Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2002, Side 9
MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2002
23
Valur-ÍR 25-24
0-1, 1-1, 1-3, 2-3, 2-4, 4-4, 4-6, 5-6, 5-7,
7-7, 7-8,10-8, (10-10), 10-12,11-12,11-13,
13-13, 13-14, 14-14, 17-17, 20-17, 20-19,
21-19, 21-21, 23-21, 24-22, 24-24, 25-24.
Valur:
Mörk/viti (skot/vlti): Erlendur Egilsson
8/2 (16/3), Sigurður Eggertsson 6 (12),
Ragnar Már Ægisson 5 (6), Ámi
Sveinbjömsson 3 (3), Patrik Þorvaldsson 2
(4), Davíð Höskuldsson 1/1 (4/2), Pálmar
Pétursson (1).
Stoösendingar: Erlendur 6, Sigurður 2,
Patrik, Davíð.
Stolnir boltar: Sigurður 1.
Hraöaupphlaupsmörk: 1 (Sigurður).
Viti: Skorað úr 3 af 5.
Fiskuö viti: Erlendur, Ámi, Sigurður,
PatrUt, Ragnar Már.
Varin skot: Pálmar Pétursson 14/1 (38/4,
37%).
Í&L
Mörk/viti (skot/viti); Einar
Hólmgeirsson 7 (15), Kristinn Björgúifsson
7/2 (12/3), Tryggvi Haraldsson 5 (5),
ÞorleUur Bjömsson 5 (9), Pálmi Bárðarson
(1).
Stoösendingar: Kristinn 7, Tryggvi 2,
Þorleifur 2, Stefán Petersen.
Stolnir boltar: Sævar Sigurðsson,
Kristinn, Einar.
Hraðaupphlaupsmörk 3 (Þorleifur 2,
Emar).
VítU Skorað úr 2 af 3.
Fiskuö viti: Kristinn, Fannar
Þorbjömsson, Einar.
Varin skot: Stefán Petersen 14 (29/1,48%),
Sævar Sigurðsson 4/1 (14/4, 29%).
Maöur luilísins:
Ki U'iului’ Ettilsson. \ al
Frábær
umgjörd
HSÍ á hrós skUið fyrir frábæra um-
gjörð um bikarúrslitaleiki yngri
Ðokkanna sem fram fóru i Laugar-
dalshöUinni um helgina. DV-Sport
ákvað líka að fjalla um alla leikina
fjóra í blaðinu í dag.
Leikimir fóru allir fram viö frá-
bærar aðstæður á HM-dúknum, liðin
voru kynnt með viðhöfn fyrir leikinn
og þjóðsöngur íslands síðan spUaður.
í leikslok gengu siðan liðin upp í
heiðursstúkuna og tóku við verðlaun-
um sínum undir þekktum sigur-
söngvum.
Það er vonandi að þetta fyrirkomu-
lag sé komið tU að vera og öruggt er
að enn fleiri áhorfendur eiga eftir að
mæta á þessa leiki í framtíðinni þeg-
ar heföin fyrir þeim hefur skapast.
TU hamingju, handboitamenn. -ÓÓJ
Dramatiskur
Valssigur
Valsmenn tryggðu sér
bikarmeistaratitilinn í 2. flokki
karla í dramatískum leik gegn ÍR,
25-24. ÍR fékk tækifæri til að jafna í
lokin en brotið var á Einari
Hólmgeirssyni í tvígang þegar hann
reyndi skottilraun og því íjaraði
leiktíminn út og Valsarar fognuðu
vel og innilega í leikslok en þeir
töpuðu bikarúrslitaleiknum í fyrra í
sama flokki.
Leikurinn byrjaði rólega og voru
sterkar vamir beggja í
aðalhlutverki. ÍR leiddi með 1-2
mörkum en þá tóku Valsarar þann
pól í hæðina að taka Einar úr
umferð og virkaði það. Það tók ÍR-
inga dágóða stund að stiila saman
strengi eftir það. Valur komst
tveimur mörkum yflr en ÍR jafnaði,
10-10, með marki frá Einari í lok
hálfleiksins.
Vamir liðana vom ekki eins
sterkar í seinni hálfleik, sérstaklega
var ÍR-vömin slök framan af seinni
hálfleik. Valur komst þremur
mörkum yfir, 20-17, en þá tóku ÍR-
ingar sig á og fóru að loka betur á
Valsliðið.
Einar jafnaði fyrir ÍR, 24-24,
þegar 2 mínútur voru eftir með
stórglæsilegu marki úr hraða-
upphlaupi en hann stökk upp
nokkuð nálægt miðlinu.
Valsmenn skoruðu síðan
sigurmarkið skömmu fyrir leikslok
og var þar að verki Ragnar Ægisson
eftir enn eina sendinguna frá
Erlendi Egilssyni. Erlendur átti
mjög góðan leik og Ragnar var
öflugur í seinni hálfleik. Pálmar
Pétursson varði vel í markinu á
köflum og Sigurður Eggertsson var
góður.
Hjá ÍR var Einar öflugur en var í
strangri gæslu aflan tímann og
Kristinn Björgúlfsson var sterkur.
Tryggvi Haraldsson stóð fyrir sínu
og Þorleifur Bjömsson var góður í
seinni hálfleik.
-Ben
Sport
Haukar-UMFA 29-23
1-0, 1-1, 4-1, 4-2, 5-2, 5-3, 7-3, 7-4, 54,
8-6, 11-6, 11-7, 12-7, 12-9, 14-9, 14-10,
(15-10), 15-12, 19-12, 19-14, 21-14, 21-15,
25-15, 25-16, 26-16, 26-20, 28-20, 29-23.
Haukar:
Mörk/viti (skot/viti): Andri
Þorbjömsson 7 (11), Kristján Karlsson 6
(7), Amar Björnsson 6 (9), Ásgeir Öm
Hallgrimsson 5/1 (7/1), Páll Daníelsson 3
(6), Einar Eiríksson 1 (1), Einar Sveinsson
1 (1), Pétur Magnússon (4), Vigfús
Gunnarsson (2).
Stoösendingar: Andri 5, Ásgeir 3, Pétur 2,
Arnar, Þórður Þórðarson.
Stolnir boltar: Amar 2, Andri 2, Páll,
Pétur, Ásgeir, Kristján.
Hraöaupphlaupsmörk: 11 (Kristján 5,
Amar 4, Andri 2).
VitU Skorað úr 1 af 1.
Fiskuá vitU Pétur.
Varin skot: Þórður H. Þórðarson 16/2
(33/3, 48%), Sigurður Einarsson 5/1 (11/3,
45%).
Aftureldine:
Mörk/víti (skot/viti): Einar Hrafnsson
6/3 (10/4), Magnús Einarsson 5 (11/2),
Daníel Jónsson 4 (5), Emir Amarson 3 (9),
Hrafn Ingvarsson 3 (10), Reynir Ámason 1
(5), Jóhann Jóhannsson 1 (1).
Stoósendingar: Daníel 5, Magnús 4, Hrafn
2, Ernir 2.
Stolnir boltar: Einar Hrafnsson, Davíð
Svansson, Emir, Hrafn, Magnús.
Hraöaupphlaupsmörk: 3 (Emir, Daníel,
Jóhann).
Víti: Skoraö úr 3 af 6.
Fiskuö vitU Einar 3, Magnús 2, Reynir.
Varin skot: Davíð Svansson 15 (44/1,
34%).
Míiður leiksins: Andri
Þoilijörnsson. llaukum
Ásgeir Hallgrímsson, fyrirliöi
Hauka, meö bikarinn í 3. flokki.
Bikarmeistarar Hauka f 3. flokki karla ásamt þjálfara sínum, Óskari Ármannssyni.
DV-mynd Óskar
yÉ.. if oWTw Wil 19 1 jft \A gp ' f-n m.
1 ji a| ■ Wh
fWBiW %1 v. h» tt-L v &*■' "í' 0
Meistarar annan
daginn í röð
Haukar fögnuðu bikarmeistaratitl-
inum í 3. flokki karla með öruggum
sigri, 29-23, á Aftureldingu í gær en
liðið sést hér til vinstri. Tveir leik-
menn liðsins, þeir Andri Þorbjörns-
son og Ásgeir Örn Hallgrímsson,
urðu þarna bikarmeistarar annan
daginn í röð en þeir eru einnig á
fullu með meistaraflokki félagsins.
Ásgeir hóf leikinn af krafti og
skoraði fyrsta markið eftir 20 sek-
úndur og fékk síðan ekki að leika
lausum hala nema fyrstu sex mínút-
ur leiksins en þá var hann kominn
með þrjú mörk en Mosfellingar tóku
hann úr umferð það sem eftir var
leiks.
Þetta opnaði fyrir Andra sem átti
mjög góðan dag og var besti maður
vallarins ásamt markvörðum lið-
anna, þeim Þórði Þórðarsyni hjá
Haukum og Davíð Svanssyni hjá x
Aftureldingu.
Haukar spiluðu grimma vöm og í
kjölfarið náðu þeir mörgum hraða-
upphlaupsmörkum, og Óskar Ár-
mannsson, þjálfari liðsins, er búinn
að búa til sterkt lið sem er til alls
líklegt á íslandsmótinu í vor.
-ÓÓJ