Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Qupperneq 7
7
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
DV Fréttir
Skýrsluhald Bændasamtakanna:
Frábærar afurðir í gamla
Kirkjuhvammshreppi
- einstakt, segir sauðfjárræktarráðunautur Bændasamtakanna
Samkvæmt skýrsluhaldi Bændasam-
taka islands eru nokkur afuröahæstu
fjárbú landsins í Vestur-Húnavatns-
sýslu. Af tíu hæstu búum landsins, þar
sem skýrslufærðar ær eru fleiri en eitt
hundraö, voru fimm þeirra í Kirkju-
hvammshreppi hinum foma. Það þykir
einstakt að svo mörg hú í fremstu röð
séu í sömu sveitinni en bæimir Sauðá,
Gröf, Syöri-Kárastaðir, Bergsstaðir og
Sauðadalsá voru allir framarlega í röð-
ræktað og frjósamt og auk þess er rúmt
í högum sem em þar að auki mjög góð-
ir. Til að toppa þetta allt saman er öll
meðferð fjárins tO fyrirmyndar. Svo
hygg ég að það sé einhver keppni miili
manna hvað afurðimar snertir og það
er ágætt innan hæfilegra marka,“ sagði
Jón Viðar Jónmundsson, sauðfjárrækt-
arráðunautur Bændasamtaka íslands,
þegar fréttamaður spurði hann út í
þessar frábæru afúrðir sem bændur á
þessu svæði eru að ná. í þessu sam-
bandi er rétt að fram komi að afurða-
hæsta fjárbú landsins 2001 er félagsbú-
ið Lundur á Austur-Héraði með 36,9
kg eftir ána. Það bú hefur einnig verið
í fremstu röð hvað afurðir snertir und-
anfarin ár. Áðumefnd bú voru hins
vegar ekki langt undan en þau voru
með 34,3-36,2 kg á ána. -ÖÞ
Fyrsta flokks framleiðsla
Flmm af tíu afurðahæstu búum landsins eru í Vestur-Húnavatnssýslu. Hér
sjáum vlð hluta af fénu í sveitinni en sauöfjárræktarráöunautur Bændasam-
takanna lætur sérlega vel af ánum og seglr árangur sveitarinnar einsdæmi.
inni.
„Þetta er alveg einstaklega glæsileg-
ur árangur sem bændur í þessari sveit
hafa náð. Þetta er samt sem áður engin
nýlunda þvi að þeir hafa verið í
fremstu röð í nokkur ár. Þama spila
nokkrir þættir saman. Féð er gott, vel
Atvinnuleysið á NA:
Mest hjá ungum
og ófaglærðum
Helena Karlsdóttir hjá Svæðis-
vinnumiðlun Norðurlands eystra á
Akureyri segir að ungt fólk og
ófaglært sé stærsti hópur atvinnu-
lausra sem stendur á Akureyri. At-
vinnuleysi er mest á landsvísu á
Norðurlandi eystra, eða 3,2%, en Hel-
ena á von á að heldur rætist úr á
næstunni enda sé atvinnuleysi alla
jafna mest frá nóvember og fram í
mars. Nokkuð er um að starfsmenn
tengdir iðnaði séu á atvinnuleysis-
skrá á Akureyri og dæmi um lærða
húsasmiði á bótum.
Samkvæmt Hagstofunni er störfum
sífellt að fjölga á landinu. Fjöldi starf-
andi íslendinga á fjórða ársfjórðungi
2001 var 165.866 manns, samanborið
við 163.157 árið áður, sem jafngildir
1,7% fjölgun. Að meðaltali voru
165.615 starfandi á árinu 2001, saman-
borið við 161.537 árið 2000. Starfandi
fólki fjölgaði því um rúmlega 4.000,
eða um 2,5% milli ára. -BÞ
Gjaldtaka
endurskoðuð
Umboðsmaður Alþingis hefur vakið
athygli sjávarútvegsráðherra og Al-
þingis á því að hann telji verulegan
vafa leika á því að ákvæði laga nr.
24/1986, um ráðstöfun fjár af greiðslu-
miðlunarreikningi smábáta til Lands-
sambands smábátaeigenda, fullnægi
þeim kröfúm sem félagafrelsisákvæði
stjómarskrárinnar gerir. í áliti sínu
vekur hann jafnffamt athygli á að
sama kunni að eiga við um ráðstöfún
fjár af greiðslumiðlunarreikningi fiski-
skipa til annarra hagsmunaaðila í sjáv-
arútvegi.
Ríkisstjómin hefúr ákveðið að skipa
starfshóp til'að taka ofangreinda tilhög-
un, sem og aðra gjaldtöku i þágu hags-
munaaðila í atvinnulífinu, til endur-
skoðunar. -GG
Siglufjarðarlistinn:
Ólafur efstur
Framboðslisti Bæjarmálafélags
Siglufjarðar vegna kosninganna til bæj-
arstjómar í næsta mánuði hefúr verið
samþykktur. Siglufjarðarlistinn hefur
nú fjóra bæjarfúlltrúa í bæjarstjóm og
em tveir þeirra í efstu sætum listans.
í kosningunum 1998 fékk Siglufjarð-
arlistinn mest fylgi, eða 44%. Það kom
hins vegar í hlut S-listans að vera í
minnihluta í bæjarstjóm á því kjör-
tímabili sem er að ljúka en Sjálfstæðis-
flokkur og Framsóknarflokkur em í
meirihluta. í efstu sætum Siglufjarðar-
listans nú em: 1. Ólafúr Haukur Kára-
son, byggingameistari og bæjarfúlltrúi.
2. Guðný Pálsdóttir, kennari og bæjar-
fulltrúi. 3. Sigurður Egill Rögnvaldsson
verkstjóri. 4. Guðrún Ámadóttir deild-
arstjóri. 5. Sigurður Jóhannesson
hjúkrunarfræðingur. 6. Marin Gústavs-
dóttir stuðningsfúlltrúi. 7. Kristján L.
Möller alþingismaður. 8. Sveinn V.
Bjömsson, form. Félags eldri borgara.
9. Ríkey Sigurbjömsdóttir kennari. 10.
Rakel Jónasdóttir nemi. -gk
Komdu út
Ferðatímabil: Maí
í vorið í Bandaríkjunum
Við bjóðum flugfar til neðangreindra
borga í maí á einstöku verði.
flug
Sölutímabil: Til 6. maí
Söluskrifstofur/Fjarsala
www.icelandair.is
'öl: 7 dagar
HámarLsdvöl: 21 dagur
Síðasta heimkoina: 7. júní
Ferðirnar gcfa 4200-5000 ferðapunkta
og 1000 að auki í Netflugi
Baltimore/Washington Baltimore/Washington
Boston, New York Boston, New York
42.1 1 1 Okr.**
Minneapolis
Minneapolis
*Innifabö: Flug, flugvailarskattar og þjónustugjöld.
**Innifalið: Flug og flugvallarskattar.
46* I 50 kr.*
42.250
kr.**
Hafið samband við söluskrifstofur eða Fjarsöludeild
lcelandair f síma 50 50 100 (svarað mánud.-föstud.
kl. 8-20, laugard. kl. 9-17 og sunnud. kl. 10-16).
Eða bókið sjálf á netlnu, www.icelandair.ls.
Los Angeles, San Diego, San Fransisco, Las Vegas,
Phoenix, Seattle, Denver
73.730
kr.*
Ef bókað er á Netinu er ekki
innheimt 900 kr. þjónnstugjald.
ICELANDAIR
wwv/.icelandair.is