Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2002, Side 15
14
+
23
ov
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson
Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
A&stoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvik, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiöir ekki viömælendum fyrir viötöl viö þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim.
Upp að ratiðu striki
Marsmæling á veröbólgu skilur eftir lítið svigrúm fram
aö rauða strikinu svokallaða i maí. Vísitala neysluverðs
hækkaði um 0,4 prósent i febrúar. Það þýðir að verðbólga
má ekki hækka um meira en sem svarar 0,3 prósentum í
næstu tveimur mælingum, i april og maí. Að óbreyttu
stefnir verðbólgan yfir rauða strikið sem aðilar vinnu-
markaðarins, með aðkomu stjórnvalda, sömdu um i des-
ember. Með samkomulaginu var frestað uppsögn á launa-
lið kjarasamninganna sem ella lá fyrir í febrúar.
Rauða strikið miðast við að vísitala neysluverðs verði í
mesta lagi 222,5 stig i maí en hinar nýju marstölur Hag-
stofunnar sýna að hún er þegar komin í 221,8 stig. Hækk-
unin nú kemur nokkuð á óvart eftir verðhjöðnun i febrú-
ar. Sveiflurnar eru talsverðar því verðbólgutölur janúar-
mánaðar skutu mönnum skelk í bringu. Tölurnar þá
sýndu að kæmi ekki til sérstakt átak var vonlaust að ná
því markmiði sem Alþýðusambandið og Samtök atvinnu-
lifsins settu sér.
Alþýðusambandið tók sig þá til og hóf baráttu fyrir því
að halda verðlagi niðri svo ná mætti settum markmiðum,
öllum til hagsbóta. Sambandið fer enn fyrir i þeirri bar-
áttu en þar leggja Samtök atvinnulífsins og einstök fyrir-
tæki og sambönd einnig hönd á plóg auk þess sem ríki og
sveitarfélög komu að málinu með lækkun gjalda.
Forystumenn launþega og atvinnufyrirtækjanna hafa
lýst yfir vonbrigðum með þá vísitöluhækkun sem nú
mældist en útiloka þó ekki að markmið maímælingarinn-
ar geti náðst. Til þess að svo megi verða þurfi þó allir að
leggjast á eitt. Bæði formaður Samtaka atvinnulífsins og
forsætisráðherra hafa bent á það meginatriði máls að
verðbólga sé þrátt fyrir allt á niðurleið. Þriggja mánaða
verðbólga sé nú 4,5 prósent og stöðugleiki hafi náðst á nýj-
an leik.
Verkalýðshreyfingin hefur sýnt mikla ábyrgð i þessu
ferli öllu en það í hennar höndum hvort kjarasamningum
verður sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara i mai, fari
svo að verðlag hækki umfram hin rauðu strik. Hún hefur
hvatt alla þá sem að verðlagningu vöru og þjónustu koma
til að taka tillit til þess ástands sem gæti skapast náist
markmiðin ekki. Um leið hefur hreyfingin hvatt bæði
Seðlabanka og viðskiptabankana til þess að huga að vaxta-
lækkun enda hafi raunvextir hækkað um leið og verðbólg-
an hefur lækkað. Hinir háu vextir snerti jafnt heimili og
fyrirtæki.
Árangur næst ekki nema allir sem að koma sýni fyllsta
aðhald á öllum sviðum. Með því einu nást tök á verðbólg-
unni. Segja má að talað sé fyrir munn allra í hvatningu
stjómar Samtaka iðnaðarins frá því í gær. Þar eru félags-
menn hvattir til þess að gæta fyllsta aðhalds í rekstri á öll-
um sviðum. Nauðsyn sé á ströngu aðhaldi gagnvart inn-
kaupum frá birgjum, launakostnaði og eigin verðlagningu.
í ályktun samtakanna er réttilega bent á að þróun
neysluvísitölunnar gefi til kynna nokkra verðhjöðnun og
að krónan hafi heldur styrkst á árinu. Það séu jákvæð
merki þótt enn sé mikil óvissa um að sett markmið náist.
Því er óhætt að taka undir lokaorð stjórnarinnar um að
brýnt sé að allir leggist á eitt til þess að skapa nauðsynleg-
an stöðugleika og að halda verðlagi innan rauða striksins.
Takist það ekki blasi við uppsögn kjarasamninga, aukin
óvissa, áframhaldandi háir vextir og hætta á óðaverð-
bólgu.
Gamla drauga óðaverðbólgu og vixlhækkunar kaup-
gjalds og verðlags á ekki að vekja upp. Þvi verða allir að
leggjast á áramar eigi maímarkmiðin að nást.
Jónas Haraldsson
_________________________________________FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002_FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002
DV
Skoðun
Ofurlaun og ofurveldi í pólitík
Að undanfómu hefur at-
hygli landsmanna beinst
mjög að almenningseign-
inni Landssímanum hf. og
full ástæða til þess. Þar hef-
ur hver taug verið þanin til
hins ítrasta og lítið vantað
á að brysti. Það síðasta sem
svo gerist er ákvörðun ráð-
herra samgöngumála að
hækka stjórnarlaun nýrrar
stjómar yfir 100%. Er að
furða þó fólk reki upp stór
augu? Hver er ástæðan?
Var síðasta stjóm á svo lág-
um launum að hún gat ekki tekið við
þeim upplýsingum sem henni voru
duldar með aðgerðum fyrrverandi
framkvæmdastjóra, Þórarins V.
stjómarformanns, Friðriks Pálsson-
ar og Sturlu Böðvarssonar?
Er þetta hægt, Matthías?
Hér hlýtur að vera um enn ein
mistökin að ræða, til viðbótar við
það að vera með ÞRJÁ forstjóra á
launum. Það hvarflar ekki að mér að
þeir sem gengust undir stjómarsetu
nú hafi sett upp slíkar kröfur um
laun sem ráðherra réttir út. Hér er
um að ræða laun sem svara grunn-
Kjallari
■'í
■ ■
Gísli S.
Einarsson
þingmaDur
Samfylkingarínnar.
launum iðnaðarmanns
fyrir 170 klst. vinnu til
hvers þeirra og tvöfalt til
stjórnarformanns. Það er
ótrúlegt að það fari meira
en 10 klst. á mánuði í
stjórnarfundi.
En vissulega þarf
stjómarformaður meiri
tíma enda getur verið þar
um að ræða verulegan
undirbúning fyrir fundi.
En risavaxin laun, á sama
tíma og slegist er um að
keyra niður verðbólgu,
hlýtur að verka sem olía á verð-
bólgueld og blautur hanski framan
í verkalýðshreyfingu og að auki
fyrirmynd til annarra sambæri-
legra stjóma. Því segi ég eins og
sýslumaðurinn forðum: Er þetta
hægt, Matthías?
Þrenningin + einn
Hnútukast milli fyrrverandi for-
stjóra og fyrrverandi formanns
einkavæðingamefndar annars vegar
og samskipti samgönguráðherra og
stjórnarformannsins þáverandi
beindu kastljósinu að mistakaferlinu
og þess vegna eru málefni Landssím-
„Var síðasta stjórn á svo lágum launum að hún gat ekki tekið
við þeim upplýsingum sem henni voru duldar með aðgerðum
fyrrverandi framkvæmdastjóra, Þórarins V. stjórnarformanns,
Friðriks Pálssonar og Sturlu Böðvarssonar?“ - Þórarinn V.
Þórarinsson, fyrrv. framkv.stj., Friðrik Pálsson, fyrrv. stjórnar-
formaður, og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra.
ans efst á „Baugi“, ekki síst fyrir at-
beina DV og „litla símamannsins".
Það eiga ekki að vera nein verk í
gangi sem þarfnast sérstakrar leynd-
ar í fyrirtæki þjóðarinnar, við krefj-
umst opinnar umræðu um þetta fyr-
irtæki sem og önnur, þótt það sé
sjálfsagt að virða samkeppnisþætti
gagnvart skyldum rekstri.
Það er lykt af þessu!
Það ætti ekki að hafa farið fram
hjá neinum að óvenju mikið heflr
verið upplýst um mislagðar hendur
og ófarir í stjórnsýslu að undan-
förnu. Það ætti ekki að hafa fariö
fram hjá neinum að tveir stjórn-
endur Lánasýslu ríkisins hafa feng-
ið (reyndar góða) starfslokasamn-
inga og eru horfnir þaðan í kjölfar
sniðgenginna reglna um útboð
verka á vegum ríkisins - verk-
samningar upp á hundruð milljóna.
Menn muna eftir tugmilljóna króna
umframkostnaði við endurbygg-
ingu Þjóðmenningarhúss, eitthvað
fleira er því tengt - umframkostn-
aður við Áusturstræti 8-10 sem var
klúður varðandi framkvæmd og
eftirlit.
Líklegt er að eitthvað fleira verði
lagt á borð fyrir landsmenn á næst-
unni. Allt tengist þetta pólitísku of-
urveldi sem fólk ætti að hafna, það
gerist aö hlutir gleymast, þá fer að
slá í þá og allt í einu gýs upp fnyk-
ur. Almenningi ofbýður þessi síð-
asta aðgerð með hækkun launa
stjórnarmanna i Landssímanum;
eign þjóðarinnar. Það er eins og mig
minni að ég hafi séð einstök nöfn
þeirra aðila sem þar eru nefnd í ein-
hverjum fleiri stjórnum og nefndum
þannig að tími þeirra er dýrmætur.
Gísll S. Einarsson
Pað klæjar undan Kúbu
Yfirleitt láta íslendingar sér í léttu
rúmi liggja misskiptingu lífsins
gæða meðal jarðarbúa. Til þróunar-
hjálpar leggja þeir til dæmis aðeins
fram örlítið brot af þeim hluta þjóð-
arframleiðslu sem Sameinuðu þjóð-
imar hafa skuldbundið auðugu ríkin
til að svara út. En í Karíbahafinu er
eyja á stærð við ísland með íbúa-
fjölda á annan tug milljóna, og þetta
fólk er íslendingum sífelld upp-
spretta samúðar vegna fátæktar þess
og eymdar, stjórnendurnir eilifar
hneykslunarheUur fyrir einveldi
sitt, harðýðgi og spillingu.
Á heimsmælikvarða
láta þeir eins og þeir viti ekki
að aðeins 15-20% mannkyns-
ins býr við það ríkidæmi sem
okkur þykir sjálfsagt að njóta.
Meðal hinna 80-85 hundraðs-
hlutanna eru íbúar Kúbu vafa-
laust í hópi hinna best settu
efnahagslega. Auk þess búa
þeir við heilbrigðisþjónustu og
tryggingarkerfi sem tekur
langt fram því sem bíður
þeirra sem laumast yfir sund-
ið til Flórída. Gagnstætt því
sem mætti ráða af íslenskum
fjölmiölum er fátæktin á Kúbu
ekkert sem þar hefur dunið yfir síð-
an 1958, hún er óveruleg leif af
þeirri fátækt sem næstum allt
mannkyn hefur lifað við næstum
alla sögu sína og mikill meirihluti
þess liFir við enn, þar á meðal yfir-
gnæfandi meirihluti fólks í öllum
löndum Rómönsku Ameríku, þeim
löndum sem hafa svipaða sögu að
baki og Kúba.
Ég hef ekki tölu á því hve stór
hluti mannkyns býr við meira póli-
tískt frelsi eða mannréttindi en
Kúbubúar, enda breytist það snögg-
lega frá einu ári til annars í sumum
fjölmennum ríkjum. En ég hef tU
dæmis ekki heyrt frá Kúbu fréttir af
dauðasveitum sem fara um og skjóta
á aUt sem hreyfist, þar sem grunur
er um að stjómarandstæðingar séu
að búa um sig. Slíkt gerist iðulega í
öðmm löndum Rómönsku Ameríku
og veldur litlu uppnámi í íslensku
blöðunum.
Furðu létt veitist íslendingum
líka að taka ekki eftir því að það er
ekki eingöngu fólk frá Kúbu sem
sækir í að komast inn í auðlegð
Bandaríkjanna. Áratugum saman
hefur nánast verið styrj-
öld á landamærum
Bandaríkjanna og
Mexíkó, þar sem banda-
rískir landamæraverðir
skjóta á fólk sem reynir
að komast ólöglega
norður yfir. - Ég veit
ekki hvort þetta hefur
breyst eitthvað núna eft-
ir að þessi riki mynd-
uðu með sér efnahags-
bandalag.
Sérstaða Kúbu hefur
löngum verið sú ein að
stjómvöld í Bandaríkjunum hafa
ekki stundað landamæravörslu gegn
fólki þaðan, og því hafa stjómvöld
Kúbu tekið það hlutverk að sér,
kannski nokkum veginn að nauð-
synjalausu.
Hvers vegna Kúba?
Það væri einfalt að skýra þetta sí-
fellda níð um stjómendur Kúbu á ís-
landi með því að hér ríki að mestu
leyti bandarískt fréttamat. Það sem
heldur vöku fyrir Bandaríkjamönn-
um er notað til að vekja okkur á
morgnana. En ég er ekki viss um að
þessi skýring sé fullnægjandi. Ég
held að Kúbumenn fari kannski
svona mikið í taugamar á okkur
flestum af því að þar er stolt þjóð
sem hefur boðið Bandaríkjunum
birginn, hafnað vemdarvæng þeirra,
stillt sig um að sníkja af þeim. Það er
einmitt þetta sem okkur íslending-
um hefur í hálfa öld fundist innst
inni að við hefðum átt og ættum að
gera. Þess vegna veldur Kúba þess-
um sífellda ertingi á íslensku þjóð-
arsálinni.
Gunnar Karlsson
Þegar íslendingar tala um Kúbu
„Þegar íslendingar tala um Kúbu láta þeir eins og þeir viti
ekki að aðeins 15-20% mannkynsins býr við það ríkidœmi
sem okkur þykir sjálfsagt að njóta. Meðal hinna 80-85
hundraðshlutanna eru íbúar Kúbu vafalaust í hópi hinna
best settu efnahagslega.“ - Frá Havana, höfuborg Kúbu.
Gunnar
Karisson
þrðfessor
Gullöld án einkastöðva
„Það er líka erfitt
að útskýra fyrir nú-
tímabörnum hug-
myndina um sjón-
varpslausan fimmtu-
dag og jafnvel sjón-
varpslausan júlimán-
uð - enda þótti sjón-
varpsfíklum þetta
aldrei góð hugmynd og fögnuðu þeim
mun meira í ágústbyrjun. Á gullöld
Sjónvarpsins vora engar einkastöðv-
ar og ekkert vídeó og nútíminn ekki
kominn. Samt létu ekki einu sinni
þeir sem ekki áttu litasjónvarp sér
leiðast, heldur sátu límdir við skjá-
inn og skemmtu sér hið besta, grun-
lausir um að þeir væra uppi á hin-
um myrku miðöldum."
Ármann Jakobsson í grein í Mannlífi.
Nútímanum réttilega lýst
„Það er eitt megin einkenni tölvu-
tækninnar að hún krefst enn meiri
hraða dag hvern, nýrri upplýsinga,
meira aðlaðandi hönnunar. Sá sem
ekki spilar með í þeim leik missir
einfaldlega af lestinni. Og þarna er
nútímanum kannski réttilega lýst.
Annars vegar viljum við hafa allt
sem nýjast og hraðast, vera fremst
og fyrst. Hins vegar erum við þjökuð
af þessum ofsahraða. Fátt fær okkur
tii að staldra við til íhugunar og
uppbyggingar, andinn fær vart
hvílst eða nærst. Fátt virðist mikil-
vægara en annað. Og þá er svo mik-
ilvægt að muna eftir hinu einfalda,
eftir kyrrðinni og undraveröldinni
sem getur falist í notalegri stund við
kertaljós eða góðum göngutúr um
ósnortna náttúra. Þar fæst eitthvað
sem gleður og veitir dýpri sýn á
veruleikann."
Sr. Þorvaldur Karl Helgason
biskupsritari á kirkjan.is
Spurt og svarað
Um hvað verður kosið í Reykjavík í vor?
Anna Kristinsdóttir,
Reykjavíkurlista:
Góð stjóm og
eflt lýðrœði
„Stóra kosningamálið í mínum
huga er áframhaldandi góð stjórn á
borginni, eins og verið hefur síö-
ustu átta árin undir stjóm Reykjavíkurlistans. Rætt
hefur verið um að auka lífsgæði borgarbúa og ég trúi
því að það hafi tekist á þessum árum. Mikil uppbygg-
ing hefur orðið svo sem í mennta-, leikskóla- og
menningamiálum. Rætt hefur verið um eflt lýðræði
við stjóm borgarinnar og aukna þátttöku íbúa í
ákvarðanatöku. Stefna Reykjavíkurlistans hnígur í
þá átt og ekki síst að færa lýðræðið með virkari hætti
út í hverfm þannig aö fólkið sem þau byggir hafi
nokkuð um sín mál að segja. Því era það fjölmörg
mál sem borgarbúar munu kjósa um nú í vor.“
Gísli Marteinn Baldursson,
Sjálfstœdisflokki:
Hnignun eða
blómleg miðborg
„Það verður kosið um framtíð
Reykjavikur. Verði Bjöm Bjama-
son borgarstjóri færast grunn-
skólar Reykjavíkur nær fólkinu og biðlistar á leik-
skóla hverfa. Við kjósum um áframhaldandi hnign-
un miðborgarinnar eða blómlega og kröftuga mið-
borg, þar sem hjarta höfuðborgarinnar slær á heil-
brigðan hátt. Og við kjósum um hvort sömu pen-
ingastjórn verði haldið hér áfram og skuldir
Reykjavíkur nífaldist á meðan önnur sveitarfélög
tvöfalda sínar skuldir. Þá snúast þessar kosningar
um að ná til baka fólki og fyrirtækjum sem hefur
hafiiaö stefnu R-listans með fótunum; með því að
flýja Reykjavík og flytja í önnur sveitarfélög."
Hanna Bima Kristjánsdóttir,
Sjálfstœdisflokki:
Kosningar um
enn betri borg
„í fyrsta lagi lagi snúast þess-
ar kosningar um að setja böm-
in í borginni í fyrsta sæti og
stórbæta menntun og gæði starfs í leik- og
grannskólum borgarinnar.
í öðra lagi snúast þær um að lækka of háar
álögur á borgarbúa og bæta slæma skuldastööu.
í þriðja lagi snúast þær um að íbúamir fái
fyrsta flokks þjónustu og þeim löngu biðlistum
sem nú eru eftir ýmissi þjónustu, til dæmis
hjúkrunarrýmum fyrir eldri borgara og leik-
skólaplássum, verði útrýmt. Kosningamar snú-
ast því um að gera borgina okkar að enn betri
stað til að búa á.“
Dagur B. Eggertsson,
Reykjavíkurlista:
Fimm málaflokk-
ar skipta mestu
„Fimm málaflokkar munu skipta
mestu. í fyrsta lagi; metnaðarfuil
skólastefna sem byggist á sjálfstæði
skóla og áherslu á að hver nemandi nýti hæfileika sína
til fulls i gegnum einstaklingsmiðaðar námsskrár. í
öðra lagi; alþjóðlegur borgarbragur þar sem stórhugur
í menningarmálum helst í hendur við umburðarlyndi
og stuðning viö hvers konar krydd í borgarlífið. í þriöja
lagi; framsækið atvinnulíf þar sem skipulagning þekk-
ingarþorps i Vatnsmýri er forgangsverkefhi. í fjórða
lagi: skilvirk og góð þjónusta og í fimmta lagi; nútíma-
legir stjórnarhættir. Þetta verða jafiiframt lykilatriðin
sem munu ráða því hvort Reykjavík muni sækja á í al-
þjóðlegri samkeppni um fólk og fyrirtæki."
£ Kosningabaráttan í borginni byrjar senn fyrir aivöru. Margir nýir frambjó&endur koma fram á sjónarsvi&ið - bæði í ranni Sjálfstæ&isflokks og Reykjavíkuriista.
+
r-- * ? +1
m
DV-MYND GVA
Skrafað eftir skóladaginn í Hafnarfiröi.
Skottulækningar
í haust var Heilsuhúsið
(Sundhedshuset) opnað í
hjarta Kaupmannahafnar.
Það hýsir fjölmargar grein-
ar innan svokallaðra óhefð-
bundinna lækninga. í hús-
inu er auk þess aðstaða fyr-
ir félag þeirra og þar er
skóli (Institutt for optimal
næring, undervisning og
forskning) ásamt sérstakri
rannsóknardeild. I rann-
sóknardeildinni er þegar
hafið rannsóknarverkefni
um beinþynningu sem 100
konur taka þátt í. Verið er
að kanna hvort rétt mataræði geti
byggt bein upp á ný. Sömuleiðis er
fyrirhugað að fara í rannsókn á nær-
ingarþerapíu og sjúkdómum í önd-
unarfærum. Ekki þarf að taka fram
að visindalega er staðið að þessum
rannsóknum.
Ekki viðurkennd fræði
Opnun hússins hefði ekki orðið að
veruleika nema vegna fjárframlaga
úr sjóði sem hefur eingöngu styrkt
hefðbundin læknavísindi hingað til.
Lesa má úr slíkum stuðningi að ekki
verði lengur unnt að neita tilvist
svokallaðra óhefðbundinna lækn-
inga. Við opnunina bárast góðar
kveðjur frá mörgum dönskum þing-
mönnum og fyrrverandi heilbrigðis-
ráðherra í Danmörku hélt erindi.
Þetta er mjög athyglisvert frá ís-
lenskum sjónarhóli því að hér era
þessi fræði ekki viðurkennd. Ein-
göngu svokallaðir hnykkir
(chiropractic) hafa leyfi en þeir
fyrstu sem námu þau fræði féllu
undir skottulækningalögin og háðu
harða baráttu fyrir tilvist sinni.
Stjómvöld senda mjög misvisandi
skilaboð frá sér þar sem margir
þeirra sem mennta sig á sviði óhefð-
bundinna lækninga sækja viður-
kennda skóla og námið viðurkennt
af Lánasjóði íslenskra námsmanna
en þegar heim kemur er starfsemin
ólögleg og fellur undir lög um skottu-
lækningar. - Þerapisti sem viðstadd-
ur var opnun Heilsuhússins i Dan-
mörku spurði mig nýverið frekar
dapurlega: „Verður svona Heilsuhús
einhvern tíma opnað hér?“
Rannveig
Gu&mundsdóttir
þ ingmaOur
Samfylkingarínnar
egraph er talið að 13 millj-
ónir Englendinga leiti
óhefðbundinna lækninga
árlega.
Á Norðurlöndum hafa op-
inberir aðilar staðið að
rannsóknum á óhefðbundn-
um lækningum og víða er í
skoðun samvinna milli
þeirra sem þær stunda og
hinna viðurkenndu heil-
brigðisstétta. Lög sambæri-
leg skottulækningalögunum
okkar hafa verið afnumin
bæði í Noregi og Svíþjóð og
annars staðar er verið að
vinna að úrbótum.
Það er mjög mikilvægt að skapa
menntuöu fólki skilyrði til starfsemi
hérlendis. Meðan mál þessi eru í
lausu lofti getur hver sem er sagst
vera hvaö sem er og í ofanálag era
allir settir undir sama hatt, skottu-
lækningamar.
Þverpólitísk tillaga
Fyrir Alþingi liggur þverpólitísk
tillaga undir forystu Láru Margrétar
Ragnarsdóttur um að heilbrigðisráð-
herra skipi nefnd sem geri úttekt á
stöðu óhefðbundinna lækninga hér á
landi og beri saman við stöðu þess-
ara mála á Norðurlöndum, í Evrópu-
sambandinu og í Bandaríkjunum.
Þar er vísað til nálastungumeðferð-
ar, smáskammtalækninga, lið- og
beinskekkjulækninga, hnykklækn-
inga og nudds.
í svari við fyrirspurn frá undírrit-
aðri á Alþingi í síðustu viku um af-
stöðu heilbrigöisráðherrans til að
fella úr lögum ákvæði um skottu-
lækningar og að ýmsar óhefðbundn-
ar lækningaaðferðir gætu hlotið við-
urkenningu að uppfylltum skilyrð-
um lýsti heilbrigðisráðherra sig
fylgjandi því að nefnd yrði falið aö
skoða þessi mál, og í ljósi þeirrar
niðurstöðu myndi hann ákveða
hvort lagabreyting verður flutt á Al-
þingi. Þetta svar gefur tilefni til
nokkurrar bjartsýni og að heilbrigð-
isnefnd Alþingis afgreiði tillöguna
sem þar er til meðferðar fyrir vorið.
Ég get því svaraö vondaufum
þerapista að nú sé ég bjartsýn á við-
urkenningu náms og að hér skapist
starfsskilyrði fyrir óhefðbundnar
lækningar og þar með möguleikinn
til að opna svona heilsuhús hér á
landi
Rannveig Guðmundsdóttir
Eigum að breyta lögum
Mikil þróun hefur átt sér stað í
þessum fræðum. Bæði á Norðurlönd-
um, í Evrópu og víðar leitar fólk í æ
ríkari mæli óheíðbundinna lækn-
inga bæði við kvillum sínum og ekki
síður sem fyrirbyggjandi aðgerð.
Haldið er fram að í Danmörku nýti
helmingur þjóðarinnar sér þessi
fræði og samkvæmt frétt í Daily Tel-
„Ég get því svarað vondaufum þerapista að nú sé ég
bjartsýn á viðurkenningu náms og að hér skapist
starfsskilyrði fyrir óhefðbundnar lœkningar og þar með
möguleikinn til að opna svona heilsuhús hér á landi. “