Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Blaðsíða 8
26 MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001 Sport DV Leikmaður helgarinnar: Jermain Defoe hjá West Ham United Lán í láni fyrir West Ham Hann er búinn að tryggja West Ham íjögur mikilvæg stig á þremur dögum og hefur skorað alls íjögur mörk í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að hafa aðeins ijórum sinnum byrjað inn á. Sigurmark hans gegn Manchester un helgina tryggði fyrst deildarsigur Hammers á Old Trafford frá 1986 og í þessari fyrstu heimsókn sinni á Old Trafford hélt hann þeim vana sínum að skora í fyrsta leik, nokkuð sem hann hefur afrekað hvað eftir annað. Hann er Jermain Defeo sem tók að- eins sjö mínútur aö skora í fyrsta leik sínum með West Ham í 1-0 sigri á Walsall i enska deildarbikamum í fyrravetur, eina leiknum sem hann lék í búningi West Ham áður en Harry Redknapp lán- aði drenginn til síns gamla félags, Bourne- mouth. Hann er Jermain Defoe sem skoraði i tíu fyrstu leikjum sinum með Bournemouth í ensku 2. deildinni (sem er met) og gerði alls 18 mörk i 29 deild- arleikjum sem hann spilaði fyrir The Cherries á lánstímanum. Hann er Jermain Defoe sem tók að- eins þrjár sekúndur að skora fyrsta mark sitt fyrir enska 21 árs landsliðið, það fyrsta af tveimur í 4-0 sigri á Hollandi. Alls gerði Defoe fimm mörk fyr- ir enska 21 árs lands- liðið þegar það tryggði sig inn á Evr- ópumeistaramótið og vann sér inn stór hrósyrði frá þjálfaran- um David Platt. „Hann getur farið alla leið í boltanum. Mér líkar alit við hann og get ekki enn fundið galla hjá honum,“ sagði Platt um drenginn. Hann er Jermain Defoe sem var upp- alinn hjá nágrönnunum í Charlton en West Ham nældi í hann í júní 1999, for- ráðamönnum Charlton til lítillar ánægju. West Ham var gert að greiða 245 milljónir íslenskra króna þrátt fyr- ir að Defoe hefði aldrei leikið fyrir að- allið Charlton. Hann er Jermain Defoe sem hefur heillað þjálfara og stjóra með metnað sínum og stefnufestu og var ánægður og sáttur að vera lánaður niður i 2. deild þar sem hann öðlaðist dýrmæta reynslu sem nýtist honum og liði West Ham vel í vetur. Það var því sannarlega lán í láni fyr- ir þetta Lundúnalið að Jermain Defoe fékk að finna sig í herbúðum Bour- nemouth í fyrra og er fyrir bragðið orðinn einn af bestu ungu framherjum ensku deildarinnar í dag. -ÓÓJ Jermain Defoe Fæddur: 7. október 1982. Hæð: 170 cm. Þyngd: 65 kg. Lið: Charlton, Bournemouth (í láni), West Ham. Landsleikir/Mörk: engin. ENGLAND mK --------------------- Úrvalsdeildin í gær: Arsenal-Aston Villa....3-2 0-1 Paul Merson (21.), 0-2 Steve Stone (34.), 1-2 Sylvain Wiltord (47.) 2-2 Thierry Henry (72.) 3-2 Thierry Henry (72.). Ipswich-Newcastle............O-l O-l Nolberto Solano (20.) Sunderland-Chelsea...........0-0 Blackbum-Leeds...............1-2 0-1 Harry Kewell (53.) , 0-1 Harry Kewell (62.). 1. deildin í gær: { gær var dregið í 3. umferð ensku bikarkeppn- innar en það er fyrsta umferðin þar sem úrvals- deildarliðin koma til leiks. Stórleikur umferðarinn- ar er viðureign Aston Villa og Manchester United á Villa Park. Núverandi bikarmeistarar Liverpooi fá Birmingham í heimsókn og takist Stoke á að slá Halifax út þá mætir liðið Everton á Brittania. Eftirtalin lið drógust saman: Stock- port-Bolton, Wimbledon-Middlesbrough, Watford-Arsenal, Manchester City-Swindon, Hali- fax eða Stoke-Everton, Wycombe-Fulham, Charlton-Blackpool, Sheffield United-Nottingham Forest, Leicester-Mansfield, Chesterfield eða Sout- hend-Tranmere, Derby-Plymouth eða Bristol Stórleikur á Vi Park í bikarnu gegn Chelsea. Eiður Smári Guðjohn- sen var í byrjunarliði Chelsea en var skipt út af á 89. mínútu. „Hann bjargar okkur vanalega og vinnur fleiri leiki fyrir okkur en nnkknr annar dögum,“ sagði Peter Reid, stjóri Sund- erland, um misheppnaða vítið hjá Phillips sem Carlo Cudicini varði. -ÓÓJ Rovers, Brighton-Preston, Grimsby-York Rother- ham-Southampton, Bumley-Canvey Island, Miilwall-Scunthorpe, Cheltenham-Oldham, Darl- ington-Peterborough, Walsall-Bradford, Norwich-Chelsea, Macclesfield-West Ham, Exet- er eða Dagenham & Redbridge-Ipswich, Portsmouth-Leyton Orient, Liverpool-Birming- ham, Coventry-Tottenham, Cardiff-Leeds, Bamsley-Blackbum, Sunderland-West Brom, Newcastle-Crystal Palace, Aston Villa-Manchester United, Crewe-Sheffield § Wednesday og Wolves-Gillingham. -ósk Harry Kewell og Robbie Fowler fagna marki fyrrnefnda með Leeds um helgina og á innfelld myndinni er Thierry henry sem er langmarkahæsti sku ú i leikmmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Reuters s - iftW Coventry-Watford .............0-2 Preston-Burnley ..............2-3 X^SKOTLAND Rangers-Hearts................3-1 Dunfermline-Celtic ...........0-4 Dundee United-Livingston......0-ð Hibernian-Motherwell..........1-1 Kilmarnock-Aberdeen...........3-1 St. Johnstone-Dundee .........0-2 Staðan: Celtic 17 16 1 0 41-6 49 Rangers 17 11 4 2 39-12 37 Livingston 17 9 6 2 26-12 33 Aberdeen 18 9 2 7 28-27 29 Kilmarnock 18 7 3 8 20-21 24 Dundee 18 6 5 7 18-25 23 Dundee Utd 18 5 6 7 19-31 21 Hibernian 17 5 4 8 25-28 19 Hearts 18 5 3 10 21-26 18 Motherwell 18 4 5 9 21-34 17 Dunfermline 18 5 2 11 22-37 17 St Johnstonel8 2 3 13 12-33 9 Celtic hefur enn tólf stiga forystu á Rangers á toppi deildarinnar. John Hartson skoraði tvö mörk fyrir Celtic og þeir Bobo Balde og Alan Thompson gerðu hin mörkin. Tore Andre Flo var á bekknum í 3-1 sigri Glasgow Rangers og kom ekkert við sögu í leiknum. Ronald de-Boer, Russell Latapy og Shota Arveladze gerðu mörk Rangers. -ÓÓJ Arsenal, Leeds og Newcastle sýndu með sigurleikjum í gær að þau ætla ekki að hleypa Liverpool of langt í burtu í toppbaráttu ensku úrvals- deildarinnar. Liðin skipa nú 2. til 4. sæti en Chelsea er í fimmta sæti eftir markalaust jafntefli gegn Sunderland á útivelli. Liverpool er með þriggja stiga forustu á Ársenal auk þess að eiga einn leik inni. Tvö mörk frá Thierry Henry og eitt frá landa hans, Sylvain Wiltord, í seinni hálfleik unnu upp 0-2 forskot Aston Villa frá því í fyrri hálileik í leik liðanna á Highbury í gær. Arsenal vann þarna fimmta leik sinn í röð á 14 dögum og Henry sem hefur alls skorað 21 mark í vetur (15 í deild- inni), hefur gert sex mörk í þessum leikjum og alls 13 í síðustu tíu deildar- leikjum. Henry sjálfur er á því að Arsenal sé sterkari en i fyrra. „Við verðum ekki auðsigraðir í vetur þvi við vorum vanir að tapa leikjum eins og þess- um,“ sagði Henry eftir leik. Fyrirliði Aston Villa, Paul Merson, sem skoraði gegn sínum gömlu félög- um, var ekki sáttur við varnartilburði manna sinna í mörkunum. „Átta ára sonur minn lék leik með jafnöldrum sínum í dag og ég bjóst við að sjá svona mistök þar en ekki hér á High- bury,“ sagði Merson að leikslokum. Það var þó ekki allt gott við leikinn fyrir Arsenal því gula spjaldið sem Patrick Viera fékk þýðir að hann verður í leikbanni gegn toppliði Liver- pool eftir tvær vikur. Harry Kewell svaraði gagnrýni stjórans David O’Leary frá því í vik- unni á besta hugsanlega hátt fyrir aOa aðila, með því að skora tvö mörk í 1-2 sigri Leeds á Blackburn Rovers á úti- velli. Kewell fylgdi eftr skoti Robbie Fowler í fyrra markinu og skallaði síðan inn sendingu Garys Kellys en Olivier Dacourt fór úr axlarlið í und- irbúningi síðara marksins og gæti verið frá í allt að sex vikum. O'Leary var ekki ánægður með meiðsl Dacourt. „Við erum að missa hvern leikmanninn á fætur öðrum og ég veit ekki hvert ég á að snúa mér,“ sagði O'Leary í leikslok. Það gengur ekkert hjá Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Ipswich sem máttu sætta sig við 0-1 tap á heimavelli gegn Newcastle. Hermann Hreiðarsson lék allan leikinn í vörn Ipswich og fékk að líta gula spjaldið en þetta var þriðja tap Ipswich í röð í deildinni en liðið er á botni deild- arinnar með níu stig og að- eins einn sigurleik. Kevin Phillips hef- ur í ófá skipti tryggt liði sínu Sunderland sig- ur en honum mistókst að nýta víta- spyrnu á 47. mínútu í mai lausu jafn- tefli Enska úrvalsdeildin í gær: Arsenal lenti undir en vann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.