Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002 19 I>V handler o Olafur Stefánsson rekinn út af í 2 mínútur í gær gegn Dönum og er ekki sáttur við gang mála frekar en Sigfús Sigurðsson. DV-mynd Pjetur Ölafur B. Lárusson, þjálfari Gróttu/KR, um leikina gegn Svíum og Dönum: Þrátt fyrir allt er 4. sætið glæsilegur árangur Globen-Halle, 13.000 Svíar og sænskt landslið skipað leikmönnum sem hafa nær undantekningarlaust spilað í und- anúrslitum á öllum helstu stórmótum sl. 10 ár. Ókleifur múr og það kom einmitt á daginn. Ætli við þurfum ekki að bjóða Svíum til Islands í vináttulandsleik, bjóða þeim á hestbak eins og Dönum hérna um árið og reyna þannig að vinna bug á Svíagrýlunni. Enda þótt ég hafl ekki verið mjög trúaður á sigur þá ól ég þá von í brjósti að við myndum spila af sömu ákefð, sköpunargleði og virðing- arleysi fyrir andstæðingnum eins og við höfum gert fyrr í keppninni. Þetta tókst íslensku leikmönnunum þvi miður ekki. Fyrri háifleikurinn var nokkuð jafn framan af en seinni partinn komust Svíarnir í fjögurra marka forystu og fór þá um landann en við komum til baka og héldum viðunandi stöðu í leikhléi. Það var þó þegar ljóst að þetta yrði erfitt. Vamarleikurinn var ekki samur. Við náðum hvorki að stöðva langskotin né línuspilið og var á köflum eins og Sig- fús og Rúnar væru að slá vindhögg. Þeir náðu ekki að tækla skytturnar og voru oftar en ekki staðsettir þannig að línu- maðurinn var á milli þeirra og knattar- ins sem er alröng staðsetning. Hvort þetta var vegna góðs sóknarleiks Sví- anna eða óttablandinnar virðingar fyrir einstaka leikmönnum skal ósagt látið en alla vega þá var varnarleikurinn ekki svipur hjá sjón. í kjölfarið var minna um aðal okkar manna, hraðar sóknir. Seinni hálfleikur byrjaði vel en síðan seig jafnt og þétt á ógæfuhliðina og við sáum í raun aldrei til sólar í seinni hálfleiknum. Guðmundur var að verja þó nokkuð af dauðafærum en átti sem stundum áður i erfiðleikum með langskotin. Vörnin varði lítið af skotum og með- al annars vegna þessara tveggja þátta varð lítið úr hröðum sóknum íslenska liðsins. Þrisvar létum við svo taka okk- ur í landhelgi þegar Svíar tóku miðjuna hratt og nýttu sér værukærð okkar manna. Sóknarleikurinn var frekar ein- hæfur og virtist sem ekki væru næg ráð við heimavinnu Svíanna sem greinilega höfðu lesið leik is- lenska liðsins til hlítar. Það sem hefur dugað okkur lengstum í keppn- inni, að miðju- mennirnir ( Patti og Aron) leysi upp og síðan spili Dag- ur og Óli á milli sín, skapaði litla ógnun. íslensku útileikmennimir sóttu ailtof mikið inn á miðjuna í stað þess að teygja á sænsku vörninni og skapa þannig meira pláss á milli sænsku vamar- mannanna til þess að vinna með. Óli Stefáns hefur sótt töluvert inn á miðj- una í undanfórnum leikjum og það lásu Svíarnir og hefði Óli þurft meiri hjálp til þess að komast í skotstöðu. Með þvi að sækja meira á milli fyrsta og annars varnarmanns í byrjun sóknar hefðum við náð að teygja meira á vöminni sem hefði í kjölfarið auðveldað okkur að koma inn á miðjuna. Þrátt fyrir þetta fengum viö mörg góð færi sem við nýtt- um ekki og var á köflum grátlegt að horfa upp á leikmenn sem hafa verið með frábæra nýtingu frjósa í slúttum og gjörbreyta fyrri venjum. Sóknarleikur- inn, sem hefur fram til þessa verið u.þ.b. 60%, féll niður undir 40% í þess- um leik og sér hver heilvita maður að ekki er hægt að sigra Svia með þvíum- líku. Þess utan fengum við á okkur 33 mörk sem er langt umfram það sem við eigum að venjast. Þjálfarinn virtist ráð- þrota og þær breytingar sem gerðar voru komu að litlu gagni. í heild má segja að Svíarnir hafi ein- faldlega verið betri eins og við mátti bú- ast. Hitt er svo annað mál að það er ekki sama hvemig menn ganga frá töp- uðum leik og það er alveg kristaltært að íslensku leikmenn- irnir em ekki ánægðir með frammistöðuna í þessum leik og það vita þeir best sjálf- ir. Okkur tókst ekki að vinna bug á spennunni enda kannski til of mik- ils mælst. ísland - Dan- mörk Leikurinn um bronsið fór tiltölulega rólega af stað og vorum við ekki búnir að skora fleiri en 5 mörk um miðjan fyrri hálfleikinn. Patrekur er meiddur og hefur það mik- il áhrif í sókn sem vörn. Okkur tókst aðeins að skora tvö mörk úr hröðum sóknum í fyrri hálf- leik og er sóknarnýtingin tæplega 50%, töluvert fyrir neðan meðaltalið. Þreyta er eðlilega farin að segja til sín og leik- menn eru að gera mistök sem skrifast á hana. Enn er sótt of mikið inn á miðja vöm Dananna í stað þess að að sækja utanvert. í seinni hálfleik bitum við í skjaldarrendur og náðum að jafna en allt kom fyrir ekki. Rúnar fékk rautt spjald fyrir þrjár brottvísanir og við það hreinlega hrundi varnarleikurinn enda til of mikils mælst að Aron gæti leyst miðjustöðuna i 6-0 vörninni. Markvörður Dananna var okkur óþægur ljár í þúfu og var með rúmlega 50% varin skot sem verður aö teljast frábært. Leikmenn reyndu þó að leggja sig fram en það er augljóst að ekki tókst að rífa liðið upp eftir tapið gegn Svíum og hefur hópnum ekki tekist að skapa aftur það andrúmsloft sem einkenndi liðið í sex fyrstu leikjunum. Hverju sem um er að kenna þá virtust Danir eiga meira inni en við þannig að þeir hrein- lega völtuðu yflr okkur á lokakaflanum. Eftirtektarvert er að skoða árangur okkar einum fleiri en einum slíkum kafla töpuðum við 2-0 í seinni háifleikn- um og er það ekki í fyrsta sinn sem það gerist. Það er greinilega vafamál hvort það skilar tilætluðum árangri að taka einn úr umferð. Frammistaða einstakra leikmanna var eins og gengur og gerist upp og nið- ur. Guömundur er að verja eina 10 bolta og er það helmingur á við kollega hans hinum megin á vellinum og munar um minna. Sigfús er að skila nokkuð góð- um leik sem og Óli Stefáns. Dagur var með góðan fyrri hálfleik en hvarf nán- ast í þeim seinni. Aron átti frekar dapran dag og sömu sögu má segja um Gunnar Berg. Ragnar átti ágætisinnkomu í seinni hálfleik og Einar Örn var með góða nýtingu enda þótt mörkin væru ekki mörg. Aðrir náðu vart að setja mark sitt á leikinn og m.a. náði vinstra hornið ekki nema einu marki. Úrræði skorti f sóknarleik- inn og hefði ég t.d. viljað sjá Sigfús sækja Óla svipað og þeir gerðu svo glæsilega gegn Hvít-Rússum á vordög- um sl. árs. Guðmundur hreyföi liðið þó nokkuð og breytti um varnarleik síðustu mínút- urnar en þessi ráð hans dugðu skammt og niðurstaðan varð sama sæti og á Ólympíuleikunum 1992 sem er engu að síður, eins og þá, glæsilegur árangur. Ólafur B. Lárusson Ólafur B. Lárusson. Sport Strákarnir okkai 9. Guðjón Valur Sigurðsson Spilatími 403 mín. og 32 sek. Skot/mörk . . 38/21 Skotnýting .... . . . . 55% Hraðaupphlaupsmörk .. . 10 Stoðsendingar . . 9 Línusendingar sem gefa mörk ... 1 Sendingar sem gefa víti .. 1 Fiskuð víti .... 3 Stolnir boltar . . 9 Tapaðir boltar . . 5 Brottvísanir ... 4 mínútur Fiskaðar brottvísanir .... .. 6 mín. 10. Halldór Ingólfsson Spilatími 49 mín. og 43 sek. Skot/mörk .... 9/4 Skotnýting .... . . . 44% Vítaskot/mörk .. 1/0 (0%) Stoðsendingar .. 3 Sendingar sem gefa víti . . 1 Fiskuð víti .... 2 Tapaðir boltar . . 1 Fiskaðar brottvisanir ... 4 mínútur 11. Ólafur Stefánsson Spilatími 431 mín. og 20 sek. Skot/mörk .... . 106/58 Skotnýting .... . . . 55% Vítaskot/mörk . 26/18 (69%) Hraöaupphlaupsmörk .... 9 Stoðsendingar .. 54 Línusendingar sem gefa mörk . . 13 Sendingar sem gefa víti . . 7 Fiskuð víti .... 3 Varin skot í vörn 9 Stolnir boltar . . . 11 Tapaðir boltar . . 22 Brottvísanir . . . 6 mínútur Fiskaðar brottvísanir .... . 22 min. 13. Rúnar Sigtryggsson Spilatimi 201 mín. og 17 sek. Skot/mörk . . 10/7 Skotnýting .... . . . 70% Hraðaupphlaupsmörk .... 6 Stoðsendingar . . 2 Fiskuð víti .... 2 Varin skot í vörn 4 Stolnir boltar . . . 10 Tapaðir boltar . . 3 Brottvísanir .... Fiskaðar brottvísanir .... . 4 mín. 14. Ragnar Óskarsson Spilatími 27 min. og 35 sek. Skot/mörk . . . 9/4 Skotnýting .... . . 44% Stoðsendingar .. 3 Línusendingar sem gefa mörk ... 2 Tapaðir boltar . . 3 17. Gunnar Berg Viktorsson Spilatími 70 mín. og 25 sek. Skot/mörk . .. 9/3 Skotnýting .... . . 33% Vítaskot/mörk . . 1/0 (0%) Hraðaupphlaupsmörk .... 1 Stoösendingar , . 4 Fiskuð víti .... 1 Stolnir boltar .. 1 Tapaðir boltar . . 3 Skotnýting úr stöðum Langskot ... 163 skot/60 mörk (37%) Lína 55/35 (64%) Horn 40/20 (50%) Gegnumbrot .. . 32/21 (66%) Hraðaupphlaup . 79/62 (78%) Vítaskot ...... 34/23 (68%) Markvarsla úr stöðum Langskot ... 134 skot/53 varin (40%) Lína 58/21 (36%) Horn 38/14 (37%) Gegnumbrot .. . 36/14 (39%) Hraðaupphlaup . 46/18 (39%) Vítaskot 22/5 (23%) Sóknarnýting eftir leikjum Spánn .... 49 sóknir/24 mörk (49%) Slóvenía 56/31 (55%) Sviss 53/33 (62%) Frakkland 54/26 (48%) Júgósiavía 61/34 (56%) Þýskaland 50/29 (58%) Svíþjóð 56/22 (39%) Danmörk 53/22 (42%)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.