Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Side 10
24 MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002 Sport i>v Einhverjar þreifingar hafa verið í gangi í Stóru-Laxá í Hreppum eftir að Veiðifélagið Lax-á og Pétur Pétursson sendu inn tilboð í ána fyrir nokkrum dögum. Stangaveiði- félag Reykjavikur hefur haft Stóru- Laxá í Hreppum á leigu svo lengi sem elstu veiðimenn muna. Stœrstu sjóbirtingarnir á þessari vertíð veiddust í Skaftá og voru þeir 14 punda hver. Það var Þorsteinn Ólafs, stjórnarmaður í Stangaveiðifélagi Reykjavík- ur, sem veiddi þann fyrsta og sleppti honum aftur i ána. Síðan kom 12 punda fiskur í Þorleifslæknum. Vænir fiskar hafa verið á sveimi á Skaftár- svæðinu og aldrei að vita hvað gerist á næstu klukkutímum. Fyrir nokkrum dögum var mikið fjör hjá Útivist og veiði 1 Siðumúlanum en þá var haldin fluguhátíð. Hún hófst með því að Kristján Krist- jánsson tók lagið og síðan var tískusýning Sigga Fjeld- sted og félaga sem vakti mikla athygli viðstaddra. Bjarni Róbert Jónsson og Skúli Kristinsson hnýttu flugur af miklum móð og starfsfólk Lax- ár kynnti veiðiferðir til Skotlands og Grænlands. Margir komu á staðinn og höfðu gaman af. Nýtt timarit hóf göngu sína um daginn en það er tímarit- ið Útivist. Athygli gefur blaðið út í samvinnu við Útivist. Blaðið á koma út tvisvar á ári og verður i næstu tölublöðum skrifað um flugu- og skotveiði. í þessu fyrsta blaði er ekkert um þann veiðiskap en blaðið er veglegt og kemur í staðinn fyrir árbók félagsins. Þorsteinn Ólafs, stjórnar- maður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sleppti 14 punda sjóbirtingi í Skaftá en núna hafa veiðst um 300 sjó- birtingar í þeim veiðiám sem eru opnar en þar hafa veiðst þrír slíkir stórfiskar. Fyrir nokkrum dögum veiddist 12 punda sjóbirtingur í Þorleifs- læk en sjóbirtingsveiðin hef- ur verið frekar róleg síðustu daga. 300 hafa - þrír 14 punda hafa veiðst í Skaftá sjóbirtingar komið á land Það styttist í að stanga- veiðisýningin verði í Perlunni en hún verður í maí. Margir, sem tengjast veiðiskap, hafa tilkynnt um þátttöku. Fyrir- hugaðar eru ráðstefnur og kennsla í tengslum við sýn- inguna. Þá verður líka kast- aðstaöa í tjörn utanhúss og aldrei að vita nema einn og einn fískur leynist í henni. Veiðimaður, blað Stanga- veiðifélags Reykjavíkur, kom út fyrir skömmu og er í blað- inu ýmis konar fróðleikur. -G. Bender Sjóbirtingsveiðin hefur verið sæmileg en engar stórar veiðitöl- ur koma úr veiðiánum þessa dag- ana. í Geirlandsá eru komnir rétt rúmlega 30 sjóbirtingar og veiðin þar hefur oft veriö betri. Veiðimenn, sem voru í Vatna- mótunum fyrir nokkrum dögum, veiddu ágætlega fyrri daginn en flóð og drulla var þann seinni. Þeir fengu nokkra góða sjóbirt- inga og var sá stærsti 6 pund. Núna hafa veiðst um 300 sjó- birtingar á veiðisvæðunum þar sem sjóbirtingsveiði er. Stærstu fiskamir eru þrir 14 punda í Skaftá og einn 12 punda í Þorleifslæknum. í Þorleifslæknum hefur verið eitthvert kropp síðustu daga og á Hrauninu hafa menn reynt líka. 12 punda sjóbirtingur í Þorleifslæknum Sjóbirtingsveiðin heldur áfram og veiðimenn sumir hverjir hafa veitt ágætlega Þetta á bæði við fyrir austan og í Þorleifslæknum. Reyndar er veiðin þar dagskipt. „Við lentum í góðri veiði fyrir nokkrum dögum í Þorleifslækn- um, fengum fina veiði á nokkrum klukkutímum og sá stærsti var tólf punda,“ sagði Einar Lee, veiðimaður úr Reykjavík, en hann og félagar hans fengu mjög góða veiði í læknum og fiskurinn var vænn. „Þessa fiska fengum ofarlega í læknum og veiðitömin stóð yfir nokkrum tíma. Stærsti fiskurinn var tólf punda, en hinir sjö punda, fjögurra punda og þriggja punda. Við veiddum 22 fiska og það var fín stærð á fiskunum. Þetta var feiknalega gaman og við förum ör- ugglega aftur þangað á næstu dög- um. Ég frétti að daginn eftir hefði veiðst lítið. Þap er dagskipt þarna eins og annars staðar í veiðinni," sagði Einar enn fremur. Stór fiskur slapp í Svínadalnum „Vinur minn var aö veiða í Svínadalnum fyrir skömmu og var i aðfallinu úr Þórisstaðavatni. En þarna hefur hann veitt oft áður,“ sagöi Einar Lee þegar við spurðum um stóra fiskinn sem vinur hans missti fyrir stuttu í Svínadalnum. Þarna má finna væna urriða og þá sérstaklega í Þórisstaðavatninu. „Hann lét liggja úti og sá stöng- ina allt í einu kengbogna og hljóp að henni en þá var fiskurinn bú- inn að slíta. Þetta var vænn fiskur og þessi slagur stóð stutt,“ sagði Einar. Bleikjan hefur aðeins verið að gefa sig í Vífilsstaðavatni enda veiðimenn mættir þarna fyrir löngu. Veiðimenn hafa aðeins verið að koma upp að Elliðavatni en veiö- in þar byrjar 1. maí. -6. Bender mmmi moor Fullt sett frá Prestwick Golf 1-3-5 tré og 3-PW Jérn é frébæru vorðll 50 stk. reynsluboltar w . Komdu í verslunina okkar að Bæjarlind 1 og skoðaðu urval þekktra vörumerkja i kíktu á www.holeinone.is PRt# 'r'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.