Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Side 14
14
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
27
Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf.
Framkvæmda&tjóri: Hjalti Jónsson
AöalrttstJóri: Óli Björn Kárason
Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson
Aðstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Skaftahlíð 24,105 Rvík, aími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Grmn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is
Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001
Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf.
Plötugerð og prontun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viömælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Endurtekin loforð
Gríðarleg gerjun á sér stað í Reykjavík fyrir komandi
borgarstjórnarkosningar eftir tæpan mánuð. Reykjavíkur-
listinn, kosningabandalag Samfylkingarinnar, Framsókn-
arflokksins og Vinstri grænna, hefur sent frá sér stefnu-
skrá líkt og Sjálfstæðisflokkurinn. Borgarbúar munu á
næstu vikum vega og meta þau loforð sem þar eru gefm en
þó fyrst og fremst gera það upp við sig hverjum best sé
treystandi til að efna það sem lofað er.
Vandi R-listans og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra er sú staðreynd að margt af því sem lofað er í
stefnuskrá fyrir komandi kosningar hefur kosningabanda-
lagið haft átta ár til að framkvæma eftir ítrekuð loforð. Og
því miður hefur meirihluti borgarstjórnar undir forystu
Ingibjargar Sólrúnar, Helga Hjörvars og Alfreðs Þorsteins-
sonar, gert sig sekan um það sem þau gáfu sjálfstæðis-
mönnum að sök fyrir átta árum; óráðsíu og skuldasöfnun.
Auðvitað er það kattarþvottur þegar því er haldið fram
að skuldir Reykjavíkurborgar hafi ekki margfaldast á síð-
ustu átta árum. Alveg með sama hætti og gengisþróun er
kennt um 500 milljóna króna hallarekstur á Orkuveitu
Reykjavíkur á liðnu ári, í stað þess að viðurkenna að gríð-
arleg skuldaaukning fyrirtækisins á undanförnum árum
hefur gert það berskjaldað fyrir ytri aðstæðum - aðstæðum
sem það áður hafði alla burði til að bregðast við og standa
undir. Æ fleiri borgarbúar eru að gera sér grein fyrir þess-
um staðreyndum alveg eins og æ fleiri borgarbúar spyrja
sjálfa sig hvernig hægt sé að réttlæta fjáraustur í ævintýra-
fyrirtæki Alfreðs Þorsteinssonar. Lína.Net verður aldrei
rós í hnappagat Alfreðs Þorsteinssonar eða Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur.
R-listinn fagnaði sumri með því að birta stefnuskrá sína.
Á yfirborðinu hljómar stefna og loforðalisti kosninga-
bandalags vinstri flokkanna og Framsóknar vel - er í
nokkru framsækin og sýnir umhyggju fyrir velferð borgar-
anna. Vandi þeirra sem standa að R-listanum er hins veg-
ar sá að erfitt verður fyrir frambjóðendur að telja borgar-
búum trú um það í þriðja skiptið í röð að alvara sé á bak-
við margt af því sem lofað er. Þannig velta barnafjölskyld-
ur fyrir sér hvort nokkurra úrbóta sé í raun að vænta í dag-
vistunarmálum þegar R-listinn lofar að „öll börn eldri en
átján mánaða eigi kost á leikskólaþjónustu“. Fyrir fjórum
árum var loforðið enn stærra og viðameira. í viðtali við
Morgunblaðið í apríl 1998 gaf Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarbúum loforð: „í dagvistarmálum tölum við um dag-
vistartryggingu og ætlum að tryggja að öll börn eldri en
eins árs eigi kost á góðri og niðurgreiddri dagvistun á kjör-
tímabilinu.“ Af stefnuskrá R-listans nú sést berlega að ekki
hefur verið staðið við gefm fyrirheit.
Fyrir fjórum árum lýsti borgarstjóri því yfir að fyrirhug-
að væri að „skipta borginni í 9 hverfi og í hverju þeirra
verði hverfaráð með þátttöku hópa og félagasamtaka“. Fjór-
um árum síðar er svipað loforð endurtekið í stefnuskrá R-
listans; hverfamiðstöðvar skulu í öll hverfi og hverfaráð
eiga að annast gerð þróunaráætlunar fyrir einstök hverfi.
Sérstöku lýðræðisverkefni - Greiðar götur - á að hrinda í
framkvæmd og þannig er „réttur einstaklinga til að taka
þátt í að móta nánasta umhverfi sitt“ viðurkenndur. End-
urtekin loforð af þessu tagi ættu án efa að gleðja íbúa við
Suðurhlíðar í Reykjavík.
Skoðanakannanir benda til þess að forskot R-listans á
Sjálfstæðisflokkinn hafi minnkað eða jafnvel horfið. Ástæð-
an er fyrst og fremst sú að stöðugt fleiri borgarbúar draga
trúverðugleika kosningabandalags Samfylkingar, Fram-
sóknar og Vinstri grænna í efa. Ekki síst eftir að stefnuskrá
fyrir komandi kosningar hefur verið kynnt og gömul kosn-
ingaloforð rifjuð upp.
Óli Björn Kárason
DV
Skoðun
Styðjum Palestínu gegn Sharon
Daglega verður heim-
urinn vitni að grimmd-
arverkum ísraela gagn-
vart Palestínumönnum.
Her þeirra sprengir
sjúkrabíla í loft upp.
Læknar og hjúkrunarlið
er hindrað í að líkna
slösuðum. Fórnarlömbin
liggja í blóði sínu á
strætum úti. Fyrir okk-
ur, sem löngum höfðum
samúð með ísraelsmönn-
um, ekki síst vegna mis-
kunnarleysis heimsins
gegn þeim fyrr á tímum,
er þetta þyngra en tárum taki. Eng-
inn með snefd réttlætis í hjarta sínu
getur lengur varið stefnu þeirra.
Ömurlegt hlutskipti
Palestínustjóm ræður aðeins tæp-
um 18% af Vesturbakkanum og
Gaza. Þetta svæði hafa ísraelar hlut-
að niður í 220 smáeiningar. Þeir tak-
marka samgöngur á milli þeirra svo
þorp og byggðir eru meira og minna
einangruð. Stjórn Palestínumanna
fær ekki einu sinni að láta lögreglu-
menn sína ferðast hindrunarlaust
milli svæða. Hún ræður hvorki sam-
göngum í lofti né landi, og
ekki heldur fjarskiptum. Við
þessar aðstæður er mjög
erfitt að halda uppi stjórn.
Fátækt, skortur á skólum
og vanbúin heilbrigðisþjón-
usta er áralangt hlutskipti
Palestínmnanna. Heilar kyn-
slóöir þeirra alast upp í
flóttamannabúðum. Þær sjá
ekki annan tilgang en ganga
hryðjuverkum á hönd.
Þannig framleiða ísraelar
kynslóðir vonlausra Palest-
ínumanna sem í beiskju sinni
sjá enga útgönguleið aðra en
grípa til vopna og skæruhemaðar.
Þannig verður til vítahringur sem
erfitt er aö brjóta upp.
Markvisst niðurbrot
Ariel Sharon bar ábyrgð á
fjöldamorðum í flóttamannabúðum
Palestínumanna fyrir hálfum öðr-
um áratug. Margir álíta hann því
stríðsglæpamann. Sannarlega kem-
ur ekkert á óvart frá hans hendi
lengur. Taktík hans nú er að beita
handahófskenndu ofbeldi sem bein-
ist fyrst og fremst gegn almennum
borgurum.
Össur
Skarphéðinsson
formaöur
Samfylkingarinnar
„Ariel Sharon har ábyrgð á fjöldamorðum í flóttamanna-
búðum Palestínumanna fyrir hálfum öðrum áratug. Margir
álíta hann því stríðsglœpamann. Sannarlega kemur ekkert á
óvart frá hans hendi lengur. Taktík hans nú er að beita
handahófskenndu ofbeldi sem beinist fyrst og fremst
gegn almennum borgurum. “
í skjóli þungvopnaðra bryndreka
sem em varðir af herþyrlum fara
hermenn hús úr húsi, mölva sum
niður með stórvirkum vinnutækj-
um og stökkva fjölskyldum á flótta.
Þannig freista ísraelar að brjóta á
bak aftur sjálfsvirðingu Palestinu-
manna. Markmiðiö er að gera þá að
hræddum og auðsveipum gíslum í
eigin landi.
Frjáls þjóð í eigin landi
Við í Samfylkingunni höfum lagt
fram tillögu á Alþingi þar sem lýst
er stuðningi við að alþjóðlegt
gæslu- og eftirlitslið verði sent á
vettvang. í tillögu okkar er líka
skorað á ríkisstjóm íslands að beita
sér fyrir því á vettvangi alþjóða-
samfélagsins að ísraelsmenn dragi
heri sína frá hemumdu svæðunum
í Palestínu í samræmi við friðar-
samkomulagið sem gert var í Ósló
1993. Þannig, og einungis þannig, er
hægt að tryggja að Palestínumenn
fái að lifa sem frjáls þjóð í eigin
landi. - Islendingar verða að láta
rödd sína heyrast. Stuðningur
þeirra við málstað Palestínu skiptir
máli. •
Össur Skarphéðinsson
Ríður fasisminn í garð?
Fimmtudagurinn 18. aprU síðast-
liðinn var svartur dagur fyrir íslend-
inga. Þá bárust okkur fréttir um að
virtur sendimaður Sameinuðu þjóð-
anna í Palestinu lýsti ástandinu i
Jenin eftir árásir ísraelsmanna sem
ólýsanlegum hryllingi. Sama dag
lýsti Bush Bandaríkjaforseti Ariel
Sharon, forsætisráðherra ísraels,
sem manni friðarins. Sama dag var
sagt frá því í fréttum að Bandarikja-
stjóm ætlaði sér að flytja yfirstjóm
herstöðvar sinnar á Keflavikurflug-
velli frá Bandaríkjunum tU Þýska-
lands.
Um leið flutti Morgunblaðið okkur
fréttir af óánægju utanríkisráðherra
okkar með þau áform, og daginn eft-
ir sameinuðust hann, forsætisráð-
herra og Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, í rama-
kveini yfir þessari fyriræfiun og öðr-
um hótunum Bandaríkjamanna að
minnka umsvif sín á veUinum.
Því auðvitað kom i ljós, það sem
hafði mátt lesa á mUli línanna í frétt-
um, að áformin mn að breyta yfir-
stjóm hersins tengjast áformum um
að draga úr herbúnaði á Keflavíkur-
flugveUi. Eins og haft var eftir Val
„Alkunna er að Bandaríkjamenn hafa byggt hið grimmilega
herveldi ísraels upp með fjárframlögum sínum og tœkniað-
stoð. Þannig bera þeir verulega ábyrgð á hryðjuverkum ísra-
elsstjórnar, og þeir gcetu stöðvað þau á skömmum tíma með
því að stöðva fjárstrauminn. “
Ingimundarsyni i Morgunblað-
inu 21. aprú merkja þau að
Bandaríkjamenn líta ekki leng-
ur á vamir Islands sem hluta af
vörnum Bandaríkjanna. Þetta
er það sem leiðtogar þriggja
stjórnmálaflokka okkar kvarta
svo sárt undan.
Illmennskan í heiminum
Maðurinn hefur þá einkenni-
legu náttúru að i honum búa
eiginleikar sem gera Utt eða
ekki vart við sig öldum saman ...
en ná svo skyndUega yfirhöndinni og
taka aUa stjóm. Einn þessara
eiginleika er vísindaleg og
tæknUeg hugkvæmni sem lá í
dvala í manninum fram á 19.
öld. Annar eiginleiki er Ul-
mennskan sem ber oftast litið
á hjá flestu fólki en hlýtur að
búa í okkur öUum, því að
hún getur tekið upp á að
vaxa eins og krabbamein og
leggja undir sig heUu samfé-
lögin á örfáum ámm, ef ekki
er brugðist af festu við vexti
hennar. Þetta gerðist i Þýska-
landi nasismans, og nú virð-
ist óhugnanlega skammt i að
iUmennskan verði taumlaus í
forystu Ísraelsríkis. Þetta
snýst ekki bara um Sharon;
Verkamannaflokkurinn tek-
ur þátt í þessu með stjómar-
þátttöku sinni, og jafnvel
Simon Peres, boðheri friðar-
samninga tU skamms tíma,
virðist ekkert gera nú annað
en druslast með. í ísrael er
ekki í augsýn neitt stjóm-
málaafl sem sé líklegt tU að
snúa ferlinu við.
Gunnar Karisson
prófessor
Alkunna er að
Bandarikjamenn hafa
byggt hið grimmUega
herveldi ísraels upp
með fjárframlögum sín-
um og tækniaðstoð.
Þannig bera þeir veru-
lega ábyrgð á hryðju-
verkum ísraelsstjómar,
og þeir gætu stöðvað
þau á skömmum tíma
með þvi að stöðva fjár-
strauminn. Svo á
Bandaríkjastjóm líka
hinn kostinn, að ganga í lið með Ul-
mennskunni.
Sú hætta kann að virðast fjarlæg
af þvi að við erum vön að lita á vest-
rænt lýðræði sem eitthvað óhaggan-
legt og mannréttindasinnað í grund-
vaUaratriðum. En nú er nánast vitað
að Bush komst tU valda með kosn-
ingasvikum, þannig að hann er í
raun óbundinn af leikreglum lýðræð-
isins. Ríkisstjóm hans er valin af
honum sjálfum en ekki þinginu, svo
að þetta á við hana líka.
Hlutverk okkar
Það tekur á að skrifa þetta, því ég
veit um margt gott og vandað fólk
sem þykir vænt um Bandaríkin. En
það er líka erfitt að þegja um það, sér-
staklega þegar forystumenn okkar,
jafnvel menn sem maður hefur sjálfur
stutt tU pólitískrar forystu, sameinast
um að grátbiðja Uðsmenn Sharons í
Bandaríkjunum um að láta ekki af
herbúnaði á íslandi. Ég trúi því að
okkur beri að gera það sem við getum
tU að verja okkar litla land fyrir yfir-
gangi illmennskunnar, hversu skop-
lítiU sem skerfur okkar kann að vera.
Gunnar Karlsson
Spurt og svarað Eröfgahyggja að fœrast í vöxt?
Ummæli
Sagan skrifuð af
sigurvegurum
„Það er auðvelt fyrir
okkur sem nú lifum að
segja að Sovétríkin hafi
verið af hinu Ula en ég
er ekki viss um að það
hefði verið svarið sem
fólkið þar í landi hefði
gefið um 1930. Þannig getum við tek-
ið flestaUt í veraldarsögunni sem
ekki hefur staðist tímans tönn eða
gengið upp og sagt að aUt frá upphafi
hafi það verið dauðadæmt og hvín-
andi vitleysa og þess vegna séu þeir
sem aðhyUtust eða tóku þátt í vitleys-
unni ómerkingar og hálfmenni. Sag-
an er ætíð skrifúð af sigurvegurun-
um og þeir sem verða undir eru þar
af leiðandi „þeir sem höfðu á röngu
að standa.““
Skúli Björn Gunnarsson á Pressan.is
Hugtökin eru
„Skynsamlegur
rammi fyrir framtíð
heimsins er að sjá fyrir
sér þríhyming með
menntun, menningu og
alþjóðavæðingu í horn-
unum og þessi þríhym-
ingur er umleikinn lýðræði. í réttu
samhengi fela þessi fjögur hugtök í
sér lykUinn að góðri sambúð ólíkra
kynþátta. íslendingar verða einnig að
vara sig. Það er stutt í útlendingahat-
ur hér og öfgahyggja má ekki festa
hér rætur. AUir eru útlendingar nær
alls staðar í heiminum. Það em tU
200 lönd og við íslendingar eram út-
lendingar í 199 þeirra. Umburöar-
lyndi, víðsýni og þekking á öðmm
menningarheimum er forsenda fyrir
friði í heiminum. Aðeins þannig
tekst okkur að vinna gegn ógnum
öfgahyggjunnar."
Ágúst Einarsson á heimasíöu sinni.
fjögur
Hjalti Jóti Sveinsson,
skólameistari Verkmenntask. á Ak.:
Menntun skapar
víðsýni
„Sem betur fer tel ég að öfga-
hyggja, að minnsta kosti hér á
landi, sé ekki að færast í vöxt.
Þvert á móti finnst mér umburðarlyndi fólks
gagnvart skoðunum hvað annars vera að aukast.
Þar held ég að komi tU að íslendingar séu orðnir
almennt víðsýnni með árunum og kemur þar tU
aukin menntun og upplýsing á öUum sviðum. Ég
held að sigur Le Pen í fyrri umferð forsetakosn-
inganna í Frakklandi, því mikla menningarlandi,
hljóti að vera slys sem byggt er á misskilningi, ég
trúi ekki öðra en því að Frakkar eigi eftir að
breyta þessari niðurstöðu í seinni umferð kosn-
inganna, þann 5. maí næstkomandi."
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra:
Öfgaöflin
vinna skaða
„Öfgamar fylgja manninum
og hafa aUa tíð gért. Og nú hafa
öfgamenn sig mikið í frammi og
virðast vera að ná nokkrum árangri, rétt eins og
gerðist í fyrri umferð forsetakosninganna í
Frakklandi í síðustu viku.
Það - og aðrir ógnvænlegir atburðir síðustu
mánaða almennt - sýnir okkur að aUtaf er mik-
Uvægt að uppfræða börnin um mannúð, félags-
hyggju og kærleika. Slikt er í raun skylda okk-
ar. Ég ætla að vona að Frökkum takist að
hrinda Le Pen af höndum sér því við eigum að
vita að öfgaöflin, hvar sem þau eru, vinna
skaða.“
Þorfinnur Ómarsson,
menntaður í Frakklandi:
Þreyta gagnvart
gömlu öflunum
„Ekki er hægt að taka úrslitum
fyrri umferðar kosninganna í
Frakklandi á þann veg að segja að
öfgahyggja sé ekki aö færast í vöxt. Það er mikU þreyta
í landinu gagnvart gömlu stjðrnöflunum sem hafa ver-
ið tiltölulega óbreytt í marga áratugi og oft sömu fram-
bjóðendur kosningar eftir kosningar. En þetta er líka
ákveðin viövörun um að gömlu stjómmálaöflunum
hafi mistekist, sérstaklega er varðar að tryggja atvinnu
í hinum dreifðu byggðum landsins. Þaö sem mér fmnst
hins vegar athyglisverðast er að kosningaúrslitin eru
reiðarslag fyrir ákveðna stjómmálaelítu í Frakklandi
þvi Frakkar hafa ávallt talið sig vera í fararbroddi í
heiminum hvað varðar lýðræði og mannréttindi."
Þórunn Sveinbjamardóttir,
þingkona Samfylkingar:
Endurspeglar
ójöfnuð
„Því miður virðist hún sums
staðar eiga vaxandi fylgi að
fagna. Ástæður þessa eru ekki
einfaldar, það er að segja að öfgahyggjan endur-
spegli einvörðungu kynþáttafordóma. Að mínu
viti ber hún líka vitni um ójöfnuð og misskipt-
ingu tekna og tækifæra. Ég held til dæmis að
þær fimm milljónir Frakka sem kusu fulltrúa
öfgasinnaðrar hægri stefnu í forsetakosningim-
um þar séu hópur fólks sem hræðist alþjóðavæð-
inguna og finnist hefðbundnir stjómmálamenn
ekki tala fyrir sinn munn. Sú staðreynd er
nokkuð sem stjómmálamenn alls staðar í Evr-
ópu þurfa að huga að.“
Hægri öfgamaðurinn Le Pen varð óvænt annar tveggja sem keppa um forsetatign í Frakklandi 5. maí. Þá verður kosið milii hans og Chirac. En er öfgamönnum almennt að vaxa ásmegin?
L
6v=7NKF7F?NJl\^
V—
Verðbólgumark-
miðsafsláttur
íslenskan á orð yfir allt
og er þeirrar náttúru að
geta stöðugt getið af sér ný-
yrði eins og fyrirsögn þess-
arar greinar ber með sér.
Höfundi er ekki kunnugt
um hvort nafnið sé komið á
spjöld sögunnar og hafi
hlotið náð fyrir augum
orðabókar Háskólans en
þegar fram líða stundir er
sennilegt að orðið eigi eftir
að öðlast sess i hagsögunni
vegna skyldleika síns við
hið rauða strik vormánaða yfir-
standandi árs. Enn er ekki ljóst
hvemig hagsagnfræðingar ofan-
verðrar aldarinnar muni meta síð-
ustu þrjú ár tuttugustu aldar og upp-
haf hinnar tuttugustu og fyrstu
Sjálfskaparvíti
Einhvers staöar í grúski sínu
kynnu þeir að rekast á skrif og um-
ræður um sprengjur, tifandi tíma-
sprengjur. Vakna þá spumingar um
hvenær og til hversu langs tíma
sprengjurofi hafi verið stilltur. Við
nánari athuganir metnar af við-
skiptahalla, verðbólgu, gengisvísi-
tölu, atviimustigi, útlánaþenslu auk
annarra þátta er líklegt að niðurstað-
an veröi sú að sprengja hafi verið
stillt snemma árs 1998 og sprungið
um þremur árum síðar.
Niðurstaðan gæti allt eins orðið sú
að um blöðra hafi
verið að ræða er
blásið var i snemma
árs 1998 og um mitt
ár 2001 hafi farið að
leka úr henni hægt
og rólega. Hér hafi
verið ferill er stóð í
nokkum tíma frekar
en hvellur með þeim
hörmungum er af
honum hefðu getað
hlotist. Erfitt er að
ráða í hvern dóm
framvinda næstu
ára á eftir að fá. Lík-
ur benda þó til, í
ljósi reynslu fyrri of-
þenslustiga, að í
kjölfarið hennar
fylgi nokkur slaki
hagkerfis.
Mat sögunnar
verður hugsanlega
að um sjálfskapar-
víti hafi verið að
ræða og við lands-
menn eina að sakast
hvernig framvindan hafi
orðið, í ljósi þess að ekki
hafi verið utanaðkomandi
skellur á ferðinni eins og
óhagstæð þróun viðskipta-
kjara. í ljós mun koma að
verðbólgumarkmiðsafslátt-
urinn hafi verið tæki til að
halda vísitölu neysluverð
innan ákveðinna marka og
koma þannig í veg fyrir
víxlhækkanir launa og
verðlags.
Vænsti kosturinn
Spurningar munu vakna hvers
vegna til þess þurfti að koma að fyr-
irtæki tækju að veita viðskiptavin-
um sínum sérstakan afslátt, í og með
vegna áeggjanar forystumanna laun-
þegahreyfinga til að halda verðlagi
vöru og þjónustu í skefjum. Óhjá-
kvæmilega hlyti augum aö verða
beint að gríðarlegri útlánaaukningu
lánakerfis og aukinni skuldasöfnun
geira þjóðfélagsins einkum fyrir-
tækja og einstaklinga.
Jafnvel þótt úr aukningu skulda
dragi verður talið líklegt að hún hafi
átt þátt í slökum vexti eða jafnvel
samdrætti fyrstu ára aldarinnar.
Hversu lengi það samdráttarskeið
getur varað skal ósagt látiö en vegna
mikillar skuldsetningar, langs láns-
tíma og hlutfallslega hárra vaxta
hlýtur ótvirætt að draga úr athöfn-
um einstaklinga og fyrirtækja á '*•
sama tima og auknar skuldir sem
aflavaki hagvaxtar liðinna ára,
missa mátt sinn og þrótt þar sem
geta til aukinnar lántöku dvínar. Sá
fjárfestingarkostur verður talinn
vænstur að greiða niður skuldir. Þar
með hlýtur að draga úr spum eftir
vöru og þjónustu þeirra greina sem
helst hafa þrifist af auknum lántök-
um einstaklinga og fyrirtækja.
ísland og Japan
Sé grannt skoðað eru það ekki
frumframleiðslugreinar sem lagt
hafa að mörkum tU hagvaxtar und-
anfarinna ára heldur í ríkum mæli
þjónusta og byggingariðnaður, hvers
eftirspum hefur verið fjármögnuð að
miklu leyti meö lánsfé. SennUega *
munu hinar miklu skuldir, greiðslu-
byrði þeirra og langi lánstími leiða
til varanlegrar kjaraskeröingar
skuldunauta umfram þá sem orðið
hefpi undir léttari böggum.
Áhrifa útlánaaukningar áranna
1988 tU 2002 gæti gætt lengi og sett
mark sitt á spum eftir ýmissi vöru
og þjónustu jafnt innlendri sem er-
lendri. Þeirri spumingu hlýtur að
verða varpað fram hvort íslenska
hagkerfið lendi í svipuðu fari og hið
japanska sem var lengi það hagkerfi
sem óx hvað örast en hefir lítt dafn-
að undanfarinn áratug.
Kristjón Kolbeins
„í Ijós mun koma að verðbólgumarkmiðsafslátturinn hafi verið tœki
til að halda vísitölu neysluverð innan ákveðinna marka og koma
þannig í veg fyrir víxlhœkkanir launa og verðlags.“ - Frá einum sam-
ráðsfunda aðila vinnumarkaðarins.