Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
ny
Útlönd
REUTERSMYND
Alexander Lebed
Hershöfðinginn og forsetaframbjóö-
andinn fórst í þyrluslysi í Síberíu.
Fýrrum forseta-
frambjóðandi
lést í þyrsluslysi
Rússneski hershöfðinginn Alex-
ander Lebed, sem gegndi lykilhlut-
verki þegar komið var í veg fyrir að
Míkhaíl Gorbatsjov yrði steypt af
forsetastóli í Sovétríkjunum 1991,
lést í þyrluslysi í gærmorgun, 52 ára
að aldri.
Lebed, sem bauð sig fram gegn
Borís Jeltsín í forsetakosningunum
1996, hafði gegnt starfi ríkisstjóra í
Krasnojarsk í Síberíu um nokkurra
ára skeið. Getsakir voru um að
dauði Lebeds hefði hugsanlega ekki
verið slys þar sem hann komst upp
á kant við marga á ríkisstjóraferli
sínum.
„Það var dálítil þoka. Þyrlan
rakst á háspennulínu og hrapaði,"
sagði yfirmaður öryggisráðs héraðs-
ins í sjónvarpsviðtali í gær.
Sjö menn af nítján sem voru í
þyrlunni týndu lífi í slysinu.
Dagur vonar fyrir botni Miðjarðarhafs:
Yasser Arafat er
friáls ferða sinna
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagði í gærkvöld að samkomu-
lag um aö ísraelar bindu enda á um-
sátur sitt um höfuðstöðvar Yassers
Arafats, forseta Pcdestínumanna,
væri til merkis um von fyrir
þennan heimshluta og hann hvatti
Arafat til að „ganga rösklega til
verks“ við að stöðva hryðjuverk.
„Þetta hefur verið dagur vonar
fyrir þennan heimshluta. Arafat er
nú frjáls ferða sinna og frjáls til að
veita forystu og við ætlumst til þess
af honum,“ sagði Bush á fundi meö
fréttamönnum á búgarði sínum í
Crawford i Texas.
„Arafat veröur að láta verkin
tala. Hann verður að verðskulda
virðingu mína með því að veita for-
ystu,“ sagði Bush enn fremur.
ísraelsk stjómvöld féllust í gær á
tillögur Bush um að binda enda á
umsátrið um Arafat í Ramailah og
Arafat samþykkti þær einnig eftir
fund með bandarískum og breskum
stjórnarerindrekum.
Samkvæmt tillögum Bush yfír-
gefa ísraelar höfuðstöðvar Arafats
og hann má fara hvert sem hann
vill þegar sex eftirlýstir menn, sem
voru í höfuðstöðvunum, hafa verið
fluttir í palestínskt fangelsi þar sem
þeirra verður gætt af bandarískum
og breskum fangavörðum.
ísraelsk stjómvöld héldu áfram
að bjóða Sameinuðu þjóðunum birg-
inn með því að segja að enn væru
REUTERSMYND
Koizumi í hofi bókmenntanna
Junichiro Koizumi, forsætisráöherra Japans, mátar á sig heföbundinn víet-
namskan hatt í hinu 932 ára gamla Hofi bókmenntanna 1 Hanoi, höfuöborg
Víetnams, viö lok heimsóknar sinnar þangaö í gær.
REUTERSMYND
Yasser Arafat
Forseti Palestínumanna má nú fara
úr höföuöstöövum sínum.
ekki skilyrði til þess að nefnd frá
samtökunum færi til flóttamanna-
búðanna í Jenín á Vesturbakkanum
til að afla upplýsinga um meint
fjöldamorð ísraelskra hermanna á
Palestínumönnum þar.
Öryggisráö SÞ kom saman í gær-
kvöld til að ræða kröfu ísraelsku
stjórnarinnar um að fresta för
sendinefndarinnar en fundinum var
ekki lokið þegar DV fór í prentun.
Breskur hemaðarráðgjafi mann-
réttindasamtakanna Amnesty Inter-
national sagði í gær að það sem
hann hefði séð í Jenín benti til að
það hefði ekki verið hemaðarlega
réttlætanlegt af ísraelska hemum
að leggja hluta flóttamannabúðanna
i rúst. Hann vísaði þó ásökunum
Palestínumanna um fjöldamorð í
búðunum á bug.
Stangaveiði
Veiðifélag Eiliðavatns
Stangaveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí.
Veiðileyfi eru seld á Vatnsenda og Elliðavatni.
Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfsbjörg, unglingar
(innan 16 ára aldurs) og ellilífeyrisþegar i Reykjavík
og Kópavogi fengið afhent veiðileyfi án greiðslu.
Veiðifélag Elliðavatns
Skýstrokkar urðu
tveimur að bana
og tugir særðust
Að minnsta kosti flmmtán ský-
strokkar riðu yfir Bandaríkin f gær
og urðu tveimur mönnum að bana.
Tugir manna slösuðust einnig í veð-
urofsanum.
Einn maður lét lífið í vestanverðu
Kentucky þegar skýstrokkar fóru
þar yflr i dagrenningu. Á annað
hundrað heimili eyðilögðust eða
urðu fyrir skemmdum.
Tólf ára drengur lét lífið í suð-
austurhluta Missouri þegar ský-
strokkur fór þar yfir.
Veðurfræðingur sagði að fimmt-
án skýstrokkar aö minnsta kosti
hefðu stungið sér niður.
Sprengt til að
bjarga flóttafólki
Milan Martic, fyrrum leiðtogi
serbneskra uppreisnarmanna í
Króatíu, segist hafa fyrirskipað
sprengjuárás á Zagreb, höfuðborg
Króatíu, í maímánuði 1995 til að
bjarga Serbum á flótta undan króat-
íska hemum.
Martic, sem hyggst gefa sig fram
við stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna innan tíðar, segir í tíma-
ritsviðtali að með þessu móti hafi
honum tekist að bjarga tiu þúsund
manns. Hann er sakaður um dráp á
óbreyttum borgurum i árásinni.
Eining á afmæli í Kabúl
Hamid Karzai,
forsætisráðherra
bráðabirgðastjóm-
arinnar í Afganist-
an, og landvarna-
ráðherrann Mo-
hammad Fahim
sýndu mikla sam-
stöðu í gær þegar
þeir stóðu hlið við hliö og virtu fyr-
ir sér göngu hermanna á tíu ára af-
mæli endaloka kommúnistastjómar
landsins.
Endurbætur í Barsebáck
Stjómendur hins umdeilda Bar-
seback-kjarnorkuvers á Eyrar-
sundsströnd Svíþjóðar hafa ákveðið
að endurbætur á því hefjist eftir tvo
mánuði. Skipt veröur um mikið af
þýðingarmesta búnaði versins.
Reiði í Rómaborg
Mikil reiði braust út meðal íbúa
Rómar í gærmorgun þegar þeir sáu
að búið var að líma veggspjöld með
mynd af fasistaforingjanum sáluga,
Mussolini, upp um alla veggi, á dán-
ardægri hans. Borgarstjórinn hét
því aö láta fjarlægja myndirnar.
Vilja sniðganga Frakkland
Um þrjú hundruð gyðingar efndu
til mótmæla i New York í gær og
hvöttu til að menn hættu að kaupa
franskar vörur vegna tíðra árása á
eignir gyðinga í Frakklandi og
vegna velgengni hægriöfgamanns í
fyrri umferð forsetakosninganna.
Látið draumana rætast
Suður-afríski
geimferðalangurinn
Mark Shuttleworth
sagði í gær að hann
vonaðist til að ferð
hans út í geiminn
yrði til þess að íbú-
ar Suður-Afríku
reyndu að láta
drauma sína rætast. Shuttleworth
greiddi um tvo milljarða króna fyr-
ir að fara með rússneskri geimflaug
upp í alþjóðlegu geimstöðina.
Lofar Rumsfeld aðstoð
Núrsúltan Nasarbajev, forseti
Kasakstans, hitti Donald Rumsfeld,
dómsmálaráðherra Bandaríkjanna,
í gær og hét því að auka aðstoð sína
við stríðsreksturinn í Afganistan.
Mamma Barbie látin
Ruth Handler,
konan sem bjó til
Barbie-dúkkuna,
lést á laugardag, 85
ára að aldri, í kjöl-
far aðgerðar sem
gerð var á henni
vegna krabbameins
í ristli. Handler bjó
til fyrstu Barbie-dúkkuna, sem
skirð var í höfuðið á dóttur hennar,
Barböru, árið 1959 þar sem hún
taldi að stúlkur vildu leika sér að
dúkkum sem þær vildu likjast.
Til í að kaupa nýtt hús
Konstantín, fyrrum Grikklands-
kóngur, er reiðubúinn að kaupa
nýtt hús í heimalandinu fái hann
ekki gamlar eignir konungsfjöl-
skyldunnar.
Villandi auglýsingar
Færeyskur auglýsingafrömuður
segir að auglýsingar stjórnmála-
manna fyrir lögþingskosningarnar
á morgun hafi margar hverjar verið
bæði villandi og misvísandi.