Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Qupperneq 11
11
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
DV
Utlönd
Sögukennari í Erfurt þjóðhetja í Þýskalandi:
Kom í veg fyrir frekari
manndráp I skólanum
Rainer Heise, sextugur sögukenn-
ari, er orðinn þjóðhetja í Þýskalandi
fyrir að hafa komið í veg fyrir að
fyrrum nemandi við Gutenberg
framhaldsskólann í Erfurt gæti
haldið áfram að drepa kennara og
aðra við skólann á fóstudag.
Nemandinn, Robert Steináuser,
hafði þegar drepið sextán manns,
þar af þrettán kennara, í hefndar-
skyni fyrir að hafa verið rekinn úr
skólanum, þegar Rainer Heise stóð
augliti til auglitis við hann á göng-
um skólans.
„Ég opnaði dymar fram á gang og
sá grímuklæddan mann í svörtum
ninja-búningi. Hann beindi byssu
að brjósti mér. Skyndilega tók hann
af sér grímuna. Ég bar kennsl á
hann. Ég sagði: Robert, varst þú að
skjóta? Hann kinkaði kolli. Ég tók
þá í peysuna mína og sagði: Svona,
skjóttu mig, en horfðu í augun á
mér. Hann sagði þá: Herra Heise,
það er nóg komið í dag. Og hann lét
REUTERSMYND
Þjóðhetja seglr frá
Sögukennarinn Rainer Heise í Gutenberg framhaldsskólanum í Erfurt segir
frá viöskiptum sínum viö fyrrum nemanda sem drap sextán manns.
byssuna síga,“ sagði Heise kennari
þegar hann ræddi við fréttamenn.
Heise sagði að Steinhauser hefði
sofnað á verðinum eitt andartak.
Hann hefði þá bent honum að fara inn
í kennslustofuna. Heise hrinti síðan á
eftir piltinum, lokaði dyrunum og
læsti. Steinhauser skaut sig til bana
skömmu síðar.
Þótt orð Heises hafi veitt Þjóðverj-
um smá huggun í þessum mikla
harmleik, versta fjöldamorði í Þýska-
landi á friðartímum, héldu menn
áfram að velta fyrir sér hvemig það
mætti vera að unglingur gæti komist
yfir vopn og skotfæri af því tagi sem
hann beitti í árásinni. Steinháuser
hafði nýlega fengið byssuleyfi og var í
skotfélagi.
Bemhard Vogel, forsætisráðherra
Thúringen þar sem Erfurt er höfuð-
borgin, hvatti í gær til þess að rann-
sókn færi fram á því hvemig ungling-
ar geti nálgast skotfæri með því að
gerast félagsmenn í skotfélögum.
Barnaníðingar ekki
liðnir í prestastétt
Rómversk-kaþólska kirkjan ætti
ekki að líða það að prestar hennar
beiti böm kynferðislegu ofbeldi en
meiri umræðu er þörf um hvort eitt
brot eigi að nægja til að viðkomandi
verði sviptur kjóli og kalli.
Þetta kom fram í máli kardínálans
Francis Georges frá Chicago í banda-
rísku sjónvarpi í gær. Kardínálinn
sagði að gera yrði greinarmun á mis-
notkun bama, sem væri ólíðandi, og
gerandanum sem ætti að njóta þess að
yflr mál hans yrði farið með það í
huga að kanna hvort honum væri við
bjargandi.
Kaþólska kirkjan í Bandaríkjunum
hefur beðið mikinn álitshnekki eftir
að upplýstist að bamaníðingar úr röð-
um presta vom fluttir milli sókna í
stað þess að hljóta refsingu. Páfi
ræddi þessi mál við bandaríska kard-
ínála i Páfagarði í síðustu viku.
REUTERSMYND
Kardínáli vlll skoða málln
Bandaríski kardínálinn Francis Geor-
ge frá Chicago vill aö mál barnaníö-
inga í prestastétt veröi skoöuö hvert
um sig til aö meta endurhæfingu.
REUTERSMYND
Fagnaðarfundlr á Kóreuskaga
Hwang Son-og frá Suöur-Kóreu brast í grát þegar hún hitti frænku sína frá
Noröur-Kóreu í gær. Níutíu og níu Suður-Kóreubúar fóru noröuryfir landamær-
in í gær til aö hitta ættingla sem þeir höföu ekki séö í 50 ár.
Sex dagar í frönsku forsetakosningarnar:
Le Pen viss um að
geta sigrað Chirac
Franski hægriofstækismaðurinn
Jean-Marie Le Pen er farinn að trúa
því að hann geti sigrað Jacques
Chirac, fráfarandi forseta, í síðari
umferð forsetakosninganna næst-
komandi smmudag, að því er kosn-
ingastjóri hans sagði í gær.
Skoðanakannanir um helgina
benda þó til annars því þar er
Chirac spáð 81 prósenti atkvæða.
„Við finnum fyrir vaxandi stuðn-
ingi,“ sagði kosningastjórinn Brimo
Gollnisch við fréttamann Reuters.
Le Pen gerir sér vonir um að fá
atkvæði þeirra sem kusu til dæmis
Arlette Laguiller, frambjóðanda
trotskista, og aðra frambjóðendur í
fyrri umferðinni fyrir viku.
í viðtali við franska blaðið Le
Monde sagði Le Pen að hann ætlaði
sér að fá milli 40 og 51 prósent at-
kvæða, annað væri ósigur.
REUTERSMYND
Dansað fyrir forsetann
írakar dansa til aö fagna 65 ára af-
mæli Saddams Husseins í gær.
Bandaríkjamenn
íhuga árás á írak
Bandarísk stjómvöld eru að
skipuleggja meiriháttar loftárásir
og landhemað gegn írak snemma á
næsta ári til að steypa stjórn Sadd-
ams Husseins forseta af stóli. Þetta
kom fram í bandaríska blaðinu New
York Times í gær.
Að sögn blaðsins stendur til að
nota 70 til 250 þúsund hermenn. Ge-
orge W. Bush Bandaríkjaforseti hef-
ur ekki gefið nein fyrirmæli um
hervæðingu vegna þessa og ekki er
til opinber áætlun um innrásina.
írakar létu allar vangaveltur um
innrás slá sig út af laginu og efndu
til mikillar hópgöngu í höfuðborg-
inni Bagdad í gær til að hylla for-
seta sinn á 65 ára afmælisdegi hans.
Þar með lauk fimm daga hátíðahöld-
um vegna afmælisins sem var ætlað
að sýna fram á stuðning þjóðarinn-
ar við Saddam.
Heimavinnandi
karlar í hættu
Heimavinnandi karlar eru í 82
prósent meiri hættu á að deyja af
hjartasjúkdómum en kynbræður
þeirra sem vinna utan heimilis.
Þá eru konur í ábyrgðarstöðum
þrisvar sinnum líklegri til að fá
hjartasjúkdóma en lægra settar.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
umfangsmikillar rannsóknar sem
gerð var á tíu ára tímabili í Banda-
rikjunum og náði til á sjötta þúsund
manna. Þar er tekið tillit til þátta
sem geta haft áhrif á hjartasjúk-
dóma, svo sem aldur, blóðþrýsting-
ur, kólesteról í blóði og reykingar.
Það kom vísindamönnum á óvart
hvað heimavinnandi húsfeður voru
i mikilli áhættu.
REUTERSMYND
Ekkl af bakl dottinn
Franski þjóöernisofstækismaöurinn
Jean-Marie Le Pen lætur ekki á sig
fá þótt efnt sé til daglegra mót-
mælaaögerða gegn honum.
Hjá Vélaleigu Sindra lækkar leiguverðið í ákveðnum þrepum því lengur sem tækið er haft í
leigu. Þannig færð þú hlutfallslega lægra verð á dag því lengur sem tækið er í leigu.
Vélaleiga Sindra • Klettagörðum 12 • sími 575 0000 Opnunartímar: 8-18 mán. - fös. og 9-14 lau.