Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2002, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2002, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002 19 DV Sport Umdeilt atvik í leik Slóvena og Júgóslava: Nefbrotnaöi og missti tvær fram- tennur Mjög umdeilt atvik átti sér stað í leik Júgóslava og Slóvena í fyrrakvöld. Um miðjan síðari hálfleik gekk Júgóslavinn Nedeljko Jovanovic í skrokk á Uros Zorman með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði og missti tvær framtennur. Á myndbandsupptökum kemur greinilega fram að Jovanovic gefur Zorman hreint og beint hnefahögg með fyrrgreindum afleiðingum. Jovanovic fékk umsvifalaust að sjá rauða spjaldið og kom þessi brottrekstur verulega niður á júgóslavneska liðinu enda leikur Jovanovic stærsta hlutverkið í liðinu. Dómarar leiksins sendu umsögn um atvikið til aganefndar mótsins og er ekki vitað hvernig hún bregst við þessu atviki. -JKS Allt annað íslenskt lið en fyrir ári - segir Nedelijko Jovanovic „Þessi úrslit eru áfall fyrir okk- ur. Við vissum að við ramman reip yrði að draga en við fórum í milliriðilinn með ekkert stig á bakinu. Við gerðum okkur seka um mörg tæknileg mistök i sókn- arleiknum og fyrir vikið fengu ís- lendingar hraðaupphlaup. Ég vil bara nota tækifærið og óska ís- lendingum til hamingju með sig- urinn, þeir léku vel og unnu góð- an sigur,” sagði Nedelijko Jovanovic einn sterkasti leikmað- ur júgóslaVneska liðsins í samtali við DV eftir leikinn. Jovanovic hafði leikið ágætlega í kepninni en náði sér ekki á strik frekar en aðrir leikmenn liðsins. Jovanovich leikur með spænska liðinu Portland en liðið er núver- andi Evrópumeistari. Hann var einnig félagi Patreks Jóhannsson- ar hjá Essen. Ágætir möguleikar íslenska liösins Aðspurður um möguleika ís- lenska liðsins gegn Þjóðverjum í kvöld sagði hann að hann teldi þá ágæta. íslenska liðið hefur yfir að ráða sterkum einstaklingum sem leika með þýskum félagsliðum og annars staðar í Evrópu en reynsla manna þaðan skilar sér inn í landsliðið sagði Jovanovic. „Mér flnnst allt annað að sjá til íslenska liðsins nú en fyrir ári síð- an. Það er allt annað skipulag á leik liðsins og einnig sýnist mér andinn í liðinu allur annar en áð- ur,” sagði Jovanovic. -JKS Nedelijko Jovanovic var að vonum svekktur eins og aörir Júgóslavar eftir leikinn gegn íslendingum. Guömundur Guömundsson landsliösþjálfari svalar þorstanum í hita leiksins gegn Júgóslövum. DV-myndir Pjetur Erfitt að lýsa tilfinningum mínum - sagöi Guömundur Guömundsson eftir sigurinn á Júgóslövum kvennaíiðs Stabæk í Noregi, brá sér til Vasterás í gær og horfði á íslendinga leggja Júgóslava. Hann kom akandi frá Ósló og hyggst fylgjast með leikjum ís- lenska liðsins sem eftir eru í keppninni. Um 100 íslendingar voru á leiknum í gær. Guðmundur Guðmundsson var að vonum í skýjunum með Sigurinn á Júgóslövum í Vásterás í gær. Að- spurður hvort íslenska liðið hefði leikiö sinn besta leik gegn Júgóslöv- um sagði Guðmundur erfitt að meta það hvernig andstæðingurinn léki hverju sinni. „Ég tel hins vegar að viö höfum verið að leika vel en við vorum samt ekki nægilega ánægðir með fyrri hálfleikinn. Ég sagði viö strák- ana í hálfleik að kalla fram gleðina og jákvæðnina sem hefur einkennt okkur og fara brosa meira og hafa gaman af þessu. Mér fannst and- rúmsloftið breytast við þetta, menn ætluðu sér þetta og það var það sem við framkvæmdum. Við fórum að leika okkar handbolta, bæði hvað varðar sóknina og vörnina og nýtt- um okkur veikleika andstæðingsins út í ystu æsar,” sagði Guðmundur Guðmundsson. - Hvernig er þér innanbrjósts með liðið ú þessum tímapunkti? „Ég á erfitt með að lýsa tilfinn- ingum mínum vegna þess að það gefst svo lítill tími á milli leikja að ég er strax núna farinn að hugsa um næsta leik. Það er i raun alveg óskaplega lítill tími til að velta þessu eitthvaö fyrir sér. Þetta er svo ofboðslega erflð og ströng keppni að ég er bara að hugsa næsta leik og þannig er þetta búið að vera í allri keppninni. Ég held að þetta sé sama með strákana, viö erum glaðir með þetta núna en það bíður okkar erfitt verkefni gegn Þjóðverjum. Það verk- efni er mjög spennandi og skemmti- legt og við hlökkum allir til að takast á við það.” - Er liðió komið lengra en þú gerðir þér i hugarlund fyrir keppnina? „Maður fór að gera sér ákveðnar hugmyndir um styrleika liðsins þeg- ar við fórum að leika þessa æfinga- leiki fyrir mótið. Þessir leikir gáfu mér tækifæri til að kynnast þessum leikmönnum sem núna eru að leika og enn fremur að dreifa álaginu á milli manna. Þegar æfingaleikjunum lauk var ég farinn að átta mig á því hvar við stæðum, þeir færðu mér heim sanninn um það. Smám saman hefur sjálfstraustið í liðinu aukist, menn eru klárir á sínum hlutverk- um, sátt er um það sem við er að gera og það er gríðarlega mikilvægt. Ég tel að þetta lið geti bætt sig veru- lega enda eigum eftir að útfæra fullt af atriðum í okkar leik, bæði vamar- og sóknarlega. Þetta er bara vinna sem tekur sinn tíma og vitum hvert við erum að stefna,” sagði Guðmund- ur. -JKS Pólverjinn Januz Czerwinsky, fyrrum landsliðsþjálfari íslend- inga í handknattleik, var tíma- vörður á leik íslendinga og Júgóslava í gær. Norðmenn eru orðnir þyrstir að fá að sjá leiki frá Evrópu- keppninni í handknattleik. Tek- in hefur veriö ákvörðun um að sýna frá leikjunum sem fram fara um helgina. Norska lands- liðiö náöi ekki að tryggja sér sæti i keppninni og er það ástæð- an fyrir aö ekki hefur verið sýnt fyrr frá leikjum í keppninni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.