Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2002, Blaðsíða 5
20
21
Sport
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002
DV DV
Sport
Hraðaupphlaupsmörk íslenska landsliðsins á EM:
Tvöfalt fleiri en á
HM í Frakklandi
- 46 islensk hraðaupphlaupsmörk í fimm leikjum
Margir nefna hina geysisterku vörn
íslenska handboltalandsliðsins sem
eina að aðalástðeðum fyrir frábærum
árangri íslenska liðsins á Evrópumót-
inu í Svíþjóð en íslenska liðið hefur
unnið þrjá af fyrstu fimm leikjum
mótsins og er enn taplaust.
Það er líka margt i tölfræðinni sem
sýnir fram á að vörnin og helsta afurð
hennar, hraðaupphlaupin, eru orðin
mun sterkara vopn hjá liðinu undir
stjórn Guðmundar Guðmundssonar
en þau voru undir stjórn Þorbjörns
Jenssonar á Evrópumótinu í Króatíu
fyrir tveimur árum sem og á
heimsmeistaramótinu í fyrra.
íslenska vörnin ver fleiri skot í
þessari keppni en hinum tveimur og
auk þess hafa íslensku strákarnir
sloppið með að dúsa jafnlengi í
skammarkróknum og mótherjar
þeirra en voru 10 mínútum lengur út
af í Frakklandi og 24 mínútur lengur
út af en mótherjar þeirra í Króatíu.
Hraðaupphlaupsmörkin voru 5,5 að
meðaltali í Króatíu sem er kannski
ásættanlegt en þau voru aðeins 3,8 að
meðaltali á HM í Frakklandi eða 23
alls í sex leikjum. Þegar Einar Örn
Jónsson skoraði 33. mark íslenska
liðsins gegn Júgóslövum í gær höfðu
hann og félagar hans í íslenska liðinu
tvöfaldað fjölda hraðaupphlaupa frá
því árinu áður og það þótt þeir ættu
enn leik inni. Landsliðið hefur gert 9,2
hraðaupphlaupsmörk að meðaltali i
leik í Evrópumótinu í Svíþjóð sem er
Þáttur Oiafs og Patreks
Guðmundur Guðmundsson hefur
útfært hraðaupphlaupin afskaplega
vel. Markverðirnir eiga ekki að kasta
fram en í stað þess finna þá Ólaf Stef-
ánsson og Patrek Jóhannesson sem
fyrst og það er þeir sem eru mennim-
ir á bak við flest hraða-
upphlaupsmörk liðsins
á mótinu.
Ólafur hefur komið
að 22 mörkum (8 mörk +
14 stoðsendingar) og
Patrekur að öðru 21 (10
mörk + 11 stoðsending-
ar). Samvinna þeirra fé-
laganna hefur verið frá-
bær. Báðir eru þeir
sterkir skotmenn í þess-
um hröðu sóknum en
jafnframt með frábært
auga fyrir sendingum á
félaga sína.
Guðmundur kom
greinilega auga á þetta
strax og lagaði frá því á
HM í fyrra þegar Ólafur
og Patrekur komu að-
eins að 11 mörkum sam-
tals því þrátt fyrir að
hafa leikið leik færra
hafa þeir komið að 43
mörkum íslenska liðs-
ins til þessa á Evrópu-
mótinu. -ÓÓJ
Hraðaupphlaupsmörk á
síöustu 3 stórmótum:
Evrópumótið í Króatíu 2000 . 33
Gústaf Bjamason 9, Patrekur Jó-
hannesson 7, Valdimar Grímsson 7,
Róbert Sighvatsson 3, Ólafur Stefáns-
son 3, Róbert Julian Duranona 2,
Magnús Sigurðsson 1, Guðjón Valur
Sigurðsson.
5,5 aó meöaltali i sex leikjum
HM í Frakklandi 2001 ..... 23
Einar Öm Jónsson 8, Guðjón Valur
Sigurðsson 4, Róbert Julian Dura-
nona 4, Aron Kristjánsson 3, Patrek-
ur Jóhannesson 2, Ólafur Stefánsson
1, Róbert Sighvatsson 1.
3,8 aó meðaltali i sex leikjum
Evrópumótið í Svíþjóð 2002 . . 46
Einar Öm Jónsson 10, Patrekur Jó-
hannesson 10, Ólafur Stefánsson 8,
Guðjón Valur Sigurðsson 7, Rúnar
Sigtryggsson 4, Sigfús Sigurösson 4,
Gústaf Bjarnason 1, Aron Kristjáns-
son 1, Dagur Sigurðsson 1.
9,2 að meðaltali ifimm leikjum
Bjarni Frostason ver hér eitt tíu skota sinn í gær. Bjarni lék vel í síðari hálfleik eftir að báðir markveröirnir höfðu átt erfitt
uppdráttar í þeim fyrri.
DV-mynd Pjetur
frábær árangur.
íslendingar gera það ekki endasleppt á Evrópumótinu:
- þegar Júgóslavar voru gjörsigraðir með átta mörkum í gær
DV, Vásterás
Hver hefði trúað því fyrir ári síðan,
þegar íslendingar lágu fyrir Júgóslöv-
um í 16-liða úrslitum á heimsmeistara-
keppninni í Toulouse, að eftir ár myndu
strákarnir okkar snúa blaðinu við og
vinna síðan júgóslavneska liðið með
átta marka í Evrópukeppninni. Þetta
gerðist í Vasterás í gær þegar íslending-
ar léku á als oddi og sigruðu, 34-26, í
öðrum leik liðsins í milliriðlakeppn-
inni. Leikur liðsins nú og fyrir ári er
eins og svart og hvítt. Eftir frelcar jafn-
an fyrri hálfleik, þar sem íslendingar
leiddu í hálfleik, 14-12, sprakk liðið út
eins og blóm að vori, sýndi allar sínar
bestu hliðar og fór hreinlega á kostum
Júgóslavar gáfust upp, játuðu sig
sigraða áður en leikurinn var allur en
um tíma náði íslenska liðið ellefu
marka forystu. Hægt er að líkja leik ís'-
lendinga í síðari hálfleik við
sprengigos, krafturinn, orkan og leik-
gleðin var slík að því verður varla lýst
með öðrum hætti. í þessum ham stöðv-
ar liðið fátt og eins og áður hefur verið
sagt vex liðiö með hverri raun og verð-
ur beittara með hverjum leik.
Fimm leikir eru nú að baki i keppn-
inni og enn hefur liöið ekki tapað leik,
þrir sigrar og tvö jafntefli. Hvaða lif-
andi maður hefði getað látið sér detta I
hug fyrir keppnina að þetta gæti orðið
staðreynd eins og nú háttar málum. Ef
heppnin og réttlætið hefði verið með ís-
lenska liðinu væri það komiö með fullt
hús stiga og sætið í undanúrslitunum í
höfn. Þau eru mörg efin þegar menn
velta þessu fyrir sér en staðan er engu
að siður sú að liðiö hefur hlotið sex stig
og berst hatrammri baráttu um að kom-
ast í undanúrslitin í Globen í Stokk-
hólmi á laugardaginn kemur.
Alltaf maöur í manns stað
Ef við snúum okkur aftur að leiknum
við Júgóslava var gaman að sjá hvaö
Guðmundur Guömundsson landsliðs-
þjálfari getur keyrt leikinn á mörgum
leikmönnum. Það kemur alltaf maður í
manns stað og i þessu liggur einn styrk-
ur liösins. Að þjálfarinn hafi þennan
möguleika er geysilega sterkt því álagið
á leikmönnum er gífurlegt. Það er búið
að leika fimm leiki á sex dögum og það
geta allir gert sér það í hugarlund hvað
það tekur mikla orku af hverjum og
einum.
í leiknum i gær var athyglisvert að
íslenska liðið hefur tveggja marka for-
ystu í leikhléi á sama tíma og mark-
verðir liðsins verja ekki eitt einasta
skot í fyrri hálfleik. Þennan veikleika
vann vörnin upp, varði bolta hvað eftir
annaö og keyrt var síðan á hraðaupp-
hlaupum en upp úr þeim skoraði liðið
tíu mörk í hálfleiknum. Júgóslavar
hófu leikinn með því að skora tvö
fyrstu mörkin en síðan fylgdu í kjölfar-
ið sjö mörk frá íslendingum og staðan
var orðin 7-2 eftir 12 mínútna leik.
Júgóslavar náðu af miklu harðfylgi að
minnka muninn í eitt mark, 10-9, en
lengra komust þeir ekki í leiknum.
Flugeldasýning í seinni hálfleik
Síðari hálfleikurinn var hrein flug-
eldasýning af hálfu íslenska liðsins,
mörk litu dagsins ljós í öllum regnbog-
ans litum og menn leyfðu sér að vera
með sirkusatriði og eftir eitt slíkt atriði
var skorað gullfallegt mark sem yljaði
hjörtum áhorfenda sem þökkuðu fyrir
leikþáttinn með löngu lófaklappi. Þegar
allt lék í lyndi hrökk Bjarni Frostason i
gang i markinu og varði 13 skot í síðari
hálfleik. Það reyndi fyrst fyrir alvöru á
Bjama í keppninni og hann svaraði
kallinu með stæl, sýndi sínar bestu
hliðar og lagði sitt á vogarskálamar í
stórsigri á Júgóslövum.
Ólafur Stefánsson sýndi oft sinar
bestu hliðar og réðu Júgóslavar ekkert
við hann. Einar Örn Jónsson lék örugg-
lega einn sinn besta landsleik, skoraöi
átta mörk úr níu skotum, ekki amaleg
skotnýting það. Sigfús Sigurðsson var
drjúgur á línunni en auk markanna
fiskaði hann nokkur vítaköst. Það er
bara sama hvert litið er, allt liðið á
stóra stjömu skilið fyrir framgöngu
sína.
Ein stór hindrun eftir
Hverri hindruninni af annarri hefur
verið mtt úr vegi - en ein stór er eftir.
Kljást verður við hana í kvöld þegar ís-
lendingar mæta Þjóðverjum I siðasta
leiknum í milliriðlunum. Þetta er án
nokkurs vafa einn mikilvægasti leikur
sem íslenskt landslið hefur leikið í sög-
unni. íslenska liðið er ekki auðunnið og
það mun berjast til síðasta blóðdropa í
kvöld. Þjóðirnar áttust við í Reykjavík í
janúar og sigruðu þá íslendingar I báð-
um leikjunum. Þeir leikir telja ekki hér
heldur orrusta þjóðanna í kvöld. -JKS
Ísland-Júgóslavía 34-26 (16-14)
Leikstaóur og dagur: Vásterás. 30. janúar.
Dómarar (1-10): Goulao og Macau frá
Portúgal (3). Gceói leiks (1-10): x.
Sóknarnýting
Fyrri hálfleikur:
StoOsendingar Fiskuð Tapaðir Stolnir Frakðst Fiskaðar
Leikmenn: Skot/Mörk 9 m Lina Hom Gbr. Hrað. vm (inn á línu) viti boltar boltar Varin (í sókn) 2 min 2 min
Ólafur Stefánsson 17/10 59% 7/2 1/1 4/4 5/3 7(1) 0 5 5 0 0 0 0
Einar Örn Jónsson 9/8 89% 3/3 6/5 0 í 1 2 0 0 0 0
Sigfús Sigurðsson 6/5 83% 4/3 2/2 2 í 0 1 4 1(1) 2 0
Guöjón V. Sigurðsson 5/3 60% 2/1 3/2 2 0 0 3 0 1(1) 0 2
Aron Kristjánsson 5/3 60% 2/0 1/1 2/2 2 2 1 0 0 0 2 8
Dagur Sigurðsson 5/2 40% 3/1 1/0 1/1 4(1) 0 0 1 0 0 0 0
Patrekur Jóhannesson 8/2 25% 4/0 1/0 3/2 7(1) 1 1 1 1 5(1) 0 0
Halldór Ingólfsson 1/1 100% 1/1 1 0 0 0 0 0 0 0
Róbert Sighvatsson 1/0 0% 1/0 1 0 1 0 0 0 0 0
Ragnar Óskarsson 1/0 0% 1/0 0 0 0 0 0 0 0 0
Rúnar Sigtryggsson 0 0 0 1 0 0 0 0
Gunnar B. Viktorsson 0 0 0 0 0 0 0 0
Samtals 58/34 59% 18/4 7/4 5/4 4/3 19/16 5/3 26(3) 5 9 14 5 7(3) 4 10
Markverðir Skot/Varin 9 m Lina Hom Gbr, Hrað. Vití Skotum Skottil Stoðsendinear Tanaöir haldiö mótheria (inn á línu) boltar Stolnir boltar Fráköst (isókn) 2 min
Guðmundur Hrafnkels. 8/0 0% 5/0 2/0 1/0 0 0 0 0 0 0 0
Bjami Frostason 28/10 36% 15/7 4/1 3/0 2/1 3/1 1/0 6 3 1 0 2 0 0
Markverðir, samtals 36/10 28% 20/7 6/1 3/0 - 2/1 4/1 1/0 6 3 1 0 2 0 0
0-2, 7-2, 7-3, 8-3, 8-6,
9-6, 9-7, 10-7, 10-9,
12-9, 13-10, 13-12,
14-12, 14-13, 15-14,
(16-14), 17-14, 17-16,
19-16, 22-19, 25-19,
ísland (32/16 - 5 tapaðir) .....50%
Júgóslavía (32/14 - 13 tapaðir) . 44%
Seinni hálfleikur:
ísland (29/18 - 4 tapaðir) .....62%
Júgóslavía (30/12 - 8 tapaðir) . . 40%
Samtals:
27-21, 31-21, 31-22, fsland (61/34 - 9 tapaðir) ....56%
33- 22, 33-24, 34-24, Júgóslavía (62/26 - 21 tapaðir) . 42%
34- 26.
Júsóslavía:
Mörk/viti (skot/viti): Dragan Skrbic 6 (9), Blazo Lisiéic 5 (8), Nedeljko
5/1 (11/1), Zikica Milosavfjevic 2 (2), Nenad Maksic 2 (2), Vladimir
Petric 2 (3), Dusko Grbic 2 (9), Vladan Matic 1 (1), Jovan Kovacevic 1
(2).
Variti skot/viti (skot á sig): Arpad Sterbik 12/1 (28/1, 43%, hélt 4, 4 til
mótherja), Dejan Peric 6/1 (18/3, 33%, hélt 1, 3 til mótheria), Nenad
Puljezevic 0 (6/1,0%, hélt 0, 0 til mótherja).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Skrbic 2, Milosavljevic).
Vítanýting: Skorað úr 1 af 1.
Maður leiksins hjá DV-Sporti:
xxxxxxx
Brosað allan hringinn
- sagði Einar Örn Jónsson sem gerði 8 mörk í 9 skotum
E-riðill:
Tékkland-Rússland...........20-29
Úkraína-Danmörk ............17-21
Svíþjóð-Portúgal............27-22
DV, Vásterás
„Okkur gekk ekki alveg nógu vel
varnarlega í fyrri hálfleik, fengum
að mínu mati of mörg auðveld mörk.
Við fórum ekki nógu vel út í vörn-
inni og tókum heldur ekki línuna
nógu vel. Við náðum að setja undir
þann leka í síðari hálfleik en í hálf-
leik töluðum við um það vera ekki að
kýtast á heldur vinna hlutina saman,
sýna samstöðu og brosa. Þetta gekk
eftir og ég held að flestir hafi brosað
allan hringinn allan seinni hálfleik-
inn. Þegar við vinnum saman, leik-
um góðan vörn, fáum markvörsluna
í gang, náum hraöaupphlaupum, þá
stöðvar okkur enginn,” sagði Einar
Örn Jónsson sem átti skínandi leik
og skoraði átta mörk úr níu skotum.
Gjörólíkt liö
- Nú lékst þú einnig gegn
Júgóslövum á HM ifyrra. í hverju
liggur munurinn á liðunum i dag?
„Okkar lið er bara gjörólíkt, liðið
er mikið breytt f spilamennsku en
það sem ég hef séð til Júgóslava hér
og áður þá leika þeir einfaldlega illa.
Þeir leika ekki saman sem lið, held-
ur einstaklingar, hver í sínu horni.
Þeir hafa yfir að ráða frábærum ein-
staklingum en þá vantar hins vegar
nokkra sterka leikmenn en það skýr-
ir ekki andleysið og baráttuleysið
sem var í þeim gegn okkur.”
- Skotnýting þín var einstök í
þessum leik, ekki satt?
„Ég klikkaði á einu skoti þegar ég
fékk erfiða sendingu. Ég hefði betur
sleppt því að skjóta, færið var erfltt
og mitt klúður að klúðra þvi. Það
gekk hins vegar mjög vel að opna
júgóslavnesku vörnina hægra megin
fyrir mig. Þeir pressuðu nokkuð stíft
á skyttumar, Ólaf og Patrek, og þá
opnast einhvers staðar, og þá sér-
staklega þegar við höfum trölliö á
línunni sem Sigfús er. Þeir nenntu
enn fremur ekki að hlaupa til baka
þegar við keyrðum hraðaupphlaup-
in.”
Stefnum á undanúrslitin
- Hvað segir þú um þessa stöðu
sem liðið er komið i upp á fram-
haldið að gera?
„Framhaldið er næsti leikur gegn
Þýskalandi og við erum ekki farnir
að hugsa lengra en það. Við ætlum
okkur auðvitað sigur í þeim leik og
þá sigur um leið í þessum milliriðli.
Viö stefnum á undanúrslitin, þá er
þægilegri staða og þægilegri
mótherjar ef við verðum efstir. Við
stefnum á þetta en til þess þurfum
við að vinna Þjóðverja og jafnvel að
treysta á einhver önnur hagstæð úr-
slit og markatölu. Við sjáum hvað
setur, við unnum þá tvisvar í æfinga-
leikjum heima fyrir skemmstu. Þeir
telja ekki lengur og það verður mjög
erfiður leikur gegn þeim í kvöld,”
sagöi Einar Öm Jónsson -JKS
Svíþjóö 4 4
Danmörk 4 3
Rússland 4 2
Portúgal 4 1
Tékkland 4 1
Úkraína 4 0
0 0 115-91 8
1 0 104-87 7
1 1 108-94 5
0 3 89-105 2
0 3 97-118 2
0 4 88-106 0
Ísland-Júgóslavía .
Slóvenía-Þýskaland
Spánn-Frakkland .
Þýskaland
ÍSLAND
Spánn
Frakkland
Júgóslavía
Slóvenía
F-riöill:
4 3 1
4 2 2
4 2 1
4 1 2
4 0 1
4 0 1
....... 34-26
....... 28-31
....... 27-24
0 92-82 7
0 115-101 6
1 94-87 5
1 87-88 4
3 91-107 1
3 97-111 1