Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Síða 5
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002 21 DV Sport ^ - bronsverðlaunin runnu úr greipum íslendinga eftir stórt ^ v tap fyrir Dönum. 4. sætið niðurstaðan og glæsilegur árangur y einnig í Svíaleiknum, það veit eng- inn hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Gríðarlegt álag hefur verið á Ólafi Stefánssyni í keppninni og var svo að sjá 'að hann væri orðinn mjög þreyttur. Sigfús Sigurðsson átti bestan leik í íslenska liðinu en hann ásamt Ólafi lék stórkostlega i mótinu. Það er sárt að snúa ekki heim með verðlaun um hálsinn en fjórða sætið verður ekki tekið af liðinu. Það er frábær árangur en á ögurstundu brást liðið. Ef það hefði leikið af sama krafti og í Skövde og Vásterás er ekki nokk- ur spurning að það hefði unnið til verðlauna. Það verður hægt að draga lærdóm af þessu móti sem kemur að góðum notum fyrir Guðmund Guðmundson landsliðs- þjálfara í framtíðinni. Sá maður sem spáð hefði liðinu fjórða sæti fyrir Evrópukeppnina hefði talist fullbjartsýnn. Það er engu að síð- ur í höfn. -JKS Makedónar mótherjar í forkeppni HM Dráttur í forkeppni heims- meistarakeppninnar í Portúgal á næsta ári fór fram í Globen í Stokkhólmi í gær. Islendingar drógust gegn Makedóníu og er þetta í þriðja skiptið sem við mætum þeim í forkeppni á fáein- um árum. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari sagði við DV i Stokkhólmi í gær að Makedónía væri verðugur andstæðingur og mjög erfið heim að sækja. „Það er markmið okkar að tryggja liðið inn á heimsmeist- arakeppnina í Portúgal," sagði Guðmundur. Aðrir leikir í forkeppninni eru ísrael - Slóvenía, Ungverjaland - Úkraína, Austurríki - Spánn, Pólland - Sviss, Noregur - Júgó- slavía, Litháen - Rússland og Króatía - Tékkland. Leikið er heima og heiman og fara leikirnir fram fyrstu og aðra helgina í júní i sumar. Portúgalar sem gestgjafar, Svíar, Þjóðverjar, Danir, fyrstu þrjú liðin á Evrópumótinu í Svíþjóð, og Frakkar sem heimsmeistarar fara beint á HM í Portúgal án forkeppni. -JKS DV, Stokkhólmi: íslenska landsliðið í hándknatt- leik gekk í gegnum súrar og sæt- ar stundir á Evrópumótinu í handknattleik sem lauk í Globen í Stokkhólmi í gær. Liðið mætti Dönum í leik um bronsverðlaunin en þau gengu íslenska liðinu úr greipum. Danir sigruðu í leikn- um, 29-22, eftir að staðan í hálf- leik hafði verið 11-13 Dönum í hag<< íslendingar, sem léku á als oddi í riðlakeppninni í Skövde og síðan í milliriðlinum í Vásterás, náðu ekki að fylgja þvi eftir í leikjunum i Globen. Menn eiga ef- laust eftir að velta þvi fyrir sér hvað fór úrskeiðis í leikjunum gegn Svíum og Dönum, þá sér- staklega síðari hálfleiknum. Það er sorgleg staðreynd að fá ekki i það minnsta bronsverðlaun mið- að við það sem á undan gekk. Danir mættu mjög einbeittir til leiksins gegn íslendingum í Glob- en í gær og ætluðu ekki að tapa fimmta leik sínum um bronsverð- laun í stórkeppni í gegnum tíðina. Sóknarleikur íslenska liðsins var fálmkenndur i fyrri hálfleik og ekki bætti úr skák að markvörður danska liðsins fór hreinlega á kostum. Homin voru óvirk og lið- ið var að glopra boltanum nokkrum sinnum. Þetta gerði ís- lenska liðinu mjög erfitt um vik en Dönum gekk hins vegar allt í haginn. Sérstaklega var línuspil þeirra sterkt og skoruðu þeir mörg mörk þaðan. Danir náðu í fyrri hálfleik fjög- urra marka forskoti og útlitið var ekki alltof bjart. Þá voru gerðar breytingar á liðinu, Gunnar Berg Viktorsson kom inn á og Ólafur Stefánsson gat fyrir bragðið hvílt sig í vörninni. Þessar breytingar virkuðu vel og íslenska liðinu tókst af miklu harðfylgi að minnka muninn í eitt mark. Dan- ir bættu við á lokakafla hálfleiks- ins og komust aftur tveimur mörkum yfir. Vörnin náði sér á strik og var mjög hreyfanleg framan af síðari hálfleik. Liðið var inni í leiknum og allt gat gerst. Ragnar Óskarsson jafnaði metin, 15-15, og spennan i hámarki. Þá í kjölfarið fengu ís- lendingar brottvísanir i tvígang og Danir komust aftur tveimur mörk- um yfir. íslendingar fengu síðan kjörið tækifæri tii að klóra í bakk- ann þegar Danir misstu mann út af i tvær mínútur. í stað þess að minnka muninn skoruðu Danir tvö mörk, einum færri, en íslendingar ekkert. Þetta er vendipunkturinn í leiknum og lengra varð ekki kom- ist. Orrustan við Dani var töpuð, is- lenska liðið gafst upp og leikurinn leystist upp á síðustu mínútunum. Skotnýting islenska liðsins var afarslök í þessum leik og mark- vörður Dana las skotin mjög vel og hafði þau alveg í hendi sér. Patreks Jóhannessonar var sárt saknað en þegar hans nýtur ekki við kemur það hart niður á sókninni og vörn- inni. Þetta kom berlega í ljós, ■M Olafur Stefánsson tekur aukakast eftir að venjulegum leiktíma í fyrri hálfleik lauk gegn Dönum. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.