Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Blaðsíða 12
26 MÁNUDAGUR 29. APRlL 2002 Rafpóstur: dvsport@dv.is Hafdís semur við GOG Handknattleikskonan Hafdís Hinriks- dóttir úr FH hefur samið við danska lið- ið GOG og mun leika með liðinu næsta tímabil. „Félagið hafði samband við mig og í kjölfarið fór ég út og æfði með liðinu. Þeir buðu mér síðan samning sem ég er að skoða núna og nánast öruggt að ég slái til. GOG er frábært lið sem varð í þriðja sæti í Danmörku í vetur og mér líst mjög vel á allt Scunan. Ég geri bara árssamning til að byrja með en ef mér líkar vera mín þarna næsta vetur verður samningurinn væntanlega framlengd- ur,“ sagði Hafdís sem skoraði 59 mörk fyrir lið FH í vetur. -Ben Valur á eftir Guðríði Samkvæmt heimildum DV- Sports þá eru allar líkur á því að Guðriður Guðjónsdótt- ir verði næsti þjálfari kvennaliðs Vals í hand- knattleik. Viðræður hafa staðið yfir á milli stjórnar Vals og Guðríðar að und- anfornu. Guðriður á glæsilegan feril að baki sem leikmaður hjá Fram og hefur einnig verið sigursæl sem þjálfari í Safamýrinni og gerði t.d. Fram að bikarmeisturum síð- ast árið 1995. -Ben Verölaunahafar í Freyjuglímunni sem fram fór um heigina. Taliö frá vinstri: Svana Jóhannsdóttir GFD (2. sæti), Inga Geröa Pétursdóttir HSP (1. sæti) og Hildigunnur Káradóttir HSÞ (3. sæti). DV-mynd KÖ Hilmar aftur í Gróttu/KR - Grótta/KR einnig í viðræðum við Pál Þórólfsson Grótta/KR hefur endurheimt Hilmar Þórlindsson frá Ítalíu og mun hann leika með sinum fyrrum félögum næsta tímabil. Ásgeir Jóns- son, stjómarmaður handknattleiks- deildarinnar, staðfesti þetta um helgina. Þá er allt útlit fyrir enn meiri liðsstyrk á næstunni og eiga sér stað viðræður við Pál Þórólfs- son, sem leikið hefur með Aftureld- ingu síðustu ár. Það er ljóst að Grótta/KR ætlar sér stóra hluti á næstu leiktíð. „Hilmar kemur núna 6. maí og spilar með okkur næsta tímabil. ítalska liðið vildi ekki kaupa hann af okkur og við vildum leigja hann áfram. Við höldum nánast öllum okkar mönnum áfram en þeir Atli Samúelsson og Kristján Þorsteins- son eru að fara yfir sín mál en þeir eru að spá í að hætta. Þeirra mál komast á hreint í sumar. Þá ætlum við að styrkja okkur enn frekar og erum ákveðnir í því að vera með stærri og breiðari hóp en við vorum með í vetur. Við höf- um talað við Pál Þórólfsson og einnig fleiri leikmenn en ég get ekki gefið upp hverjir það eru að svo stöddu,“ sagði Ásgeir. -Ben Spenna í NBA Mikil spenna ríkir nú í NBA- deildinni í körfuknattleik. Úrslita- keppnin er í fullum gangi og hefur ekkert lið tryggt sig áfram í aðra umferð. Sacramento Kings, sem var með besta vinningshlutfall allra liða í deildinni, hefur lent í óvæntu basli með gömlu refma í Utah Jazz og New Jersey Nets, sem var með besta árangur allra liða í austurdeildinni, hefúr átt í verulegum vandræðum með Indiana Pacers. New Jersey-lndiana 2-1 New Jersey Nets er komið i 2-1 í einvíginu gegn Indiana Pacers eftir sigur á útivelli á fóstudaginn, 85-84. Endir leiksins var magnað- ur því Reggie Miller kom Indiana yflr, 84-82, þegar nokkrar sekúnd- ur voru eftir með þriggja stiga körfu. Leikmenn New Jersey héldu í sókn og bakvörðurinn Kerry Kittles tryggði þeim dýr- mætan sigur með þriggja stiga körfu á síðustu sekúndu leiksins. Jason Kidd skoraði 24 stig og gaf 11 stoðsendingar fyrir New Jersey, Kenyon Maartin skoraði 21 stig og Keith Van Horn skoraði 14 stig og tók 12 fráköst. Reggie Mill- er skoraði 30 stig fyrir Indiana, Jermaine O’Neal skoraði 12 stig og tók 8 fráköst og Ron Artest skoraði 11 stig. Charlotte-Orlando 2-1 Charlotte Homets er komið í 2-1 gegn Orlando Magic eftir sigur á útivelli á laugardaginn, 110-100, eftir framlengingu. Baron Davis átti frábæran leik í liði Charlotte og náði þrefaldri tvennu, skoraði 33 stig, tók 14 frá- köst og gaf 10 stoðsendingar. PJ Brown skoraði 17 stig og tók 8 frá- köst og Jamaal Magloire skoraði 15 stig og tók 10 fráköst. Tracy McGrady skoraði 37 stig fyrir Or- lando og Darrell Armstrong skor- aði 21 stig. Sacramento-Utah 2-1 Sacramento Kings hefur náð forystu, 2-1, í einvíginu gegn Utah Jazz eftir nauman sigur í Salt Lake City, 90-87, á laugardaginn. Mike Bibby skoraði 26 stig fyrir Sacramento, Peja Stojakovic skor- aði 21 stig og tók 11 fráköst og Chris Webber skoraði 18 stig og tók 13 fráköst. Karl Malone skor- aði 23 stig fyrir Utah, Donyell Marshall skoraði 16 stig og John Stockton skoraöi 15 stig. Detroit-Toronto 2-1 Toronto Raptors er enn með í baráttunni eftir sigur á Detroit Pi- stons, 94-84, á laugardaginn. Stað- an í einvíginu er nú, 2-1, fyrir Detroit. Antonio Davis skoraði 30 stig og tók 8 fráköst fyrir Toronto, Keon Clark skoraði 18 stig og Alvin Williams skoraði 17 stig. Chucky Atkins skoraði 21 stig fyrir Detroit og Corliss Williamson skoraði 14 stig og tók 11 fráköst. Jerry Stack- house, helsti sóknarmaður Detroit, náði sér ekki á strik í leiknum og skoraði aðeins 11 stig. San Antonio-Seattle 2-1 San Antonio Spurs er komið í 2-1 í einvíginu gegn Seattle Super- sonics eftir stórsigur, 102-75, á laugardaginn. Tim Duncan skoraði 27 stig og tók 13 fráköst í liöi San Antonio, Tony Parker skoraði 23 stig og Antonio Daniels skoraöi 15 stig. Gary Payton skoraði 20 stig, tók 7 fráköst og gaf 6 stoösendingar fyrir Seattle og Vin Baker skor- aði 10 stig. -ósk Ingibergur Sigurösson hefur sigurlaunin í Íslandsglímunni á loft. Meö honum á myndinni eru Ólafur Oddur Sigurösson og Lárus Kjartansson en þeir höfnuöu í ööru og þriöja sæti. DV-mynd: Einar J íslands- og Freyjuglíman fóru fram um helgina: - Ingibergur Sigurösson í sérflokki á meöal glímumanna Ingibergur Sigurðsson, glímu- maður úr UV, tryggði sér um helg- ina sigur í Íslandsglímunni sjöunda árið í röð en hún fór að þessu sinni fram í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Ingibergur hafði mikla yfirburði og vann allar sínar fimm glímur. Ólafur Oddur Sigurðsson úr HSK hafnaði í öðru sæti en hann vann fjórar glímur af fimm og tapaði að- eins fyrir Ingibergi. Félagi Ólafs í HSK, Lárus Kjartansson, endaði í þriðja sæti með 2,5 vinninga og Amgeir Friðriksson úr HSÞ var í fjórða sæti með tvo vinninga. Inga tók Freyjuglímuna Inga Gerða Pétursdóttir, glímu- kona úr HSÞ, vaim Freyjuglímuna, sem fór fram í íþróttahúsinu við Strandgötu um helgina. Inga Gerða vann með nokkrum yfirburðum, fékk sjö vinninga, en næst kom Svana Jóhannsdóttir úr GFD með 5+1 vinning. Hildigunnur Káradóttir úr HSÞhafhaði síöan í þriðja sæti með 5 vinninga. Þetta er i annað sinn sem Inga Gerða vinnur Freyjuglimuna en hún vann einnig árið 2000 og var síðan ekki með í fyrra. -ósk Víkingar vilja Ragnar DV-Sport hefur áreiðan- legar heimild- ir fyrir því að Víkingar hafi leitað til Ragnars Her- mannssonar um að taka við kvennalið- inu af Stefáni Amarsyni fyrir næsta vetur. Ragnar er staddur erlendis þessa dagana en mun gefa Víkingum svar strax eftir helgi. -Ben Fylkir með næsta vetur Fylkir í Árbænum mun tefla fram liði í 1. deild kvenna næstu leiktíð. Fylkir hefur innan sinna raða margar ungar og efnilegar stelpur sem leikið hafa með yngri landsliðum íslands. Gunnar Magnússon sem þjálfað hefur liðið í vetur mun halda áfram og hefur verið gengið frá samningi við hann. Nokkur lið sóttust eftir starfskröftum Gunn- ars en hann ætlar að halda áfram að byggja upp lið í Árbænum enda hráefnið til staðar. -Ben

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.