Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2002, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2002
Æfingar byrja kl: 10:00
og keppnin kl: 14:00
Aðgangseyrir er 800 kr.
fyrir 12 ára og eldri
Keppt verður í fjórum flokkum
oa skráningar skulu berast á
SPORTFERÐIR
www.sporttours.is
SKJÁR EINN
FLUGFÉLAO ÍSLANDS
k Áim Hetgasan
\1/ Vtrktakl ólafi/lril
MOTORSPORTS
Sport
Hvao
er
snjókross?
Snjókross er vélsleðakeppni í u.þ.b.
800 metra langri og lokaðri braut.
Keppendum er svo stillt upp á ráslinu
og komast þar fyrir 14 keppendur í
einu. Séu keppendur fleiri er þeim
skipt í tvo eða fleiri hópa.
Hver keppni skiptist í 4 umferðir,
öðru nafni „hít“. Hver braut er svo
samsett af beygjum og stökkpöllum
samkvæmt amerískum stöðlum.
Þannig heita stóru stökkpallarnir
„table top“ og eru einn til þrír slíkir i
hverri braut. Keppendur stökkva af
„table top“ allt upp í 7 metra hæð og
25 metra vegalengd, enda tala gárung-
arnir um að það þurfi flugumferðar-
stjóra í sumar keppnirnar.
Minni stökkpaflarnir, svokallaðir
„vúpsar" eru sömuleiðis af ákveðnum
gerðum, gjarnan 2-4 í röð, og eru þeir
stuttir og kúptir. Hver umferð gefur
stig til Islandsmeistara með þeim
hætti að ökumenn fá stig í öllum um-
ferðum sem keyrðar eru, bæði undan-
rásum og úrslitum, en þau vega þó
misjafnlega mikið.
Flöggin í keppninni
Grænt flagg:
Brautin er greið og keppni er í
gangi.
Gult flagg:
Allur framúrakstur er óheimifl á
gulu flaggsvæði. Ef brautarstarfsmað-
ur í beygju heldur gulu flaggi á lofti
(veifar ekki) þýðir það að fram undan
er atvik - hindrun getur verið í braut.
Keppendur skulu hægja á og nálgast
með varúð. Þeir hafa þá ekki leyfi til
framúraksturs fyrr en ljóst er hvert
atvikið er og þeir eru komnir fram hjá
gula flaggsvæðinu. Ef gula flagginu er
veifað þýði það að atvik er fram und-
an, það er hindrun í braut.
Ökumönnum ber að draga verulega
úr hraða og nálgast með ýtrustu var-
úð. Og sem fyrr er bannað að aka
fram úr fyrr en ekið hefur verið fram
hjá atvikinu. Enginn framúrakstur er
liðinn undir gulu flaggi, að því með-
töldu þegar keppinautur er vinkaður
fram úr. Ef keppandi vinkar fram úr
á gulu flaggsvæði má ekki aka fram
úr keppandanum fyrr en atvikið er
ljóst. Aki keppandi fram úr við þessar
aðstæður fær hann svart flagg. Sömu-
leiðis ef ekið er fram úr öðrum kepp-
anda á gulu flaggsvæði. Ef keppandi
hægir á og fylgir settum reglum innan
gula flaggsvæðisins og skynjar færi á
að halda áfram án hraðaaukningar og
vinna þar með upp vegalengd, þó
hann aki ekki fram úr, verður honum
refsað með stoppa - af stað-refsingu.
Rautt flagg:
Keppni er stöðvuð umsvifalaust,
\ \
Alexander Kárason er sá sem allir
vilja sigra þetta árið. „Brautin á Dal-
vík verður teknísk og erfið og þar
verða sauðirnir skildir frá höfrun-
um.“
Halldór Óskarsson ætlar að etja
kappi við Lexa í Pro Open. „Til þess
fékk ég mér Lynx 800 keppnissleða
og einnig nýjan Lynx 440 keppnis-
sleða til æfinga."
óháð staðsetningu keppanda í braut.
Keppanda ber að hægja á og stansa
með varúð. Óvíst er hvort ökumenn
aftan við viðkomandi hafa séð rauða
flaggið. Endurræsingarröð ökumanna
fer eftir síðasta hring sem keppnis-
stjórn taldi gilda. Enga vinnu má
framkvæma á vélbúnaði án heimildar
keppnisstjórnar. Sé vélarhlíf lyft er
litið á það sem brot á þessari reglu og
sá ökumaður sem braut regluna fer
aftur fyrir.
Svart flagg
Upprúllað svart flagg táknar við-
vörun; annaðhvort bilun á vélbúnaði
eða brotlegt framferði ökumanns. Sé
því beint að keppanda er það viðvör-
un um að stöðva og engu skiptir
hvaða framferði hefur vakið athygli
keppnisstjórnar. Ef keppandi brýtur
af sér undir þeim kringumstæðum er
flagginu flaggað. Það að keppanda sé
sýnt svarta flaggið þýðir EKKI að
hann sé samstundis úr keppni. Ef til
vill er um „stoppa af stað“-refsingu að
ræða. Ekki skal keppandi aka út úr
hringnum heldur ljúka honum, hægja
verulega á og stöðva við marklínu.
Keppandi þarf að hafa augun á aðal-
flaggaranum allan tímann því hann
gæti eingöngu verið að hægja á við-
komandi ef t.d. keppinauturinn sem
farið var fram úr á gulu flaggsvæðinu,
eða sá sem keppandinn snerti um of
við framúraksturinn, fer fram hjá. Þá
veifar flaggarinn með svarta flagginu
opnu sem er merki um að halda
áfram. Ef brotið er talið alvarlegra
getur refsingin verið stopp af stað.
Keppandi skal fara aftur með gætni
inn i keppnina. í verstu tilfellum get-
ur flaggarinn hleypt öllum fram úr
eða dæmt viðkomandi úr leik. í því
tilfelli skal keppandinn gjöra svo vel
að yfirgefa brautina með gætni og
fara í pytt.
Blátt flagg:
Sýnt sleðum sem verið er að
hringa.
Hvítt flagg:
Ökumenn hafa ekið af stað i þeirra
siðasta hring.
Köflótt flagg:
Keppni er lokið! Keppandi fari um-
svifalaust að tæknisvæðinu. Það má
krefja hann um að stansa vegna
tækniskoðunar að keppni lokinni. Það
er hins vegar venjan að sigurvegarinn
keyri sigurhring og haldi á köflótta
flagginu.
verður haldið á Dalvík
Laugardagirm
2. Febrúar
.
m i ■
sjw i
Keppnin í snjókrossinu er oft ansi hörö í brautunum.
ICELANDAIR .,53®