Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2002, Side 2
18
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002
Sport
DV
Sjúkraþjálfarinn Elías Rafnsson og Ingibjörg Ragnarsdóttir sjúkranuddari gerðu sér bæjarferð fyrir leikinn í gær til að finna eitthvað sem hægt væri að nota
sem þrýsting á kálfameiðsli leikmanna liðsins. Sú hugmynd kviknaði hjá þeim að fá tjalddýnu, búta hana niður og nota sem þrýsting á vöðva. Þessi
lækningameöferð hitti beint í mark. DV-mynd Pjetur
Svíar fara
alla leið
- segir Per
Carlen
Per Carlen, fyrrum fyrirliði
Svía í handknattleik, segir í við-
tali við blað sem gefið er út á
vegum mótshaldara að hann sjái
ekki mörg lið úr þessu sem
standist sænska liðinu snúning.
Carlen þekkir sænska liðið inn
og út en hann lék á sínum tíma
yfir 300 landsleiki með Svíum og
var lengi vel talinn einn
sterkasti línumaður i heimi.
Hann lýsir leikjum Svía á einni
útvarpsstöðinni.
„Sænska liðið leikur betur og
betur með hverjum leik og ég er
að vona að framhald verði á því.
Ég held ég sé nokkum veginn
viss um að sænska liðinu takist
að verja Evrópumeistaratitilinn
sem liðið vann í Króatíu fyrir
tveimur árum. Gömlu leikmenn-
irnir á borð við Wislander, Lind-
gren og Olson eru þrátt fyrir ald-
ur enn leikmenn í heimsklassa.
Undir pressu leika þeir frábær-
an handbolta,” segir Per Carlen.
JKS
íslendingar betri
á öllum sviðum
- sagði Zoran Zivkovic,
þjálfari Júgóslava
DV.Vásterás
„Ég vil í byrjun óska íslend-
ingum til hamningju með sigur-
inn. Þeir verðskulduðu sigur í
leiknum, þeir voru betri á öllum
sviðum og léku mjög góðan
handbolta og þá alveg sérstak-
lega í fyrri hálíleik. Ég er ekki
að afsaka ósigurinn í þessum
leik en við söknum nokkurra
sterkra leikmanna sem ekki eru
með okkur í keppninni, ýmist
vegna meiðsla eða af öðrum
ástæðum. Þetta veikir óneitan-
lega lið okkar,” sagði Zoran Zi-
vkovic, landsliðsþjálfari Júgó-
slava, á blaðamannafundi eftir
leikinn.
„Viö gerðum mörg tæknileg
mistök og það nýttu íslending-
amir sér til fulls. Við fórum illa
að ráði okkar í sóknarleiknum,
bæði í skotum og eins misstum
við boltann allt of oft. Ég óska ís-
lenska liðinu alls góðs það sem
eftir er í keppninni,” sagöi
Zivkovic enn fremur. -JKS
Spánverjar
unnu Frakka
önnur úrslit í milliriðli okkar
á EM urðu bæði hagstæð og óhag-
stæð.
Þjóðverjar unnu Slóvena, 31-28,
eftir að hafa lent í töluverðum
vandræðum með þá. Slóvenar
höfðu yfirhöndina framan af og
voru með 2-3 marka forskot fram
í miðjan seinni hálfleik þegar
Þjóðverjar náðu að jafna og
tryggðu sér síðan sigur á enda-
sprettinum. Þessi sigur tryggði
Þjóðverjum sæti í undanúrslitum
keppninnar.
Þá unnu Spánverjar nokkuð
óvæntan sigur á Frökkum, 27-24,
og var sá sigur nokkuð örúggur
því þeir höföu yfirhöndina allan
leikinn. Þetta verða að teljast hag-
stæð úrslit fyrir ísland þar sem
þau gera vonir Frakka að engu
um að komast í undanúrslit.
Spánverjar hafa hins vegar mögu-
leika á að komast þangað ef ís-
lendingar tapa fyrir Þjóðverjum.
Svíar hafa einnig tryggt sér
sæti í undanúrslitum eftir aö hafa
sigrað Portúgala í gær, 27-22. Úr-
slit og staða í riðlunum er á bls.
21. -HI
Ólafur Lárusson, þjálfari Gróttu/KR, vegur og metur leiki íslands á EM:
Margir leggja
hönd á plóginn
Þegar svo langt er liðið á loka-
keppni Evrópumótsins fer ekki hjá
því að þreytu fari að gæta hjá leik-
mönnum sem spilað hafa 90-100%
leiktímans. Við slíkar kringum-
stæður er gott að hafa tvo leikmenn
i hverri stöðu til að geta hvílt lykil-
menn. íslenska liðið hefur yfir mik-
illi breidd að ráða og þjálfaramir
geta því dreift álaginu án þess að
það komi niður á leik liðsins.
Leikurinn gegn Júgóslövum byrj-
aði frekar rólega en síðan jókst hrað-
inn jafnt og þétt. Byrjunin var hefð-
bundin 6:0 vörn með Rúnar haltr-
andi á miðsvæðinu og er ljóst að við
komum til með sakna Sigga Bjarna
sem leysti þessa sömu stöðu mjög vel
í undankeppninni gegn Hvít-Rúss-
um. Hvílíkt klúður að hafa ekki til-
kynnt hann inn í hópinn. Þrátt fyrir
þetta náðum við að skora 10 mörk úr
hraðaupphlaupum i f.h. og var það
bæði vegna mistaka Júgóslava í
sókninni sem og góðs varnarleiks.
Við fengum á okkur 14 mörk í fyrri
hálfleik en markverðimir vörðu
varla bolta. Bjarni Frosta kom inn á
en náði sér ekki á strik frekar en
Guðmundur. Sóknarleikurinn var
W'
Aron Kristjánsson brýst í gegnum vörn Júgóslava í. leiknum í gær. Hann stjórnaöi sóknarleiknum af röggsemi aö
mati Ólafs Lárussonar. DV-myndir Pjetur
dálítið brösóttur en Júgóslavar
hurfu frá 3:2:1 vöm sinni á 10. mín.
og bökkuðu aftur á sex metra.
Patt leysti vel inn á línuna fyrstu
mínúturnar og við spiluðum 4:2
sókn sem Júgóslavar réðu ekki við
og bökkuðu því en allt kom fyrir
ekki, íslendingar héldu sínu striki
og enduðu í hálfleik með þann mun
sem varð til á fyrstu mínútunum.
Ótrúlegur fjöldi hraðaupphlaupa
leit dagsins ljós í fyrri hálfleik og
ekki færri í þeim seinni en alls
skoruðum við rúmlega 20 mörk úr
hraðaupphlaupum í leiknum. 20 af
34 mörkum úr hröðum sóknum
hlýtur að vera nánast einsdæmi.
Markvarslan hjá Bjama, sem og
vömin, í seinni hálfleik var góð.
Frjáls sóknarleikur í bland við
taktískt spil var þemað í seinni
hálfleik og hefur sóknarnýtingin oft
verið betri en það kom ekki að sök.
Sem fyrr lögðu margir hönd á
plóginn. Einar Örn slúttaði vel í
horninu og var með heimsklassa
leik, Óli skoraði grimmt en hefur
oft verið með betri nýtingu, Sigfús
og Guðjón Valur með flnan leik og
Aron stjómaði sóknarleiknum af
röggsemi í seinni hálfleik og dró
okkur að landi þegar við vorum
einum færri. Liðið rúllaði vel og
var þjálfarinn óhræddur við að
skipta ört inn á og er það vel enda
hefur hann úr miklu að moða.
Ánægjulegt var að sjá liðið koma
til baka eftir erfiðan endi á síðasta
leik og sýnir það enn einu sinni
hvílíkan karakter liðið hefur að
geyma. Sigurviljinn er mikill og eft-
ir að hafa náð að stilla spennustig-
ið af þá héldu liðinu engin bönd og
nú er bara að bíða fram á kvöldið
og vona að þetta ævintýri engan
enda taki.
Ólafur Lárusson