Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2002, Side 4
22
MÁNUDAGUR 4. MARS 2002
Sport
DV
ÍBV-Víkingur 22-23
1-0, 5-5, 9-9, (9-14), 10-14, 15-16, 20-20,
20-23, 22-23,
ÍBV:
Mörk/viti (skot/viti); Ana Pérez 13/3
(19/5), Theodora Visokaite 3/1 (6/1),
Ingibjörg Jónsdóttir 3 (4), Andrea
Atladóttir 3 (10), Bjamý Þorvarðardóttir
(2), Isabel Ortiz (8).
Mörk úr hraóaupphlaupum: 3 (Ingibjörg,
Andrea, Theodora).
Vitanýting: Skorað úr 4 af 6.
Fiskuð viti: Ingibjörg 3, Peréz, Theodora,
Elísa Sigurðardóttir.
Varin skot/víti (skot/víti á sig): Vigdis
Sigurðardóttir 8 (22/1, hélt 5, 36%), Iris
Sigurðardóttir 2 (11/1, hélt 0,18%)
Brottvisanir: 2 mínútur.
Vikineur:
Mörk/viti (skot/víti): Guðmunda
Kristánsdóttir 7/2 (11/2), Guðrún
Hólmgeirsdóttir 4 (7), Gerður B.
Jóhannsdóttir 4 (8), Anna K. Ámadóttir 2
(2), Margrét Egilsdóttir 2 (2), Guðbjörg
Guðmannsdóttir 2 (3), Helga B.
Brynjólfsdóttir 2 (3).
Mörk ur hraðaupphlaupum: 1 (Guðrún).
Vítanýting: Skorað úr 2 af 2.
Fiskuð viti: Margrét, Anna.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Helga
Torfadóttir 17/2 (39/6, hélt 10, 44%). -
Brottvisanir: 2 mínútur.
Dómarar (1-10): Amar Kristinsson og
Þorlákur Kjartansson (6).
Gaði leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 159.
Maður leiksins:
Helga Torfadóttir, Víkingi
Fram-Stjarnan 22-35
0-1, 0-2, 3-2, 6-7, 6-15, 10-17, (11-20), 11-23,
13-28,17-29, 20-33, 22-35.
Fram:
Mörk/víti (skot/viti): Svanhildur Þengils-
dóttir 8 (9), Björk Tómasdóttir 6 (15/1),
Guðrún Þ. Hálfdánsdóttir 2 (4), Inga M.
Ottósdóttir 2/1 (9/2), Sigrún P. Magnúsdótt-
ir 1 (1), Þórey Hannesdóttir 1 (2), Rósa
Jónsdóttir 1 (2), Diana Guðjónsdóttir 1
(3/1), Katrín Tómasdóttir (6/2).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 7 (Svanhild-
ur 3, Björk, Rósa, Guðrún, Þórey).
Vitanýting: Skoraö úr 1 af 6.
Fiskuð víti: Svanhildur 4, Björk, Guðrún.
Varin skot/víti (skot/viti á sig): Ema M.
Eiriksdóttir 6 (21/1,4 haldið, 28%), Guðrún
Bjartmarsdóttir 3 (23/2,1 haldið, 13%)
Brottvisanir: 4 mínútur.
Stiarnan:
Mörk/viti (skot/víti): Ragnheiður Steph-
ensen 12/2 (17/3), Elísabet Gunnarsdóttir
5/1 (6/1), Anna Bryndís Blöndal 5 (6), Mar-
grét Vilhjálmsdóttir 4 (5), Herdís Sigur-
bergsdóttir 4 (7), Kristín J. Ciausen 2 (3),
Hrund S. Sigurðardóttir 1 (1), Herdís Jóns-
dóttir 1 (3), Jóna M. Ragnarsdóttir 1 (4),
Hind Hannesdóttir (2).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 11 (Anna 3,
Ragnheiður 2, Kristin 2, Margrét 2, Herdis
S., Herdís J.).
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuð vitú Ragnheiður, Herdis S.,
Margrét, Herdis J..
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Jelena
Jovanovic 16/3 (33/4, 7 haldið, 48%), Ólína
Einarsdóttir 4 (9, 2 haldið 44%).
Brottvisanir: 4 mínútur.
Dómarar (1-10): Stefán Arnaldsson og
Gunnar Viðarsson (10).
Gœðl leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 20.
Maður leiksins: Ragnheiður
Stephensen, Stjörnunni
1. DEiLD KVENNA
Haukar 13 11 0 2 329-236 22
Stjarnan 14 9 3 2 336-285 21
ÍBV 13 9 0 4 284-247 18
Valur 13 6 2 5 278-262 14
Grótta/KR 13 5 1 7 281-286 11
Víkingur 13 5 1 7 250-260 11
FH 13 4 1 8 261-288 9
Fram 14 4 0 10 291-358 8
KA/Þór 12 2 0 10 229-317 4
Næstu leikir í ESSO-deild kvenna
fara fram laugardaginn 9. mars.
Þá mætast Stjarnan og ÍBV í
Garðabæ og hefst sá leikur kl. 15.
Klukkutíma síðar tekur síðan FH á
móti KA/Þór, sem unnið hefur tvo
siðustu leiki sína, I Kaplakrika,
Haukar sækja Valsmenn heim á
Hlíðarenda og í Víkinni leiða
Víkingur og Grótta/KR saman hesta
slna. -ósk
Jóna Margrét Ragnarsdóttir, Stjörnunni, sækir hér aö Framstúlkunni Katrínu Tómasdóttur í leik liðanna á laugardag.
DV-mynd Pjetur
KA/Þór-Valur 27-25
0-1, 2-5, 3-7, 9-7,11-9, (13-10), 13-11, 18-14,
20-18, 23-22, 25-25, 27-25.
KA/Þór:
Mörk/viti (skot/viti): Elsa Birgisdóttir
10/3 (16/4), Martha Hermannsdóttir 4 (8),
Inga Dís Sigurðardóttir 4/1 (10/2), Katrín
Andrésdóttir 3 (5), Ásdís Sigurðardóttir 3
(10), Klara Stefánsdóttir 2 (2), Ása Maren
Gunnarsdóttir 1(1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 1 (Katrín).
Vítanýting: Skorað úr 4 af 6.
Fiskuð viti: Martha 3, Ásdís 3.
Varin skot/víti (skot/viti á sig).
Sigurbjörg Hjartardóttir 17/1(42/6, hélt 5,
40%)
Brottvisanir: 4 mínútur.
Valur:
Mörk/víti (skot/viti): Hrafnhildur
Skúladóttir 10/3 (8/4), Árný Björg Isberg 6
(10), Drífa Skúladóttir 4/2 (4/2), Svanhildur
Þorbjörnsdóttir 2 (4), Eivor Pála Blöndal 1
(2), Elfa Björk Hreggviðsdóttir 1(3), Hafrún
Kristjánsdóttir 1(4).
Mörk úr hruóaupphlaupum: 5 (Ámý 2,
Drífa, Hrafnhildur, Svanhildur).
Vítanýting: Skorað úr 5 af 6.
Fiskuð viti: Hrafnhildur 2, Ámý, Hafrún,
Svanhildur, Drífa.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Sóley
Halldórsdóttir 8 (21/3, hélt 3, 38%),
Berglind Hansdóttir 6/1 (20/3, hélt 2, 30%)
Brottvisanir: 4 mínútur.
Dómarar (1-10): Hörður Sigmarsson og
Þórir Gíslason, (6).
Gœði leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 80.
Maðut leiksins:
Elsa Birgisdóttir, KA/Þór
^ ESSO-deild kvenna í handknattleik um helgina:
Ovænt í Eyjum
- þegar Víkingur lagði ÍBV með eins marks mun í miklum spennuleik
Eyjastúlkur tóku á móti Víkiug-
um á laugardaginn en fyrir leikinn
voru þær í þriðja sæti en Víkingar í
því sjötta. Flestir voru því á þeirri
skoðun að ÍBV ætti að eiga frekar
auðveldan sigur á heimavelli fyrir
höndum en gestimir höfðu annað í
huga. Vikingar spiluðu mjög vel í
leiknum og uppskáru eins marks
sigur, 22-23.
Leikurinn var jafn til að byrja
með en þó var alltaf eins og gestim-
ir hefðu undirtökin. Liðin skiptust
á að skora en alveg frá fyrstu mín-
útu þurftu Eyjastúlkur að hafa mun
meira fyrir sínum mörkum. Bæði
voru Víkingar að spila góða vöm
gegn slökum sóknarleik ÍBV en á
meðan var vamarleikur ÍBV gjör-
samlega í molum og markvarslan
eftir því. Það kom því ekki mjög á
óvart þegar Víkingar sigu fram úr
undir lok fyrri hálfleiks og voru
fimm mörkum yfir í hálfleik, 9-14.
Eyjastúlkur mættu mjög ákveðn-
ar til leiks í seinni hálfleik en jöfn-
unarmarkið lét á sér standa. Sókn-
arleikur ÍBV var áfram frekar slak-
ur, byggðist að mestu á einkafram-
taki Önu Perez sem skoraði átta
fyrstu mörk ÍBV í síðari hálfleik og
átta af þrettán mörkum liðsins í
hálfleiknum. Heimastúlkum tókst
loks að jafna, 20-20, en Víkingar
gerðu sér lítið fyrir og svöruðu með
þremur mörkum í röð og héldu
greinilega að sigurinn væri í
höfn enda aðeins tæpar þrjár mínút-
ur til leiksloka. Minnstu munaði
hins vegar að Eyjastúlkum tækist
að jafna, þær skoruðu tvö mörk í
röð og fengu svo boltann þegar tutt-
ugu sekúndur voru eftir en óagaður
leikur undir lokin varð til þess að
Víkingar fóru með stigin tvö úr
ljónagryfjunni í Eyjum.
Ingibjörg Jónsdóttir sagði að liðið
hefði í raun ekki byrjað fyrr en í
seinni hálfleik.
„Mér fannst seinni hálfleikur
skárri hjá okkur en sá fyrri var al-
vega skelfilegur. Við vorum á hæl-
unum i vörninni og vorum að taka
léleg skot í fyrri hálfleik. Við leit-
uðum ekki að réttu færunum heldur
vorum við að skjóta úr 60-70% fær-
um sem nýttust ekki og það má bara
ekki í svona leikjum. Ég neita því
ekki að þaö var erfitt að gíra sig upp
fyrir þennan leik, við áttum að
vinna þetta lið en við verðum bara
að nýta okkur þetta og taka næsta
leik sem er á móti Stjörnunni,“
sagði Ingibjörg Jónsdóttir, línumað-
ur Eyjamanna, vonsvikin eftir leik-
inn.“
Helga Torfadóttir, markvörður
Víkings og besti leikmaður vallar-
ins, sagði að liðsheildin hefði skap-
að sigurinn.
„Þetta var bara frábært hjá okkur
og við spiluðum loksins sem lið.
Við settum okkur markmið eftir
áramót og það var fyrst og fremst að
spila sem lið en ekki sem sjö ein-
staklingar inni á vellinum. Það
gekk eftir í dag og við sjáum að við
erum með eitt af bestu liðum deild-
arinnar þegar við spilum svona. Ég
vona auðvitað að við séum bara að
toppa á réttum tíma og núna verð-
um við bara að horfa fram á veg-
inn,“ sagði Helga Torfadóttir.
jgi
Stjarnan í stuði
- rúllaði yfir Fram í Safamýrinni
Stjaman burstaði Fram,
22-35, í Essódeild kvenna í
Framheimilinu á laugar-
daginn.
Það var aðeins framan af
leik sem eitthvert jafnræði
var með liðunum en staðan
breyttist úr 6-7 í 6-15 og
þegar flautað var til leik-
hlés höfðu gestirnir skorað
20 mörk en gestirnir aðeins
11.
Stjaman byrjaði leikinn af mikl-
um krafti í síðari hálfleik og þegar
rúmar tólf mínútur voru liðnar af
honum höfðu þær gert 28 mörk og
einna helst leit út fyrir að
mörkin hjá þeim yrðu á
fimmta tug.
Þá slökuðu stelpurnar
aðeins á og varamönnum
var leyft að spreyta sig og
hægðist þá aðeins á leikn-
um og markaskorun.
Ragnheiður best
Hjá Stjörnunni var
Ragnheiður Stephensen
best og Jelena Jovanovic
var traust í markinu. Þá
sýndi Herdís Sigurbergs-
dóttir gamalkunna takta
og var gaman að sjá hana
svona fríska eftir erfið
meiðsli. Elisabet Gunn-
arsdóttir, Anna Bryndis
Blöndal og Margrét Vil-
hjálmsdóttir áttu einnig
góða spretti.
Betri með árunum
Hjá Fram var Svanhildur Þeng-
ilsdóttir langbest og verður líklega
bara betri með hverju ár-
inu sem líður. Björk Tóm-
asdóttir var mjög góð
framan af en dalaði þegar
líða fór á leikinn. Fram
treystir mikið á að þessir
tveir leikmenn spili vel en
flestar hinar stelpumar í
liðinu eru ungar að árum
og skortir reynslu.
-SMS
Ragnheiður
Stephensen.
Svanhildur
Þengilsdóttir.
Annar í röð
- KA/Þór er loksins komið á skrið
KA/Þór vann sinn annan
leik í röð þegar liðið tók á
móti Valsmönnum í KA-
heimilinu á laugardaginn.
Ákveðni og barátta ein-
kenndu KA/Þór og með
mikilli seiglu tókst þeim að
innbyrða sigur.
Valsstúlkur byrjuðu bet-
ur í leiknum og voru komn-
ar í fjögurra marka forskot
um miðjan fyrri hálfleik en
KA/Þór hafði gengið illa að leysa
góða vöm Valsara. Þær gáfust
ekki upp og skoruðu næstu
sex mörk í leiknum og
voru komnar í tveggja
marka forskot þegar fimm
mínútur voru tll leikhlés.
Valsstúlkur náðu ekki
að svara þessu útspili
ILA/Þór og voru þær komn-
ar með fjögurra marka for-
skot rétt undir lok fyrri
hálfleiks en Eivor Pála
Blöndal náði að minnka
muninn á síðustu sek-
úndunum.
Það virtist skorta á
sjálfstraustið hjá KA/Þór
í byrjun leiks en með
aukinni markvörslu Sig-
urbjargar í markinu kom
þetta hjá þeim og Sigur-
björg varði 13 skot í fyrri
hálfleik.
KA/Þór hélt uppteknum hætti í
seinni hálfleik og var yfir allan
leikinn nema þegar Valur jafnaði í
stöðunni 25-25. KA/Þór
skoraði svo síðustu tvö
mörkin i leiknum og vann
sanngjaman sigur. Elsa
Birgisdóttir var atkvæða-
mest í liði KA/Þórs og
Sigurbjörg Hjartardóttir
var góð í markinu. Hjá
Val var Hrafnhildur
Skúladóttir best.
-JJ
Elsa Birgisdóttir.
Sigurbjörg
Hjartardóttir.