Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2002, Blaðsíða 2
34
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
LAUGARDAGUR 23. MARS 2002
39
Bílar
DV DV
Bílar
CITROEN C3 1,6
Vél: 1,6 lítra bensínvél
' Rúmtak: 1587 rúmsentímetrar
Ventlar: 16
Þjöppun: 11:1
Gírkassi: 5 qíra beinskiptur
UNDIRVAGN
Fjöðrun framan: Sjálfstæð MacPherson
Fjöðrun aftan: Snúninqsöxull
Bremsur: Diskar/diskar, ABS, EBD, BAS
Dekkjastærð: 185/60 R15
YTRI TÖLUR
Lenqd/breidd/hæð: 3850/1667/1519 mm
Hjólahaf: 2460 mm
Beyqjuradius: 11,3 metrar
INNRI TÖLUR
Farþeqar með ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/öryqqispúða: 5/4
Faranqursrými: 305-1155 iítrar
HAGKVÆMNI
Eyðsla á 100 km: 6,5 lítrar
Eldsnevtisqevmir: 47 lítrar
f Ábyrqð/ryðvörn: 3/12 ár
Verð. Væntanleqt í apríl
Umboð: Brimborq hf.
Staðalbúnaður: Rafdrifnar rúður, hitaskermað gler, útispeglar rafstýrðir, fjar- stýrðar samlæsingár, 4 öryggispúðar, rafdrifið aflstýri með aðdrætti, út- varp/geislaspilari með fjarstýringu, 12 V tengi hjá ökumanni, 15 tommu álfelg- ur, hæðarstillanlegt framssæti, drykkjarstatíf að framan og aftan á milli sæta, upphituð framsæti, sjálfvirk hitastýrð miðstöð,
SAMANBURÐARTÖLUR
Hestöfl/sn: 110/5750
Snúninqsvæqi/sn: 147 Nm/4000
Hröðun 0-100 km: 10,7 sek.
Hámarkshraði: 192 km/klst.
Eiqin þynqd: 1058 kq
L_ I
FRETTIR UTAN UR HEIMI
Nýr smábíll frá
Lada
Er þetta demanturinn sem mun
breyta ósýnd almennings á Lada
bílaframleiðandanum? Þessi tíl-
raunabíll frá Rússlandi kallast
Karat og gefur okkur innsýn í
hugsanlega línu smábíla frá
AutoVAZ. Hann er byggður á
Lada Calina tilraunabílnum og
hefur enga B-bifa I hurðum til að
auðvelda inn- og útstig. Hann
fœr vélar frá GM sem uppfylla
ströngustu mengunarstaðla og
talsmaður Lada segir að hann
verði kominn á markað innan
þriggja ára.
Volvo yfírtekur
valtara SuperPac
Volvo Construction Equipment
hefur tekið við valtaraframleiðslu
SuperPac Inc. Verksmiðjurými og
framleiðsluiína eru ekki innifalin í
kaupunum og mun framleiðslan
flytjast að fullu og öllu til verk-
smiðju VCE í Asheviile í Norður-
Karólínu.
Valtarar sem þessir eru einkum
notaðir í sambandi við vegagerð
og viðhald vega. Markaður á
heimsvísu er um 30 þúsund tœki
á ári.
Mriskut sportbíll
Hvort sem þið trúið því eða ekki
kemur þessi sportbíll sem frum-
sýndur var í Genf frá Afríku, nánar
tiltekið Casablanca í Marokkó.
Bíllinn kallast Fulgura, sem er lat-
neska fyrir eldingu, og er frá
afríska bílaframleiðandanum
Laraki, þeim eina í álfunni. Bíllinn
fer í framleiðslu á nœsta ári og
mun notast við sex lítra V12 vél
frá Ameríku, sem skilar meira en
700 hestöflum.
Volvo mengar
minna
Volvo Trucks kynnir um þessar
mundir nýja vél sem uppfyllir ECO
4 mengunarstaðalinn austurríska.
Þetta er nýja 420 ha D12D vélin
sem fáanieg er í Volvo FH12. Hún
er samþœrileg við Euro-3 vélina
sem viðskiptavinlr Volvo þekkja
vel, en mengar minna.
Fyrir flutningafyrirtœki þýðir þetta
að hver þíll fœr leyfi til að fara
fleiri ferðir í gegnum Austurríki, en
það hefur mikið að segja fyrir
arðsemi hvers tœkis fyrir sig.
CITROEN
Reynsluakstur nr. 675
Fíölskylduvænn smábíll frá
Citroén kynntur í París
legt að vera öflugar og sparneytnar
miðað við stærð. Bensínvélarnar
þrjár eru til þegar við fyrstu kynn-
ingu en 16 ventla dísilvélin kemur
ekki fyrr en í haust. Það sem gerir
hana nokkuð spennandi er að þessi
1,6 lítra vél skilar 200 Newtonmetrum
af togi sem er mjög gott. Bíllinn var
prófaður með 1,6 lítra vélinni sem er
110 hestöfl og gefur þessum bíl gott
upptak á öllu snúningssviðinu. Hann
hefur líka þónokkurn hámarkshraða
með þeirri vél en á meiri hraða vott-
ar fyrir veg- og vindhljóði. Bremsur
eru líka góðar enda búnar átaksdreif-
ingu með hjálparátaki sem tryggir
fljóta og örugga hemlun við erfiðar
aðstæður. Gírkassi mætti vera liðugri
en gírstöngin er þægileg i meðförum.
hveija möguleika í þá hörðu samkeppni
sem smábílamarkaðurinn er. -NG
o Mælaborðið er skemmtilega
hannað og fallegt, sérstaklega mæl-
ar en þó hefði gjarnan mátt notast
við betri efni í innréttingu sem er öll
úr harðþlasti.
© Vélarhlífin minnir dálítið á lagið
á vélarhlíf gamla „Braggans “ en hún
mjókkar fram eins og hún. Ljósin
hafa þó breytt mikið um svip og eru
nýtískuleg.
© Pláss í aftursætum er mun
minna en í framsætum og þótt hlið-
arpláss sé þokkalegt mætti höfuð-
og fótapláss gjarnan vera meira.
Kostir: Öryggi, rými frammi í,
farangursrými, bremsur,
hólf og hirslur.
Gallar: Undirstýrður, þlastefni í
innréttingu.
Citroén C3 er bíllinn sem taka á við
hlutverki CV2 „Braggans" vilja tals-
menn Citroen meina um nýja smábil-
inn í Citroén-fjölskyldunni. Billinn
var kynntur blaðamönnum í
Chantilly-héraði, rétt fyrir utan París,
um síðustu helgi en það hérað hefur
aðallega verið þekkt fyrir hestarækt
hingað til. DV-bílar voru á staðnum
og skeiðuðu um svæðið á gripnum.
Með fleiri hólf en bjútíbox
Genin frá CV2 Bragganum eru
greinileg í ytra útliti C3. Þakboginn er
heildstæður frá framrúðu og aftur að
stuðara og myndar ekki samstæða linu
frá vélarhlíf eins og algengara er í dag.
Auk þess er hann með svipað „nef ‘ og
Bragginn, en vélarhlífm mjókkar mik-
ið fram og niður líkt og á honum. Hlið-
arsvipurinn er því nokkur líkur svo
langt sem það nær, hliðarrúðurnar eru
fjórar, þar af ein fyrir framan hliðar-
spegil og önnur milli C- og D-bitans.
Það er greinilegt að Citroén hefur ver-
ið að höfða til kvenna með þessum bíl.
Mjaðmalínan er breið og fleiri hólf og
hirslur í bilnum heldur en góðu bjútí-
boxi. Auk þess er bíllinn barnvænni en
flestir, t.d. er hægt að fá í hann sérstak-
an barnapakka sem inniheldur m.a.
aukaspegil fyrir ökumann til að fylgj-
ast með smáfólkinu aftur í, flugvéla-
borð aftan á framsæti og 12 volta tengi
fyrir leikjatölvuna aftur í. Ein sniðug-
asta nýjungin í C3, og jafnframt sú ein-
faldasta, er farangursrými sem skipta
má niður í misstór hólf eftir hentug-
leikum. Kerfið kallast „Moduboard" er
þýða mætti sem móðurborð, því það
hentar vel fyrir allar stærðir af pökk-
um og pinklum. Af öllum þessum
ástæðum myndu konur einmitt kaupa
þennan bíl, auk þess sem að
snyrtispegillinn báðum megin er með
ljósi.
Sparneytnar en öflugar vélar
Atriði sem skipta karlmenn meira
máli eru aksturseiginleikar, en því
miður fer ekki mikið fyrir þeim í C3.
Billinn er mjög undirstýrður þegar
reynir á hann og hann er líka laus á
vegi ef undirlagið er möl. Það sama
átti við um fyrirrennarann Saxo og
því ekki mikil bót að C3 í þessu tilliti.
En að kostunum. Fimm vélar eru í
boði í C3 sem allar eiga það sameigin-
Kemur í júní
C3 er væntanlegur hingað til lands i
byrjun júní en því miður er verð ekki
komið á bílinn enn þá. Hans helsti
keppinautur verður eflaust Peugeot 206
og Toyota Yaris og því þarf hann helst
að vera ódýrari en þeir til að eiga ein-
© Móðurborðið í skottinu er einfalt
og þægilegt í notkun og gerir not-
anda kleift að velja um ýmsar
stærðir hóifa, eða jafnvel að fletja
út gólfiö í sömu hæð og opnunin á
skottinu svo að þægilegra verður að
koma stærri hlutum fyrir.
ARCTIC CAT 2003
Vél: 2ja strokka, vatnskæld
Rúmtak: 862 rúmsentímetrar
Hestöfl: 150
Blöndunqar: 400 mm Flatslide
Púst: APV
Fjöðrun framan: Tvöföld klafafjöðrun, CAT qasdemparar
Hreyfiqeta: 203 mm
Fjöðrun aftan: Fastrack, stillanleq, CAT qasdemparar
Hreyfiqeta: 343 mm
Bremsur: Diskur
Bensíntankur: 45 lítrar
Lenqd/breidd: 3366/1181 mm
Þurrvikt: 226 kq
Verð: 1.550.000 kr.
Umboð: B&L
Fyrsti 2003
Arctic Cat
sleöinn
Um síðustu helgi afhenti B&L
fyrsta Arctic Cat vélsleðann af árgerð
2003 og væntanlega er þetta fyrsti
sleðinn sem seldur er á landinu af ár-
gerð 2003. Þetta er sleði af gerðinni
Mountain Cat 900 með 151 tommu
belti sem er alveg ný útfærsla frá
Arctic Cat. Sleðinn er búinn nýrri
900 rúmsentímetra, tveggja strokka
vél og er 150 hestöfl, en það vekur at-
hygli að hann er mjög léttur og veg-
ur aðeins 226 kg þannig að hann ætti
að vera vel sprækur. Hægt er að
stilla millibil milli skiða frá 39 tomm-
um uppí 41 tommu eftir því í hvern-
ig færi og við hvaða aðstæður menn
eru að keyra. Eins og vera ber er
hann með 13,5 tomma fjöðrun að aft-
an og 8 tomma að framan. Sleðinn
stoppaði stutt við hjá B&L því að
hann var á leiðinni norður í land til
óþreyjufulls kaupanda. Hægt verður
að taka við pöntunum strax á nýja
sleðanum og tekur um fjórar vikur
að fá hann hingað, að sögn Finns Sig-
urðssonar, sölufulltrúa hjá B&L.
-NG
Taka tvö?
Væntanlegur arftaki Mazda Dem-
io var sýndur í Genf á dögunum og
mun hann vera fimm dyra bíll sem
fær nafnið Mazda 2. Hann fær nýja
1,5 lítra vél og verður þannig með
sjálfskiptingu, en einnig verður
beinskiptur bíll í boði þegar hann
verður kynntur á næsta ári. Þrátt
fyrir að vera lítill að utan vekur
hann athygli „ fyrir mikið innan-
rými. Aftursæti leggjast flöt með því
einu að ýta á takka og innanrými
sýningarbílsins var smekklega inn-
réttað með leðri og áli. Búast má við
að þetta sé ansi nálægt endanlegu
útliti bílsins nema að grillið gæti
breyst til að líkjast meira öðrum bíl-
um frá Mazda.
Ný innspýting frá Alfa
Alfa Romeo frumsýndi sportlegar
GTA-útgáfur af 156 bílnum á bílasýn-
ingunni í Genf. Einnig hefur 156 linan
fengið lítils háttar andlitslyftingu og
nýja innspýtingu. Hún kallast JTS
(Jet Thrust Stoichiometric) og verður
boðin í tveggja lítra T-spark vélinni.
Alfa segir að hún eigi að auka afl um
10% upp í 165 hestöfl og snúningsvægi
um 14% upp í 206 Newtonmetra. Nýr
tilraunasportbíll frá Alfa Romeo var
einnig frumsýndur eins og sagt var
frá í síðasta blaði en hann er hannað-
ur af Italdesign og vakti mikla athygli
á sýningunni. Alfa-merkið var nýlega
slitið frá Fiat-merkinu og uppi voru
deildar meiningar um tilurð þess á
sýningunni. Sumir segja að það sé
fýrsta skrefið í að tengja merkið nöfn-
um eins og Ferrari og Maserati. Hinir
efagjörnu segja aftur á móti að það
hafl verið gert til að gera sölu á merk-
inu mögulega, annað hvort til Gener-
al Motors eða BMW. Áætlað er að Fiat
gæti hagnast um 300 milljarða króna
með sölu á Alfa-merkinu sem kæmi
sér vel í þeim mótbyyr sem samsteyp-
an hefur verið í.
-NG