Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2002, Blaðsíða 19
35
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002
DV Tilvera
Myndgátan__________________
Lárétt: 1 útrýma,
4 örvun, 7 mana,
8 kramur, 10 snemma,
12 hestur, 13 æsi,
14 grömu, 15 kropp,
16 krukka, 18 skaði,
21 skemmtun,
22 heimsk,
23 fuglinn.
Lóðrétt: 1 handlegg,
2 stúlka, 3 sundur-
þykki, 4 lyginn,
5 gætinn, 6 spil,
9 ráfa, 11 kút,
16 skyn, 17 henda,
19 barði, 20 starf.
Lausn neðst á síðunni.
Umsjón: Sævar Bjarnason
Hvítur á leik!
Sá sem stýrir svörtu mönnunum lét
ófriðlega á skákmótinu í Cappelle la
Grande (Stóru kapellunni) en stór-
meistarinn Kengis frá Litháen lætur
sér hvergi bregða og bregst við af mik-
illi útsjónarsemi. Landi Kengis og
nafni, Eduard Rozentalis, sigraði á
móti þessu sem haldið var í Frakk-
landi og ísiendingar hafa verið iðnir
við að tefla á undanfarin ár. í ár var
enginn skákmaður frá Fróni með en
þess í stað var fríður flokkur pólskra
skák-yngismeyja með og segir mér
hugur um að einhverjir nagi sig i
handarbökin yflr þessum augljósu
mistökum!
Hvítt: Eduard Kengis (2571)
Svart: M. Petrov (2476)
Vængtafl
Cappelle la Grande
Frakklandi (4), 12.02. 2002
1. Rf3 Rf6 2. g3 g6 3. c4 Bg7 4.
Bg2 0-0 5. d4 c5 6. 0-0 cxd4 7. Rxd4
Rc6 8. Rc2 d6 9. Rc3 Be6 10. b3 Rg4
11. Bd2 f5 12. Hbl Hc8 13. Rd5 Bf7
14. h3 Rge5 15. f4 Rd7 16. Bc3 e5
17. e4 £xe4 18. Bxe4 exf4 19. Bxg7
Kxg7 20. Rxf4 Dg5 21. Bxc6 Hxc6
(Stöðumyndin) 22. Rd4 Dxg3+ 23.
Khl Hc5 24. Hf3 Dh4 25. Rde6+ Kg8
26. RxfB RxfB 27. Dxd6 Hc6 28. Dd2
g5 29. Rg2 Dh5 30. Hbfl Hc7 31. Re3
Dg6 32. Hgl. 1-0
Bridge
Umsjón: ísak Öm Sigurðsson
fslendingar hafa oft þurft að sjá
á eftir efstu sætunum til erlendu
gestanna f tvlmenningi Bridgehátið-
ar. í mótinu að þessu sinni fóru 4
efstu sætin til íslendinga, það
fyrsta til heimsmeistaranna Jóns
Baldurssonar og Þorláks Jónsson-
ar. Spil dagsins er úr tvímenningi
Bridgehátíðar. Bútaspil i grandi
♦ Á109
«4 DIO
4- Á10854
* Á65
4 D72
94 KG952
4 -
♦ G9732
4 K54
V Á863
4 G632
4 108
4 UHbJ
«4 74
4 KD97
4 KD4
SUÐUR VESTUR NORÐUR AUSTUR
pass pass 14 pass
1* pass 1 grand p/h
Austur valdi að spila frekar út
laufi en hjarta, eftir hjartasögn suð-
urs. Sagnhafi gaf laufið tvisvar og
henti síðan hjarta í þriðja laufiö.
eða tigli var algengasta niðurstaðan
á hendur NS í þessu spili. Þeir sem
fóru rétta leið í tiglinum fengu allt
að því 9 slagi en þeir sem spiluðu
eitt grand fengu allt frá fimm slög-
um og upp í tíu. Á einu borðanna
gengu sagnir þannig, suður gjafari
og AV á hættu:
Hann vildi helst ekki að austur kæm-
ist inn í spilið og lagði því niður ás-
inn í tígli með það fyrir augum að
fella hugsanlega
háspil blankt í
austur eöa litinn
2-2 að öðrum
kosti. Sú spila-
mennska reynd-
ist dýrkeypt því
austur gaf kall í
hjarta og vestur
spilaði þeim lit
þegar hann
komst inn á
tíguldrottningu.
Norður átti D10 blankt í hjartanú og
varð þvi að sætta sig við að fá ein-
ungis 5 slagi í þessum samningi. Tal-
an 100 í AV gaf hátt í toppskor.
Jón Baldursson.
'UOÍ 03 ‘Qis 61 ‘3MS LX ‘)ia 91 ‘fiSoi II
‘BoSia 6 ‘Bti 9 ‘jba g ‘nnhosBtq j ‘SutuiajSB £ ‘Áaui z ‘úub i :jiaj()oq
'UBQI £Z ‘hajj ZZ ‘íieuq iz ‘'lisn 8Í ‘tSBA 91 ‘§BU SI
‘ttójo n ‘tu§a 8i ‘ssa ZX ‘bijb oi ‘JÁout 8 ‘BÍSSa i ‘joAq \ ‘buijb i qiajBq
Dagfari
Eriingur
Kristensson
blaöamaöur
Ástsjúkur hani
Um helgina tók ég til í geymsl-
unni heima og uppgötvaði þá gamla
Iðunnar-strigaskó sem ég hafði ekki
séð lengi en þeir eru merkilegir fyr-
ir það að hafa verið elskaðir af hana
nokkrum sem ég kynntist á unga
aldri þegar ég var sumarstarfsmað-
ur í sædýrasafninu í Hafnarfirði.
Haninn kom þar ungur til starfa og
var ætlað að sinna pútnahópi sem
hafði nokkurt forskot á hann hvað
varðar kynferðislegan þroska og
háði það hananum nokkuð.
Menn höfðu af þessu áhyggjur og
ræddu hvort ekki væri hægt að fiýta
þroskanum með því að æsa hann til
athafna. En það hefðu menn ekki átt
að gera því haninn misskildi atlotin
sem helst einkenndust af mjúkum
kviðstrokum og fór hann nú í
staðinn að sækja á mannfólkið.
Á þessum árum var enginn maður
með mönnum nema eiga Iðunnar-
strigaskó og svo var með flesta sum-
arstarfsmennina sem voru ungir að
árum og forvitnir um kynlíf hænsn-
fugla. Þegar haninn gerðist hvað
ágengastur voru menn vanir að ýta
honum frá með fætinum. Endaði það
með því að hann komst upp á lagið
með að grípa með klónum um fótinn
og í orðsins fyllstu merkingu fá sér
ærlegt hopp áður en hægt var að
losa tökin og hrista hann af sér.
Dag einn mætir erlend kona í
safnið, vel í holdum en því miður
með þessa forláta strigaskó á fótun-
um. Þegar konan nálgaðist hanann
til að taka af honum mynd gerðist
hann auðvitað nærgöngull og þegar
konan reyndi að ýta honum frá sér
með því að lyfta upp löppinni bloss-
aöi lostinn upp. Það næsta sem
menn sáu var konan á harðahlaup-
um með hanann á eftir sér og auð-
vitað hrópaði hún: „Reip, reip!“
Haninn hlaut sinn dóm og var lokað-
ur inni á hæli það sem eftir lifði
sumars, eflaust í strigasorg.
Sandkorn______________
Umsjón: Höröur Kristjánsson • Netfang: sandkorntS>dv.is
Ungir sjálfstæðismenn lýsa mikl-
um áhyggjum af framboðsmálum
flokksins í Reykjavík í vor. Á vefsíð-
um frelsi.is var í gær bent á vand-
ræðagang og sagt
að enn hafl ekki
tekist að setja
saman lista yfir
frambjóðendur
Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík.
Stjórn Heimdallar
er greinilega orð-
in mjög óþolin-
móð eftir að Björa Bjarnason láti
til skarar skríða í áróðursstriðinu
gegn R-listanum. Leggja Heimdell-
ingar því fram langan lista áherslu-
atriða sem þeir vilja setja á oddinn
og engu líkara en þeir treysti því
ekki að Bimi takist að hnoða dæm-
inu saman. Ekki bætir úr skák að R-
listinn hrúgar nú inn alls konar
málum sem lið í baráttunni. Þar eru
lóðamál og nýbyggingar áberandi
og framboð Stefáns Jóns Hafstein
virðist þar líka ætla að veröa sjálf-
stæðismönnum til bölvunar. Þykir
því ekki furða að ungliðar í Sjálf-
stæðisflokknum hafi áhyggjur af
bitleysi vopna eigin borgarstjóra-
efnis...
merkið komu ekki margir til
greina, - því miður...!“
Fregnir herma að össur
Skarphéðinsson sé kampakátur
þessa dagana með skoöanakönnun
sem PricewaterHouseCoopers gerði
um síðustu mán-
aðamót. Hún sýni
svo ekki verði um
villst að hann hafi
tekið réttan kúrs
þegar ákveðið var
að sigla Samfylk-
ingarskútunni
inn í ákveðna um-
ræðu um Evrópu-
sambandsaðild. í könnuninni kem-
ur fram að tveir af hverjum þremur
landsmönnum, eða 66%, telji að ís-
lendingar eigi að hefja viðræður við
Evrópusambandið um aðUd að því.
Aðeins 34% voru því andvíg. Meiri-
hlutafylgi er i öllum aldurshópum
og því meira sem fólkið er yngra.
Virðist þvi sem hörð andstaða Dav-
íðs Oddssonar gegn ESB-aðUd sé að
bera hans flokksskútu upp á sker.
Aðeins elstu gamalmenni séu enn
tUbúin að halda um stýrið með ráð-
herranum á óbreyttri stefnu burt
frá Evrópuskarkalanum...
Ungliðar Sjálfstæðisflokksins
hnýttu einnig í atgervi forystusveit-
ar flokksins á 75 ára afmæli
Heimdallar á dögunum. Þar var Jón
Steinar Gunn-
laugsson hæsta-
réttarlögmaður
sæmdur gullmerki
HeimdaUar. Var
haft á orði við það
tækifæri að Jón
Steinar hafi í
gegnum áratug-
ina verið kröftug-
ur talsmaður einstaklingsfrelsis og
annarra hugmynda sem HeimdaUur
hefur haft í heiðri frá stofnun fé-
lagsins árið 1927. Er Jón Steinar
sagður vel að þessum heiðri kominn
og óskandi væri ef aðrir menn og
konur tækju sér hann tU fyrirmynd-
ar. Á frelsisvef.is segir síðan um
þessa athöfn: „Við val á þeim ein-
staklingi sem ætti að hljóta GuU-
Geir H. Haarde fer fint í að
sussa á Sturlu Böðvarsson, ráð-
herra samgöngu- og símamála,
vegna stórhuga áætlana um borun
jarðganga úti um
aUt land. Geir seg-
ir að ef ekkert
verði af einkavæð-
ingu og sölu ríkis-
fyrirtækja á árinu
þá þurfi að hægja
ferðina. Sturla
hefur hins vegar
reynt að halda
haus í stórskotahríðinni vegna
Landssímaklúðursins og keikur
nefnt að ástæðulaust sé að hætta við
framkvæmdir þó tafir hafi orðið á
söluferlinu. Velta menn nú fyrir sér
hvort Sturlu tekst að fá Geir tU að
finna nýja tekjustofna tU að bjarga
andlitinu eða hvort hann þarf að
henda í ruslafötuna nýgerðri 100
síðna samgönguáætlun...
f