Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Síða 16
28
MANUDAGUR 29. APRIL 2002
Skoðun
DV
purning dagsins
Notarðu strætó?
Asta Hreinsdóttir, aöstoöarmaöur
á rannsóknarstofu:
Nei, aldrei, það er leiöinlegur feröa-
máti, þaö tekur of langan tíma.
Snorri Jónsson sölumaöur/nemi:
Nei, ég þarf þess ekki, annars er
þaö leiðinlegt og tímafrekt.
Arndís Hrund Bjarnadóttir nemi:
Já, mikiö, ekki skemmtilegur
feröamáti.
Andrea Júlía Gunnarsdóttir nemi:
Já, á hverjum degi, ógeöslega dýrt.
Svava Gerður Ingimundardóttir nemi:
Já, á hverjum degi, geöveikt
leiöinlegt og dýrt.
Elva Dögg Brynjarsdóttir nemi:
Já, ég þarf aö taka strastó 1-2 i
viku og finnst þaö leiöinlegt og dýrt.
Ibúöaverð á frjálsum markaöi
- hefur hækkaö gríðarlega á undanförnum árum á höfuðborgarsvæðinu.
Baráttumál í höfn
Vilhjáimur Þ.
Vilhjálmsson
borgarfulltrúi
skrifar:
Borgarstjórn
Reykjavíkur sam-
þykkti þann 21.
febrúar sl. tillögu
sjálfstæöismanna
þar sem Alþingi
er hvatt til að
breyta kaup-
skylduákvæðum í
lögunum um hús-
næðismál frá 1998
á þann veg að eig-
endum félagslegra
eignaríbúða með kaupskylduákvæð-
um verði heimilað að selja íbúðir
sínar á frjálsum markaði. Einnig
var áréttað í tillögunni að réttar-
stöðu þeirra, sem vilja að sveitarfé-
lögin leysi til sín ibúð með kaup-
skylduákvæðum, verði ekki raskað.
Þann 19. janúar sl. ritaði ég grein í
Morgunblaðið þar sem hvatt var til
breytinga á húsnæðislöggjöfinni í
ofangreinda veru.
Gríðarleg hækkun íbúöaverðs
Samkvæmt gildandi lögum er
„Nú hefur félagsmálaráð-
herra fallist á þessi sjónar-
mið og flutt frumvarp til
breytinga á húsnceðislöggjöf-
inni sem gerir ráð fyrir að
hœgt verði að selja þessar
íbúðir á frjálsum markaði í
framhaldi af ósk einstakra
sveitarstjóma þar um. “
staðan sú að sveitarfélögum er skylt
að innleysa íbúðir sem kaupskylda
hvílir á og geta eigendur þeirra
íbúða ekki selt þær á frjálsum
markaði. Á undanfömum tveimur
árum hefur íbúðaverð á frjálsmn
markaði, aðallega á höfuðborgar-
svæðinu, hækkað gríðarlega. Þessi
staðreynd gerir eigendum félags-
legra íbúða með kaupskylduákvæð-
um á höfuðborgarsvæðinu, sem af
ýmsum ástæðum kjósa að skipta um
búsetu, nánast ókleift að láta sveit-
arfélagið innleysa íbúð sína. Ástæð-
an er sú að innlausnarverð getur
verið 3-4 milljónum króna lægra en
verð á sambærilegri íbúð á frjálsum
markaði. Staðan er á hinn bóginn
allt önnur víða á landsbyggðinni
þar sem markaðsverð íbúða er
miklu lægra en innlausnarverð.
Ánægjuleg niöurstaöa
Nú hefur félagsmálaráðherra fall-
ist á þessi sjónarmið og flutt frum-
varp til breytinga á húsnæðislög-
gjöfmni sem gerir ráð fyrir að hægt
verði að selja þessar íbúðir á frjáls-
um markaði í framhaldi af ósk ein-
stakra sveitarstjóma þar um.
í framhaldi af samþykkt borgar-
stjórnar Reykjavíkur er ljóst að eig-
endur slíkra íbúða í Reykjavik
verða leystir undan þessari kvöð
sem haldið hefur mörgum fjölskyld-
um í Reykjavík í eins konar átt-
hagafjötrum. Það er ánægjulegt að
nú hillir undir að þetta baráttumál,
sem um leið er mikið réttlætismál,
komist í höfn.
Óskráðar vinnuvélar
Skarphéðinn Einarsson
skrifar:
Nýlega sá ég frétt í sjónvarpi um
óskráðar vinnuvélar í umferð á göt-
um Reykjavíkur og á landinu yfir-
leitt. Þessar vélar eru meira og
minna ótryggðar og ef þær valda
tjóni þá verður viðkomandi verk-
takafélag eða einstaklingar að greiða
tjónið sjálfir. Sú upphæð gæti reynst
ærið há.
Rekstur þessara tækja gengur ekki
alltof vel hjá sumum, einkum þeim
með minni verkefnin. og svo gæti far-
ið að bætur fengjust hreinlega ekki
greiddar út. Vélar þær sem um ræð-
ir eru t.d. hjólaskóflur, gröfur á
gúmmihjólum, traktorsgröfur, veg-
heflar o.fl. tæki svipaðra tegunda.
„Vinnuvélar eru skoðaðar af
Vinnueftirliti ríkisins. En það
er ekki nóg. Þessar vélar eiga
að vera skráðar hjá Skrán-
ingarstofu, líkt og bílar, og
bera númer og vera topp-
tryggðar að sjálfsögðu. “
Fram kom hjá þeim aðilum sem
rætt var við, frá hinu opinbera, að
svo gæti farið að þessum vélum yrði
hreinlega bannað að aka um götur og
flytja þyrfti þær þá á vögnum, líkt og
gert er við jarðýtur. Sú aðferð er dýr
og óraunhæf. En hví er þetta svona
komið? Jú, vinnuvélaeigendur eru að
spara sér tryggingar, sem eru jú dýr-
ar. Sumir geta að vísu keypt sér
tryggingar varðandi tjón á símaköpl-
um, rafstrengjum og vatnslögnum
sem skemmast.
Vinnuvélar eru skoðaðar af Vinnu-
eftirliti rikisins. En það er ekki nóg.
Þessar vélar eiga að vera skráðar hjá
Skráningarstofu, likt og bílar, og
bera númer og vera topptryggðar að
sjálfsögðu. Svo er um landbúnaðar-
dráttarvélar (traktora), en viða er þó
pottur brotinn í þeim málum; trygg-
ingar ekki greiddar og vélarnar ekki
skoðunarskyldar. Þarna ætti lögregl-
an í hinum ýmsu sýslum landsins að
fylgjast betur með. - Dómsmálaráðu-
neytið ætti að setja lög um skráningu
vinnuvéla er aka um götur og vegi
landsins.
Varaborgarst j órinn
Garri hefur ekki haft nægilega pólitíska sann-
færingu til að geta arkað rakleitt inn í kjörklef-
ann og krossað við listabókstaf án þess að hafa
ígrundað vel og vendilega áður hvað hann er i
raun og veru að gera þar inni. Garri reynir hvað
hann getur til að átta sig á stefnumálum fram-
boðslistanna í Reykjavik, hvað komi sér best að
kjósa þegar stóra stundin rennur upp. Og af
nógu er að taka en stefnumálin og málflutning-
urinn er langt í frá nægilega skýr og skorinorð-
ur til að hægt sé að átta sig í einni svipan. For-
sendumar eru af öllu tagi og allt í hálfgerðri
móðu. Em skuldimar að aukast eða minnka,
kostar stefnuskrá annars meira en hins, er al-
^ þjóðlegum brag borgarinnar betur borgið undir
stjórn eins lista frekar en annars? Fá bömin
pláss á leikskólunum eftir viku, mánuði eða ár
og verður Garri í stöðugu kvíðakasti yfir að eld-
ast illa því ekki hefur verið hugsað nægilega fyr-
ir þörfum hans þegar þar að kemur?
Ijós í myrkrinu
En í liðinni viku var fyrst að sjá einhver
■*merki þess að kosningaumræðan væri að færast
á það stig að Garri hefði af henni nokkurt gagn.
Þá upplýsti vaskur frambjóðandi reykvíska kjós-
endur um það að ef þeir kysu D-listann, og þar
með Bjöm Bjarnason sem borgarstjóra, væru
þeir í raun ekki að kjósa Bjöm heldur varaborg-
arstjórann, Hannes Hólmstein Gissurarson.
Garri hélt reyndar í fyrstu að þama væri á ferð-
inni súrt grín í ætt við Fóstbræður en eftir
nokkra íhugun sá hann að frambjóðandinn hafði
lög að mæla. Því auðvitað er það svo að í kosn-
ingum ertu ekki að kjósa það sem þú heldur
heldur hitt sem þú hélst að þú værir ekki að
kjósa. Ef þú kýst Bjöm ertu að kjósa Hannes
Hólmstein. Flóknara er það ekki.
Kosningar snúast um fólk
Af þessu má ráða að þegar þú kýst Davíð ertu
að kjósa Kára og þegar þú kýst Htdldór ertu jafn-
vel að kjósa Ómar þýsk-islenska og ef þú kýst
Össur ertu örugglega að kjósa Jakob Stuðmann.
Garri hefur því komið sér upp lista yfir það
hvað hann er að kjósa þegar hann setur kross-
inn við listabókstafi í framtíðinni. Hann mun
auðvitað hafa af þessum lista meira gagn en vita
gangslausu þvaðri fram og aftur um stefnuskrár,
loforð og framkvæmdaáætlanir sem munu hvort
eð er ekki standast. Kosningar snúast um fólk.
Og þess vegna má ekki gleyma Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur. Eins og allir almennilegir
borgarstjórar og borgarstjórakandídatar lumar
hún lika á varaborgarstjóra. Ef Garri er að kjósa
Ingibjögu Sólrúnu þá er hann í raun ekki að
kjósa Ingibjörgu heldur Stefán Jón Hafstein.
Cgxrrl
Halldór
Björnsson
„Skuldarar í átt-
hagafjötrum. “
Verðtrygging
lána óréttlát
Kristján Magnússon skrifar:
WT------—] Menn hljóta að
taka undir með for-
manni Starfs-
greinasambands ís-
lands, Halldóri
Bjömssyni, sem
segir að bankar og
sparisjóðir hafi not-
að sér ákvæðin um
verðtryggingu lána
með breytilegri og
allt of hárri vaxta-
töku. - Það er krafa
meginþorra landsmanna að nú sé
tímabært að fella niður verðtryggingu
á útlánum, og það sé óeðlilegt og órétt-
látt að verðtryggja lán með þeim hætti
sem lánastofnanir gera nú. Nægilegt
er að bankamir rukki þjónustugjöld
sem að sjálfsögðu eru líka allt of há.
Einstaklingar á Islandi sem skulda
eru i átthagafjötrum, gagnstætt t.d.
fyrirtækjum sem gjarnan leita til út-
landa eftir lánum, segir Halldór
Björnsson. Þetta er sannmæli.
Verður að vera
Carl J. Eiríksson skrifar:
Furðulegt hve sumir fjandskapast
út í verðtryggingar á bankalánum.
Allir vita þó, að greiðslubyrðin af
verðtryggðum lánum (vextir plús
verðb. um 14%) er mun minni en af
óverðtryggðum lánum (vextir um
18%). Sumir halda því fram að afnema
beri verðtryggingar vegna þess að
verðbólgan sé stundum of mikil, t.d.
8,7% sl. vetur. Formaður verkalýðsfél.
Hlífar er t.d. i þeim hópi. Aðrir halda
þvi fram að afnema beri verðtrygging-
ar vegna þess að verðbólgan sé nú
nánast engin (aðeins 0,5%). Sam-
kvæmt framansögðu á að afnema
verðtryggingar, bæði af því að verð-
bólgan sé of mikil og af því að hún sé
svo lítil! Verði verðtryggingar
afnumdar fari verðbólgan á fulla ferð
(mörgum til mikillar ánægju). íslensk
stjómvöld hafa þráfaldlega sýnt að
þau beita ekki þeim aðferðum sem
þau ráða yfir og sem þarf til að halda
verðbólgunni í skefjum. - Það er svo
efni í aðra umræðu.
Utvarpshúsiö viö Efstaleiti
Hamslaus framleiösla Laxnessþátta.
Laxnesslöðrið
Svavar Guðmundsson hringdi:
Ég las pistil Kolbrúnar Bergþórs-
dóttur í DV sl. þriðjudag þar sem hún
segist þurfa á hvíld að halda eftir allt
Laxnesslöðrið (min nafngift). Þetta
nær náttúrlega ekki nokkurri átt,
þetta umstang, t.d. í Sjónvarpinu og
uppákomum menningarvita á vegum
borgarinnar. Og menn verða bókstaf-
lega hamslausir í viðtölum við fólk.
Þannig var á Rás 2 sl. þriðjudags-
morgun, að fólk hringdi inn og lýsti
bókum Laxness. Einn þeirra sagðist
ekki finna neinn húmor í bókum
hans. Þá svaraði annar þáttastjórn-
andinn: „Ég vorkenni þér“, og þar
með var lokað á viðmælandann. - Er
þessi þjóð rugluð, eða hvað?
Ógeðfelldar
uppsagnir
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Nýlega vora konur sem unnu hjá
Símanum á Akureyri neyddar til, með
stuttum fyrirvara, að skrifa undir
starfslokasamning, því verktaki átti
aö taka við störfum þeirra. En verk-
taki tekur ekki við störfum ókeypis,
það vita allir. - Og eitt eiga stéttarfé-
lög Simans og íslandspósts sameigin-
legt; þau láta sem ekkert sé!
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Skaftahlíö 24, 105 ReyKjavik.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.