Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 I>V Fréttir Grandvar maður í gulum kagga - nýi hluthafinn í íslandsbanka forðast kastljós fjölmiðlanna Nafn: Einar Öm Jónsson. Aldur: 39 ára. Menntun: Verslunarpróf frá VÍ. Heimili: Reykjavík. Fjölskylda:Kvæntur Guðnýju Magnúsdóttur fjár- málastjóra. Þau eiga þrjú börn. Staöa: Framkvæmdastjóri Sax- hóls, eignarhaldsfélags Nóatúns-fjölskyldunnar. Efni: Keypti hlut Jóns Ólafs- sonar í Orca S.A. og þar með 4% hlut í íslandsbanka fyrir um 2 milljarða. „Hver keypti?" Þessi spuming brann á vörum margra þegar það spurðist að Jón Ólafsson hefði selt hlut sinn í hinu umtalaða félagi, Orca S.A., fyrir um það bil tvo milljarða króna. Jón hafði reynt að selja í nokkrar vik- ur og mikil umræða spunnist um meint tilboð sem honum barst í tölvu- pósti frá Indverja nokkrum. „Leiksýn- ing,“ sagði Jón Ásgeir Jóhannesson, meðeigandi Jóns í Orca. Rétt fyrir að- alfund íslandsbanka á mánudagsmorg- un kom í ljós að kaupandinn var ekki Indveiji heldur eignarhaldsfélagið Sax- hóll, en forsvarsmaður þess er Einar Öm Jónsson. Og enn spurðu margir: „Hver keypti?" Nóatún Einar Öm er ekki þekktur maður þrátt fyrir talsverð umsvif - hefur enda fremur hægt um sig. Hann er Nærmynd Olafur Teitur Guönason blaðamaöur næstyngstur í hópi flmm bama Jóns Júlíussonar kaupmanns og Oddnýjar Sigurðardóttur. Fjölskyldan rak i sam- einingu Nóatúnsverslanimar allt frá stofhun þeirra árið 1965. Einar Öm og systkini hans fjögur unnu öll við fyrir- tækið frá blautu bamsbeini. Segja má að Einar Öm hafi veriö fremstur í flokki sem framkvæmdastjóri fyrir- / Verzlunarskólanum vakti hann athygli fyrir sérstœðan tónlist- arsmekk og í diskó-æð- inu miðju setti hann gjarnan djass, þunga- rokk eða „Lax, lax, lax“ á fóninn í partíum. Eft- irlætislagið hans á þess- um árum var hins vegar „Systur mínar œpa allar Eyjólfur!“ tækisins og síðar stjómarformaður. Árið 1996 gekk Nóatún í samstarf við Kaupfélag Ámesinga. Saman keyptu þessi fyrirtæki verslanimar 11- 11 þremur árum síðar og úr varð Kaupás, aðalkeppinautur Baugsveldis- ins. Nóatúnsfjölskyldan átti 2/3 í Kaupási en KÁ þriöjung. Fyrir tveim- ur árum keypti Eignarhaldsfélag Al- þýðubankans 97% hlut í Kaupási og er talið að fjölskyldan hafi fengið vel yfir 2 milljarða króna fyrir hlut sinn í fyr- irtækinu. Einar Öm var þannig 37 ára gamall kominn út úr verslunarrekstri og sneri sér að því að ávaxta eignir fjölskyldunnar sem framkvæmdastjóri eignarhaldsfélags hennar, Saxhóls. Einar er sagður hafa tekið forystu meðal systkina sinna í fjármálaum- sýslu fjölskyldunnar ásamt fóður sín- um. „Þeim hefur tekist að ávaxta þetta skynsamlega," segir maður sem átt hefúr mikO viðskipti við fjölskylduna. „Þeir hafa verið varfæmir og forðast glannaleg hlutabréfakaup. Þeir hafa tekið rikisskuldabréf og lagt inn á ör- ugga bankareikninga en núna breytist þetta í góða fjárfestingu í íslands- banka.“ Umsvif fjölskyldunnar era þó fyrst og fremst á sviði fasteigna. Sax- hóll á margar af gömlu Nóatúnsversl- ununum og tók auk þess þátt í bygg- ingu Smáralindar. Vildi verða prestur úti á landi Einar Öm gekk í Verzlunarskóla ís- lands. Að loknu verslunarprófi eftir tveggja ára nám skipti hann yfir I Fjöl- brautaskólann í Ármúla en komst ekki yfir að ljúka stúdentsprófi þar sem hann var í fullu starfi við verslunar- rekstur með náminu. Hann hugði þó á lengra nám og draumurinn var, að sögn félaga hans, að verða prestur ein- hvers staðar úti á landi. Einar Öm er sagður mikill húmoristi og skemmtilegur. I Verzlun- arskólanum vakti hann athygli fyrir sérstæðan tónlistarsmekk og í diskó- æðinu miðju setti hann gjaman djass, þungarokk eða „Lax, lax, lax“ á fóninn í partíum. Eftirlætislagið hans á þess- um árum var hins vegar „Systur mín- ar æpa allar Eyjólfur!“ en það kann að helgast af því að æskuvinur hans og skólabróðir í Verzlunarskólanum var Eyjólfur Sveinsson í Frjálsri fiölmiðl- un. Einar Öm tók einmitt sæti Eyjólfs í bankaráði íslandsbanka eftir að Eyjólfúr seldi hlut sinn í Orca um ára- mótin. Hann hefur einnig fiárfest í fiölmiðlafyrirtæki Eyjólfs og fóður hans, Fijálsri fiölmiðlun. Vinir Einars Amar segja af og frá að hann hafi keypt bréfm í íslands- banka til þess að tryggja sér stjómar- sæti í bankanum; hér hljóti einfaldlega að vera um góða fiárfestingu að ræða að hans mati, enda sé hann afar var- færinn og skynsamur í fiármálum. í gulum blæjubíl „Hann getur ekki farið í lengra frí en hálfan mánuð og er yfirleitt kominn í símann á fiórða degi,“ segir vinur Einars Amar. Þrátt fyrir mikla starfs- orku er hann sagður mikill fiölskyldu- maður en fer frekar í styttri ferðir og skreppitúra með Qölskyldunni en löng frí. íþróttamennska Einars Amar er sögð takmarkast við hjólreiðatúr upp í Öskjuhlíð einu sinni í mánuði eða svo. Hann fer stundum í veiðitúra með vin- um sínum og „þótt hann hafi engan sérstakan áhuga á veiði þá veiðir hann undantekningarlaust þegar hann mæt- ir á svæðið. Það er með hreinum ólík- indum." Bilar em sagðir eitt helsta áhuga- mál hans fyrir utan vinnuna og fiöl- skylduna. Hann á ævafoman, fallegan amerískan blæjubíl. Og líklega era það einu skiptin sem hann vekur athygli fólks á götum úti - þessi varfæmi kaupmannssonur og fiármálamaður sem forðast kastljós fiölmiðlanna - þegar hann keyrir um götur borgar- innar á góðviðrisdögum í margra metra löngum heilgulum kagga með blæjuna niðri. Maður sýknaður af ákæru um að hafa nefbrotið annan: Sá nefbrotni í öðrum slag skömmu áður Húsvíkingur á þrítugsaldri hefúr í Héraðsdómi Norðurlands eystra verið sýknaður af ákæm um að hafa nefbrot- ið annan Húsvíking sem er um tvítugt. Mönnunum lenti saman fyrir utan skemmtistað á Húsavík í júní árið 2000 og tókust þar á eftir deilur um bjór- flösku. Sá mannanna sem nefbrotnaði var með bjórflöskur meðferðis og tók sá kærði af honum eina flösku sem brotn- aði skömmu síðar er hún fór í jörðina. Flöskueigandinn undi þessu illa og réðst að hinum, m.a. með spörkum, en sá svaraði fyrir sig og kom m.a. höfuð- höggi á andstæðinginn. Sá leitaði síðar til læknis sem úrskurðaði að maður- inn þyrfti að fara í aðgerð og var hann sendur til Reykjavíkur strax næsta dag. Málið á sér hins vegar nokkra for- sögu. Kvöldið áður var haldinn dans- leikur í Ýdölum í Aðaldal, og þangað fór sá nefbrotni sem reyndar var þá ekki nefbrotinn. Hann lenti þar í slags- málum við sviðið innandyra, og var skömmu síðar vísað út úr húsi. Var hann þá að sögn vitna mikiö ölvaður, blóðugur og i rifnum bol. Eftir að manninum hafði verið vísað á dyr í Ýdölum fór hann heim til sín á Húsavík en skömmu síðar eða um miöja nótt fór hann á stjá og lenti eftir það í slagsmálununum fyrir utan veit- ingastaðinn Hlöðufell. Sérfræðingur í munn- og kjálka- skurðlækningum sem meðhöndlaði manninn taldi hann ekki hafa verið til- búinn til mikilla ryskinga eftir að hann kjálkabrotnaði, og taldi því meiri likur á að hann hefði brotnaö jiegar hann hlaut síðari áverkana. Dómurinn taldi hins vegar, ekki síst með tilliti til framburðar vitna, ósannað að maður- inn hefði hlotið kjálkabrotið í slags- málunum fyrir utan veitingastaðinn og sýknaði ákærða af öllum sökum. Málskostnaður féll á ríkissjóð. -gk REYKJAVIK AKUREYRI Sólariag í kvöld 19.28 19.11 Sólarupprás á morgun 07.43 07.31 Síödegisflóö 19.36 12.23 Árdegisflóö á morgun 07.50 00.23 mzmrná Hæg suðlæg eöa breytileg átt. Rigning meö köflum sunnan til, slydda eöa snjókoma norövestan tll, en annars skýjaö aö mestu og úrkomulítiö. Vaxandi noröan- og norðaustanátt með snjókomu vestanlands síðdegis Él norðan og austan til, en skýjaö með köflum sunnan- og vestan til. Veðriö n Sunnudagur Mánudagur Þriöjudagur °o°o0 O Hiti 0° Hiti 0° Hiti 0” «.r til 5“ til 4“ Vlndur: 5-13 m/s Vindur: 5-13'Vs- Vindur: 5-14 nV» Éi noröan- og austan tll, en bjart annars staöar. Frost um mest altt land. 4- Él noröan- og austan til, en bjart annars staöar. Frost um mest allt land. 4» Hæg austlæg eöa breytileg átt. Skýjaö meö köflum og stöku él noröaustantil. Frost um mest altt land. «- Logn Andvari Kul Gola Stinnlngsgola Kaldi Stinningskaldi Allhvasst Hvassviöri Stormur Rok Ofsaveöur Fárviöri m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,0-10,7 10.8- 13,8 13,3-17,1 17,2-20,7 20.8- 24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7 AKUREYRI súld 3 BERGSSTAÐIR rigning 3 BOLUNGARVÍK snjóél -1 EGILSSTAÐIR skýjaö -2 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 2 KEFLAVÍK súld 3 RAUFARHÖFN alskýjað 3 REYKJAVÍK skúr 4 STÓRHÖFÐI rigning 5 BERGEN heiöskírt -4 HELSINKI léttskýjaö -9 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 0 ÓSLÓ heiöskírt -6 STOKKHÓLMUR -7 ÞÓRSHÖFN skýjaö 5 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö -4 ALGARVE léttskýjaö 15 AMSTERDAM alskýjaö 2 BARCELONA léttskýjaö 14 BERLÍN súld 0 CHICAGO léttskýjað 15 DUBUN rigning 5 HAUFAX heiöskírt 0 FRANKFURT rigning 3 HAMBORG léttskýjað 0 JAN MAYEN skýjaö -1 LONDON rigning 6 LÚXEMBORG þoka 2 MALLORCA léttskýjað 13 MONTREAL léttskýjað -2 NARSSARSSUAQ skafrenningur -6 NEW YORK hálfskýjaö 11 ORLANDO heiöskirt 15 PARÍS rigning 8 VÍN þokumóða 5 WASHINGTON heiöskírt 12 WINNIPEG léttskýjaö -16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.