Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2002, Page 12
-4
26
Rafpóstur: dvsport@dv.is
MÁNUDAGUR 22. APRÍL 2002
Risasamningur
Enska úrvalsdeildarliðið Arsenal er
með risastyrktarsamning í burðarliðn-
um. Arsenal er að fara að gera treyju-
samning við símafyrirtækið 02 og fyrir
tvö ár er Arsenal sagt fá á milli eins
milljarðs og 1400 milljóna íslenskra
króna. Samningurinn tekur gildi
næsta haust og að auki mun liðið fá
prósentur af rekstrartekjum símafyrir-
tækisins. -vbv
Ólafur Stefánsson átti stórleik fyrir Magdeburg í fyrri úrslitaleik meistaradeildarinnar gegn Vezsprém í gær. DV-mynd Pjetur
Magdeburg tapaði með tveimur mörkum fyrir Vezsprém:
- segir Ólafur Stefánsson sem átti stórleik fyrir Magdeburg
Guðmundur
fyrirlesari á
stórri ráðstefnu
Guðmundur Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik,
verður aðalfyrirlesari á 200
manna þjálfararáðstefnu sem
haldin verður í Bad Oyenhausen
i Þýskalandi um næstu helgi.
Ráðstefnuna, sem haldin er ár-
lega, sækja þjálfarar, íþrótta-
fræðingar og læknar.
Guðmundur sagði í samtali
við DV að sér væri sýndur mik-
ill heiður með því að vera boðið
að vera fyrirlesari á þessari
virtu þjálfararáðstefnu. Ástæð-
una fyrir því sagði Guðmundur
að væri árangur íslenska lands-
liðsins á Evrópumótinu í hand-
knattleik fyrr á árinu.
„Menn fysir að vita hvemig
jafn lítil þjóð og ísland fór að því
að ná eins langt á stórmóti í
handknattleik og raun varð á.
Einnig eru þjálfarar líka forvitn-
ir að vita hvort við leggjum
áherslu á eitthvað annað en aðr-
ar þjóðir,“ sagði Guðmundur
Guömundsson.
-JKS
Úrslitakeppni í NBA:
Óvænt tap
New Jersey
Úrslitakeppnin í bandaríska
körfuknattleiknum hófst um
helgina með fjórum leikjum. Það
sem bar helst til tíðinda var ósig-
ur toppliðs austurstrandarinnar,
New Jersey Nets, fyrir Indiana
Pacers, 83-89, á útivelli. Jason
Kidd skoraði 26 stig fyrir New
Jersey en fyrir Indiana skoraði
Jermaine O’Neal 30 stig.
Sacramento Kings sigraði
Utah á heimavelli, 89-86. Chris
Webber var stigahæstur hjá
Sacramento með 24 stig en Karl
Malone geröi 25 stig fyrir Utah.
San Antonio hafði mikla yfir-
burði gegn Seattle og sigraði,
110-89. Tim Duncan og Tony
Parker gerðu 21 stig hvor fyrir
San Antonio og Vin Baker 22 stig
fyrir Seattle.
Charlotte sigraði Orlando,
80-79. Baron Davis geröi 28 stig
fyrir Charlotte og Tracy
McGrady 20 stig fyrir Orlando.
-JKS
Ólafur Stefánsson var aldeilis frá-
bær í fyrri leik Magdeburg og Fotex
Vezsprém í úrslitum meistaradeildar
Evrópu í handknattleik í gær. Ólafur
skoraði 9 mörk, þar af komu 6 af víta-
línunni. Að auki mataði Ólafur félaga
sina af glæsilegum línusendingum
sem Gueric Kervadec átti þó í erfið-
leikum með að nýta sem skyldi.
„Þetta var svolítið erfiður völlur,
130 desíbel eða meira, og mikil læti,“
sagði Ólafur Stefánsson í gær.
Þú fannst þig vel í leiknum?
Já, bara eins og venjulega, var ekk-
ert að skjóta of mikið. Ég kláraöi vít-
in og það skipti máli. Ég er að mestu
leyti sáttur við leikinn en við eigum
fullt inni, markvörslu, varnarleik og
sóknarleik. Það verður mikil stemn-
ing næsta laugardag og það er toppur-
inn ef við sigrum í meistaradeildinni.
Það er toppurinn á ferli hvers hand-
boltamanns með félagsliði."
Hvemig var að leika í þessum
hávaða?
„Þeir voru með þokulúðra, sem er
reyndar búið að banna, og dreifðu
þeim til áhorfenda fyrir leikinn. Við
heyrðum ekki í sjálfum okkur í leikn-
um og hávaðinn var ólýsanlegur. Þeg-
ar leikurinn fór af stað, heyrði maður
ekkert eftir það,“ sagði Ólafur Stef-
ánsson í samtali við DV-Sport í gær.
Húsfyllir var á leiknum sem sýndur
var á RÚV og stemningin ógurleg.
Heimamenn komust i 2-0 með mörk-
um frá hinum 41 árs Saracevic sem
Þjóðverjamir kalla „01die“ Saracevic.
Hann skoraði 7 mörk í leiknum og
Kúbumanðurinn Carlos Peres skor-
aði 5 mörk en þessir tveir voru at-
kvæðamestir í liði Vezsprém. Fyrstu
20 mínúturnar voru ekki vel spilaðar
af hálfu Magdeburg en liðsmenn Vez-
sprém náðii ekki að nýta sér það og
staðan í hálfleik var 9-8, heimamönn-
um í vil. Undir lok leiks náðu Ung-
verjamir flögurra marka forystu,
21-17, en leikmönnum Alfreðs Gísla-
sonar tókst að skora fjögur af síðustu
sex mörkum leiksins og lokatölur
urðu 23-21 fyrir Fotex Vezsprém.
Sem fyrr sagði var Ólafur besti
maður Magdeburg og Nenand Perun-
icic átti einnig skínandi leik með 8
mörk. Sem sagt, 17 mörk samanlagt
frá þessum tveimur leikmönnum af 21
marki Magdeburg. Seinni leikurinn
verður í Magdeburg næsta laugardag
og ef Alffeð Gíslasyni og mönnum
hans tekst að vinna með þriggja
marka mun, sem ekki verður að telj-
ast ólíklegt, verður Magdeburg Evr-
ópumeistari meistaraliða. Það yrði þá
í fyrsta sinn sem íslenskur þjálfari
stýrði liði til sigurs í þessari keppni
ásamt því að Ólafur yrði fyrsti leik-
maðurinn sem yrði Evrópumeistari
meistaraliða. -vbv
Deildarbikar og
Reykjavíkurmót
RM kv. Haukar-fR ...........1-2
(Anna M. Gunnarsdóttir-Ásthildur
M. Hjaltadóttir).
RM kv. Þróttur-Fjölnir......3-5
(Hildur D. Kristjánsdóttir 2, Sigríður
Haraldsdóttir-Kolbrún Georgsdóttir
2, Erla Þórhallsdóttir, Ama
Þórhallsdóttir, Hrönn
Kristjánsdóttir).
RM kv. Stjaman-Breiðablik . .2-1
(Guðrún H. Finnsdóttir, Freydís
Bjamadóttir-Inga L. Jónsdóttir).
RM. kv. FH-HK/Víkingur ... .2-0
(Olga S. Stefánsdóttir 2).
DB kv. Valur-ÍA.............5-0
(íris Andrésdóttir 2, Dóra María
Lámsdóttir, Lilja Dögg Valþórsdóttir,
Málmfríður Sigurðardóttir).
DB ka. KA-Dalvík............1-0
(Öm Kató Hauksson).
DB. ka. Stjaman-FH..........1-1
(Bemharður Guðmundsson-Ásgeir
G. Ásgeirsson).
DB. ka. KR-Fylkir...........1-1
(Veigar Páll Gunnarsson-Sævar Þór
Gislason).
DB. ka. Léttir-Reynir S.....6-4
(Engilbert Friðfinnsson 4, Teitur
Guðmundsson, Þórir Örn
Ingólfsson-Smári Guðmundsson 3,
Guðmundur Gunnarsson).
DB. ka. Sindri-Njarðvík.....1-1
(Júlíus Freyr Valgeirsson- Eyþór
Guðmundsson).
DB. ka. Afurelding-Selfoss . . .3-0
(Boban Ristic 2, Þorvaldur Már
Guðmundsson).
DB. ka. Breiðablik-Þór Ak. . . .5-4
(Ágúst Þór Ágústsson 2, Hörður
Bjamason 2, Kristján Óli
Sigurðsson-Hörður Rúnarsson 2,
Þórður Halldórsson, Páll V.
Gíslason).
DB. ka. ÍBV-Valur ..........0-3
(Matthías Guðmundsson 2, Bjarnir
Ólafur Eiríksson).
DB. ka. Grindavík-Keflavík . .5-4
(Sinisa Kekic 2, Paul McShane,
Guðmundur Bjarnason, Grétar
Hjartarson-Guðmundur Steinarsson
2, Jóhann Benediktsson, Haukur Ingi
Guðnason).
DB. ka. Leiknir R.-HK ........0-0
DB. ka. Fram-Þróttur R........1-0
(Andri Fannar Ottósson).
Þar með er ljóst hvaða lið mætast í 8
liða úrslitum deildarbikarkeppni
karla. Fram tekur á móti
Breiðabliki, Fylkir fær Keflavík í
heimsókn, FH leikur á heimavelli við
Val og KA og ÍA mætast á Akureyri.
Athygli vekur að
deildarbikarmeistarar KR komust
ekki í 8 liða úrlsitin. -vbv/ÓÓJ
Frábær opnunartilboö
inal
Verð kr. 10.990
Opnunartilboð kr. 7.490
09 mor9 fleiri tilboð!
Full bú6 af nýjum vörum Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
www.joiutherji. is