Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Blaðsíða 28
 m (Jt FRETTAS KOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ FOSTUDAGUR 15. MARS 2002 Orðrómur um að Norsk Hydro vilji frestun álversframkvæmda: Stjórnvöld hér ekki upplýst um bakslag - málið unnið samkvæmt áætlun, segir Valgerður Sverrisdóttir „Þetta mál er unnið samkvæmt áætlun og engin ákvörðun hefur verið tekin um að bregða út af því,“ segir Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð- herra aðspurð hvort henni sé kunnugt um að Horsk Hydro vilji fresta fram- kvæmdum við álver á Reyðarfirði vegna erfiðleika við fjárfestingu í Þýskalandi í risafyrirtækinu VAW Aluminium. „Okkur hefur auðvitað borist það til eyma að einhver vand- kvæði séu í tenglum við þessa fjárfest- ingu í Þýskalandi, en fulltrúi fyrirtæk- isins fullvissaði mig um það hér í haust að sú fjárfesting hefði engin áhrif á hugsanlegar framkvæmdir á ís- landi," segir ráðherra. Aðspurð hvort Norsk Hydro hefði með einhverjum hætti haft samband við íslensk stjóm- völd um að verkefnið kynni að vera i hættu sagði Valgerður að slíkt hefði ekki verið gert með neinum formleg- um hætti. „Ég lít svo á að Norsk Hydro hljóti að hafa haft frumkvæði að því að ræða við okkur ef eitthvað það er að Vilja eyöa óvissu „Þetta er sérkennileg uppákoma en þangað til það skýrist hver hin raun- verulega staða er - þangað til eitthvað kemur Steingrímur J. Sigfússon. Ossur Skarphéðinsson. frá Norsk Hydro um málið - er ómögulegt að tjá sig um mál sem kann að vera byggt á orðrómi," segir Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingarinn- ar. „Ef þetta reyn- ist rétt er auðvitað nauðsyniegt að bregðast við með því að fá úr því skorið hvort Norsk Hydro er einungis að fresta þessu um skamman tíma eða hvort um alvar- legri áhrif á tíma- setningar er að ræða,“ segir Össur. „í fyrsta lagi hafa þessi áform verið óráð frá byrjun og í öðru lagi hefðu menn alltaf átt að reikna með þeim möguleika að eitthvað óvænt og utanaðkomandi gæti komið í veg fyrir þau. Þar af leiðandi hefur ver- ið arfaviflaust að kynda sífellt undir væntingar á þessu rnáli," segir Stein- grímur J. Sigfússon. Hann sagðist alltaf hafa haft efasemdir um að Norsk Hydro væri ákveðið í þátttöku álversins, a.m.k. innan þess tímaramma sem menn hefðu rætt. -BG/BÞ/ÓTG Valgerður Sverrlsdóttir. gerast sem er á skjön við það sem ákveðið hefur ver- ið,“ segir Valgerð- ur. Hún bendir á að nú á vordögum hafi áæflanir gert ráð fyrir að hlut- imir myndu skýr- ast. Valgerður seg- ir aðspurð hvort þetta muni hafa ekkert fyrir form- lega frá Norsk Hydro um þetta þó fréttir séu i fjöl- miðlum og við höldum einfald- lega áfram okkar Þorsteinn Hilmarsson. áhrif á framgang frumvarps um Kára- hnjúka í þinginu að fjarri lagi sé að málið sé á einhveiju því stigi að það kalli á slíkt. Samkvæmt áæflunum er gert ráð fyrir því að tvær lykilákvarð- anir verði teknar um framhald þessar- ar framkvæmdar, fyrst nú í júní þegar samráðshópur um framkvæmdina leggur mat á hvort fara á í verklegar undirbúningsframkvæmdir og svo þann 1. september þegar endanleg ákvörðun verður tekin um málið. Þorsteinn Hilmarsson, upplýsinga- fulltrúi Landsvirkjunar, segir fyrir- tækið vinna áfram samkvæmt þehn áætlunum sem fyrir hafi verið lagðar enda hafi alltaf legið fyrir að menn myndu vinna nauðsynlega undirbún- ingsvinnu þar til ákvarðanir yrðu teknar um hvort af þessu verði eða ekki þann 1. september. „Það liggur vmnu a morgum vígstöðvum," segir Þorsteinn. Hann segir að vissulega sé um kostnaðar- saman undirbúning að ræða því verið sé að fúlihanna ýmis mannvirki en það sé vinna sem muni nýtast hvemig sem fari. Hins vegar sé kannski ekki um stórar upphæðir að ræða nú fram á vorið. Frá upplýsingaskrifstofu Norsk Hydro fæst hvorki staðfesting á því hvort vöflur séu komnar á fyrirtækið varðandi Reyðarálsverkefnið né því hvort áform fýrirtækisins séu óbreytt. Thomas Knudsen upplýsingastjóri bendir á að ekki sé kominn tími á ákvarðanir, það sé 1. september, og ekki sé eðlilegt að íjalla um horfúr málsins frá degi til dags. í gær úrskurðaði umhverfisráð- herra um álverið í Reyðarfirði og stað- festi hann niðurstöðu Skipulagsstofn- unar um að heimila byggingu álvers og rafskautaverksmiðju. -BG DV-MYND TEITUR Erpur í stuöi / gærkvöld voru haldnir vel heppnaöir tónteikar i Háskólabíói til aö minnast fórnar- lamba flugslyssins í Skerjafiröi 7. ágúst 2000. Allur ágóöi af tónleikunum fer til styrkt- ar óháöri rannsókn á flugslysinu. Fjöldi þekktra hljómsveita, söngvara og skemmti- krafta kom fram og gáfu allir vinnu sína. Á myndinni er Erpur Eyvindarson úr X Rottweilerhundum að messa yfir áhorfendum sem tóku vel viö skilaboðum hans. Forstöðumaður Barnahúss um dóminn í gær: Brýnt að áfrýja kynferðis- dómum gegn börnum rúmur helmingur notaður af 10 ára refsiramma „Miðað við þann skaða sem veldur þeim einstaklingi sem verð- ur fyrir þessu eru dómar í þessum málum vægir. En mér sýnist þessi dómur þó vera sá þyngsti sem kveðinn hefur verið upp í kynferð- ismáli," segir Vigdís Erlendsdótt- ir, forstöðumaður Barnahúss, um dóm Hæstaréttar i gær, fimm og hálfs árs fangelsi yfir manni sem sakfelldur var fyrir að hafa haft samræði við stjúpdóttur sina á ár- unum 1983-87 er hún var 9-14 ára. Aðspurð um hvort Vigdísi finn- ist að dómar séu jafnvel að þyngj- ast í kynferðismálum þar sem börn eru þolendur segir hún að Vigdís Erlendsdóttir. ekki sé hægt að draga álykt- un um slíkt frá þeim dómi sem gekk í gær. „En mér finnst þessi dómur undir- strika hve mikilvægt er að mál sem þessi fari fyrir tvö dómstig, bæði sýknu- dómar og þar sem sakfellt er. Nið- urstaða Hæstaréttar er svo ólík dómi héraðsdóms - munurinn er svo mikill," segir Vigdís. Maður- inn hafði fengið tveimur árum minna, þriggja og hálfs árs fang- elsi í héraði. Vigdís segir á hinn bóginn að hún hafi heyrt að dómar hafi ver- ið að þyngjast í nauðgunarmálum, það er kynferðisbrotum gegn þeim sem eru eldri en 18 ára. I 201. grein hegningarlaganna segir m.a. að hver sá sem hafi kyn- ferðismök við börn eða stjúpbörn skuli sæta allt að 10 ára fangelsi. Miðað við dóm hæstaréttar í gær notaði dómurinn því rúmann helming af refsirammanum. -Ótt Minnisblaðið afhent í dag Hæstiréttur hefur snúið niðurstöðu Héraðsdóms Ragnar Aðal- steinsson. Reykjavíkur og dæmt að Öryrkja- bandalag íslands skuli fá afhent minnisblað í tengslum við svo- nefndan Öryrkja- dóm. Héraðsdómur taldi i október sl. að ráðuneytinu væri ekki skylt að afhenda minnisblaðið en því fylgdi skip- unarbréf starfshóps sem skipaður var til að fara yfir áhrif dómsins. Hæstiréttur er á annarri skoðun og fagna bæði Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Ör- yrkjabandalagsins, og Garðar Sverris- son, forystumaður öryrkja, niðurstöð- unni. Ragnar segir að dómurinn sé sig- ur fyrir upplýsingalögin. DV fékk þær upplýsingar í forsætis- ráðuneytinu í morgun að minnisblaðið yrði væntanlega afhent mjög bráðlega og voru meiri líkur en mirrnni taldar á að ÖBÍ fengi það í hendur strax í dag. -BÞ Sjúkraþjálfarar kaffæra Tryggingastofnun í pappírum: | Brother PT-2450 merkivélin er komin Sækja um fyrir látna skjólstæöinga Læknar og aðrir starfsmenn Trygg- ingastofhunar ríkisins æfluðu í gær- kvöld að ljúka við að fara yfir þær um- sóknir um styrki til sjúkraþjálfúnar sem henni bárust eftir að nýjar reglur tryggingaráðs þar að lútandi tóku gildi. Alls bárust liðlega 900 umsóknir um styrki. Samkvæmt heimildum DV er farið ítarlega yfir allar umsóknir og þær vandlega kannaðar, sérstaklega með hliðsjón af því að starfsmenn Tryggingastofnunar urðu þess varir að í umsóknarbunkanum frá sjúkraþjálf- urum leyndust nokkrar umsóknir frá sjúkraþjálfurum fyrir hönd skjólstæð- inga sem eru látnir. Að því er öam kemur á vefsíðu stofnunarinnar hafði, þegar á þriðja hundrað umsóknir höfðu verið af- greiddar, engum verið synjað um styrk. Þriðjungur hafði fengið sam- þykki fyrir styrk til sjúkraþjálfun- ar.ÝÞá voru um fimmtíu afgreiddar umsóknir frá örorkulífeyrisþegum sem sjálfkrafa eiga rétt á tuttugu skipt- um í sjúkraþjálfun. Engu að síður senda sjúkraþjálfarar inn umsóknir fyrir hönd þeirra skjólstæðinga sinna - og mun hjá Tryggingastofnun vera litið svo á að það eins og annað sé hluti af herbragði sjúkraþjálfara; að senda inn sem mest af pappírum til að knýja á að kröfur þeirra nái fram að ganga. Eins og fram kom í DV í gær er nú að tjaldabaki unnið að lausn deilu Tryggingastofnunar og sjúkraþjáifara Haft var þá eftir Jóni Kristjánssyni að hann vænti þess að menn legðu hart að sér svo málið gæti náðst í heila höfn á næstu dögum. Formenn samninganefnda Félags sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara og Tryggingastofhunar hittust á óformleg- um fundi í gær. Gauti Grétarsson, for- maður samninganefndar sjúkraþjálf- ara, sagði við DV í morgun að ekkert hefði þokast í samkomulagsátt. Við- semjendur þeirra hefðu frekar lækkað fyrirliggjandi tilboð heldur en hitt. Deilan sæti því fost. -JSS | Mögnuðvél sem, með þlnnl hjálp, hefur hlutina í röð ogreglu. Snjöll og góð lausn á óreglunni. Rafnort Nýbýlavegi 14 • sími 554 4443 • www.rafport.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.