Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Síða 3
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002 17 DV Sport Sterkari andlega - sagði Rúnar Sigtryggsson, lykilmaður Haukanna Varnarjaxlinn mikli, Rúnar Sigtryggs- son, var að venju geysilega traustur í vörninni og hann tekur alltaf af skarið í sókninni þegar mest liggur við. „Ég bjóst ekki við þessum miklu yfirburðum og hélt reyndar að þetta yrði hörkuleik- ur með öllu tilheyrandi en við leystum þetta bara þó nokkuð vel ailir sem einn. Ég held að við höfum verið öllu sterkari andlega séð og þeir gerðu okkur lífið léttara með því að stytta sínar sóknir, sem var það sem við vonuðumst eftir að gerðist, þvi þeirra styrkleiki liggur i því að spila sterka vörn og langar sóknir og við rúlluðum einfaldlega yfir þá í fram- haldi af því enda slógmn við einfaldlega vopnin úr höndum þeirra. Þessi bikar- úrslitaleikur sýnir að við erum með besta lið landsins í dag en við verðum að vera á tánum ef við ætlum að vera bestir í vor.“ Undir okkur sjálfum komið Haukamennirnir Aron Kristjánsson og Einar Orn Jónsson fagna hér að ofan sigri ásamt stuðningsmönnum Hauka . Bjarni Frostason stóð sig vel í mark- en hér fyrir neðan hlaupa þeir Halldór Ingólfsson og Rúnar Sigtryggsson sigurhringinn með bikarinn en þeir félagar inu °§ varði meöai annars flögur víta- voru bestu menn Haukaliðsins í gær. Halldór gerði 14 mörk og Rúnar var skot í leiknum en hann vildi ekki gera mikið úr leik sinum, var hógværðin uppmáluð: „Við náðum vörninni í gott lag sem við ákváðum að hafa dálítið framarlega og fengum í kjölfarið talsvert af hraðaupphlaupum og það er það sem við viijum. Þeir voru í vandræðum sóknarlega séð allan leikinn og mörg af þeirra mörkum voru hálfgerð heppnis- mörk. Mér fannst leikur minn í fyrri hálfleik ekkert vera neitt sérstakur og mér fannst ég á margan hátt spila betur í síðari háiíleik þrátt fyrir vítin i fyrri hálfleik. Suma daga liggur þetta einfald- lega ljóst fyrir og það gerði það svo sannarlega í dag enda langaði okkur alla mikið til þess að endurupplifa þessa frá- bæru tiifinningu sem fylgir slíkum sigr- um. Hvað framhaldið varðar í deildinni þá er þetta undir okkur sjálfum komið og ég held að það sé engin spurning að við erum með sterkasta liðið en við höldum okkur á tánum og vitum að það má ekkert ofmetnast," sagði Bjarni Frostason í leikslok. -SMS með fjögur. DV-myndir E.OI. Leikur okkar hrundi Róbert Gunnarsson var besti leikmaður Framara í leiknum og var hann að vonum afar vonsvikinn að honum loknum. „Leikur okkar hrundi einfaldlega eftir fimmtán minútur eftir mjög góða byrjun þar sem einbeitingin var í góðu lagi og hlutimir litu vel út. Við klúðruðum síðan öllum möguleikum okkar á því að komast irm í leikinn aftur og því miður áttum við bara ekkert svar við leik Haukana. Þeir voru einfaldlega miklu betri hér. í dag og ég vil bara óska þeim innilega til hamingju með bikarinn, þeir eiga þetta fyllilega skilið," sagði hinn frábæri línumaður, Róbert Gunnarsson, en leikur Framliðsins byggist að miklu leyti í kringum hann. -SMS Mörkin hans Halldors Fyrri hálfleikur = 8 mörk I. . . Vitakast eftir 6:03 mín. (2-1) Aron Kristjánsson fiskaði vítið 2 .......langskot eftir 18:20 (7-6) eftir að hafa náð sóknarfrákasti 3 .......Vítakast eftir 19:23 (8-6) Aliaksandr Shamkuts fiskaði vítið 4 ......Vítakast eftir 20:38 (9-6) Aron Kristjánsson fiskaði vítið 5. .. Gegnumbrot eftir 22:35 (11-7) Aron Kristjánsson stoðsending 6. . Hraöaupphlaup eftir 23:45 (12-7) Einar Öm Jónsson stoðsending 7. .. Gegnumbrot eftir 26:25 (14-7) Rúnar Sigtryggsson stoðsending 8. .. Gegnumbrot eftir 27:50 (15-8) Aron Kristjánsson stoðsending Seinni hálfleikur = 6 mörk 9. . Mark af linu eftir 31:00 (17-9) tók eigið sóknarfrákast 10. . . Vítakast eftir 38:24 (19-11) fiskaði vítið sjálfur II. .. Vítakast eftir 42:28 (21-11) Aron Kristjánsson fiskaði 12. . . Vltakast eftir 43:47 (22-11) Aliaksandr Shamkuts fiskaði vitið 13. . . Vítakast eftir 45:49 (23-12) Aron Kristjánsson fiskaði 14. Gegnumbrot eftir 53:15 (26-16) engin stoðsending Höll Haukanna - Halldór Ingólfsson skoraði 14 mörk og bætti markametið um þrjú mörk Haukar fógnuðu bikarmeistaratitl- inum annað árið í röð í karlaflokki með stórsigri á Fram, 30-20, í Laug- ardalshöllinni. Það má segja að þar kunni Haukar hvað best við sig enda hafa þeir tekið bikarinn heim í Hafn- arflörð í öll flögur skiptin sem þeir hafa mætt í bikarúrslitaleik í Höllina og ekkert félag hefur unnið stærri sigur eða gert fleiri mörk í bikarúr- slitum en Haukarnir á laugardaginn. Frábær leikur hjá frábæru liði gerði það að verkum að bikarúrslitaleikurinn í ár varð aldrei spennandi. Fyrirliði Haukanna, Halldór Ing- ólfsson, átti stórleik, skoraði 14 mörk úr 17 skotum, átti sex stoðsendingar auk þess að vera maðurinn á bak við forskotið sem liðið bjó til á síðustu 15 mínútum í fyrri hálfleik og lagði gruninn að sigrinum. Halldór kom þá að tíu Haukamörkum í röð þegar Haukar breyttu stöðunni úr 6-6 í 9-16. Halldór skoraði sjö mörksjálfur á þessum kafla og átti stoðsendingar á bak við önnur þrjú. Þar á meðal var stórglæsileg sending hans fram í hraðaupphlaup á Einar Örn Jónsson sem kom Haukunum í 9-16 rétt áður en hálfleiksflautið gall. Halldór náði þá frákasti eftir að Bjarni Frostason, markvörður Haukaliðsins, hafði var- ið þriðja vítið frá Frömurum en Bjarni varði flögur fyrstu víti Safa- mýrarpilta í leiknum, þar á meðal tvö á 25 sekúndum í fyrri hálfleik. Líkt og í bikarúrslitunum 1997 og 2001 voru þeir Bjarni Frostason og Rúnar Sigtryggsson sterkir en Bjarni hefur varið 46 skot og sex víti í þess- um þremur leikjum og Rúnar hefur skorað 17 mörk. Á laugardaginn stóð Rúnar vaktina vel í vöminni auk þess að setja mikilvæg mörk þegar sóknin hikstaði eitthvað aðeins. Halldór Ingólfsson bætti 1 leiknum markamet þeirra Patreks Jóhannes- sonar, Róberts Julian Duranona og Gunnars Bergs Viktorssonar um heil þrjú mörk og var ánægður í leikslok. Náöum að brjóta þá niður „Þetta var frábær leikur og virkilega gaman að spila hann enda var allt hjá okkur að virka mjög vel bæði í vöm og sókn. Ég held að við höfum náð að brjóta þá niður og það var liðsheildin sem skóp þennan sigur. Það var gott „moment" í fyrri hálfleik þegar við bara keymm yfir þá. Basti (Sebastian Alexandersson) er svokallaður vítabani í markinu og það var mjög góð tilfinning að taka hann í nefið,“ sagði Halldór er hann skoraði af miklu öryggi úr flómm vítum á Sebastian og nýtti alls níu af 11 skotum gegn honum í leiknum. Framarar komu mjög ákveðnir til leiks og spiluð fast í upphafi og sú leikaðferð færði þeim frumkvæðið í upphafi leiks og loks 6-4 forastu þeg- ar fyrri hálfleikurinn var hálfnaður. Á þeim kafla höfðu þó tvö víti Fram- ara farið forgörðum. Framsóknin var þó aUan tímann mjög vandræðaleg og einkenndist oft- ast af hnoði og hugmyndalausum klippingum sem höfðu lítið í sterka vörn Hauka að gera. Fjögur af fyrstu sex mörkum liðsins komu úr hraða- upphlaupum og þegar Haukar fóru að nýta sóknirnar sínar og Safamýr- arpiltar misstu tækifærin á hraða- upphlaupum nýtti liðið aðeins þrjár af fimmtán sóknum seinni helmings hálfleiksins. Róbert Gunnarsson var í strangri gæslu Aliaksandr Shamkuts og þrátt fyrir að Róbert hafi leikið vel og gert níu mörk úr tíu skotum gekk honum illa að opna fyrir félaga sfna sem síð- an vora iðnastir að koma sér í vand- ræði og tapa boltanum og gerðu lítið af viti til að opna Haukavörnina. -ÓÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.