Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Page 9
MÁNUDAGUR 29. APRlL 2002
x>v
Fréttir
Tylö
Fjarðabyggð:
Norsk Hydro býður
ungu fólki vinnu
- í álverinu Sunndal í Noregi
Norsk Hydro og Reyðarál bjóða, í
samvinnu við bæjaryfirvöld í
Fjarðabyggð, ungu fólki í Fjarða-
byggð tvö sumarstörf í álverinu í
Sunndal í Noregi. í fyrra bauð fyrir-
tækið tvö störf í álverinu í Karmoy
og þá bárust 13 umsóknir. Álverið
er skammt frá bæjunum Kristi-
ansund og Molde á Mæri. Nú stend-
ur yfir mikil endurnýjun á hluta ál-
versins og er þar verið að koma upp
búnaði til áiframleiðslu af nýjustu
gerð.
Umsækjendur um störfm þurfa
m.a. að vera á aldrinum 18 til 25
ára; að vera við góða heilsu og í
góðu líkamlegu formi; að hafa
áhuga á að kynnast störfum í áliön-
aði, með hliðsjón af áformum um að
álver verði reist á Reyðarfirði; að
skilja norsku og geta tjáð sig á mál-
inu eða öðru Norðurlandamáli; að
skilja ensku og geta tjáð sig á mál-
inu og hafa bílpróf. Lofað er góðum
Nýtt sveitarfélag SÞ:
Atta nöfn til
skoðunar
Samstarfsnefnd um sameiningu
sveitarfélaga i S-Þingeyjarsýslu hefur
sent Ömefhanefnd erindi þar sem far-
ið er fram á að skoðuð verði 8 nöfn
sem talin em koma til greina sem
nafn á nýtt sveitarfélag við samein-
ingu Húsavíkur og Reykjahrepps.
Alls sendu fimm aðilar inn tillögur
að 37 nöfnum á nýja sveitarfélagið og
nefndin valdi 7 þeirra til að senda til
umsagnar. Þessi nöfn em: Skjálfanda-
byggð, Garðarshólmi, Reykjabyggð,
Húsavíkurbyggð, Húsavikurþing,
Reykjaþing og Skjálfandaþing. Nefnd-
in óskaði einnig eftir umsögn um
nafnið Húsavíkurbær þótt tillaga
hefði ekki borist um það. Að fenginni
umsögn Ömefhanefndar munu verða
greidd atkvæði samfara kosningu
fyrstu stjómar sveitarfélagsins sem
fram fer 26. maí. -gk
Borgin og RV:
Semja um pappír
og plastpoka
Innkaupastofhun Reykjavíkurborg-
ar hefur gengið til samninga við
Rekstrarvörur um kaup á ljósritunar-
pappír, plastpokum og hreinlætis-
pappír til stofiiana og fyrirtækja á
vegum borgarinnar. Samningamir
eru gerðir að undangengnum útboð-
um í febrúar sl. og gilda til eins árs,
með framlengingarheimild til jafn-
lengdar. Allar stofnanir og fyrirtæki í
eigu borgarinnar hafa rétt til að
kaupa eftir samningnum.
Rekstrarvörur taka að sér sam-
kvæmt samningnum við Innkaupa-
stofnun að dreifa á um það bil 230 af-
hendingarstaði í borginni, m.a. í 130
grunnskóla og leikskóla, Lotus-hand-
þurrkupappír, WC-pappír og eldhús-
rúllum, MultiCopy Ijósritunarpappír
og plastpokum sem Plastprent fram-
leiðir fyrir Rekstrarvörur.
Rekstrarvörur em sérhæft dreifing-
arfyrirtæki sem vinnur með fyrir-
tækjum og stofiiunum að því að sinna
þörfum þeirra fyrir almennar rekstr-
ar- og hreinlætisvörur, ásamt þjón-
ustu og ráðgjöf á því sviði. -hlh
Veiðar hafnar
Kolmunnaveiðar íslensku skipanna
em hafnar og búið að landa fyrstu
förmunum á þessu ári.
Nú hafa veiðamar verið kvótasett-
ar og er íslensku skipunum heimilað
að veiða 212.757 tonn sem upphafs-
kvóta en skipin veiddu um 360 þúsund
tonn á síðasta ári. Nú er búið að landa
rúmlega 8 þúsund tonnum og þar af
hefur Huginn VE landað tvivegis á
Seyðisfirði, samtals 3.727 tonnum. -gk
launum en Reyðarál mun greiða
kostnað við flugferðir frá Egilsstöð-
um til Kristiansund eða Molde og til
baka, auk ferða innanlands. Um-
sóknarfrestur er til 3. maí.
Smári Geirsson, forseti bæjar-
stjómar, segir að þetta hafi verið
ákveðið allnokkru fyrir síðustu at-
burði í álmálinu og hugsanlega þátt-
töku Norsk Hydro í byggingu álvers
á Reyðarfirði. Atvinnuástand er al-
mennt lakara á Austfjörðum nú en í
fyrra og þvi má búast við töluverðri
ásókn í þessi störf. -GG
Tylö-sánaklefar.
Sérpöntum sánaklefa
eftir þínum óskum,
allar stærðir og gerðir.
Eigum á lager
fylgihluti fyrir sánaböð.
Lítið inn í Ármúlanum.
VATNS VIRKINN ehf
DV-MYND: GVA
Stubbar í stuði
Þessi litríki hópur var á feröinni í miöbænum í gær þegar útskriftarnemar
Kvennaskólans héldu dimission. Um 120 nemendur Ijúka námi frá skólanum
í vor og skrýddust þeir skemmtilegum búningum í tilefni dagsins. I hópnum
mátti sjá stubba, fiugþjóna, sjómenn og beljur.
VIDEOHÖL LIN
Á. Mnu baiuji-
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns • Reykjavík Höldur • Akureyri
BFCoodrícH Nesdekk • Seltjarnarnesi Bílaþjónustan • Húsavík
Umboösaöilan Dekk og smur • Stykkishólmi Smur og Dekk • Höfn Hornafirði
Léttitækni • Blönduósi IB Innflutningsmiðlun • Selfossi