Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.2001, Síða 7
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2001
27
DV
Sport
Þýski handboltinn:
Essen
skellti
Kiel
Essen með þá Patrek Jóhann-
esson og Guðjón Val Sigurðsson
innanborðs gerði sér lítið fyrir
og lagði Kiel að velli í þýska
handboltanum í gærkvöld. Leik-
ið var í Kiel að viðstöddum 10500
áhorfendum og sigraði Essen í
æsispennandi leik, 32-33, en í
hálfleik leiddi Kiel, 17-16.
Patrekur skoraði fimm mörk
fyrir Essen og Guðjón Valur eitt
mark. Úkraínumaðurinn Veyky
gerði 10 mörk fyrir Essen.
Ólafur Stefánsson skoraði sjö
mörk fyrir Magdeburg sem sigr-
aði Flensburg, 33-29, á heima-
velli en í hálfleik var staðan jöfn,
14-14. Júgóslavinn Nenad Perun-
icic skoraði tíu mörk fyrir
Magdeburg.
Úrslit í öðrum leikjum urðu
þau að Willstatt tapaði á heima-
velli fyrir Nordhorn, 22-33,: Post
Schwerin tapaði fyrir Lerhgo,
27-34, á heimavelli, GummerS'
bach og Bad Schwartau gerðu
jafnteíli, 24-24, og Eisenach sigr-
aði Wallau Masenheim, 21-17.
Kiel er í efsta sætinu með 24
stig að loknum 15 leikjum.
Lemgo og Essen er í 2.-3. sæti en
eiga bæði leik inni á Kiel. Flens-
burg er í flórða sæti með 21 stig
og Magdeburg í því fimmta með
19 stig eftir 15 leiki.
-JKS
HM kvenna:
Stærsti sigur
Norðmanna
Norska kvennalandsliðið í
handknattleik vann sinn stærsta
sigur i sögunni þegar liðiö sigr-
aði Úrúgvæ, 48-11, í riðlakeppni
heimsmeistaramóts landsliöa á
Ítalíu í gærkvöld.
Úrslit leikja í gærkvöld:
A-riðill:
Holland-Frakkland...........21-22
Kína-Úkraína . .............32-29
Makedónía-Danmörk ..........22-31
B-riðill:
Angóla-Rúmenía..............28-27
Kongó-Ungverjaland..........15-35
Spánn-Sviþjóð ..............24-27
C-riðill:
Austurríki-Rússland.........20-27
Japan-Júgóslavía............18-35
Grikkland-Kórea ............12-27
D-riðiU:
Brasilía-Slóvenía ..........23-36
Úíúgvæ-Noregur .............11-48
Túnis-Ítalía ...............20-25
-JKS
NBA-DEILDIN
Úrslit í nótt:
Denver-Boston............. 8095
Johnson 16, Van Exel 16, Lenard 14 -
Pierce 35, Walker 28, Johnson 10
Chicago-Orlando..........74-102
Mercer 15, Fizer 11, Anthony 10 -
Miller 21, Hunter 17, McGrady 14
San Antonio-Atlanta .... 120-112
Smith 29, Duncan 21, Bowen 21 -
Terry 22, Kukoc 22, Rahim 18
Seattle-Detroit...........91-95
Lewis 21, Payton 21, Barry 17 - Atkins
23, Stackhouse 19, Williamson 17
Phoenix-New Jersey.......87-106
Marion 22, Marbury 15, Delk 14 -
Kittles 24, Martin 22, Van Horn 19
DaUas-LA Lakers...........94-98
Nowitzki 33, Griffin 23, Nash 13 -
O'Neal 46, Bryant 19, Fox 8
Philadelphia-Golden State . 87-93
Harpring 25, Iverson 23, Coleman 14 -
Hughes 22, Jamison 19, Dampier 12
Örn Arnarson, fremsti sundmaður landsins.
Sundkppinn Örn Arnarson:
„Langar mest í
eitthvað í
búið í jólagjöf"
Örn Arnarson sundkappi er
þessa dagana að hefja æfingar að
nýju eftir þrálát meiðsli. Hann
sýnir á sér hina hliðina í DV-
Sporti í dag.
Fullt nafn: Örn Arnarson.
Aldur: 20 ára.
Maki: Á lausu eins og er.
Bifreið: Toyota Celica, árgerð 2000.
Atvinna: Sundið og vinn með í
Speedo-umboðinu.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Eng-
inn sérstakur kemur upp í hugann.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Þossi á
Radio.
Uppáhaldsmatur: Nautasteik, eins
og pabbi grillar hana.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Fri-
ends. Bíð spenntur eftir nýju serí-
unni.
Fallegasta kona sem þú hefur
séð: Sara Michelle Gellar, leikur í
Blóðsugubaninn Buffy.
Uppáhaldstímarit: Swimming
World.
Uppáhaldsleikari íslenskur:
Laddi.
Uppáhaldsleikari erlendur: Bruce
Willis.
Uppáhaldssöngvari íslenskur:
Páll Rósinkrans.
Uppáhaldssöngvari erlendur: Bob
Marley.
Uppáhaldshljómsveit íslensk: Sál-
in hans Jóns míns og Botnieðja.
Uppáhaldshljómsveit erlend: U2.
Hlynntur eða andvígur rlkis-
stjórninni: Frekar hlynntur en
ekki.
Hlynntur eða andvígur meiri-
hluta R-listans í borgarstjóm:
Mjög hlynntur öllu sem viðkemur
bæjarstjórn Hafnarfjarðar sem gert
heíúr mikið fyrir sundið.
Hlynntur eða andvígur því að ís-
land gangi í ESB: Hlutlaus.
Uppáhaldsstjórnmálamaður ís-
lenskur: Enginn þar sem ég fylgist
ekki með stjórnmálum.
Uppáhaldsstjórnmálamaður er-
lendur: Sama svar.
Uppáhaldstónlistarmaður ís-
lenskur: Magnús Kjartansson.
Uppáhaldstónlistarmaður erlend-
ur: Bono.
Uppáhaldsfélag í enska boltan-
um: Manchester United. Kemur illa
út í augnablikinu en stendur til
bóta.
Uppáhaldsleikmaður í NBA-
deildinni: Juan Sebastian Veron.
Eftirminnilegur samherji í
íþróttunum: Allir sem ég hef æft
með undanfarin ár.
Eftirminnilegur andstæðingur í
íþróttunum: Eðvarð Þór Eðvarðs-
son.
Besti íþróttamaður á íslandi í
dag: Þeir eru margir hérlendis og
erlendis. Treysti mér ekki til að
gera upp á milli.
Hvað langar þig mest að fá í jóla-
gjöf: Mig langar í eitthvað í búið
þar sem ég er að flytja í kjallarann
heima hjá mér. -SK
Bruce Willis er uppáhaldsleikari Páll Rósinkrans er uppáhalds-
sundkappans. söngvari Arnar.
Hin hlidin
Stærri en nokkru sinni fyrr, 192 blaðsíður.
Allt sem gerðist á árinu: íslandsmótið,
bikarkeppnin, landsleikirnir, Evrópuleikirnir,
atvinnumennimir erlendis og fjölmargt fleira.
Lifandi frásagnir af leikjum.
Fjöldi mynda af leikmönnum og liðum.
Viðtöl við Gunnlaug Jónsson, Ásgeir
Sigurvinsson og Margréti Ákadóttur.
Samvinna við Knattspyrnusamband (slands
um birtingu allra úrslita í öllum KSÍ-mótum á árinu.
Fjölbreytt tölfræði um lið og leikmenn.
Besta heimild sem völ er á um
íslenska knattspyrnu.
>) Skjaldborg BÓKAÚTGÁFA
Gænsásvegi 14 • 108 Reykjavík • Sími586-2400 • Fax: 588 8994
íslensk knattspyrna 2001