Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.2002, Blaðsíða 22
34
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
MÁNUDAGUR 25. MARS 2002
DV
95 ára
Guömundur Gíslason,
Spítalastfg 3, Hvammstanga.
90 ára
Sesselja Pálsdóttir,
Hjallaseli 55, Reykjavfk.
80 ára
Ingibjörg J. Ingimundardóttir,
Klausturhólum 2, Kirkjubæjarklaustri.
75 ára
Björn Karlsson,
Blesugróf 7, Reykjavík.
Friöþjófur Sturla Másson,
Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum.
Ragnhildur Sveinbjarnardóttir,
Lambey, Rangárvallasýslu.
Stefán Vilhelmsson,
Vesturtúni 27b, Bessastaöahreppi.
Þorvaldur Pétursson,
Stórholti 4, Akureyri.
70 ára
Olöf Þóranna Hannesdóttir,
Sléttuvegi 15, Reykjavík.
60 ára
Helga Axelsdóttir,
Uröarteigi 14, Neskaupstað.
Jón B. Sigvaldason,
Öldustíg 7, Sauöárkróki.
Þorleifur Óli Jónsson,
Smyrlahrauni 45, Hafnarfirði.
50 ára
Einar Jóhannesson,
Lambastekk 14, Reykjavfk.
Ingólfur Vestmann Ingólfsson,
Öldutúni 3, Hafnarfiröi..
Jón Ingi Ingimarsson,
Melbæ 39, Reykjavík.
Ragnhildur Ása Gunnarsdóttir,
Tjarnarmýri 1, Seltjarnarnesi.
Sturla Sigtryggsson,
Keldunesi 2, Kópaskeri.
Þórir Jónsson,
Fagrahvammi 14, Hafnarfirði.
40 ára
Asgerður Asgeirsdóttir,
Heimalind 5, Kópavogi.
Eggert Már Sigtryggsson,
Einbúablá 42, Egilsstööum.
Hermann Kristjánsson,
Brekkubyggö 30, Garðabæ.
Nusret Hoti,
Meistaravöllum 9, Reykjavík.
Páil Snæbjörnsson,
Hábæ 34, Reykjavík.
Sigrún Gylfadóttir,
Skaftahlíð 31, Reykjavík.
Sigurbjörg Sæmundsdóttir,
Barmahlíð 39, Reykjavík.
Sigurborg Garöarsdóttir,
Heiöarbraut 5h, Keflavík.
Sigurjón Þór Friöþjófsson,
Rauðarárstíg 13, Reykjavík.
Steinlaug Kristjánsdóttir,
Grundargeröi 8b, Akureyri.
Yogi Shanti Desai
á íslandi 10.-15. apríl
11. og 12. apríl - Námskeið fyrir jógakennara af öllum hefðum
með áherslu á hugleiðslu og hugmyndafræði.
Einungis 12 pláss eru í boði.
Námskeiðið kostar 19.900 kr.
13. og 14. apríl - Námskeið fyrir jógaáhugamenn.
Helgarnámskeið sem býður öllum jógaáhugamönnum dýpri skilning á jógafræðunum
og hjálpar þeim að koma reglu á jógaástundun sína.
Einungis 14 pláss í boði.
Námskeiðið kostar 19.900 kr.
Námskeiðin verða haldin í stöðinni Jóga hjá Guðjóni Bergmann í Ármúla 38,
3. hæð (gengið inn frá Selmúla).
Skráning er í síma 690 1818 eða á www.gbergmann.is.
DV-MYNDIR EINAR J.
Ungur maöur á uppleiö
Vanir klifurmenn sýndu listir sínar við opnun Klifurhússins i Skútuvogi á
föstudaginn.
Sýning um ævi og störf nóbelsskáldsins:
Fegurðin ríkir ein í
Þióðarbókhlöðunni
íslendingar minnast þess með
margvíslegum hætti í ár að öld er
liðin frá fæðingu nóbelsskáldsins
Halldórs Kiljans Laxness. Á laugar-
daginn var opnuð í Þjóðarbókhlöð-
unni sýning helguð ævi og störfum
skáldsins undir yfirskriftinni Þar
ríkir fegurðin ein - Öld með Hall-
dóri Laxness. I tilefni opnunarinnar
var haldin sérstök hátíðardagskrá
þar sem Pétur Gunnarsson rithöf-
undur, Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti Islands, og Einar
Sigurðsson, landsbókavörður fluttu
ávörp. Þá fluttu leikararnir Stein-
unn Ólina Þorsteinsdóttir, Felix
Bergsson og Jakob Þór Einarsson
ljóðadagskrá með aðstoð Kristins
Ámasonar gítarleikara. Hamrahlíð-
arkórinn flutti einnig tónlist við
ljóð eftir Halldór Laxness og að lok-
um opnaði Tómas Ingi Olrich sýn-
inguna formlega.
Vigdís flallar um Halldór
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi for-
seti ísiands, flutti ávarp við opnun
sýningarinnar.
DV-MYNDIR EINAR J
Nafnar heilsast
Einar Sigurðsson landsbókavörður
tekur á móti nafna sínum, Einari
Laxness, syni skáldsins.
Rýnt í skrif skáldsins
Á sýningunni gefur að líta
ýmsa muni úr eigu rithöf-
undarins, svo sem bréf,
drög að skáldsögum og
bókakápur.
Þverpóiitísk samstaða
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Tómas Ingi Olrich menntamálaráð-
herra klipptu í sameiningu á borðann og sýndu þar með að sjálfstæðismenn
og samfylkingarmenn geta unnið saman þegar á reynir.
Klifurhúsið opnað:
Klifurkettir kætast
Príl og klifur er yfirleitt illa séð af
foreldrum sem brýna fyrir bömum
sínum að láta slíkt og þvílíkt eiga
sig. Þrátt fyrir boð og bönn eiga
margir erfitt með að halda aftur af
klifurþörfmni og nota hvert tæki-
færi til að príla upp á fjöll, húsveggi
eða vinnupalla. Nú hafa Islenski
Alpaklúbburinn og Sportklifurfélag
Reykjavíkur opnað sérstakt Klifur-
hús sem ætti að vera hinum ólækn-
andi prilurum þessa lands sannkall-
að ánægjuefni. Þar geta þeir
óhræddir klifrað upp um loft og
veggi án nokkurra vandkvæða og ef
þeir detta veitir stærðardýna þeim
mjúka lendingu. Húsið var formlega
opnað á fóstudaginn þegar Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og
Tómas Ingi Olrich menntamálaráð-
herra klipptu í sameiningu á borða
og buðu þaulvönum klifurköttum að
gjöra svo vel.