Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2001, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001 27 Sport Þeir John O’Shea, Gary Neville, Paul Scholes og Roy Keane daufir í bragöi eftir tapleikinn gegn West Ham. Manchester United tapaöi þar með öðrum heimaleik sínum í röö í fyrsta sinn í 11 ár. Reuters Enska knattspyrnan á laugardaginn: Liverpool blómstrar en United sekkur dýpra - 3 stiga forysta Liverpool á toppnum en 6. tap Manchest- er United á leiktíðinni sem hefur ekki byrjað verr í 11 ár 4. tap Manchester United á Old Trafford í öllum keppnum leit dagsins Ijós á laugardaginn þegar United tók á móti West Ham. Það var hinn ungi og mark- sækni Jarmaine Defoe sem skoraði sigurmarkið. Á meðan vann Liverpool góð- an sigur á Middlesbrough og hefur þægilega forystu á toppi ensku deildarinnar sem og einn leik til góða. Liverpool hefur 11 stiga for- ystu á Manchester United. „Það er draumi líkast að koma á stað sem þennan og skora sigurmarkið,“ sagði Jermain Defoe, hetja West Ham, um helgina. Félagi hans, David James, sem átti hreint út sagt frábæran leik, var í skýjunum vegna sigursins en benti á að það sem gerði sigurinn enn sæt- ari væri að United hafi spil- að sæmilega í leiknum. Þurfum kraftaverk Á hinum endanum var þyngra hljóðið í mönnum og viðurkenndi Alex Ferguson, stjóri United, að nú þyrfti ekkert minna en kraftaverk til að vinna deildina og lik- lega tækist það ekki. „Það voru nokkrir sem stóðu sig illa i dag og þurf- um við að gera eitthvað í því,“ sagði Ferguson um frammistöðu sinna manna en hann hvíldi bæði Ruud van Nistelrooy og Juan Sebastian Veron. David Beckham kom aðeins inn á sem varamaður. Tvö mörk af um 25 metra færi tryggði Liverpool sig- urinn gegn Middlesbrough á Anfield. Þetta var 10. sig- ur Liverpool í deildinni í vetur i 14 leikjum og var Phil Thompson, stjóri liðs- ins í ijarveru Gerrard Houllier, hæstánægður með vinnubrögð leikmanna sinna. „Afköst okkar í dag voru mikil. Ef við höldum svip- uðu áfram það sem eftir er tímabilsins verðum við áfram í góðum málum. En það er enn langur vegur til loka tímabilsins." Tottenham, sem var í 5. sæti fyrir leiki helgarinnar, tápaði frekar óvænt fyrir Charlton sem hefur nú unn- ið tvö Lundúnaliðin á nokkrum dögum en 0-1 sig- ur vannst á Chelsea fyrr í vikunni. Kevin Lisbie skor- aði tvö marka Charlton en hann tryggði sigurinn gegn Chelsea. Þá fóru Southampton menn illa með Dave Bassett og félaga í Leicester á Fil- bert Street. Gestirnir skor- uðu 4 mörk gegn engu hjá Leicester. Bassett var æva- reiður eftir leikinn. Hræöileg frammistaða „Ég vildi óska þess að einn leikmanna minna hefði staðið sig vel í leikn- um en sú varð ekki raunin. Það má segja að Trevor Benjamin, sem sat á bekkn- um allan leikinn, hafi verið maður leiksins. Leikmennirnir munu sýna mér það á æfingu hvort þeir eru tilbúnir að taka sig saman í andlitinu," sagði Bassett. Guðni Bergsson lék allan leikinn fyrir Bolton sem tapaði fyrir Derby á útivelli og Fulham vann góðan sig- ur á Everton sem féll þó í skuggann á uppþotinu um miðjan síðari hálfleik sem varð til þess að David Weir, Everton og Luis Boa Morte, Fulham, fengu að líta rauða spjaldið. -esá David James átti stórleik í marki West Ham. Reuters Bland í nokcs Stoke gerði jafntefli gegn Halifax, 1-1, í 2. umferð ensku bikarkeppninnar. Andy Cooke kom Stoke yfrr á 27. mínútu en Harsley jafnaði metin fyrir Halifax á 85. mínútu. Liðin þurfa því að mætast aö nýju á Brittania-leikvanginum. Brynjar Björn Gunnarsson og Bjarni Gud- jónsson léku allan leikinn fyrir Stoke. Annað íslendingalið, Brentford, er úr leik í kepninni eftir tap gegn Scun- thorpe, 3-2. ívar Ingimarsson og Ólaf- ur Gottskálksson voru báðir í liði. Brentford. nældi sér í guit spjald í leiknum en Watford komst upp í 12. sæti deildarinn- ar með sigrinum. Helgi Valur skor- aði sigurmarkið Helgi Valur Daníelsson skor- aði sigurmark Peterborough gegn Bournemouth í enska bik- arnum um helgina. Þetta er fyrsta mark Helga Vals fyrir Pet- erborough og var með betri mönnum leiksins. Mark hans kom á 37. mínútu leiksins. -ósk Lárus Orri Sigurösson lék með WBA sem tapaði á heimaveili fyrir Shef- fleld United í ensku 1. deildinni um helgina. Heióar Helgason (til hægri) lék allan leikinn með Watford sem vann góðan útisigur á Coventry, 2-0. Heiöar Markahrókurinn Peter Thorne, sem lék áður með Stoke en var seldur til Cardiíf fyrr á þessu keppnistímabili, verður frá næstu þrjá mánuðina eftir að hann meiddist illa á ökkla. Thorne er dýrasti leikmaður Car- diff frá upphafi en félagið borgaði Stoke um 300 milljónir fyrir kappann. -ósk/esá ENGLAND Úrvalsdeild Charlton-Tottenham .........3-1 1-0 Graham Stuart (4.), 2-0 Kevin Lisbie (19.), 3-0 Kevin Lisbie (78.), 3-1 Gustavo Poyet (85.). Derby-Bolton.................1-0 1-0 Malcolm Christie (66.). Fulham-Everton ..............2-0 1-0 Barry Hayles (36.), 2-0 Barry Hayles (50.). Leicester-Southampton .......0-3 0-1 Andreas Svensson (12.), 0-2 James Beattie (63.), 0-3 Andreas Svensson (74.), 0-4 Marian Pahars (89.). Liverpool-Middlesbrough . . . 2-0 1-0 Michael Owen (27), 2-0 Patrick Berger (45.). Manchester United-West Ham 0-1 0-1 Jermain Defoe (64.). Staðan Liverpool 14 10 2 2 25-11 32 Arsenal 15 8 5 2 33-17 29 Leeds 15 7 7 1 18-9 28 Newcastle 15 8 3 4 25-18 27 Chelsea 16 5 9 2 19-12 24 Aston Villa 16 6 6 4 21-18 24 Tottenham 16 7 3 6 25-23 24 Fulham 15 5 7 3 17-13 22 Man. Utd. 15 6 3 6 31-27 21 Charlton 16 5 6 5 21-20 21 Sunderland 16 5 6 6 13-15 20 Everton 15 5 5 5 20-19 20 Bolton 16 5 5 6 20-21 20 Blackburn 16 4 7 5 22-19 19 Middlesborol6 5 4 7 17-22 19 West Ham 16 5 4 7 18-28 19 Southampt. 15 4 1 10 15-24 13 Derby 15 3 4 8 11-24 13 Leicester 16 3 4 9 9-29 13 Ipswich 16 1 6 9 14-25 9 1. deild Grimsby-Wolverhampton.......1-1 Barnsley-Walsall...............4-1 Birmingham-Norwich.............4-0 Bradford-Rotherham.............3-1 Crystal Palace-Manchester City . 2-1 Nottingham Forest-GiUingham . 2-2 Portsmouth-Crewe............2 -4 Sheflield Wednesday-Millwall .. 1-1 Stockport-Wimbledon .............1-2 WBA-Sheffield United...........0-1 Staðan Burnley 23 14 4 5 45-31 46 Wolves 22 12 6 4 34-17 42 Man. City 22 12 3 7 51-33 39 Norwic 23 12 3 8 31-32 39 WBA 22 12 2 8 25-19 38 Crystal P. 22 12 1 9 45-33 37 Coventry 22 11 4 7 27-21 37 Preston 23 9 9 5 39-30 36 Millwall 22 10 5 7 38-28 35 Birmingh. 22 9 6 7 36-29 33 Portsmouth 23 9 6 8 36-35 33 Watford 22 9 5 8 35-26 32 Bradford 23 9 5 9 43-41 32 Notting. F. 23 7 9 7 26-23 30 Gillingham 23 8 6 9 34-32 30 Sheff. Utd. 23 7 9 7 25-27 30 Wimbledon 23 7 8 8 38-37 29 Crewe 23 7 7 9 24-36 28 Rotherham 23 6 7 10 29-37 25 Sheff. Wed. 23 5 8 10 25-36 23 Barnsley 23 5 6 12 30-48 21 Grimsby 23 5 6 12 22-42 21 Walsall 23 5 5 13 24-40 20 Stockport 23 2 6 15 22-51 12 Enska bikarkeppnin, 2. umferð Altrincham (U)-Darlington (III) . 1-2 Blackpool (II)-Rochdale (III) .... 2-0 Brighton (II)-Rushd. & Diam. (III) . 2-1 Cardiff (II)-Port Vale (II)....3-0 Chesterfield (II)-Southend (III) . . 1-1 Halifax (III)—Stoke (II) ............1-1 Hinckley (U)-Cheltenham (U). . . 0-2 Hull (Ill)-Oldham (II).............2-3 Leyton Orient (III)-Lincoln (III) . 2-1 Macclesfield (III)-Swansea (III) . 4-1 Mansfíeld (III)-Huddersfield (II) . 4-0 Peterboro (II)-Bournemouth (II) . 1-0 Plymouth (III)-Bristol R. (III) ... 1-1 Scunthorpe (III)-Brentford (II) . . 3-2 Swindon (II)-Hereford (U) .........3-2 Tranmere (II)-Carlisle (III)......6-1 Wycombe (II)-Notts County (II) . 3-0 York (IID-Reading (II) ............2-0 Exeter (III)-Dagenh. & Redbr. (III). 0-0 Canvey Isl. (U)-Northampt. (II) ... 1-0 Rómversku tölustafinir, sem eru innan sviga fyrir aftan liðin, gefa til kynna í hvaða deild liðið leikur. U stendur fyrir utandeildarlið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.