Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2002, Qupperneq 1
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002
17
Óskiljanlegur styrkur
Þýskir blaöamenn segjast ekk-
ert botna í árangri íslenska lands-
liðsins á Evrópumótinu í hand-
knattleik og segja hann ofar skiln-
ingi þeirra. Þýskir blaðamenn
hafa hópast hingað til Vasterás og
þeim fjölgaði til muna eftir að
þýska liðið fór að leika í milliriðl-
unum. Þjóðverjarnir hafa ekki
enn tapað leik í kepninni en þeir
mæta íslendingum í kvöld sem
einnig eru taplausir.
Þýsku blaðamennirnir áttu
fund með Guömundi Guðmunds-
syni í gærmorgun á hóteli, því
sama og íslendingar búa á. Þar
voru blaðamenn frá stærstu dag-
blöðum Þýskalands svo sem Fran-
furter Algemeiner og lögðu nokkr-
ar spurningar fyrir landsliðsþjálf-
arann. Þar kom fram undrun
þeirra hver styrkur íslenska liðs-
ins er þegar haft er í huga að á ís-
landi er leikið aðeins í einni deild
og liðin fá. Þessari staðreynd veltu
þeir mikið fyrir sér.
Ólafur Stefánsson gerði tíu
mörk í leiknum gegn Júgóslövum
í gær og alls eru mörkin hjá hon-
um í keppninni orðin 41 í flmm
leikjum. Hann sagði eftir leikinn
að liðið hefði að sínu mati ekki
leikið sinn besta leik í keppninni.
„Fyrri hálfleikur var fullur af
tæknivillum og vitleysu. Við vor-
um svolítið neikvæðir og komum
inn í búningsherbergi i leikhléi
sárir. Eftir að hafa talað vel sam-
an í hálfleik náðum við að snúa
dæminu við, kysstum hver annan
og urðum jákvæðir. Við vissum
að við ættum fullt inni og náðum
að byrja síðari hálfleikinn vel.
Júgóslavarnir eru þannig að þeir
brotna við minnsta mótlæti og það
gerðist einmitt í leiknum,” sagði
Ólafur Stefánsson eftir leikinn.
Nú þekkir þú þýska liöið vel.
Hverja telur þú möguleika ís-
lenska lidsins gegn þeim?
„Við eigum hiklaust helmings
möguleika gegn þeim. Þeir leika
ekki ósvipað okkur, leika sterka
vörn, beita hraðaupphlaupum
mikið og leika frekar hægan sókn-
arleik. Það lið sem fær fleiri
hraðaupphlaup vinnur leikinn.”
Hvaó hefur breyst i íslenska
lidinu á einu ári, frá því á HM i
Frakklandi fyrir ári?
„Ég hef verið spurður að þessu
og gef tvær skýringar á því. í
fyrsta lagi er kominn nýr þjálfari
og nýtt lið í kringum liðið sjálft og
ailt mjög jákvætt með það. í öðru
lagi leika Sigfús og Rúnar stórt
hlutverk í varnarleiknum. Það
hefur vantað menn til að fylla í
þessar stöður síðan að Geir
Sveinsson og Júlíus Jónasson
hættu að leika með landsliðinu,
en núna hefur verið ráðin bót á
því. Með þessari breytingu getum
við Patrekur sparað mikla orku
og keyrt hraðaupphlaupin af full-
um þunga. Vörnin er allt önnur
en áður, markverðimir fá blokkir
fyrir framan sig, lesa skotin betur
og fyrir vikið verja þeir betur.
Þetta helst allt í hendur.”
Erum viö komnir lengra i
keppninni en þú þoröir að vona?
„Já, svei mér þá, og þar á vörn-
in stóran þátt í en varnarleikur-
inn er mikilvægrai en ég hélt af
því að við eru góðir að hlaupa
hraðaupphlaupin,” sagði Ólafur
Stefánsson. -JKS
„Nýr þjálfari og
sterkari vörn“
Guömundur Guömunds-
son og Ólafur Stefans-
son sitja her fyrir svörum
blaða- og fréttamanna aö
loknum leik Islendinga
og Jugóslava í gær. ^
DV-mynd Pjetur
Þjalfari Spánverja:
Rúnar er einn
besti varnar-
maöur mótsins
DV.Vesterás
Það verður ekki fram hjá því litið
að varnarleikur íslenska landsliðsins
á Evrópumótinu í handknattleik hef-
ur verið einn sterkasti hlekkur liðs-
ins og hafa þjálfarar annarra liða í
mótinu hriflst mjög að honum. Guð-
mundur Guðmundsson landsliðs-
þjálfari hefur lagt þunga áherslu á
þennan þátt síðan hann tók við liö-
inu í fyrra og hefur hann svo sannar-
lega skilað sér.
Þeir Rúnar Sigtryggsson og Sigfús
Sigurðsson hafa leikið afburðavel vel
í miðju varnarinnar og hafa þeir fé-
lagar varið hvern boltann á fætur
öðrum og verið andstæðingum sin-
um mjög erfiðir. Óhætt er að fullyrða
að íslenskt landslið hefur ekki leikið
jafnsterkan varnarleik í háa herrans
tíð en í síðustu tveimur stórkeppnum
hefur hann á stundum verið dragbít-
ur liðsins og höfuðverkur á margan
hátt.
Cesar Argiles, þjálfari Spánverj-
anna, er einn þeirra sem hrifist hafa
af varnarleik íslenska liðsins og í
samtali við DV var hann ekki að
liggja á skoðun sinni í þeim efnum.
Hann sagði að sér fyndist Rúnar Sig-
tryggsson var einn sterkasti vamar-
maður sem hann hefði séð lengi og
tók svo djúpt í árinni að segja hann í
hópi þriggja bestu varnarmanna Evr-
ópukeppninnar.
Argiles sagði eftir leik íslands og
Spánverja að varnarleikur íslenska
liðsins hefði leikið sókn síns liðs
grátt og Spánverjar hefðu ekki átt
svar við henni. Argiles sagði að hann
hefði lengi fylgst með íslenska liðinu
og þekkti til margra leikmanna þess
og aldrei áður hefði hann séð liðið
leika jafhöflugan varnarleik.
-JKS
—
Elías Þór Rafnsson og Ingibjörg Ragnarsdóttir hlúa hér aö Rúnari
Sigtryggssyni. DV-myndir Pjetur
Rúnar var hetja
DV.Vásterás
Ákvörðun um að láta Rúnar Sig-
tryggsson leika var tekin á elleftu
stundu fyrir leikinn á móti Júgóslöv-
um í gær. Jóhann Ingi Gunnarsson,
formaður landsliðsnefndar HSÍ,
sagði að Rúnar hefði veriö hetja að
taka þátt í leiknum en hann hefði
hangið á bláþræði vegna meiðsla
sinna. Taug var klemmd í bakinu og
leiddi niður í fótinn og hefur hann
verið í stöðugri meðferð hjá sérfræð-
ingum landsliðsins í þessum málum.
„Ég sagði rétt fyrir leikinn að ég
gæti leikið vörn en gæti væntanlega
ekki komist yfir miðju. Þjálfarinn
tók þá ákvörðun að láta mig spila og
það var líka minn vilji upp á fram-
haldið hjá okkur. Ég hékk á blá-
þræði enda þegar tíu mínútur voru
eftir af leiknum var ég búinn að fá
nóg. Ég býst við að ég verði orðinn
betri á morgun (í dag) af því að þetta
versnaöi ekki svo mikið. Ég er með
verk í kálfanum og get af þeim sök-
um ekkert hoppað eða spymt mikið
í fótinn. Að leika leikinn var engin
fórn en ég gefst ekki upp fyrr en í
fúlla hnefana. Núna er þetta í okkar
höndum að klára dæmið og vinna
Þjóðverjana. Það er gaman þegar vel
gengur en þetta eru einmitt stund-
irnar sem við lifum fyrir sem sport-
ið stundum,” sagði Rúnar Sigtryggs—
son við DV. -JKS