Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2002, Síða 11
MÁNUDAGUR 4. MARS 2002
29
DV
Enska úrvalsdeildin á laugardag:
Arsenal heldur
sínu striki
Liverpool enn með í toppbaráttunni eftir góðan sigur á Fulham
Reuters
Dennis Bergkamp skorar hér fyrra mark Arsenal án þess aö Nikos Dabizaz komi nokkrum vörnum viö.
Arsenal ætiar svo sannarlega ekki
að gefa eftir í toppbaráttunni og á
laugardag vann það sinn tíunda úti-
sigur á tímabilinu, 0-2, gegn
Newcastie. Dennis Bergkamp kom
Arsenal yfir með sannkölluðu snilld-
armarki og lagði síðan upp seinna
markið fyrir Sol Campbell. Berg-
kamp átti reyndar stórleik í leikn-
um og sendingar hans sköpuðu oft
hættu upp við mark Newcastie.
Bobby Robson viðurkenndi eftir leik-
inn að Arsenal hefði hreinlega verið
nokkrum klössum ofar. „Maður horf-
ir á Arsenal spila eins og það gerði í
þessum leik og þá sér maður að við
erum ekki komnir á þennan stall
ennþá. Ég ætiaði að segja að við
þyrftum þó ekki að spila við það í
hverri viku en þá mundi ég að við fá-
um það aftur í heimsókn í bikar-
keppninni á laugardag!"
Nicolas Anelka skaut Liverpool i
toppbaráttu úrvalsdeildarinnar á
nýjan leik með frábærum leik gegn
Fulham á Craven Cottage. Anelka
skoraði fyrra mark Liverpool í 0-2
sigri og virðist óðum vera að finna
sitt gamla form. Það var síðan Jari
Litmanen, sem kom inn á sem vara-
maður fyrir Anelka 10 mínútum fyr-
ir leikslok, sem tryggði Liverpool
sigurinn á lokaminútum leiksins.
Þá náði hann boltanum á undan Ed-
vin van der Saar, markverði Ful-
ham, á miðjum vallarhelmingi liðs-
ins og renndi boltanum í autt mark-
ið. Lið Liverpool var reyndar í heild
alls ekki sannfærandi í leiknum og
Fulham pressaði töluvert, einkum í
seinni hálfleik, en vörn liðsins og
Jerzy Dudek markvörður stóðust öll
áhlaup. „Það er alltaf hægt að bæta
sig,“ sagði Phil Thompson, settur
framkvæmdastjóri Liverpool, eftir
leikinn. „Við vorum slakir í fyrri
hálfleik og fannst við geta gert bet-
ur. Við komum inn í seinni hálfleik-
inn til að gera betur og mér fannst
við eiga sigurinn skilinn.“
Draumur Chelsea úti?
Draumur Chelsea um sæti í
meistaradeildinni virðist smám
saman vera að fjara út. Nú lá liðið
fyrir Charlton og skoraði Jason Eu-
ell bæði mörkin í 2-1 sigri, það
seinna mínútu fyrir leikslok. Þetta
var fjórði sigur Charlton á Chelsea í
röð.
Aston Villa vann sinn fyrsta sigur
siðan Graham Taylor tók við stjóm-
artaumunum en tæpt var það. Dari-
us Vassel skoraði sigurmarkið á síð-
ustu minútu leiksins eftir að hvort
lið hafði skoraði eitt mark. Glen
Roeder, framkvæmdastjóri West
Ham, varð arfavitlaus eftir leikinn.
„Það er erfitt að taka því að tapa á
þennan hátt. Það hefur gerst núna
þrisvar á skömmum tíma. Við erum
nú að læra að við verðum að klára
leikina okkar strax. Þetta hefði verið
frábært stig fyrir okkm. Þar sem við
vorum á útivelli hefðum við átt að
reyna að tefja leikinn en þess í stað
reynum við að sækja upp miðjuna til
að skora sigurmarkið.
Ipswich er komið aftur í fallslag-
inn eftir að hafa legið á heimavelli
gegn Southampton. Brett Ormerod
skoraði fyrsta mark leiksins og var
það einnig fyrsta mark hans fyrir
félagið. Chris Marsden gerði svo
þriðja markið en hann gegndi fyrir-
liðastöðunni hjá Southampton í for-
follum Jasons Dodds. George
Burley, framkvæmdastjóri Ipswich,
var ekki sáttur eftir leikinn. „Ef
maður verst á þennan hátt á maður
ekki skilið að vinna leik. Við vorum
slakir vamarlega og létum fram-
herja þeirra ekki hafa nægilega fyr-
ir hlutunum."
Skelfilegt sjálfsmark Sinclair
Það virðist ekkert lát á ógæfu
Leicester-manna og nú virðist ekkert
geta bjargað liðinu frá falli eftir aö
það tapaði 1-0 fyrir Middlesborough.
Til að kóróna ógæfuna var það
Leicester-maðurinn Frank Sinclair
sem tryggði Middlesborough sigur-
inn þegar hann ætiaði að senda bolt-
ann til baka á Ian Walker mark-
mann en sendingin var of föst og
boltinn fór yfir hann og í netið. Dave
Bassett, framkvæmdastjóri Leicest-
er, var að sjálfsögðu ósáttur við aö
tapa á þessu marki. „Þetta var fárán-
legt og heimskulegt mark til að fá á
sig. Sem þjálfari hefur maður enga
sfjórn á þessu. Ég vissi alltaf að leik-
urinn yrði tæpur og því var algjör
óþarfi að gefa svona mark. Það var
hins vegar tilgangslaust af mér að
fara að skamma Frank. Hann vildi
helst hverfa ofan í jörðina eftir þetta
og ef ég hefði farið að skamma hann
hefði það einungis gert illt verra.“
Basset viðurkenndi einnig að liðið
væri nú komið með annan fótinn í 1.
deildina.
Bolton og Blackburn gerðu sér lít-
inn greiða með því að skilja jöfn í
miklum fallslag. Blackbum sýndi
þó töluverðan karakter því Andy
Cole, hetja liðsins frá úrslitaleik
deildarbikarsins, var rekinn af leik-
velli fyrir að stíga á Mike Whitiow.
Og til að bæta gráu ofan á svart
skoraði Rod Wallace fyrir Bolton í
lok fyrri hálfleiks en Matt Jansen
náði svo að jafna leikinn í síðari
hálfleik.
Tottenham vann góðan sigur á
Sunderland sem enn er ekki laust
úr fallbaráttunni. Gustavo Poyet
skoraði fyrra mark Tottenham og
gerði þar með sitt þriðja mark í jafn
mörgum úrvalsdeildarleikjum. Pat-
rik Mboma jafnaði hins vegar fyrir
Sunderland og var það fyrsta mark
hans í úrvalsdeildinni. -HI
Okkar menn
Guöni Bergsson lék allan leikinn með
Bolton i 1-1 jafnteflinu gegn Blackbum i
ensku úrvalsdeildinni. Hann þótti leika
sæmilega.
Eiöur Smári Guöjohnsen lék einnig allan
leikinn með Chelsea í 2-1 tapleik liðsins
gegn Charlton. Hann átti ágætan dag.
Hermann Hreiöarsson lék allan leikinn
með Ipswich í 1-3 tapi liðsins gegn Sout-
hampton.
Heiöar Helguson lék síðasta hálftímann
með Watford þegar liðið tapaði 0-1 fyrir
Crewe i ensku 1. deildinni.
Lárus Orri Sigurósson lék alian leikinn
með WBA í 0-1 sigri á Wimbledon.
ívar Ingimarsson lék allan leikinn með
Brentford í 0-2 sigri á Bristol City. Ólafur
Gotískálksson sat á varamannabekknum
allan tímann.
Arnar Gunnlaugsson og Bjarni Guójóns-
son léku allan leikinn með Stoke í 3-1 sigri
liðsins á Brighton á fóstudagskvöld. Amar
skoraði annað mark Stoke úr vítaspymu
sem Bjami fiskaöi. Stefán Þóröarson og
Brynjar Gunnarsson komu inn á sem
varamenn í seinni hálíleik.
Helgi Valur Daníelsson kom inn á sem
varamaður á lokamínútunni fyrir Peter-
borough þegar liðið sigraði Bomemouth
0-2. -HI
Sport
iwsump
Aston Villa-West Ham.......2-1
0-1 Di Canio (12., vsp.), 1-1 Angel
(23.), 2-1 Vassel (90.)
Bolton-Blackbum ...........1-1
1-0 Wallace (45.), 1-1 Jansen (68.)
Charlton-Chelsea...........2-1
1-0 Euell (72.), 1-1 Lampard (85.), 2-1
Euell (89.)
Fulham-Liverpool ..........0-2
0-1 Aneika (13.), 0-2 Litmanen (90.)
Ipswich-Southampton........1-3
0-1 Delap (52.), 0-2 Ormerod (61.), 1-2
George (82.), 1-3 Marsden (88.)
Middlesborough-Leicester . . . 1-0
1-0 sjáifsmark (3.)
Tottenham-Sunderland.......2-1
1-0 Poyet (31.), 1-1 Mboma (45.), 2-1
Ferdinand (63.)
Newcastle-Arsenal..........0-2
0-1 Bergkamp (11.), 0-2 Camapbeil
(41.)
Derby-Man.Utd..............2-2
1-0 Christie (9.), 1-1 Scholes (41.), 1-2
Veron (60.), 2-2 Christe (77.)
Everton Leeds . . 0-0
Man. Utd 29 18 4 7 69-37 58
Arsenal 28 16 9 3 57-31 57
Liverpool 29 16 8 5 47-25 56
Newcastle 28 17 4 7 52-35 55
Leeds 28 11 12 5 37-29 45
Chelsea 27 11 11 5 47-28 44
Aston Villa 28 10 11 7 34-31 41
Tottenham 27 11 5 11 39-36 38
Charlton 28 9 10 9 32-33 37
Fulham 28 8 11 9 27-31 35
Southampt. 28 10 4 14 34-42 34
Middlesboro28 9 7 12 27-35 34
West Ham 28 9 7 12 31-44 34
Sunderland 28 8 7 13 22-33 31
Everton 28 7 9 12 27-34 30
Ipswich 27 8 6 13 35-43 30
Bolton 28 6 12 10 31-43 30
Blackburn 27 6 8 13 33-37 26
Derby 28 7 5 16 23-45 26
Leicester 28 3 8 17 18-50 17
1. deild
Bamsley-Millwall.............1-1
Bradford-Sheff. Wed..........0-2
Burnley-Norwich .............1-1
Grimsby-Crystal Palace ......5-2
Portsmouth-Walsall ..........1-1
Preston-Birmingham...........1-0
Rotherham-Nott. For..........1-2
Sheff. Utd.-Stockport........3-0
Watford-Crewe................0-1
Wimbledon-WBA ...............0-1
Wolves-Gillingham............2-0
Staða efstu liða:
Wolves 37 23 7 7 66-31 76
Man. City 34 21 5 8 78-42 68
WBA 37 20 6 11 44-25 66
Millwall 36 17 10 9 56-37 61
Burnley 36 17 10 9 5649 61
Coventry 36 18 5 13 52-35 59
C. Palace 37 18 3 16 65-55 57
Norwich 36 17 6 13 49-45 57
Birmingham35 16 8 11 50-39 56
Preston 36 15 11 10 54-47 56
Sheff. Utd. 36 12 13 11 41-41 49
Watford 37 13 9 15 52A5 48
Wimbledon 35 12 12 11 4644 48
Nott. For. 37 11 15 11 40-35 48
2. deild
Stoke-Brighton ........
Bomemouth-Peterborough
Bristol City-Brentford . . .
Cambridge-Reading......
Huddersfield-Wigan.....
Northampton-Cardiff . . . .
Notts County-Tranmere . .
Oldham-Colchester .....
QPR-Blackpool .........
Swindon-Port Vale .....
Wrexham-Chesterfield .. .
Wycombe-Bury...........
Staða efstu liða: Reading 37 22 7 8 56-31 73
Brighton 36 18 12 6 48-37 66
Stoke 37 18 10 9 57-34 64
Brentford 36 18 8 10 63-39 62
Bristol C. 36 18 8 10 54-36 62
Oldham 37 16 12 9 67-49 60
Huddersf. 35 16 11 8 4635 59
Cardiff 36 16 11 9 5641 59
QPR 37 15 11 11 50-40 56
Tranmere 35 14 11 10 52-42 53
Wycombe 36 14 11 11 4646 53
Port Vale 37 15 7 15 46-49 52
Swindon 37 13 11 13 41-46 50
Wigan 37 11 14 12 5642 47
Colchester 37 12 10 15 53-61 46
3-1
0-2
0-2
2-2
0-0
1-2
3- 0
4- 1
2-0
3-0
0-1
0-2
T
♦
*r-