Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Qupperneq 28
KA-menn með
miðilsfund
Fjölmenni mætti á skyggnilýsinga-
fund sem haldinn var í Brekkuskóla á
Akureyri í gærkvöld. Hinn lands-
kunni miðill Þórhailur Guðmundsson
mætti á staðinn og sagði þar frá fylgj-
(-^im og framliðnum. Kom sitthvað for-
vitnilegt fram í máli miðilsins um það
sem flestum öðrum er hulið. Miðils-
fundurinn var haldínn til fjáröflunar
fyrir fjórða flokk KA í handbolta sem
hyggur á Svíþjóðarferð á komandi
sumri. Ekki er vitað til þess að
íþróttafélag hafi áður farið leiðir sem
þessar til að afla fjár. Þórhallur miðill
býr á Brekkunni á Akureyri sem er
höfuðvígi KA-manna.
Engar vísbendingar komu fram á
fundinum um hugsanlegar lyktir í
þeim leikjum KA og Vals sem fram
undan eru í úrslitum íslandsmótsins í
handknattleik á næstunni. -sbs
_ Femin.isað
’ kaupa Vísi.is
Viðræður standa yfir um kaup
Femin.is á Vísi.is, sem er að mestu í
eigu Frjálsrar íjölmiðlunar hf., og
eru þær langt komnar. Um er aö
ræða kaup á „konseptinu" á bak við
Vísi.is og nafninu en ekki hlutafé-
laginu sem á og rekur vefinn. íris
Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri
Femin.is, vildi lítið tjá sig um fýrir-
ætlanir með kaupunum í gærkvöld
en staðfesti að viðræður milli aðU-
anna væru í gangi.
Femin.is er með vinsælustu vef-
svæðum hér á landi. Stærstu hlut-
hafar eru Iris Gunnarsdóttir og Soff-
, ja Steingrímsdóttir, stofnendur vef-
v" setursins, sem eiga meirihluta en
aðrir eigiendur eru Talenta intemet,
Norðurljós og Baugur.net. -hlh
FARA VALSARAR
FÁ í ANDAGLAS?
hí.
FRJÁLST, ÓHAÐ DAGBLAÐ
MANUDAGUR 29. APRIL 2002
AIIianz(m)
- Loforð er loforð
DV-MYND KO
Ný slökkvistöð vígð í Hafnarfirði
Ný ogglæsileg slökkvistöð var tekin í notkun í Hafnarfiröi á laugardag aö viöstöddu fjölmenni. Klippt var á boröa og aö því loknu rann ný björgunarbifreið í sal-
inn en hún mun veröa staösett í nýju stööinni. Umtalsveröar breytingar veröa á starfi björgunarliðs í Hafnarfiröi og nágrenni með þessari nýju stöö og þeim
búnaöi sem auknum umsvifum fýlgir. Aö loknum hátíöarhöldun, fengu gestir að skoöa allan aöbúnað slökkviliösins og jafnvel prófa, eins og myndin sýnir.
Búist við að Alþingi standi út vikuna:
Ræðst af því hvað
Níu ára stúlka
fannst látin
menn tala lengi
- ríkisstjórnin dælir inn frumvörpum
„Mér sýnist að við gætum þurft vik-
una í að ljúka þingstörfum. Slíkt fer
þó eftir því hversu lengi menn ætla að
tala í einstaka málum sem liggja fyr-
ir,“ sagði Kristinn H. Gunnarsson,
formaður þingflokks Framsóknar-
flokksins, í samtali við DV. Enn er
ekki ljóst hvenær Alþingi verður
frestað, en í upphaflegum áætlunum
var miðað við miðvikudag í fyrri
viku. Komið hafa fram hugmyndir um
að fresta þingi nú og taka þráðinn upp
að nýju fljótlega eftir sveitarstjómar-
kosningar. Eru menn annars nú að
kosta kapps við að flýta þinglokum
þannig að þingstörfin og undirbúning-
ur vegna kosningr til sveitarstjóma
rekist ekki hvort á annað.
„Þetta hefur tafist af því ríkis-
stjómin hefur verið að dæla inn frum-
vörpum löngu eftir að frestur til þess
var runninn út,“
sagði Ögmundur
Jónasson, formað-
ur þingflokks VG.
Hann segir að
þingheimur verði,
ef ljúka eigi þing-
störfum fyrr en
síðar, að sammæl-
ast um að víkja
einhverju frá. Ein-
beita sér að mál-
um sem viðameiri séu og ítarlegri um-
fjöllun þurfi. Nefhir hann þar sérstak-
lega frumvarp um ríkisábyrgð til
handa deCODE.
Á Alþingi verða í dag greidd at-
kvæði um lög um veiðileyfagjald og
norsk-íslenska síldarstofninn. Þau
mál eru þvi sem næst útrædd og verði
því varla til að draga þingstörf á lang-
Krlstinn H.
Gunnarsson.
inn, að mati Kristins. Hins vegar telja
hann og eins Sigríður Anna Þórðar-
dóttir, sem fer fyrir þingflokki sjálf-
stæðismanna, að menn gætu ítarlega
þurft að ræða um byggðaáætlun, rík-
isábyrgðina, lög um málefni útlend-
inga, Umhverfisstofnun og sölu Stein-
ullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki.
Um hinar löngu ræður sem þing-
menn stjómarandstöðunnar hafa flutt
í einstaka þingmálum síðustu daga
segir Sigríður Anna að málþófið nú sé
að sínu mati í meira lagi en verið hafi
á síðustu dögum þings undanfarin ár.
Hins vegar minnir hún á að Alþingi
íslendinga sé eina löggjafasamkoman
á Norðurlöndum þar sem ræðutími sé
ótakmarkaður. Þetta verði að hafa í
huga þegar rætt sé um að þingstörf
dragist á langinn.
-sbs
Kona á fertugsaldri dvelur nú á
geðsjúkrahúsi grunuð um að hafa
valdið vofveiflegum dauða ungrar
dóttur sinnar. Konan og dóttir
hennar, sem var níu ára gömul,
voru gestkomandi í heimahúsi í
Seljahverfi og voru það íbúar sem
tilkynntu látið til lögreglu um há-
degisbil á laugardag. Unnið er að
rannsókn málsins og hefur verið
rætt við íbúa hússins. í gær reynd-
ist ekki unnt að yfirheyra móður-
ina, sem er 38 ára, sökum slæms
ástands hennar.
Litlar upplýsingar var að fá enda
málið „erfitt og afar sorglegt", svo
notuð séu orð lögreglumanns sem
DV ræddi við. -ÓSB
Veður vikunnar
Fram á föstudag eru
horfur á norðlægum og
norðaustlægmn áttum og
éljagangi af og til norðan- og austan-
lands. Hiti breytist ekki að marki
en hlýjast verður sunnan til.
Á laugardag verður svo væntan-
lega austlæg átt og rigning sunnan
til en þrnrt norðan til. Þá hlýnar
væntanlega og landsmenn geta horft
bjartari augum á vorkomuna.
Vestfirskir sjómenn óttast hrun fiskistofna:
Lítið æti er fyrir þorskinn
Eins og fram kom í DV um
helgina óttast sjómenn og út-
gerðarmenn á Vestfjörðum
hrun fiskistofna likt og gerðist
við strendur Kanada og Ný-
fundnalands. Sjómenn segja
fiskinn hafa verið sérlega hor-
aðan í vetur og því slæman til
vinnslu. Þá tala menn sérstak-
lega um fisk sem veiðst hefur
á línu á miðunum úti af
Breiðafirði, norður með Vest-
fjörðum og í Húnaflóa í þessu
bandi.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
rannsóknastofnunarinnar, segist
Guðjón A.
Kristjánsson.
sam-
son,
vegar ekki merkja neinar
visbendingar um hrun fiski-
stofna við landið en segir
fiskistofnana þó vera í lægð
og því þurfi að fara að öllu
með gát tfl að byggja þá sem
best upp á ný.
„Ég hef heyrt sjómenn
vera að tala um hversu hor-
aður þorskurinn er og það
ekki bara á Vestfjörðum,"
segir Guðjón A. Kristjáns-
þingmaður fyrir Frjálslynda
Haf-
hins
flokkinn. „Menn hafa áhyggjur af því
hversu ætislítill fiskurinn er og menn
fara að velta því fyrir sér hvort það sé
ekki búið að veiða of mikið af loðn-
unni. Aðrar tegundir eins og þorskur-
inn nærast á loðnunni en þegar lítið
er um hana minnkar ætið náttúrlega
fyrir stærri tegundimar."
Sjómenn sem DV ræddi við vildu
lika meina að hvalurinn spilaði stóra
rullu í þessu öllu saman enda ekkert
smávegis magn sem hann tæki í æti.
„Þetta er náttúrlega samspil
margra þátta. Bæði er það loðnan og
svo eru stóru sjávarspendýrin að éta
heilmikið af fiski þannig að minna
verður um æti. Það er ljóst að það
þarf að grípa í taumana ef ekki á illa
að fara,“ segir Guðjón. -ÁB
Brother PT-2450 merkivélin
Mögnuð vél
sem, með þinnl hjálp,
hefur hlutina í röð
ogreglu.
Snjöll og góð lausn á
óreglunni.
Rafport
Nýbýlavegi 14 • sími 554 4443 •
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tókum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Björk með barni
Björk Guðmundsdóttir, söngkon-
an heimsfræga, á von á öðru bami
sínu í síðustu viku septembermán-
aðar. Faðir henn-
ar, Guðmundur
Gunnarsson,
staðfesti þetta í
samtali við DV í
gærkvöld. Guð-
mundur er nú að
vænta síns átt-
unda bamabams.
Söngkonan er
barnshafandi eft-
ir Matthew Bam-
ey en hann hefur verið sambýlis-
maður hennar í New York síðustu
þrjú árin eða svo. Barney er mynd-
listarmaður, þekktur og virtur í
heimalandi sínu, Bandaríkjunum.
Hann mun meðal annars halda
einkasýningu í hinu þekkta Gug-
genheim-safni i New York snemma
*a næsta ári.
Fyrir á Björk soninn Sindra, sem
er sextán ára. -ÓSB
Björk Guö-
mundsdóttir.