Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002 I>V 5 Fréttir Uppnám vegna viðskipta Góðráða ehf. við Landssímann: Einhver varð að borga honum - segir Jón Birgir Jónsson ráðuneytisstjóri sem sá um að kvitta Viðskipti einkafyrirtækis Friðriks Pálssonar, Góðráða ehf., við Símann hafa vakið gríðarlega athygli. Við- skiptin voru með leyfl Sturlu Böðvars- sonar samgönguráðherra. Jón Birgir Jónsson, ráðuneytisstjóri í samgöngu- ráðuneytinu, hafði með höndum að samþykkja reikninga frá Góðráðum ehf. og senda þá síðan til forstjóra Sím- ans. Ráðuneytisstjórinn segir að ákvörðun um þetta fyrirkomulag hafi verið ákveðin af Sturlu Böðvarssyni, Þórami V. Þórarinssyni, þáverandi forstjóra Símans, og Friðriki Pálssyni sjálfum. „Við Friðrik fórum reglulega yflr þessa reikninga og ég skrifaði síðan upp á og Síminn borgaði," segir Jón Birgir. Aðspurður hvort þetta fyrirkomulag teljist eðlilegt svaraði Jón Birgir: „Ég held það. Einhver varð að borga hon- um. Sem eigandi Símans var eðlilegt að við semdum við Friðrik. Sá máti að gera þetta svona var ræddur við Ríkis- endurskoðun sem var sammála því,“ segir hann. Jón Birgir segir að reikningamir hafi að sínu mati verið eðlilegir enda hefði hann ekki kvittað að öðrum kosti. „Ég er mjög sáttur við þetta fyr- irkomulag," segir Jón Birgir. Hann segist ekki vita til þess að aðr- ir stjómarmenn í Landssímanum fengju verktakagreiðslur til viðbótar stjómarlaunum. Almennir stjómar- menn era með helming þeirra launa sem stjómarformaður hefur. Ráðgjöf vegna @IPbell Meðal almennra stjómarmanna gætir undrunar vegna þeirra yfir- lýsinga Friðriks í DV í gær að stjóm- armönnum komi ekki við þau við- skipti sem félag hans hefur átt við Símann. Svo sem DV greindi frá í gær var heildarvelta viðskipta Góðráða í fyrra 7.619.900 krónur. Þar er meðtalinn virðisauka- skattur. Meginhluti viðskiptanna er, samkvæmt heimildum DV, fólginn í ráðgjafarstörfum sem Friðrik hefur unnið vegna fyrirhugaðrar einkavæð- ingar Símans. Þær greiðslur era tO viðbótar stjómarlaunum sem í dag era um 150 þúsund krónur á mánuði. Sjálf- ur segist Friðrik hafa unnið ráðgjafar- störf fyrir Landssimann vegna einka- væðingarinnar og fyrirtækisins @IPbell sem Síminn tapaði hálfum milljarði íslenskra króna á. Friðrik Pálsson og Sturla ' Böðvarsson samgönguráðherra hafa gert lítið úr tapinu vegna @IPbell og segja tapið vera um 300 miUjónir króna en ekki 500 milljónir eins og DV hefúr sagt frá. Tap Símans vegna fjárfestingarinnar er fólgið í þrennu. í fyrsta lagi vegna þeirra íjögurra milljóna dollara sem var upphafsframlag Símans. f öðra lagi vegna kaupa IP-fjarskipta, eignarhaldsfélags @IPbell, á þrotabúinu þar sem reyna átti til þrautar að bjarga fjárfestingunni. Það brást. í þriðja lagi skulda IP-fjarskipti Símanum verulegar upphæðir sem er borin von að innheimtist enda félagið eignalaust og fjárvana. Þá hefur ýmis kostnaður fallið á Símann vegna fyrirtækisins svo sem vinna stjórnarformanns og lögfræðinga. Stjómarmennimir Sigrún Benediktsdóttir og Flosi Eiriksson, sem bæði sitja fyrir Samfylkinguna, kröfðust í gær stjómarfundar vegna viðskipta stjómarformannsins. Fundurinn var haldinn um miðjan dag. Innan stjómar var ekki vitneskja um ráðgjafarstörf formannsins að þvi undanskildu að Flosi Eiríksson og Jónina Bjartmarz, alþingismaður Framsóknarflokks, höfðu heyrt minnst á Góðráð. Aðrir komu af fjöllmn eins og ffamsóknarmaðurinn Magnús Stefánsson orðaði það í gær. „Fyrir tilviljun frétti ég af þessu fyrirtæki fyrir skömmu síðan. Það hefði verið þægilegra að stjómin vissi af þessu en formlega séð var ekki ástæða til að gera stjóm grein fyrir málinu. Þama er um að ræða beina ráðningu ráðherra í þessi ráðgjafarstörf. Ekki þarf að vera neitt óeðlilegt við að stjómarformaður, sem gjörþekkir fyrirtækið, skuli ráðinn til slíkra starfa. Þama var augljóslega um að ræða meiri vinnu en féll beint undir embætti stjórnarfonnanns," segir Jónína. Hún segir að stjómin beri ekki ábyrgð á ráðningu annarra en forstjórans, „svo langt sem það nær“. „Ég veit ekkert hvert umfang starfa Friðriks var en ítreka að þama þarf ekki að vera neitt óeðlilegt á ferð,“ segir Jónína. -rt ^ Stjórnarandstaðan ómyrk í máli um Símann: Eg hef ekki undan að trúa og er klumsa - segir Sverrir Hermannsson. - Funheit kartafla, segir Össur „Það er stóralvarlegt að stjómarfor- maðurinn skuli í gegnum einkafyrir- tæki sitt hafa tekið þóknun fyrir ráð- gjafastörf sem hann hefur unnið fyrir Símann án þess að stjóminni væri um það kunnugt. Mér fmnst jafnalvarlegt að ráðherrann skuli hafa vitað af þessu en ekki sinnt þeirri skyldu sinni að upplýsa stjómina um málið,“ sagði Össur Skarphéðinsson, formaður Sam- fylkingar, í samtali við DV. Tilefhið var mál Friðriks Pálssonar, stjómar- formanns Símans, sem tók að sér ráð- gjafarstörf fyrir fyrirtækið sem nemur milljónum króna án þess að aðrir í stjóminni hefðu pata af því. Fulltrúar Samfylkingar geröu málið að umtalsefhi á Alþingi í gær og æsktu svara frá forsætisráðherra. „Sem stjómmálamaður spyr ég hvar hin pólitíska ábyrgð í þessu máli liggi. Því er ég mjög ósáttur við að forsætisráð- herra skuli - eftir nokkurra daga um- þóftunartíma - hafa vísað þessu máli frá sér. Sagt að það varðaði ekki sig Ossur Sverrir Skarphéöinsson. Hermannsson. heldur samgönguráðherra. Þetta er rangt, þvi allt sem viðvíkjandi sölu Símans tengist einkavæðingamefnd sem starfar í umboði forsætisráðherra. Því er ólíkt Davíð að þora ekki að ræða þessi mál við þingið," segir Öss- ur. Þá minnir Össur á þær yflrlýsingar fyrrverandi formanns einkavæðingar- nefndar að stjómun Símans hafi öll verið í molum. „Það getur hafa átt sinn þátt í þvi hversu treglega hefúr gengið að selja fyrirtækið," segir Össur sem telur Landsímamálið allt vera sem heita kartöflu fyrir ríkisstjóminni. „Ég er klumsa og spyr hvað verði næst. Maður hefur ekki undan að trúa,“ sagði Sverrir Hermannsson, for- maður Frjálslynda flokksins, við DV um mál Friðriks Pálssonar. Hann seg- ir allt klúðrið í tengslum við einka- væðingu Landssimans vera orðið með því móti að illa verði séð hvemig rík- isstjómin geti bjargað sínu eigin skinni þar. Menn virðast vera að koma ávirðingum hver á annan. „Stjómar- formanni Simans er fullkunnugt um að forstjórinn veit allt um reikninga- gjöf hans einkafyrirtækis. Og sam- gönguráðherra virðist vera í þessu máli miðju, rétt eins og öllu öðra. Mig fýsir að vita hvort það sé orðið alsiða að menn stundi svona miskunnarlaus innherjaviðskipti en það virðist sem menn stundi þetta og sjái ekkert at- hugavert við það,“ segir Sverrir. -sbs DVJHYND HARI Þægileg helgarferö Þær eru æöi misjafnar heigarferöirnar sem íslendingar tóku sér um nýliðna heigi, þá síöustu á þorra þessa árs. Snjórinn sem féil á höfuöborgarsvæöinu á sunnudag færöi þessari litlu dömu Ijúfa hamingjustund i fyigd meö mömmu. SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 - 2016, Bleikjukvísl nr. 10. í samræmi við 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016. Tillagan lýtur að því að breyta landnotkun lóðarinnar Bleikjukvíslar nr. 10 úr almennu útivistarsvæði í stofnanasvæði. Breytingin er gerð til þess að samræmi sé á milli deiliskipulags lóðarinnar og aðalskipulags en deiliskipulag svæðisins gerir ráð fyrir að heimilt sé að reisa á lóðinni dagvistarstofnun / leikskóla. Til upplýsingar skal þess getið að samhliða breytingu þessari er í grenndarkynningu tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar þar sem m.a. er gert ráð fyrir óverulegum breytingum á byggingarreit lóðarinnar. Tillagan liggur frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 19. febrúartil 19. mars 2002. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma með ábendingar og gera athugasemdir við tillöguna. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 20. mars 2002. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 19. febrúar 2002 Skipulags- og byggingarsvið. sm ■. s...a 3Bi ■ Verið velkomin í sýningarsal okkar og kynnið ykkur 2002 línuna. Fagleg ráðgjöf, stutturafgreiðslutími og persónuleg þjónusta. Þú þarft ekki að leita lengra til að fá það betra Stuttur afgreiðslutími BRÆÐURNIR ORMSSON Lágmúla 8 • Sími 530 2800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.