Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2002, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2002
Landið i>'Vr
Urgur í starfsfólki á bæjarskrifstofu sveitarfélagsins Skagafjarðar:
Fékk tvo daga til að
flytja yfir götuna
Sauðárkrókur
Starfsfólk sveitarfélagsins var óðnægt meö aö fá stuttan tíma
til flutnings yfir götuna.
Urgur er í
starfsfólki skrif-
stofu sveitarfé-
lagsins Skaga-
Qarðar þessa
dagana vegna
flutninga yfir
götuna í stjórn-
sýsluhúsið og
það gustaði tals-
vert á skrifstof-
unni í síðustu
viku þegar hluta starfsfólks var
gert að rýma sínar skrifstofur og
flytja sig um set yfir götuna. Þetta
gerðist á miðvikudag og var starfs-
fólki launadeildar sagt að það yrði
að vera farið í síðasta lagi á föstu-
dagsmorgun, en þá öðlaðist gildi
leigusamningur við hugbúnaðar-
fyrirtækið Element sem fær hús-
næði í norðurenda annarrar hæð-
ar Búnaðarbankahússins við Faxa-
torgið.
Starfsfólkið neitaði skyndilegum
flutningi, enda mun hafa komið á
daginn að þeir sem þurftu að rýma
sitt vegna flutnings úr stjórnsýslu-
Stieíán veröi lokiö á
Guömundsson. föstudaginn
kemur. Um það
leyti er áætlað að húsnæði Byggða-
stofunar við Ártorgið verið tilbúið,
umfangsmiklum breytingum sem
staðið hafa yfir frá því í nóvember-
mánuði verði þá lokið, en þessi
hringekja hefur farið af stað með
tilkomu Byggðastofnunar á Sauð-
árkrók.
Flutningur og hrókeringar á að-
stöðu fyrirtækja og skrifstofu
sveitarfélagsins hafa verið talsvert
til umræðna að undanfömu og á
síðasta sveitarstjórnarfundi áttu
sér stað snörp skoðanaskipti milli
Gísla Gunnarssonar, fulltrúa
minnihlutans í sveitarstjórn, og
Stefáns Guðmundssonar, fulltrúa
meirihlutans, sem einnig er stjórn-
arformaður Kaupfélags Skagfirð-
inga, en gagnrýni Gísla beindist
m.a. að ofríki kaupfélagsins gagn-
vart sveitarfélaginu. -ÞÁ
Fárviöri á Drangsnesi:
Heiti potturinn
sigldi á haf út
Mikil átök hafa verið í veðri á
Ströndum í þessum mánuði, fyrst í
byrjun mánaðar þegar HM í hand-
bolta var að ljúka, þegar rafmagn
hvarf og Strandamenn sáu til dæm-
is ekki viðureignina við Dani sem
þeir töldu að okkar menn myndu
eiga létt með. Og síðan kom önnur
roka sýnu verri fyrir Drangsnes-
inga á dögunum sem olli þvi að
heitu pottamir okkar tókust á loft
og sást á eftir öðrum þeirra sigla á
haf út meðan hinn tók sér bólfestu
við hlið skólans.
Ríkti mikil sorg hér á staönum
vegna þessa atburðar og er það fyrst
nú að menn eru famir að huga að
endurbótum á þessari heilsulind
okkar.
Er nú annar potturinn kominn á
sinn stað og grindverk og umhverfi
pottanna hefur verið endurbætt.
Menn eru því famir að taka gleði
sína aftur og lífið komið í fastar
skorður eftir þetta mikla áfall okkar
Drangsnesinga. -EÓ
DV-AAYND EINAR ÓLAFSSON
Pottarnír á sinn stað
Hér má sjá myndir af Drangsnesingum aö koma aöstööunni í samt lag aftur. Pottarnir tveir, fiskkör meö heitu vatni
staöarins, hafa notiö mikilla vinsælda heimamanna og gesta. Óveöur setur Strandamenn ekki út af laginu og nú er
aöstaöan aftur fyrir hendi.
Öflugur Mýrdæl-
ingur að verki
Fimmtíu kerti og einn vænn,
mýrdælskur blástur, og það slokkn-
aði á kertunum flmmtíu á litlu af-
mæliskökunni. Mýrdælingurinn og
ágætur fréttaritari DV á þeim slóð-
um, Sigurður K. Hjálmarsson,
komst á sextugsaldurinn um helg-
ina. Hann og Áslaug Einarsdóttir,
kona hans, vörðu afmælisdeginum í
Ásholtinu, næsta nágrenni við DV,
og áttu þar góðan dag. -JBP
Mýrdalsjökull:
Mælingar benda
til kvikuþenslu
„GPS-þenslumælar benda til
hreyflngar á svæðinu. Það er enn
ekki komið í ljós hvar miðjan á
þenslunni er en
miðað við jarð-
skjálftana und-
anfarið er ekki
ólíklegt að hún
sé í Goðabung-
unni,“ sagði Páll
Einarsson jarð-
eðlisfræðingur
við DV í gær-
kvöld.
Stöðug jarð-
skjálftavirkni
hefur verið undir Mýrdalsjökli frá
í haust, mest í og við Goðabungu,
að meðaltali 5 á sólarhring að und-
anförnu. „Menn hafa nú aldrei
skilið i þessum árstíðabundnu
skjálftum í Mýrdalsjökli. Þeir hafa
haldið lengur áfram i vetur en
gerst hefur allt frá árinu 1976, þá
var virknin nánast allt árið. Þetta
er því ekki einsdæmi en engu að
síður eftirtektarvert," segir Páll.
Hann segir að stærð skjálftanna og
dýpt þeirra sé sú sama og venju-
lega er í haustskjálftum. Upptök
þeirra tengist að öllum líkindum
kvikuhólfinu undir Goðabungu
sem virðist einnig vera að þenjast
út miðað við mælingar.
„Þeir eiga flestallir upptök sín
þar, þó að þeir séu dreifðari á
frumniðurstöðum á netinu kemur
í ljós við nákvæmari yfirferð að
upptök skjálftanna eru í Goða-
bungu,“ segir Páll. -NH
Hestamiðstöðin Gauksmýri hlaut hvatningarverðlaun Invest:
Kraftur og áræði, frumkvæði og þor
Stjóm Iðnþróunarfélags Norður-
lands vestra hefur aíhent svokölluð
hvatningarverðlaun. Að þessu sinni
hlutu þau aðstandendur hestamið-
stöðvarinnar á Gauksmýri í Húna-
þingi vestra, systkinin Sigríður Lár-
usdóttir og Magnús Lárusson,
ásamt mökum sinum, Jóhanni Al-
bertssyni og Svanhildi Hall og föð-
urnum Lárusi Þ. Valdimarssyni.
Hestamiðstöðin var sett á stofn
1999 og mikil uppbygging hefur átt
sér stað á Gauksmýri, m.a. byggð
þar stór og mikil reiðskemma og að
hluta hefur verið stuðst við banda-
rískar fyrirmyndir við tilhögun og
uppbyggingu miðstöðvarinnar.
í greinargerð með hvatningar-
verðlaununum segir: „Hér á Gauks-
mýri hefur með uppbyggingu hesta-
miðstöðvar verið sýndur kjarkur og
áræði sem vakið hefur athygli. Það
er einmitt þetta sem alltaf er verið
að leita eftir, frumkvæði og þor til
að framkvæma hlutina. Starfsmenn
hér að Gauksmýri hafa þá menntun
sem til þarf til að reka hestamiðstöð
Stjórnendur og ráöamenn
Þrír aöstandenda Hestamiöstöövarinnar á Gauksmýri: Svanhildur Hall, Sigríö-
ur Lárusdóttir og Jóhann Albertsson. Magnús Lárusson var staddur erlendis.
af því tagi sem hér er rekin. Hér
hefur uppbygging verið nokkuð
hröð og nú síðast var reistur veit-
ingaskáli og þá gerður hringvöllur
auk þess sem aðstaða er komin fyr-
ir hesta og mannfólk og margt
fleira. Allt hefur verið gert á þeim
tiltölulega stutta tíma sem hesta-
miðstöðin hefur starfaö. Þeir sem
hér standa að málum eru öðrum
gott fordæmi um dugnað og útsjón-
arsemi."
Verðlaunagripurinn er gerður af
leirlistarkonunni Bjarnheiði Jó-
hannsdóttur á Blönduósi. Gripurinn
er úr postulíni sem listakonan kall-
ar Afl og þar er skírskotað til þess
að í vindinum búi ógnarafl sem
hreyft getur við miklu og gerbreytt
umhverfi. Sigríður Lárusdóttir gat
þess einmitt þegar hún tók við
gripnum að þetta ætti ágætlega við.
Á Gauksmýri gæti vindur gnauðað
og þegar hann færi að hvessa væru
oft höfð snör handtök við að loka
gluggum, svo vindurinn næði ekki
tangarhaldi sínu inn í hús. -ÞÁ
Elsti karlakór
landsins níræður
Karlakórinn Þrestir í Hafnar-
firði, elsti starfandi karlakór
landsins, veröur 90 ára 19. febrúar
nk. í tilefni þess hélt karlakórinn
tónleika í Hafnarborg í Hafnarfirði
sl. laugardag og með honum komu
fram tenórarnir Þorgeir J. Andrés-
son og Ólafur Kjartan Sigurðarson.
Einnig kom fram kór eldri félaga.
Stjórnandi Þrasta er Jón Kristinn
Cortez, undirleikari Hólmfríður
Sigurðardóttir, en eldri kórnum
stjórnar Guðjón Halldór Óskars-
son. í tilefni afmælisins var opnuð
sýning í Hafnarborg á ljósmyndum
og munum úr starfi kórsins og á
þessu ári verður opnað nýtt og
glæsilegt bókasafn í hjarta Hafnar-
fjarðar og þar mun tónlistardeild
safnsins, Friðriksstofa, hljóta verð-
ugan sess, en hún er að stofni til
gjöf þeirra Friðriks Bjarnasonar og
Guðlaugar Pétursdóttur, en Frið-
rik stofnaði Þresti árið 1912. Karla-
kórinn stendur fyrir heimsókn
heimsfrægra karlakóra til landsins
i tilefni afmælisins og heldur síðan
í söngför til Ítalíu í ágústmánuði
nk. -GG