Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2002, Síða 14
30
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2002
Sport
NBA-DEILDIN
Aðfaranótt laugardags
Indiana-New York..........92-87
Miller 20, O'Neal 18 (13 frák.), Bender
18 - Houston 27, Sprewell 18, We-
atherspoon 14 (9 frák.).
Washington-Atlanta........97-90
Jordan 28 (8 stoðs.), Alexander 14,
Nesby 12 - Abdur-Rahim 25 (8 frák.),
Terry 17, Mohammed 15 (13 frák.).
Boston-Minnesota, e. frl. . . 95-98
Pierce 22 (10 frák.), Anderson 16,
Strickland 14 - Garnett 21 (15 frák.),
Brandon 21 (9 frák., 9 stoðs.), Szczer-
biak 19.
Miami-San Antonio.........88-83
Eddie Jones 24 (8 frák.), Rod
Strickland 17, Alonzo Mourning 13 -
Tim Duncan 29 (12 frák.), Malik Rose
20 (9 frák.), Stephen Jackson 12.
Detroit-Orlando...........83-85
Stackhouse 18, Williamson 15, Barry
13 - Miller 18, McGrady 12 (9 frák.),
Armstrong 12.
Memphis-LA Lakers........85-100
Knight 13 (10 stoðs.), Gasol 13, Long
10 - O'Neal 26 (10 frák.), Fisher 21,
Bryant 13.
Houston-Charlotte.........72-73
Mobley 23, GrifTin 16 (11 frák.), Thom-
as 13 (10 frák.) - Campbell 21 (9 frák.),
Davis 16 (10 stoðs.), Nailon 16.
Phoenix-Golden State .... 104-98
Marbury 20 (10 stoðs.), Marion 19 (12
frák.), Tsakalidis 17 - Jamison 26,
Richardson 22, Murphy 17.
Sacramento-Denver .......132-96
Webber 29 (12 frák.), Bibby 21, Stoja-
kovic 20 - LaFrentz 16 (11 frák.), Pos-
ey 13, Johnson 12.
Aðfaranótt sunnudags
Cleveland-Detroit........107-115
Davis 28 (9 stoös.), Murray 24, Miller
20 (8 stoðs.) - Stackhouse 23, William-
son 17, Robinson 14.
Seattle-Chicago ............91-97
Baker 23 (8 frák.), Payton 21 (9 stoðs.),
Barry 14 - Miller 17 (13 frák.), Artest
16, Guyton 15.
New Jersey-Toronto.........98-91
Kidd 31 (10 frák., 10 stoðs.), Jefferson
17, Martin 16 - Carter 26, Williams 18,
Davis 14 (12 frák.).
Utah-Portland ..............97-96
Malone 24 (13 frák.), Stockton 17 (9
stoðs.), Kirilenko 12 - Wells 24 (8
frák.), Pippen 17, Stoudamire 14.
Milwaukee-Philadelphia . . 81-86
Allen 20, Robinson 18 (8 frák.), Redd
13, Anthony Mason 11 (13 frák.) -
Iverson 25, Coleman 19 (8 frák.),
Harpring 14 (9 frák.).
Atlanta-LA Clippers.......101-94
Terry 30, Abdur-Rahim 27, Johnson
11 - Piatkowski 22, Brand 19 (11
frák.), Olowokandi 18 (14 frák.).
Staðan
Atlantshafsriðill: New Jersey
(31/14), Boston (26/20), Washington
(23/21), Philadelphia (24/22), Orlando
(24/23), New York (18/26), Miami
(17/28).
MiðriðiU: Milwaukee (27/18),
Toronto (27/20), Detroit (24/21), Indi-
ana (25/23), Charlotte (22/23), Atlanta
(15/32), Cleveland (14/32), Chicago
(10/35).
Miðvesturriðill: Dallas (33/13),
Minnesota (32/14), San Antonio
(29/16), Utah (25/22), Houston (15/32),
Denver (13/31), Memphis (13/33).
KyrrahafsriðiU: Sacramento (35/10),
LA Lakers (32/12), Portland (24/21),
LA Clippers (24/24), Phoenix (23/23),
Seattle (23/23), Golden State (14/30.
Webber og Iver-
son bestir í janúar
AUen Iverson, bakvörður Phila-
delphia 76ers, og Chris Webber,
framherji Sacramento Kings, hafa
verið valdir leikmenn janúarmánað-
ar í NBA-deUdinni i körfuknattleUt.
Iverson, sem var valinn leikmaður
janúarmánaðar í Austurdeildinni,
leiddi Philadelphia 76ers til 11 sigra í
15 leikjum í mánuðinum og skoraði
32,6 stig, gaf 4,9 stoðsendingar, tók
3,8 fráköst og stal 2,27 boltum að
meðaltali i leikjunum 15.
Webber, sem var valinn leikmað-
ur janúarmánaðar í Vesturdeildinni,
leiddi Sacramento Kings til 11 sigra í
12 leikjum og skoraöi 26,7 stig, tók
10,2 fráköst, gaf 6,6 stoðsendingar og
varði 2,18 skot í leikjunum 12. -ósk
DV
l.DEILD KVENNA
KR 16 11 5 1116-886 22
ÍS 14 10 4 964-742 20
Keflavík 14 10 4 960-874 20
Grindavík 14 8 6 933-955 16
Njarðvík 16 4 12 946-1170 8
KFÍ 14 1 13 726-1018 2
Hildur Siguröardóttir, KR, reynir aö komast fram hjá Öldu Leif Jónsdóttur, ÍS, í ieik liöanna í
Frostaskjóli um helgina. Þórunn Bjarnadóttir fylgist meö. DV-mynd E.ÓI.
- og toppsætið
eftir 31 stigs
KR-konur þurftu ekki að
hafa mikið fyrir þvi að taka
toppsætið af Stúdínum í 1.
deild kvenna í körfubolta á
laugardaginn. KR vann leik
liðanna, 68-37, og hefur nú
unnið sjö leiki í röð í deild
og bikar og fram undan er
síðan bikarúrslitaieikurinn
gegn Njarðvík.
Stúdínur áttu skelfilegan
dag líkt og oft áður gegn
KR í vetur og það virðist
sem þær hrökklist ávallt
undan grimmri vörn KR
enda hefur KR-liöið haldið
ÍS í 44,5 stigum að meðal-
tali í ijórum leikjum lið-
anna en meðalskor ÍS er
75,5 stig í öðrum leikjum.
ÍS byrjaði þó betur en
KR endaði fyrsta leikhlut-
ann 13-4 og leiddi eftir
hann 18-12 og sá munur
átti einungis eftir að
aukast það sem eftir var
leiksins.
Stúdínur skoruðu aðeins
12 stig samtals eftir hlé og
klikkuðu þá á 25 af 30 skot-
um auk þess að tapa 13
boltum. Eins og sjá má á
þeim tölum var sóknarleik-
ur liðsins í molum og Keith
Vassell gat hvílt lykilleik-
menn eins og Kristinu
Björk Jónsdóttur og Guð-
björgu Norðfjörð lengstum
KR-stúlkna
sigur á ÍS
í seinni hálfleik.
Helga Þorvaldsdóttir átti
bestan leik hjá KR en
einnig var Carrie Coff-
mann sterk undir körfunni
eins og 13 fráköst og 18 stig
sýna. Annars var það vörn-
in fremur en mikil sóknar-
tilþrif sem lömuðu leik
Stúdina. Liðsheildin og
breiddin hjá KR ætti hins
vegar að vera orðin skelfir
fyrir öll lið deildarinnar.
Hjá ÍS voru Alda Leif
Jónsdóttir og Lovísa Guð-
mundsdóttir í strangri
gæslu og máttu sín lítils
þar sem framlög annarra
leikmanna voru af skorn-
um skammti. ÍS lék án
Ceciliu Larsson sem var
veik.
Stig KR: Carrie Coffman 18
(13 fráköst), Hildur Sigurðar-
dóttir 13 (9 fráköst), Helga Þor-
valdsdóttir 12 (7 fráköst, 5
stolnir, 5 stoðsendingar), Krist-
ín Björk Jónsdóttir 7, Gréta
María Grétarsdóttir 6, Guð-
björg Norðfjörð 4, Hafdís Gunn-
arsdóttir 3, Linda Stefánsdóttir
3, Sigrún Hallgrímsdóttir 2.
Stig fS: Alda Leff Jónsdóttir
9 (8 fráköst, 4 stolnir), Lovísa
Guðmundsdóttir 8 (8 fráköst),
Þórunn Bjarnadóttir 6, Jófríður
Halldórsdóttir 6, Svandís Sig-
urðardóttir 2, Stella Rún Krist-
jánsdóttir 2, Hafdís Helgadóttir
2, Svana Bjarnadóttir 2.
-ÓÓJ
Enn tap hjá Grindavík
Grindavík tapaði á laugardag sínum
fiórða leik í röð í 1. deild kvenna síðan
liðið missti Jessicu Gaspar en það var
í toppsæti deildarinnar þegar hún
meiddist í fyrsta leik ársins. Njarðvík
vann leik liðanna í Njarðvík, 75-60, en
með heimastúlkum lék Ebony Dickin-
son sem mun síðan aðeins leika einn
leik til viðbótar, sjálfan bikarúrslita-
leikinn um næstu helgi.
Njarðvík hefur nú flórfaldað sigra
sína frá því fyrir jól og liðið er að bæta
sig mikið undir öruggri stjórn
þjálfarans Einars Áma Jóhannssonar.
Ebony Dickinson var nýlent á
landinu og var stirð í byrjun en vann á
eins og allt liðið sem tryggði sér örugg-
an sigur með frábærum fjórða leik-
hluta sem Njarðvík vann, 24-7.
Ebony hitti vel og styrkir liðið vel
en hún var með 18 stig eftir hlé þar
sem hún nýtti öll átta skotin sín. Auk
hennar átti Eva Stefánsdóttir mjög
góðan fyrri hálfleik og Helga Jónas-
dóttir var sterk í þeim seinni.
Grindavíkurliðið átti erfitt uppdrátt-
ar gegn 3:2 svæðisvörn Njarðvíkur í
fjórða leikhluta sem lokaði á þriggja
stiga skotin. Þau höfðu alls átta farið
rétta leið fyrstu þrjá leikhlutana en eft-
ir þá leiddi Grindavík, 51-53, en jafnt
var bæði eftir fyrsta leikhluta, 20-20,
sem og i hálfleik, 34-34. Grindavík lék
án fyrirliða síns, Sigríðar Önnu Ólafs-
dóttur, sem var veik, en Erna Rún
Magnúsdóttir og Ólöf Helga Pálsdóttir
léku best ásamt Sólveigu Gunnlaugs-
dóttur sem þurfti að sinna nýju hlut-
verki miðherja lengstum i leiknum.
Stig Njarðvikur: Ebony Dickinson 27 (11
fráköst, 6 stolnir, hitti úr 11 af 13 skotum),
Helga Jónasdóttir 15 (hitti úr 7 af 12 skotum
sínum, 6 fráköst), Eva Stefánsdóttir 14 (öll í
fyrri hálíleik, 5 varin), Guðrún Ósk Karls-
dóttir 8 (8 frák.), Pálína Gunnarsdóttir 6, Sæ-
unn Sæmundsdóttir 3,. Díana Jónsdóttir 2.
Stig Grindavikur: Sólveig Gunnlaugs-
dóttir 16 (10 fráköst), Ólöf Helga Pálsdóttir 10
(6 fráköst, 4 stolnir), Jovana Lilja Stefáns-
dóttir 10, Ema Rún Magnúsdóttir 9 (6 stoln-
Jón Arnar annar í Tallin
- enn er óvíst hvort árangurinn nægir til þess að vera boðin þátttaka á EM innanhúss
Jón Amar Magnússon, tugþraut-
arkappi úr Breiðabliki, hafnaði í
öðru sæti á Boðsmóti Erki Nool í
sjöþraut sem lauk í Tallinn í Eist-
landi í dag. Jón Arnar fékk 5.886
stig en sigurvegari var Þjóðverjinn
Frank Busemann með 6.291 stig.
Rússinn Dmitri Ivanov hafnaði í
þriðja sæti með 5.838 stig.
Hann var annar eftir fyrri
keppnisdag og hlaut 3.411 stig, 147
stigum minna en Busemann en
keppendur höfðu þá lokið fjórum
keppnisgreinum af sjö. Frakkinn
Sebastian Chmara varð þriðji með
3.310 stig.
Slakt í stangarstökkinu
Fyrri dagurinn gekk sæmilega
hjá Jóni Arnari þó hann eigi mun
betri árangur í greinunum, þá sér
í lagi kúluvarpi og langstökki. Á
síðari deginum
var það hins
vegar í stangar-
stökkinu sem
vonbrigði dags-
ins litu ljós en
þar stökk hann
aðeins 4,65
metra sem er
himinn og haf
frá hans besta
árangri i greininni.
Hlaupin tvö á síðari deginum
voru viðunandi fyrir Jón en það
er vissulega ánægjulegt fyrir hann
að Ijúka keppninni í 2. sæti og að
komast í gegnum
þrautina án þess
að meiðast er
viss léttir út af
fyrir sig.
1 samtali við
DV-Sport sagðist
Jón vera enn
óviss um hvort
honum yrði boð-
in þátttaka á EM
innanhúss í vetur en í ljósi árang-
ursins er hann vongóður um það.
„Það hefði verið gott að komast
yfir 6.000 stig en ég verð bara að
bíða og sjá.“
Gestgjafinn veikur
Af öðrum keppinautum Jóns er
það helst að segja að Rússinn Lev
Lobodin hætti keppni í grinda-
hlaupinu, Tékkamir Tomas
Dvorcak og Roman Sberle voru
hvorugur með og gestgjafinn sjálf-
ur, Eistinn Erki Nool, var veikur
og gat því aðeins annast mótshald.
-esá
Árangur Jóns Arnars í Tallin
60 m hlaup................6,98 sek.
Langstökk...................7,44 m
Kúluvarp...................15,45 m
Hástökk ....................1,98 m
60 m grindahlaup..........8,30 sek.
Stangarstökk................4,65 m
1000 m hlaup........... 2:50,00 mln.
Samtals 5.886 stig