Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.2002, Blaðsíða 20
ém
36
Tilvera
FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002
DV
Lokatónleikar
Sinfóníuhljómsveitm mim flytja
verk eftir Jónas Tómasson, Eiilk
Július Mogensen, Hauk
Tómasson og Stefán Arason i
Háskólabíói i kvöld. Einleikari
er öm Magnússon á píanó og
stjómandi Bernharður
Wilkinson. Tónleikarnir hefjast
kl. 19.30 og em þeir siðustu Á
Myrkum músíkdögum.
Böll
■ PANSSKÓRNIR FRAM Á fímmtu-
dagskvöldum eru haldnir Æflnga-
danslelkir í Danshöllinni, Drafnar-
felli 2, þar sem fólk kemur saman
og dansar við fjölbreytta tónlist.
Leikhús
■ ANNA KARENINA I kvöld sýnir
Þjóðleikhúsiö verkið Anna Karenina
eftir á stóra svlðinu kl. 20.
■ BODORPIN 9 I kvöld sýnir Borg-
arleikhúsið leikritið Boðorðin 9 eftir
V Ólaf Hauk Símonarson klukkan 20.
■ HVER ER HRÆDPUR? í kvöld
sýnir Þjóðleikhúsið Hver er hrædd-
ur við Virglníu Woolf? kl. 20.
■ MEÐ FULLA VASA í kvöld sýnir
Þjóðleikhúsið Með fulla vasa af
grjótl kl. 20.
■ ÍSLANDS ÞÚSUND TÁR Nem-
endaleikhúslð sýnir Islands þúsund
tár í Smiðjunni við Sölvhólsgötu.
Fundir
■ UNGIR FORELDRAR HITTAST
Starfsemin Ungt fólk með ungana
sína er á Kakóbarnum ?
Geysishúsinu á fimmtudögum milli
kl. 11 og 13. Þar hittast ungir for-
eldrar með börnin sín.. í dag mun
r geðhjúkrunarfræðingur fjalla um
efnið Mæður og þunglyndi.
■ UNGLINGURINN í SORG
Fræðslukvöld verður í Safnaðar-
heimili Háteigskirkju í kvöld milli kl.
20 og 22 á vegum Nýrrar dögunar.
Kynnt verður námskeið fýrir unglinga
sem misst hafa ástvin. Umsjón hafa
Baldur Gylfason, sálfræðingur og
hjúkrunarfræöingarnir Helga
Jórgensdóttlr og Llnda
Kristmundsdóttir
■ LANDAMÆRI LISTANNA Mál
fundur veröur í kvöld í Borgarlelk-
húsinu um gjörninga, landamæri
listanna og tengsl leiklistar og
myndlistar. Framsögyr hafa
rpyndlistamennirnir Asmundur
Asmundsson, Hannes Lárusson og
Ragnar KJartansson, Magnús Þór
Þorbegsson, leikhúsfræöingur og
Olöf Ingólfsdóttir, danshöfundur.
Kabarett
■ HATH) f HÁFNARFIRÐI
Grunnskólahátíð verður í Hafnarflrði
í dag. Sýnd verður ný hafnfirsk
bíómynd í Bæjarbíól kl. 14 og 16 og
kl. 20 hefst skemmtun í
íþróttahúslnu við Víðlstaðaskóla.
Skemmtiatriði veröa frá hverjum
skóla, sigurvegarar úr karaokee-
keppni og hæfileikakeppni skemmta
og risadansleikur meö A mótl sól og
Ulpu rekur lestina.
* Tónlist _______________________
Tón^kóla^Sgm's^ei n s!verða í sal
Tónskólans Hraunbergl 2, kl. 18 í
dag. Þar verða flutt einleiks-og
kammerverk eftir Elías Davíðsson.
■ BLÚS Á VÍDALÍN Andrea
Gylfadóttir og Gummi Pé verða á
blúskvöldi á Vídalín, Aöalstræti 10 í
^ kvöld
Sjá nánar: Líflð eftir vlnnu á Vísi.is
Sigurvegari í átakinu Líkami fyrir LÍFIÐ:
Einungis að hugsa um
eigin árangur og líðan
- segir Sigurlín Jóna sem hreppti vegleg verðlaun
Biogagnryni
„Ég leiddi aldrei hugann að verð-
laununum heldur var einungis að
hugsa um eigin árangur og líðan,“ seg-
ir Sigurlín Jóna Baldursdóttir sem er
meðal þrjátíu og sex sigurvegara í al-
þjóðlegri áskorun með yfirskriftina
Líkami fyrir LÍFIÐ. Þátttakendur voru
yflr milljón manns. Áskoruninni var
hrundið af stað af bandariska fyrirtæk-
inu EAS sem er framleiðandi fæðubót-
areíha og B. Magnússon hf. er umboðs-
aðili fyrir. Sigurlin Jóna losaði sig við
10 kíló á þremur mánuðum Hún
grenntist um 14 cm í mittið, 13 um
mjaðmimar og bijóstummál minnkaði
um 14 cm. Hún fær að launum háifa
milljón króna í peningum, leðutjakka
að verðmæti 70 þúsund, 14 karata gull-
hring, að verðmæti 180 þúsund og árs-
birðgir af tveimur uppáhalds EAS
fæðubótarefiiunum að verðmæti 450
þúsund.
Upp og niður tröppurnar
Sigurlín Jóna er húsfreyja í Kópa-
voginum og flugfreyja hjá Flugleiðum í
67% starfi. Hún á eiginmann, tvær
stjúpdætur og fjögurra ára tvíbura,
dreng og stúlku. Ekkert af þessu lætur
hún aftra sér frá því að stunda lyfting-
ar og fara út að skokka reglulega. „Ef
ég á ekki heimangengt í ræktina þá
hleyp ég bara upp og niður tröppumar
heima og geri æfing-
ar,“ segir hún glað-
lega. Meö fram þessu
hefúr hún svo ger-
breytt um mataræði,
borðar þó sex máltíðir
á dag og notar fæðu-
bótarefni frá EAS.
Hún kveðst hafa
aflagast í vextinum
þegar hún gekk með
tvíburana. „Ég var um
140 cm í ummál þegar
ég var sem óléttust og
átti í vandamálum
með holdafarið eftir
fæðinguna. Ég var
búin að prófa ýmislegt
en árangurinn varð
ekki varanlegur. Svo
byrjaði ég átakið hjá
EAS í febrúar i fyrra. Fyrir átak og eftIr
Það sem kom mér af Hvernig er þetta hægt á þremur mánuöum?
stað vom myndir sem ég sá í auglýs-
ingum frá þeim. Þær vom af fólki sem
hafði lagt mikið á sig og uppskar eftir
því. Þá hugsaði ég: Ég skal geta breytt
mér líka. Fór að stunda lyftingar í
Hreyfmgu þrisvar í viku og aðra þrjá
daga hljóp ég í 20 mínútur. Það tekur
auðvitað í að breyta mataræðinu og
festa reglulegar æfmgar í sessi. En ég
fór í þetta af heilum hug enda þýðir
ekkert annað. Mér datt samt aldrei í
hug að ég kæmist alla leið á verðlauna-
pall.“
Breytti andrúmsloftinu
Næst er Sigurlín Jóna spurð hvort
ekki sé erfitt að halda árangrinum við.
„Eins og felst i nafhi átaksins þá þýðir
þetta nýjan lífsstíl. Ég lauk átakinu í
maí en nú veit ég hvað við á. Ég æfi
fimm sinnum í viku og held mig við
fæðubótarefnin,“ svarar hún. En
hvemig skyldi þetta koma við fjöl-
skylduna? „Þetta breytti heilmiklu
heima. Andrúmsloftið tók stakkaskipt-
um eftir að mér fór að líða betur og
þetta varð manninum mínum hvatn-
ing til að standa sig enn betur í sinni
líkamsrækt. Fyrst kvartaði hann mik-
ið yfir þeim matarvenjum sem ég inn-
leiddi á heimilið en nú vill hann ekk-
ert annað og bömin em sama sinnis." -
Og hvað er það svo sem fjölskyldan
Sex raddir leita lags is§
Sigraði milljón manns
„Efég á ekki heimangengt í ræktina þá hleyþ ég bara uþp og niöur tröþpurn-
ar heima oggeri æfingar, “ segir Sigurlín Jóna.
borðar? Ég borða mikið soðna eggja-
hvítu, túnfisk, salat og ávexti og dóttir
min vill frekar prótínsúkkulaði en
venjulegt súkkulaði." Sigurlín segir
nammidag hjá fjölskyldunni einu sinni i
viku og þá kunni allir vel að meta góð-
gætið. Hún segir áhrif átaksins ná langt
út fyrir veggi heimilisins því foreldrar
og aðrir ættingjar hafi smitast auk þess
sem hún leiðbeini nokkrum ungum
stúlkum einu sinni í viku.
Verðlaunaféð ekki vandamál
Sigurlín Jóna kveðst ekki vera farin
að sjá verðlaunin enn. „Úrslitin voru nú
bara gerð kunn rétt fyrir helgi og ég er
nýbúin að senda upplýsingar um stærð
á leðuijakkanum og hringnum. Þetta
kemur allt með tímanum," segir hún og
aðspurð um hvemig hún ætli að eyða
verðlaunafénu svarar hún brosandi:
„Það fer bara í mig og mína fjölskyldu
og verður ekkert vandamál!" -Gun.
Háskólabíó - Duets: ★ ★
Feðgin syngja
Liv (Gwyneth Paltrow) og Ricky Dean (Huey Lewis) á
karaoke-skemmtistaö.
Við höfum flest séö bíómyndir þar
sem verið er að svíkja fólk í biHjard
eða póker með því aö einhver óþekkt-
ur maður lætur sem hann kunni ekk-
ert í spilinu en um leið og heimamenn
gripa til kjuðans eða spilabunkans og
era búnir að leggja nokkrar krónur
undir þá kemur skyndilega í ljós að
hinn óþekkti er mikill snillingur og
vinnur alla peningana, ef hann er ekki
skotinn eða barinn fyrst. Þetta em svo-
kallaðir „hustlerar" sem fyrirfmnast
alls staðar þar sem hægt er að hafa af
fólki peninga með klækjum. En mér
var algjörlega ókunnugt um að það
leyndust hustlerar í karaoke-íþróttinni
þar til ég sá myndina Duets. Þar geng-
ur ósmart gleraugnaglámur inn á bar
þar sem fólk er að dunda sér við aö
raula karaoke til að vinna nokkra doll-
ara. Gleraugnaglámurinn gerir grín að
söngvurunum og er svo hæðinn að að-
alstjama staðarins (súkkulaðisætur
strákur í glimmerjakka) skorar á hann
að taka lagið. Gleraugnaglámurinn
velur sér gamalt Joe Cocker-lag, stígur
á svið, tekur af sér gleraugun og syng-
ur svo að allir á staðnum vakna og
fara að dilla sér. Frábært upphafsatriði
og skrúfar upp væntingar hjá áhorf-
endum sem er ekki alls kostar gott.
Hustlerinn Ricky Dean (Huey Lew-
is) er ein sex persóna sem era á leið til
Ohama vegna karaokekeppni. í Las
Vegas skreppur hann í jarðarfór gam-
allar vinkonu og hittir dóttur sína, Liv
(Gwyneth Paltrow), í fyrsta skipti. Hún
slæst í för með honum enda búin að
bíða eftir pabba sínum allt sitt lif. Ann-
að par á leið til Omaha er töffarinn
Suzi (Maria Bello) sem langar i verð-
launaféð til að geta hætt að sjá fyrir
sér með því að sofa hjá. Hún fær Billy
(Scott Speedman), leigubílstjóra í til-
vistarkreppu, til að aka sér yfir hálft
landið í staðinn fyrir kynferðislega
greiða. Þriðja parið samanstendur af
þeim Todd (Paul Giamatti), sölumanni
sem hefur flippað út vegna þess hversu
tilgangslaust líf hans er, yfirgefið fjöl-
skyldu sína og flækist nú milli
karaokestaða og syngur og Reggie
(Andre Braugher) sem hann hittir á
leið sinni. Reggie er glæpamaður sem
getur sungið og milli þeirra sprettur
óvenjuleg en hlý vinátta. Síðastnefiida
parið virkar langbest, þeir Todd og
Reggie ná að verða alvörapersónur
sem skipta okkur máli en hinar rista
því miður aldrei djúpt.
Það má samt auðveldlega hafa gam-
an af Duets, hún er ósköp væn og góð
og alveg laus við óvæntar uppákomur
sem geta komið illa við suma. Svo
syngur fólk glettilega vel og söngatrið-
in þau langbestu í myndinni. Huey
Lewis er skemmtilega töff söngvari og
öllum að óvörum þá getur hann alveg
leikið líka. Gwyneth getur líka sungið
og gott til þess að vita að ef Hollywood
fær leiða á engilblíðri ásjónunni þá
getur hún lagt karaokeiö fyrir sig.
Maria Bello tekur ágæta Pat Benetar
en bestir era Giamatti og Braugher
sem syngja Try a little tendemess sam-
an þannig að ekki er auga þurrt í saln-
um. Leikstjóm pabba Paltrow er laus
við hápunkta og svolitiö sundurlaus en
inni á milli leynast perluatriði sem
gott er að horfa á. Lifi karaoke!
Sif Gunnarsdóttir
Leikstjðrl: Bruce Paltrow. Handrit: John
Byrum. Kvikmyndataka: Paul Sarossy.
Tónlist: David Newman. Aðalleikarar:
Gwyneth Paltrow, Huey Lewis, Maria
Bello, Scott Speedman, Andre Braugher
og Paul Giamatti.