Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Page 8
8
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
Fréttir
DV
Alls búa um
24.500 manns S
Kópavogi og hefur
bærinn blásið út á
síöustu árum. Þessi
þróun er af hinu
góða, að mati for-
ystumanna meiri-
hlutans en minni-
hlutinn gagnrýnir
þjónustuleysi við
íbúana. Meirihlut-
ann skipa Fram-
sóknarflokkur og
Sjálfstæðisflokkur
en Samfylkingin er
í andstöðu. D-listi
hefur 5 bæjarfull-
trúa, B-listi 2 en
Samfylkingin 4.
Vinstri grænir
bjóða fram í fyrsta
skipti fyrir sveitar-
stjórnarkosning-
amar í vor.
Hansína
Björgvinsdóttlr
Armann Kr.
Ólafsson
Flosl
Eiríksson.
Ólafur Þór
Gunnarsson.
Lítið um meiri háttar ágreiningsmál í Kópavogi:
Helst tekist á um
vöxt bæjarins
- samvinna B- og D-lista gengið vel - Samfylking kvartar undan háum gjöldum
Farsælt
samstarf
Ármann Kr.
Ólafsson, 2. maður
á lista sjálfstæðis-
manna, segir að
þegar gengið verður
að kjörborðinu i
vor muni Kópavogs-
búar líta mjög til
þess hvemig meiri-
hlutinn hefur staðið
sig á þessu kjör-
tímabili og allan
þann tima sem
hann hefur verið
við völd, þ.e.a.s. frá
árinu 1990. „Ég er
bjartsýnn fyrir okk-
ar hönd því ég tel
að við höfum staðið okkur vel á
flestum sviðum."
Ármann segir samstarflð við
framsóknarmenn hafa gengið mjög
vel og sem dæmi um uppbyggingu
undanfarið nefnir hann menningar-
málin, s.s. lokahnykk Gerðarsafns,
Salinn og nýtt menningarhús sem
vígt verður í byrjun maí. Þá hafi
umgjörð til íþróttaiðkana verið stór-
bætt, sbr. nýtt fjölnota íþróttahús,
nýja sundlaug og nýtt íþróttahús í
Salahverfl. „Það er líka ástæða til
að minna á að við urðum fyrsta
stóra sveitarfélagið til að einsetja
grunnskólana árið 1997.“
Kópavogsbær hefur keypt land af
ríkinu við Vatnsenda og er bærinn
að ljúka deiliskipuiagi á hluta þess
svæðis. Ármann reiknar með að þar
muni rísa eitt skemmtilegasta íbúð-
arhverfi alls höfuðborgarsvæðisins
innan skamms. Önnur sveitarfélög
séu hins vegar að vakna til lífsins
varðandi lóðamál og megi reikna
með að byggð í Kópavogi muni
byggjast hægar upp í framtíðinni en
undanfarin ár.
En sér Ármann fyrir sér einhvern
meiri háttar ágreining í helstu
stefnumálum, t.d. hjá D-lista og
Samfylkingunni? „Ég hef í sjálfu sér
ekki séð neitt koma frá K-listanum
sem er verulega frábrugðið okkar
stefnu. Sveitarstjórnarmál snúast
að miklu leyti um val á því fólki
sem kjósendur treysta til góðra
verka. Helsti áherslumunurinn er
e.t.v. sá að við leggjum meira upp
úr varkárni í rekstri sveitarfélags-
ins.“
Snýst að hluta til um Sigurð
Hansína Björgvinsdóttir skipar 2.
sæti á lista Framsóknarflokksins.
Hún situr nú sem 2. bæjarfulltrúi
framsóknarmanna en Sigurður
Geirdal bæjarstjóri er oddviti list-
ans. Hansína segir að kosningamar
muni að hluta snúast um hvort bæj-
arbúar vilji Sigurð áfram
sem bæjarstjóra. „Þetta hef-
ur verið ágæt samvinna
allt frá því að Sigurður fór
fyrst í samstarf með sjálf-
stæðismönnum."
Markmið framsóknar-
manna er að ná inn þremur
mönnum nú, en litlu mun-
aði síðast að það tækist.
Hansína vill hins vegar
ekkert gefa upp um sam-
starfsmöguleika við aðra
flokka fyrr en úrslit liggja
fyrir. Hún segir um að-
komu Vinstri grænna að
ansi mörg atkvæði geti fall-
ið dauð þannig að D-listinn
gæti náð hreinum meiri-
hluta.
Framsóknarmenn munu halda
áfram að byggja upp bæinn, að sögn
Hansínu, og bendir hún á að Kópa-
vogslistinn hafi á sínum tíma verið
mótfallinn uppbyggingunni. Hún
segir fjárhag bæjarfélagsins sérlega
góðan og skuldir litlar miðað við
tekjur. „Ég vil sjá áframhaldandi
góða stjómun I þessu bæjarfélagi.
Menn munu byggja upp Vatnsenda-
hverfið á næstu árum og svo væri
æskilegt að styrkja stjómsýsluna og
koma upp e.k. netkerfi sem gæti
miðlað bæjarbúum upplýsingum,"
segir Hansina.
Utþenslubær
Fjöldi íbúa í Kópavogi fyllir nú hálft 25. þúsundið en skoðanir eru skiptar um
fylgifiska Ijölgunarinnar.
KOPAVOGUR
- úrslit kosninga 1998
fy
i)
J
D- og B-listi mynda meirihluta TO3
bara hús.
„Ég held að engum blöðum sé um
það að fletta að bærinn hefur þanist
út miklu hraðar en nokkm sveitar-
félagi er hollt. Það sést best á því að
þjónustan hefur ekki náð aö halda í
þarfir íbúanna og á það sérstaklega
viö um þjónustu skólanna. Einsetn-
ingin var góð en það þarf að huga að
fleiri þáttum sem varða innviði
skólanna og sama má segja um
þjónustu við aldraða og fatlaða.“
Ólafur Þór telur alls ekki von-
Björn Þorláksson
biaðamaður
Of hröð uppbygging
Ólafur Þór Gunnarsson skipar
fyrsta sætið á lista VG. Hann segir
að Vinstri grænir bjóði fram til að
efla þjónustu við bæjarbúa. Gera
þurfi stjórnkerfið opnara og styrkja
innviði bæjarins. Helst megi gagn-
rýna í stjómarháttum undanfarið
hve útþensla bæjarins hafi verið
hröð. Ofuráhersla hafi verið lögð á
stækkun bæjarins án þess að hugs-
að væri um nauðsynlega þjónustu í
kjölfarið. Ekki sé nóg að byggja
laust að Vinstri grænir komi að
manni þrátt fyrir lítið fylgi í skoð-
anakönnun í byrjun mánaðarins.
Hann segist fmna ágætan meðbyr
enda sýni kannanir að stór hluti
kjósenda sé enn þá óákveðinn.
Sjálfur hefur Ólafur Þór ekki haft
bein afskipti af pólitík fyrr en hann
segist alltaf hafa haft brennandi
áhuga á stjómmálum og ávallt ver-
ið vinstra megin. „Ég finn þegar ég
kem aftur til Kópavogs eftir nám er-
lendis að bærinn minn er ekki leng-
ur sá þjónustubær sem hann var
áður. Þessu vil ég breyta."
Allt of há gjöld
Flosi Eiriksson, oddviti Samfylk-
ingarinnar, segir að þótt gott sé að
búa í Kópavogi megi gera miklu bet-
ur. Sérstaklega varði það þjónustu-
mál. Ekki sé nóg að byggja hús held-
ur verði einnig að huga að því sem
gerist inni í húsunum. Hann segir
að á sumum sviðum borgi íbúar
Kópavogs mjög há gjöld. T.d. borgi
þeir mun hærri fasteignagjöld en
Reykvíkingar.
Flosi segir að fiölskyldumálin
verði sett á oddinn hjá Samfylking-
unni í víðum skilningi og telur
hann, líkt og talsmaður Vinstri
grænna, að bærinn hafi þanist út
hraðar en honum var hollt. „Viö
höfum oft bent á það á þessu kjör-
tímabili að nýjustu hverfin hafa
ekki næga þjónustu."
Markmið Samfylkingarinnar er
að bæta við manni og fá fimm full-
trúa kjöma, að sögn Flosa. Þörf sé á
nýjum meirihluta en hann segir
ótímabært að spá um hvernig nýr
meirihluti verði myndaður.
Varðandi einstök ágreiningsmál
segir Flosi að Samfylkingin hafi
aðra sýn en Framsókn og Sjálfstæð-
isflokkur í umhverfis- og skipulags-
málum og hvemig haga skuli al-
mannaþjónustu. „Þjónustan við
eldri borgara hefur t.d. setið á hak-
anum og svo borga íbúar hér hæstu
leikskólagjöldin á höfuðborgarsvæð-
inu. Þessum áherslum þarf að
breyta," segir Flosi Eiríksson.
Vinstri grænir eru ekki með mann inni skv. skoðanakönnun:
Sjálfstæðismenn nálægt meirihluta
- yrðu söguleg tíðindi - margir óákveðnir enn þá
Samkvæmt könnun sem Talna-
könnun hf. gerði fyrir vefsvæðið
heimur.is í byrjun mánaðarins er
núverandi meirihluti í Kópavogi
fremur öruggur. Svo gæti farið að
Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan
meirihluta bæjarfulltrúa. Niður-
stöðumar voru þær að Sjálfstæðis-
flokkurinn fengi liðlega 47% at-
kvæða, Samfylkingin um 31%,
Framsóknarflokkurinn 19%, Vinstri
grænir 2,5% og Frjálslyndir 0,5% en
þeir síðastnefndu bjóða ekki fram í
bænum.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði
heldur meira fylgi meðal karla en
kvenna og Samfylkingin meira
meðal kvenna en karla. Kynja-
munurinn er þó miklu minni en er
hjá fylkingunum í Reykjavík. í síð-
ustu bæjarstjórnarkosningum
fengu sjálfstæðismenn 40% at-
kvæða og 5 fulltrúa, Framsóknar-
flokkurinn tæplega 23% og tvo og
Kópavogslistinn rúmlega 37% og
fióra fulltrúa.
Samkvæmt könnuninni á Sjálf-
stæðisflokkurinn örugga 5 full-
KOPAVOGUR
- úrslit könnunar 1 aprtl 2002
i
A
'Á
trúa, Samfylkingin 3 og Framsókn
2. Ellefu fulltrúar eru í bæjar-
stjórninni og hnífiafnt er á milli
sjötta manns sjálfstæðismanna og
fiórða manns Samfylkingarinnar.
Ef hann félli til Sjálfstæðisflokks-
ins væri hann með sex fulltrúa af
ellefu og þar með meirihluta í bæj-
arstjórninni í fyrsta sinn.
Niðurstöðurnar byggjast á svör-
um 302 einstaklinga en rúmur
þriðjungur aðspurðra er óákveð-
A
Kópavogur
Framboðs-
listar
Framsóknar-
flokkurinn
1. Sigurður Geirdal bæjarstjóri
2. Hansína Björgvinsdóttir
bæjarfulltrúi
3. Ómar Stefánsson
forstöðumaður
4. Sigurbjörg Vilmundardóttir
leikskólakennari
5. Gestur Valgarðsson
vélaverkfræðingur
6. Una María Óskarsdóttir
uppeldisfræðingur
7. Hjalti Þór Bjömsson
vímuvamaráðgj afi
8. Linda Bentsdóttir
lögfræðingur
9. Andrés Pétursson fram-
kvæmdastjóri
10. Sigrún Edda Eðvarðsdóttir
verkefnisstjóri
Sjálfstæðis-
flokkurinn
1. Gunnar I. Birgisson
alþingismaður
2. Ármann Kr. Ólafsson,
aðstoðarm. sjávarútvegsráðherra
3. Gunnsteinn Sigurösson
skólasfióri
4. Sigurrós Þorgrímsdóttir
stjómmálafræðingur
5. Halla Halldórsdóttir,
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir.
6. Bragi Mikaelsson,
eftirlitsmaður
7. Ásdís Ólafsdóttir
íþróttakennari
8. Margrét Björnsdóttir bókari
9. Sigrún Tryggvadóttir
hj úknmarfræðingur
10. Jóhanna Thorsteinson
leikskólakennari
Samfylkingin
1. Flosi Eiriksson,
húsasmiður og bæjarfulltrúi
2. Sigrún Jónsdóttir, sfiómmála-
fræðingur og bæjarfulltrúi
3. Hafsteinn Karlsson skólastjóri
4. Tryggvi Felixson, hagfræðing-
ur og framkvæmdasfióri
Landvemdar
5. Hjördís Magnúsdóttir
íþróttafræðingur
6. Kristín Pétursdóttir kennari
7. Þór Ásgeirsson
sjávarvistfræðingur
8. Bima Guðmundsdóttir
félagsráðgjafi
9. Pétur Ólafsson
sfiómmálafræðinemi
10. Kolbrún Sigurðardóttir
þjónustufúlltrúi
Vinstri grænir
1. Ólafur Þór Gunnarsson
læknir
2. Sigurrós Sigurjónsdóttir,
fyrrv. form. Sjálfsbjargar
3. Þórir Steingrímsson
rannsóknarlögreglumaður
4. Rósa B. Þorsteinsdóttir
kennari
5. Coletta Búrling,
þýðandi og leiðsögumaður
6. Sigmar Þormar
fyrirtækjaráðgjafi
7. Grímur Hákonarson
kvikmyndagerðarmaður
8. Brynjúlfur Halldórsson
matreiðslumeistari
9. Petra Vilhjálmsdóttir
tannlæknanemi
10. Steinunn Anna Sigurjóns-
dóttir dagmóðir