Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
DV
Fréttir
Ökukennarar gagnrýna réttindaleysi prófdómara:
Hrein móðgun við
ökukennarastéttina
• • A
segir formaður Okukennarafélags Islands
íslenskir ökukennarar hafa
áhyggjur af umsýslu ökuprófa eftir
að framkvæmdin fluttist frá Um-
ferðarráði til hlutafélagsins Frum-
herja 1. apríl. Bent hefur verið á að
í einhverjum tilvikum að minnsta
kosti hafl þeir sem annast prófun
ökunema ekki verið með tilskilin
réttindi sem ökukennarar.
Umferðarráð hefur síðan 1992
annast öll ökupróf í landinu. Meg-
inþungi starfseminnar eru ökupróf
en deildinni hefur einnig verið ætl-
að að hafa eftirlit og umsjón með
ökukennslu í landinu. Á þessu hef-
ur nú orðið breyting því 1. april sl.
tók Frumherji hf. við allri umsjón
með framkvæmd ökuprófa í land-
inu. Var það samkvæmt óformlegu
útboði þar sem fjórir aðilar skiluðu
inn erindi um að annast verkið,
m.a. Ökukennarafélag íslands. Þá
hefur einnig verið gert ráð fyrir að
Umferðarráð sem slíkt verði lagt
niður í haust, þegar það sameinast
Skráningastofunni. Þar með verði
búin til ný stofnun undir heitinu
Umferðarstofa.
Guðbrandur Bogason, formaöur
Ökukennarafélags íslands, segir að
ökukennarar þurfi að ljúka ákveð-
inni menntun til að geta öðlast rétt-
indi til ökukennslu, m.a. ákveðnu
námi í Kennaraháskóla íslands.
Það sé því í hæsta máta óeðlilegt að
sá aðili sem annast prófin hafi ekki
sömu réttindi og ökukennarar.
„Slíkt er hrein móðgun við stétt-
ina og ég held að leitun sé að slíku
í öðrum greinum í þjóöfélaginu,"
segir Guðbrandur. Hann tekur þó
fram að Frumherji sé rétt að kom-
ast af stað við framkvæmd þessara
mála og því sé kannski eðlilegt að
fyrirtækinu verði gefinn tími til að
koma þessum málum á hreint.
Guðmundur G. Pétursson, fyrr-
verandi formaður Ökukennarafé-
lagsins, tekur í sama streng. „Það
er tímaskekkja að gera það ekki að
skilyrði að prófdómarar hafi öku-
kennararéttindi," segir Guðmund-
ur.
Björgvin Guðnason, umsjónar-
maður ökuprófa hjá Frumherja,
segir vissulega æskilegt að þeir sem
framkvæmi prófin séu aúir með
full réttindi ökukennara. „Það er þó
ekki skilyrt i flutningi framkvæmd-
arinnar til okkar. Þar er einungis
tekið fram að viðkomandi þurfi að
hafa tveggja ára framhaldsskóla-
menntun að baki en æskilegt að
viðkomandi hafi réttindi sem öku-
kennarar.“ Björgvin viðurkenndi
að slíkt væri t.d. ekki í samræmi
við skoðunarmenn ökutækja, þar
dygði ekkert annað en löggilt próf
bifvélavirkja. Hann sagði því eðli-
legt að stefna að því að prófdómar-
ar hefðu full réttindi sem ökukenn-
arar. -HKr.
V-Rangárvallasýsla:
Valtýr Valtýsson
efstur í prófkjöri
Valtýr Valtýsson hlaut flest at-
kvæði í prófkjöri sjálfstæðisfélag-
anna Fróða og Fjölnis í nýju samein-
uðu sveitarfélagi í vesturhluta Rang-
árvallasýslu á laugardag. í öðru sæti
var Guðmundur I. Gunnlaugsson,
sveitarstjóri á Hellu. Sigurbjartur
Pálsson í þriðja og Engilbert Olgeirs-
son í þvi fjórða. Sameinaða sveitarfé-
lagið nær yfir núverandi sveitarfé-
lagamörk Rangárvallahrepps, Djúp-
árhrepps og Holta- og Landsveitar.
330 manns tóku þátt í prófkjörinu,
sjö atkvæði voru auð og ógild. -NH
Úrslitin:
1. Valtýr Valtýsson
2. Guðmundur I. Gunnlaugsson
3. Sigurbjartur Pálsson
4. Engilbert Olgeirsson
5. Ingvar P. Guðbjömsson
6. Signin Ólafsdóttir
7. Fjóla Runólfsdóttir
8. -9. Sighvatur B. Hafsteinsson
8.-9. Þórhailur Jón Svavarsson
Eldur í bíl
Eldur kom upp í bíl sem var í
geymslu í Slippfélagshúsinu við Mýr-
argötu i gærdag. Að sögn varðstjóra
hjá Slökkviliðinu er bíllinn ónýtur
eftir brunann. Þá fór mikill reykur
um allt húsið sem er stórt og tók tals-
verðan tíma að reykræsta húsið þeg-
ar eldurinn hafði verið slökktur. -gk
Liggur lífgjöf í skúffum?
Flugleiöir-Frakt, íslandspóstur og Sparisjóöurinn standa nú fyrir söfnun ásamt Rauöa krossinum þar sem iandsmenn
eru hvattir til þess aö gefa erlendar myntir sem kunna aö leynast í skúffum og víöar á heimilum fólks. Á myndinni eru
þeir Pétur J. Eiríksson frá Flugleiöum, Einar Þorsteinsson frá íslandspósti og Guömundur Hauksson frá Sparisjóönum
aö afhenda Sigrúnu Árnadóttur erlendar myntir sem starfsmenn fyrirtækjanna þríggja söfnuöu sín á milli upp á tæpa
milljón íslenskra króna.
STATUS
Við leggjum okkar af mörkum til að halda verðbólgunni
niðri og veitum 4% afslátt af völdum bílum.
Renault Laguna II
fólksbill
Renault Scénic
fólksbill
22.242
Renault Mégane Berline
fólksbDI
18.352
Bílalán.afboogunámán.
Rekstrarteiga: 39.351
Verááður 2.090.000
Verö nú 2.00&400
Bilalán, afborgun á mán.
Rekstrarieiga:31.758
Vetðáðtr 1.630.000
Uerðnú 1.564ÆOO
Bilalán, afborgun á mán.
Rekstrarieiga: 38.665
Veröáður 2.050.000
Verðnú 1.968.000
V
RENAULT
Grjóthóls 1 • Sími 575 1200
Söludeild 575 1220 • www.bl.is
Rekstrarleigan er til 36 mán., m.v. við 20.000 km á ári og erienda myntkörfu. Rekstrarleiga er aðeins i boði til rekstraraðila (fyrirtækja).
Bílalán miðast við 30% útborgun og 84 mán. samning. Allar tölur eru með vsk.
Heilsumiðstöð í
Laugardal:
Framkvæmdir að
hefjast
Það er mikill spenningur í fólki,“
segir Björn Leifsson, eigandi World
Class, en síðasta vetrardag var tek-
in fyrsta skóflustungan að yfir-
byggðri keppnislaug og líkamsrækt-
arstöð í Laugardal, eða heilsumiö-
stöð eins og mannvirkið hefur verið
kallað. „Framkvæmdir eru að hefj-
ast á heilsumiðstöðinni en hún á að
anna allt að 15.000 manns. Áætlað er
að borgin taki innilaugina í notkun
um mitt ár 2004 en við ætlum aö
opna 2. janúar 2004,“ sagði Björn.
Grunnhugmyndin að heilsumið-
stöðinni varð til fyrir 10 árum og
hefur hún verið í þróun síðan. Vilja-
yfirlýsing á milli Björns, Ingiþjarg-
ar Sólrúnar Gísladóttur og íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkur var
undirrituð 1999 og skrifað var undir
endanlegan samning í kjölfar
skóflustungunnar. Heilsumiðstöðin
verður í 7.150 m2 húsnæði á þremur
hæðum og er ætlunin að tengja
hana rekstri inni- og útisundlaug-
anna í Laugardalnum. Þar mun
verða veitt fjölbreytt þjónusta fyrir
þorgarþúa og ferðamenn, innlenda
sem erlenda. -ÓSB
Ájíl JsíFlbW
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 21.45 21.31
Sólarupprás á morgun 05.04 04.49
Síðdegisflóð 20.09 00.42
Árdegisflóö á morgun 08.31 13.02
'Jablíu j '/.JLJJ
Norðan 13-20 m/s í dag og í kvöld,
en lægir og dregur úr úrkomu á
austanveröu landinu. Frost 0 til 5
stig með kvöldinu og í nótt, en hlánar
austanlands og við suðurströndina.
Hlýnar
Á morgun er gert ráð fyrir norðlægri
átt, éljum norðan- og austantil, en
annars skýjað með köflum. Kalt í
veðri en hlýnar þó, sérstaklega
sunnantil. Hiti á bilinu 0-8 stig.
Veöriö n
Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
0oo°a0 Hiti 0° O £3
Hiti O" Hitl 0°
tii 8° til 8“ t*l 6®
Vindur 10-lSniA Vindun 10-15'"/• Vtndur: 8-13
Norölæg átt og él noröarv og austanlands, en skýjaö meö köflum sunnan- og vestantil. Áfram norölæg átt og él noröarv og austantil en skjýjaö annars staöar. Kólnar Rtillega. Hæg norölæg eöa breytileg átt, skýjaö meö köflum og dálrtil él austantil. Kólnar.
Í i I
* /}\.r i r Q.i/vl
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárvlðri >= 32,7
mmm. ÍPiÍry * *
AKUREYRI él -1
BERGSSTAÐIR snjókoma -2
BOLUNGARVÍK éliagangur -2
EGILSSTAÐIR snjókoma O
KIRKJUBÆJARKL. él -2
KEFLAVÍK hálfskýjaö 1
RAUFARHÖFN éliagangur -1
REYKJAVÍK hálfskýjað 0
STÓRHÖFÐI skýjaö 0
BERGEN rigning 7
HELSINKI skýjað 11
KAUPMANNAHÖFN hálfskýjaö 7
ÓSLÓ skýjað 6
ST0KKHÓLMUR hálfskýjað 8
ÞÓRSHÖFN snjókoma 0
ÞRÁNDHEIMUR hálfskýjað 11
ALGARVE léttskýjaö 16
AMSTERDAM rigning 9
BARCELONA hálfskýjaö 14
BERLÍN hálfskýjaö 13
CHICAGO skýjaö 6
DUBLIN skúr 12
HALIFAX él 1
FRANKFURT rigning 12
HAMB0RG skýjað 10
JAN MAYEN snjóél -2
LONDON rigning 9
LÚXEMBORG ringing 8
MALLORCA hálfskýjaö 21
MONTREAL hálfskýjaö 4
NARSSARSSUAQ
NEW YORK heiðskírt 7
0RLAND0 léttskýjað 20
PARÍS rigning 9
VÍN hálfskýjaö 14
WASHINGTON hálfskýjaö 7
WINNIPEG heiöskírt -6