Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Blaðsíða 2
16
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
Alfreð Gíslason gerði Magdeburg
að Evrópumeisturum annað árið í röð
á laugardaginn og varð liðið þar
fyrsta félagsliðið frá Þýskalandi til að
vinna meistaradeild Evrópu. DV-
Sport heyrði í Alfreð i gær.
„Þetta er stærsta stundin á þjálfara-
ferlinum. Það er ekki hægt að komast
hærra með félagslið enda er stemning-
in búin að vera frábær hér í Mag-
deburg og við erum búnir að halda vel
upp á þetta. Þessi leikur var samt
rosalega erfiöur og ég var gjörsamlega
að tryllast þama á hliðarlinunni enda
vildi ég helst komast inn á völlinn til
að hjálpa til,“ sagði Alfreð.
„Við erum búnir að æfa alveg frá-
bærlega vel og samstaðan í liðinu í að
vinna að þessu takmarki hefur skipt
miklu máli. Ég var að spila svolítinn
póker þvi ég varð að fóma nokkrum
deildarleikjum til þess að hvíla lykil-
leikmenn eins og Ólaf, Perunicic,
Kuleschow og Kervadec. Þetta var því
mikið happdrætti og öruggt að ég
hefði fengið mikla gagnrýni á mig ef
þetta hefði ekki gengið upp en sem
betur fer kláruðum við þetta,“ segir
Alfreð og bætir við: „Nú er bara að
endurtaka þetta allt á næsta ári og
taka þýska meistaratitilinn með í leið-
inni og það hlýtur að vera næsta
takmark hjá okkur í Magdeburg."
Hverttig hefur gengid aö ráöa viö
allt leikjaálagiö í vetur?
„Við erum að glíma við miklu
meira álag hér í Þýskalandi en lið frá
öðrum löndum og ég held að leikurinn
á laugardaginn hafi verið númer 49 í
röðinni í vetur. Það er því næstum
því ómögulegt fyrir þýskt lið að klára
allt saman. Þessi árangur Magdeburg-
ar i vetur er því mjög sérstakur og
eitthvað sem verður afar erfltt fyrir
þýskt lið að leika eftir í framtíðinni."
Hvernig metur þú frammistööu
Ólafs Stefánssonar i þessum úr-
slitaleikjum?
„Óli er búinn að skOa lykilhlut-
verki fyrir okkur í vöm og sókn og
hann var líka í lykilhlutverki meö ís-
lenska landsliðinu á EM í janúar. Það
er því ótrúlegt hvað hann er búinn að
skila fyrir okkur alla í vetur þrátt fyr-
ir þetta geysilega mikla álag.
Óli er því án nokkurs vafa besti
handboltamaður heims i ár. Ólafur
hefur svo víðtækt hlutverk hjá okkur
og þó svo aö ég segi að hann og Stefan
Lövgren séu bestir í heimi sóknarlega
þá er Ólafur að skila í raun tvöfóldu
hlutverki í sókn og vöm og það er
ekki hægt að líkja honum við neinn,“
sagði Alfreð að lokum. -ÓÓJ
Frábær frammi-
staöa Ólafs gegn
Vezsprém
Ólafur Stefánsson átti tvo frá-
bæra úrslitaleiki með Mag-
deburg gegn ungverska liðinu
Veszprém. Ólafur var marka-
hæsti leikmaður vallarins í báð-
um leikjum og gerði alls 16 mörk
úr 24 skotum í þeim en snilldar-
frammistaða hans er þó hvergi
nærri upptalin í þeirri tölfræði.
Sendingar Ólafs voru að
flestra mati lykilatriði í að Mag-
deburg landaði Evrópumeistara-
titlinum i ár því alls átti Ólafur
18 stoðsendingar í úrslitaleikjun-
um tveimur og sjö sendingar að
auki sem gáfu víti.
Ólafur kom því að 32 af 51
marki Magdeburgar í leikjunum,
þar af 18 af 30 í seinni leiknum.
Mörk(skot) Ólafs gegn Veszprém:
Langskot ....................2 (9)
Gegnumbrot...................2 (2)
Hraðaupphlaup ...............3 (3)
Vítaskot...................9 (10)
Samtals:.................16 (24)
Stoðsendingar Ólafs í leikstöður:
Inn á línu.......................6
7 ad auki sem gáfu víti
1 hraðaupphlaup..................6
Út í hom.......................i
í langskot ....................5
Samtals: .....................18
Lykilsendingar Ólafs á leikmenn:
(Stodsendingar og sendingar sem gefa viti)
Nenad Perunicic................8
Oleg Kouleschow................7
Uwe Mauer......................4
Stefan Kretzschmar.............3
Guerin Kervadec................2
Joel Abati.....................1
Samtals: .....................25
-ÓÓJ
2S.-28.júlí
&
2002
REYKJAVIK
FOOTBALL
FESTIVAL
Alþjóðleg knattspyrnuhátíð í Laugardal dagana 25. til 28. júlí í sumar
ætlað 3. og 4. flokki drengja og stúlkna
KnattspyrnufélagiðÞróttur stendur fýrir alþjóðegri knattspyrnuhátíðí Laugardalnum sem
ráðjert er aðverð árlegur viðourður hé&n í frá. MarkaíSsetning hátí&rinnar erlendis stendur
yfir og hefur þegar skilaðgóðim árangri. Samstarfsaðli um marka&setningu erlendis eru
ÍT ferðr.
• ÚrvalsliðBOLTON 4. flokkur (U14), liðGuðia Bergs, er me&l þátttökulife.
• Leeds, Manchester City og Stoke eru í viðæðim um þátttöku og eru þær á lokastigi.
• Eitt íslenskt félagsliðá Rey Cup verðir dregiðút og hlýtur ffía þátttöku fyrir 18 manns
á GrahamTaylorWatford London Football Festival sumarið2003.Verðnæti kr. 300.000.
• Samstarf er komiðá viðannaðtveggja stærstu unglingamóta Bretlands með
gagnkvæmum félagaskiptum.
Kostnaður við þátttöku:
1. Mótsgjald kr. 10.000 fyrir hvert þátttökulið
2. Þátttökugjald kr. 13.000 fyrir hvern þátttakanda.
3. Þátttökugjald kr. 6.500 án gistingar og máltí&.
Framangreint verðgildir ef greitt er fyrir 15.maí n.k.
Innifaliðer: Skólagisting í fjórar nætur, tvær máltíðr á dag (morgun og kvöld),
acþangur í sundlaugar Reykjavíkur, strætó, flölskyldu- og húsdýragarðir, opnunarhátíð
Rey Cup diskó, lokahóf/stórdansleikur Broadway o.fl.
Skráning fer fram á heimasíði Rey Cup sem er www.reycup.com í síma 588 9900
og í tölvupósti reycup@reycup.com
Afsláttarverðgildirfyrir þá sem tilkynna þátttöku fyrir 15. maí n.k.
www.reycup.com
cm k $
Kim Magnús og Hrafnhildur
Islandsmeistarar í skvassi
Kim Magnús Nielsen varð í gær íslandsmeistari í skvassi. Þetta var tíunda
árið í röö sem hann vinnur þennan titil. Það var Heimir Helgason sem varö
fyrir baröinu á Kim Magnúsi í úrslitaleiknum, sem hinn síöarnefndi vann 3-1.
Hjá konunum varö Hrafnhildur Hreinsdóttir íslandsmeistari þegar hún vann
Rósu Jónsdóttur í úrslitunum 3-0. Hér aö ofan eru þau Kim Magnús og
Hrafnhildur meö verðlaun sín sem nýkrýndir íslandsmeistarar t skvassi.
DV-mynd KÖ
Kevin Grandberg er
að veröa íslendingur
Kanadamaöurinn Kevin Grandberg sem lék með Stjömunni i vetur í
Epson-deildinni í körfuknattleik mun fá íslenskan ríkisborgararétt inn-
an tíðar. Alþingi er að taka málið fyrir þessa dagana en Grandberg er á
lista yfir fimm útlendinga sem allsherjarnefnd mælir með að veittur
verði ríkisborgararéttur. Það er hefð fyrir því aö þeir sem allsherjar-
nefnd mælir með fái ríkisborgararétt undcmtekningarlaust.
Ljóst er að Grandberg veröur eftirsóttur af liðum hér gangi þetta í
gegn. DV-Sport hefur þó heimildir fyrir því aö hann ætli að leita fyrir sér
erlendis. -Ben