Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Blaðsíða 2
16 MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002 Sport Urslitakeppni Essó-deildar karla í handknattleik: Ovænt mótspyrna - þegar Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum með 28-23 sigri á FH Haukar tryggðu sér sæti i und- anúrslitum íslandsmótsins á föstudagskvöld með fimm marka sigri, 23-28, á FH-ingum í Kaplakrika. FH-ingar veittu Haukum reyndar óvænta mót- spyrnu i síðari hálfleik, eftir að allt leit út fyrir annað stórtap í þeim fyrri. Fyrstu sex mínútur leiksins voru jafnar en eftir það fór leik- urinn i svipað far og leikur lið- anna á Ásvöllum á miðvikudag. FH-ingar gerðust óagaðir í sókn- arleiknum, eða þá að þeir réðu ekkert við sterka vörn Hauka, og upp úr þessu fengu Haukar hraðaupphlaup sem þeir nýttu sér til hins ýtrasta. Mestur var munurinn átta mörk en FH-ingar klóruðu í bakk- ann með því að skora tvö mörk á síðustu mínútu leiksins. Fyrstu tíu mínúturnar var leik- urinn i járnum. Þá breyttu FH- ingar vöminni yfír í 3-3 og komu vel út á móti skyttum Hauka. Þetta riðlaði sóknarleiknum og nú voru það FH-ingarnir sem fengu hvert hraðaupphlaupið á fætur öðru. Á ellefu minútna kafla breyttu FH-ingar stöðunni úr 14-21 í 21-22 og skoruðu Hauk- ar ekki mark í tíu mínútur. í þessari stöðu tók Viggó Sig- urðsson, þjálfari Hauka, leikhlé og við það varð sókn Hauka yfir- vegaðri á ný, vörnin styrktist og Haukum tókst að innbyrða sigur- inn. Ungu strákarnir hikstuöu aöeins á tímabili „Við hleyptum þeim óþarflega mikið inn í leikinn og gerðum þetta spennandi. Samt vorum við með þetta í hendi okkar allan tímann. Við vorum eiginlega að klára þá í fyrri hálfleik. Ungu strákarnir hikstuðu aðeins á tímabili en leikirnir eru til þess að læra af þeim. Við söknuðum Rúnars Sigtryggssonar og Tjörvi var í mjög erfiðu hlutverki að leysa hann af. Ungu strákarnir, Ásgeir og Vignir, spila gríðarlega vel og þar eru tveir landsliðs- menn á ferðinni. Mér líst mjög vel á að mæta KA. Þetta verða mjög spennandi viðureignir sem fara örugglega í þrjá leiki,“ sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. Þorkell Magnússon átti frábæran leik fyrir Hauka en hann brá sér í ansi margar stöð- ur á vellinum. Bjarni Frostason varði vel og ungu strákarnir, Vignir og Ásgeir, skiluðu sínu með prýði. Verður sennilega ekki áfram með FH-inga „Við vissum að við yrðum að spila sterka vörn og fá upp mark- vörslu til að eiga möguleika. Hvorugt var fyrir hendi á Ásvöll- um og sóknarleikurinn var stirð- busalegur og í fyrri hálfleik í þessum leik var það sama uppi á teningnum. í seinni hálfleik spil- aði liðið þann handbolta sem ég hefði vilja sjá mun fyrr, þ.e. fasta og ákveðna vörn, hraðupphlaup á móti og hægan en árangursríkan sóknarbolta. Þegar menn fylgdu þessu voru menn inni í leiknum. Menn voru að spila upp á virðing- una og lögðu sig fram,“ sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari FH. Hann segir allt benda til þess að hann verði ekki áfram þjálfari FH. „Það hefur ekki verið rætt við mig og ég sé ekki miklar lík- ur á því að ég verði áfram. Mín menntun og metnaður liggur á þessu sviði og ég hef áhuga á að þjálfa áfram. Það er reyndar fullseint að vita þetta núna en við sjáum hvað setur,“ sagði Guð- mundur. -HI Vignir Svavarsson skorar hér eitt fjögurra marka sinna gegn FH á Ásvöllum á föstudagskvöldiö. Vignir hefur veriö iðinn viö kolann í síðustu leikjum Haukaliösins. Enginn oddaleikur i fyrsta sinn I fyrsta sinn í sögu úrslita- keppni handboltans var enginn oddaleikur í átta liða úrslitum í karlaflokki þar sem Haukar, Val- ur, Afturelding og KA tryggðu sér öll sæti í undanúrslitunum í að- eins tveimur leikjum. Oddaleikir hafa jafnan veriö fastir liðir í átta liða úrslitunum og aðeins einu sinni áður (1993) höfðu oddaleikirnir verið færri en tveir. í ellefu ára sögu úrslita- keppninnar hafa farið fram þrír oddaleikir í átta liða úrslitum í sjö af þessum ellefu tímabilum. Undanúrslitin hefjast á mið- vikudaginn þegar Haukar fá KA- menn í heimsókn á Ásvelli og Val- ur tekur á móti Aftureldingu. -ÓÓJ Oruggt hjá Valsmönnum - vörnin gerði gæfumuninn þegar Valur vann Þór Valur komst á föstudaginn í undanúrslit Esso-deildar karla í handknattleik meö nokkuð ör- uggum sigri á Þór, 28-32, í góðri stemningu á Akureyri. Vals- menn unnu því rimmu liðanna 2-0. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en í þeim síðari sigu Valsmenn smám saman fram úr. Bæði lið byrjuðu leikinn með sterkum 6:0-vörnum og var lítið skorað fyrstu tíu minúturnar. Árni Sigtryggsson var sá eini í liði Þórs sem tókst að vinna á Valsvörninni framan af leik og Hafþór Einarsson varði vel í marki Þórs en hann varði 11 skot i hálfleiknum. Þrátt fyrir það náðu Þórsarar aldrei undirtök- unum í leiknum enda vantaði meiri fjölbreytni í sóknarleik liðsins. Páll Viðar Gislason, sem skoraði 11 mörk í fyrri leik lið- anna, gerði ekkert mark í hálf- leiknum og tók aðeins eitt skot úr vítakasti. Liðsheildin hjá Val var hins vegar sterk og marka- skorunin dreifðist meira. Fyrst og fremst góð liðsheild hjá Valsmönnum Valsmenn hófu síðari hálfleik- inn í 5:l-vörn þar sem Aigars Laizdins var tekinn úr umferð. Þór tókst aldrei að vinna al- mennilega á þessari vörn og var sóknarleikur liðsins vandræða- legur á löngum köflum. Hinum megin gekk sóknin vel upp hjá Val sem náði smám sam- an undirtökunum í leiknum og komst mest í fimm marka for- skot. Þór klóraði aðeins í bakk- ann og minnkaði muninn í tvö mörk þegar tæpar fimm mínútur voru eftir. Valsmenn sögðu hins vegar hingað og ekki lengra og höfðu að lokum fjögurra marka sigur. Valsmenn unnu leikinn fyrst og fremst á góðri liðsheild og góðum varnarleik í síðari hálf- leik. Snorri Steinn Guðjónsson átti mjög góðan leik, bæði í vörn og sókn. Lið sem í eru bæði Geir Sveinsson og Sigfús Sigurðsson getur ekki verið árennilegt. Rol- Þór Ak.-Valur 28-32 1-0, 2-2, 4-6, 8-8, 10-10, 11-13 (13-13), 13-14, 16-16,17-19, 20-23, 22-27,26-28, 27-31, 28-32. ÞórAk.: (0) Mörk/víti (skot/viti): Aiagars Lazdins 8/4 (11/5), Ámi Sigtryggsson' 6 (14), Páll Viðar Gíslason 5/1 (8/2), Þorvaldur Sigurðsson 5 (9), Þorvaldur Þorvaldsson 2 (3), Hörður Sigþórsson 1 (1), Goran Gusic 1 (3). Mörk úr hradaupphlaupunu 2 (Hörður og Páll Viðar). Vitanýting: Skorað úr 5 af 7. Fiskuð vitú Gusic 2, Lazdins 2, Ámi, Þorvaidur Þ., Þorvaldur S. Varin skot/viti (skot á sig): Hafþór Einarsson 16 (44/4, hélt 5, 36%, víti yflr), Bjöm Bjömsson 0 (4/1,0%). Brottvisanir: 8 mínútur. Valur: (2) Mörk/viti (skot/viti): Snorri Steinn Guðjónsson 10/2 (14/2), Markús Michaelsson 7/1 (14/2), Sigfús Sigurðsson 6 (7), Bjarki Sigurðsson 4/2 (7/2), Freyr Brynjarsson 3 (4), Ásbjöm Stefánsson 2 (2). Mörk úr hraðaupphlaupunv 2 (Snorri, Freyr). Vitanýting: Skorað úr 5 af 6. Fiskuð viti: Snorri 2, Sigfús 2, Freyr, Geir Sveinsson. Varin skot/viti (skot á sig); Roland Eradze 16/1 (44/6, hélt 8, 36%, víti í stöng). Brottvisanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Anton Pálsson og Hlynur Leifsson (6). Gceði leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 650. Maöur leiksins: Snorri Steinn Guöjónsson, Vai and Eradze varði einnig vel, þó sérstaklega í síðari hálfleik. Hjá Þór voru það fyrst og fremst Aig- ars Laizdins og Árni Sigtryggs- son sem stóðu upp úr þótt botn- inn hafi dottið úr leik þess síðar- nefnda í síðari hálfleik. -AÞM FH-Haukar 23-28 1-0, 3-3, 3-8, 5-10, 6-14, 9-15 (11-17), 11-18, 13-19,14-21,19-21, 21-22,22-26, 23-28. EHl(O) Mörk/viti (skot/víti): Valur Amarson 6 (8), Björgvin Rúnarsson 5/3 (7/5), Héðinn Gilsson 5 (9/1), Sigurgeir Ámi Ægisson 3 (6), Andrei Lazarev 2 (2), Guðmundur Pedersen 2 (5), Sverrir Þórðarson (1), Andri Berg Haraldsson (3), Logi Geirsson (5). Mörk úr hraðaupphlaupum: 7 (Valur 4, Guðmundur 2, Sigurgeir). Vitanýting: Skoraö úr 3 af 6. Fiskuð vitU Valur 2, Héðinn, Einar Gunnar Sigurðsson, Guðmundur og Lazarev. Varin skot/viti (skot á sig): Jónas Stefansson 13/1 (33/3, hélt 7/1,39%), Jökull Þórðarson 2/1 (10/1, hélt 0,20%). Brottvisanir: 14 mínútur. Haukar: (2) Mörk/viti (skot/vúi): Þorkeli Magnússon 8/1 (10/2), Einar Öm Jónsson 4 (6), Vignir Svav- arsson 4 (8), Haildór Ingólfsson 4/1 (8/2), Ás- geir Öm Hallgnmsson 3 (5), Aron Kristjáns- son 3 (5), Andri Þorbjömsson 1 (1), Þ. Tjörvi Ólafsson 1 (2), Sigurður Þórðarson (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 8 (Þorkell 3, Einar Öm 2, Halldór 2, Vignir). Vitanýting: Skorað úr 2 af 4. Fiskuð vitU Vignir, Einar Öm, Tjörvi, Ali- aksandr Shamkuts. Varin skot/viti (skoí á sig): Bjami Frostason 19/3 (41/5, hélt 10, 46%), Magnús Sigmundsson 0 (1/1,0%). Brottvisanir: 8 mínútur. Dómarar (1-10): Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson (6). Gcedi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 1000. Maður leiksins: Þorkell Magnússon, Haukum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.