tapað leik í deildinni og
þó að liðið hafl ekki komist eins
langt i Evrópukeppninni og í fyrra
var framganga liðsins þar mjög góð.
Viggó er því vel að þessum verð-
launum kominn.
„Það hefur gengið mjög vel i nóv-
ember og reyndar í allan vetur. Ég
held að megi þakka það fyrst og
fremst því að leikmenn hafa lagt
mjög hart að sér og við komum vel
undirbúnir til leiks. Hjá Haukum
æfa allir á fullu og það vantar aldrei
neinn á æfingar. Þetta skilar sér.“
Haukarnir léku í síðasta mánuði
við Barcelona í Evrópukeppni fé-
lagsliða og sagði Viggó það hafa ver-
ið skemmtilega upplifun. „Það fer í
sarpinn hjá okkur að hafa farið í
gegnum skemmtilegt prógramm í
Evrópukeppninni í fyrra og þetta
toppaði það allt þó að við hefðum
viljað fara lengra. En það er mjög
erfitt gegn svona liði auk þess sem
við megum ekki við því að lykil-
menn eins og Aron Kristjánsson
vanti i svona keppni. Því er hins
vegar ekki að leyna að við ætluðum
okkur að fara lengra í keppninni.
Það er samt ótrúlega dýrmæt
reynsla að etja kappi við eitt besta
lið Evrópu og sjá um leið hvar við
stöndum getulega séð. Ég held að
menn geti alveg borið höfuðu hátt
og menn sjá að það er möguleiki að
ná mjög góðum árangri áfram í Evr-
ópukeppninni."
Setur svona sigurganga ekki
aukna pressu á ykkur?
„Jú, vissulega. Þetta er náttúrlega
ótrúleg velgengni, m.a. með því að
vinna í fyrra fleiri leiki í röð en
hafði nokkru sinni gerst áður hjá
Haukum. Við erum ekki að spila
síður núna og ég er að sjálfsögðu
stoltur af því. Við misstum menn
eins og Óskar Ármannsson og Petr
Bamruk út úr hópnum en fengum
Aron Kristjánsson í staðinn og það
tekur tíma fyrir nýja leikmenn að
komast inn í hópinn, sérstaklega
leikstjórnanda. Það hefur hins veg-
ar gengið mjög vel. Ég held hins
vegar að við þurfum ekki að setja á
okkur pressu þó að við séum að
vinna. Pressan hlýtur líka að fara
yfir á hin liðin.“
Hvernig hefur deildin komiö
þér fyrir sjónir í vetur?
„Leikirnir hafa verið misjafnir,
sumir hafa verið ágætir og sumir
slakir. Það var kannski við því að
búast þegar fjölgað var í deildinni.
En það eru margir ungir leikmenn
að koma upp og það skilar sér síðar.
Ég sakna KA-manna úr toppbarátt-
unni en þeir hafa orðið fyrir gífur-
legum áföllum í vetur. Valsmenn
hafa komið mjög á óvart þvi þeir
misstu marga reynda leikmenn úr
hópnum og fengu í raun lítið í stað-
inn. Ég bjóst því ekki við þeim
svona öflugum fyrir fram og þeir
eru í mínum huga spútniklið deild-
arinnar. Þórsarar hafa einnig kom-
ið gífurlega á óvart. Þeir eru gífuleg-
ar seigir og duglegir, spila hraðan
handbolta og skora mikið, og það er
óhætt að segja að þeir hafi verið
vinningur fyrir deildina."
Verður ekki sífellt erfiðara að
halda þessari velgengni til
streitu?
„Ég tek nú bara fyrir einn leik í
einu og er ekki að horfa mikið á
heildardæmið. Við höfum ekki unn-
ið neitt enn þá og verðum að halda
okkur á jörðinni til að geta innbyrt
þá titla sem eru i boði. Við munum
þurfa að hafa mikið fyrir þvi. Ég sé
okkur alls ekki taplausa í vetur en
ætla heldur ekki að tapa leik fyrir
fram af því við höfum unnið svo
mikið. Við eigum að geta hampað
einhverjum titlum í vetur en það er
slegist um þá og þá má lítið út af
bregða til að illa fari. Það má t.d.
ekki missa lykilmenn í meiðsli eins
og gerst hefur hjá KA. Það er því
ekkert sjálfgefið. Við vinnum bara
okkar vinnu fyrir hvern leik, stefn-
um þar á sigur og sjáum svo hver
staðan verður þegar upp verður
staðið," sagði Viggó Sigurðsson að
lokum. -HI