Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2002, Qupperneq 8
22
MÁNUDAGUR 29. APRÍL 2002
Sport
Leikmaður helgarinnar: Laurent Robert, Newcastle
Ragnar Óskarsson skoraði funra
mörk fyrir lið sitt Dunkerque þegar
það vann Toulouse, 27-26, í frönsku 1.
deildinni í handknattleik um helgina.
Gunnar Berg Viktorsson skoraði
fimm mörk fyrir lið sitt Paris St.
Germain þegar það bar sigurorð af
Ivry, 26-25, í frönsku 1. deildinni í
handknattleik um helgina.
Forráðamenn enska knattspymufé-
lagsins Halifax hafa sagt upp samn-
ingum allra leikmanna liðsins nema
eins eftir að í ljós kom að félagið leik-
ur ekki í deildakeppninni á næsta
ári. Sá eini sem er á samning er mið-
vörðurinn Matt Clarke en það er
eingöngu vegna þess að menn gera
sér vonir um að selja hann til Black-
pool.
fíisli Jón Magnússon varð í gær
Danmerkurmeistari í þungavikt í
júdó þegar hann sigraði Mogens
Eiensbohr í úrslitaglímunni með
tveimur yugo á móti einu. Glíman
var hörkuspennandi og stóð í fullar
funm mínútur. Jón Ágúst Brynleifs-
son keppti einnig á mótinu en tapaði
báðum glimum sínum.
Fjólmörg íslandsmet voru sett á ís-
landsmeistaramótinu í kraftlyfting-
um sem fram fór í sýningarsal Bif-
reiða- og landbúnaðarvéla í gær. Jó-
hanna Eyvindsdóttir bætti öll met í
90 kg flokki auk þess sem Auðunn
Jónsson bætti mörg met í +125 kg
flokki.
Jóhanna Eyvindsdóttir bætti öll ís-
landsmetin í 90 kg flokki. Fyrst bætti
hún hnébeygjumetið í 165, svo tví-
bætti hún bekkpressumetiö í 100 kg
flokki og svo tvíbætti hún réttstöðu-
lyftumetið. Lyfti fyrst 170 kg og svo
182.5 kg. Þá þríbætti hún samanlagða
metið í flokknum og endaði á glæsi-
legu samanlögðu meti, 447,5 kg.
í karlaflokki setti Auðunn Jónsson
mörg met í +125 kg flokki. Hann byrj-
aði á að bæta met Jóns B. Reynisson-
ar úr 402,5 kg í 407,5 kg. Síðan bætti
hann met sama manns í bekkpress-
unni um 500 g og lyfti 263 kg. Þá bætti
hann samanlagða metið í flokknum
1017.5 kg, sem Hjalti Ámason setti
1991 upp í 1030 kg, sem er mesta
þyngd sem íslendingur hefúr lyft.
Helgi Kolvidsson iék allan leikinn
fyrir FC Kámten sem vann Admira
Wacker 3-1 í austurrísku úrvalsdeild-
inni í knattspymu í gær. Það var
Maric sem skoraði öll mörk Kárnten
sem komst með sigrinum upp í fjórða
sæti deUdarinnar.
Guöjón Valur Sigurösson skoraði
fjögur mörk og Patrekur Jóhannes-
son tvö þegar Essen tapaði 28-27 fyr-
ir Eisenach á útiveUi í þýsku úrvals-
deUdinni í handknattleik í gær.
Lið Gústafs Bjarnasonar, Minden,
tapaði einnig í gær, fyrir Gummers-
bach 30-32. Gústaf gerði tvö mörk í
leiknum.
Rúnar Alexandersson varð áttundi í
fjölþraut á Evrópumeistaramótinu í
fimleikum sem fram fer nú um helg-
ina. Rúnar hlaut aUs 53,124 stig en
sigurvegarinn, Dan Potra frá Rúmen-
íu, var meö 55,710 stig. Þetta verður
að teljast mjög góður árangur hjá
Rúnari sem einnig komst í úrslit á
bogahesti og keppir á honum síðar í
dag. Rúnar var einmitt með besta ár-
angurinn á bogahesti af þeim 22 sem
kepptu tU úrslita í fjölþrautinni í dag.
Lið ÍS varó bikarmeistari í blaki
karla í gær og er þetta fjórða árið í
röð sem Stúdentar vinna bikarinn en
Uðið er einnig íslandsmeistari. ÍS
vann Þrótt Reykjavik í úrslitaleik i
Austurbergi, 3-1. Þróttur vann fyrstu
hrinuna 25-22 en Stúdentar unnu
þrjár næstu, 25-21, 25-19 og 25-23 og
unnu þar með bikarmeistaratitUinn.
ÍS hefur þar meö unnið tvöfalt í
blaki karla þrjú síðustu árin og er
meðal annars taplaust í bikarkeppn-
inni á þessari öld en ekkert félag hef-
ur náð að vinna bikarinn fjögur ár í
röð likt og IS hefur gert 1999-2002.
Spcenska liöiö Ciudad Real, það hið
sama sem Ólafur Stefánsson gengur
tU eftir næsta tímabU, varð í gær Evr-
ópumeistari bikarhafa í handbolta
þrátt fyrir fimm marka tap gegn
Flensburg, 32-27, í Þýskalandi í síðari
leik liðanna. Ciudad vann fyrri leik-
inn 31-22 og sigraði því samanlagt
með 4 marka mun.
Danska liöiö Skjern hrósaði sigri í
áskorendakeppni Evrópu þegar liðið
vann upp sjö marka forskot Pelister
Bitola frá Makedóníu með 17 marka
stórsigri, 34-17, í síðari úrslitaleik lið-
anna. Skjem er fyrsta danska félags-
liðið sem vinnur EvróputitU.
-ósk/ÓÓJ
Veigamikill hlekkur
Franski sóknarmaðurinn
Laurent Robert kom til Newcastle
frá Paris St. Germain síðastliðið
sumar fyrir 9,5 milljónir punda eða
1,4 milljarða íslenskra króna. Ro-
bert var mjög eftirsóttur og haföi
Newcastle betur i kapphlaupinu
um hann eftir harða baráttu við
mörg stórlið.
Robert hefur leikið vel í vetur og
átt stóran þátt í upprisu Newcastle
undir stjóm gamla refsins Bobby
Robson.
Robert er gífurlega fljótur og út-
sjónarsamur og auk þess sem hann
hefur skorað átta mörk í ensku úr-
valsdeildinni hefur hann lagt upp
fjöldann allan af mörkum fyrir AI-
an Shearer, helsta markahrók liðs-
ins.
Robert
hóf feril
sinn í
frönsku
1. deild-
inni hjá
Mont-
pellier
árið 1994
og lék
þar til
ársins 1999 þegar hann gekk tU liðs
við Paris St. Germain. Sama ár lék
hann sinn fyrsta landsleik fyrir
Laurent Robert
Fæddur: 21.05 1973.
Fæðingarstaður: Saint-
Benoit, La Reunion í
Frakklandi.
Hæð: 173 cm.
Þyngd: 68 kg.
Lið: Newcastle.
Landsleikir/mörk: 9/1
Frakka, gegn N-írum í Belfast.
Robert átti frábæran leik mec
Newcastle gegn West Ham um helg
ina. Hann átti stóran þátt í fyrsti
tveimur mörkum liðsins og skorað:
síðan þriðja markið af miklu harð
fylgi.
Robert er leikmaður sem á eftii
að vera í lykilhlutverki hjí
Newcastle næstu árin þegar liðif
gerir atlögu að toppsætinu í enski
úrvalsdeUdinni.
Bobby Robson, knattspymustjór:
liðsins, hefur mikið álit á Robert og
segir að sú upphæð sem borguð vai
fyrir hann hafl verið gjafverð.
-ósk
Hermann Hreiöarsson, varnarmaður Ipswich, og Ole Gunnar Solskjær, sóknarmaður Manchester United, berjast hér um boltann í leik liöanna á laugardag.
Ipswich er í slæmum málum og þarf á kraftaverki að halda til að foröast fall í 1. deild. Reuters
Misjafnt gengi toppliöanna í ensku úrvalsdeildinni:
Liverpool úr leik
- Alex Ferguson treystir á að Bolton sigri Arsenal í kvöld
Liverpool er að öUum likindum
úr leik í baráttunni um enska meist-
aratitUinn eftir tap gegn Tottenham
á laugardagsmorguninn.
Liverpool, sem á tvo leiki eftir, er
nú fjórum stigum á eftir Arsenal en
hefur leikið einum leik fleira.
Ekki búiö
Gerard HouUier, knattspymu-
stjóri Liverpool, er þó ekki búinn að
gefa upp aUa von.
„Það getur aUt gerst í knattspym-
unni. Dagurinn í dag var ekki okk-
ar en ég get ekki kennt mínum
mönnum um það. Þeir börðust eins
og ljón aUan leikinn og hefðu átt
skUið meira. Mér fannst við eiga
skUið að fara með tveggja marka
forystu i hálfleik en menn verða að
nýta færin sem þeir fá tU að vinna
leiki. Þetta er búið að vera frábært
tímabU og ég er virkUega stoltur af
mínum leikmönnum," sagði HouUi-
er eftir leikinn og bætti við að hann
hefði trú á því að liðið myndi koma
sterkt tU baka í síðustu tveimur
leikjunum.
Treystir á Bolton
Manchester United eygir enn
mögiUeika á titlinum eftir sigur á
Ipswich á laugardaginn. Sigurmark-
ið kom eftir að HoUendingurinn
Ruud Van Nistelrooy fiskaði heldur
vafasama vítaspymu á lokaminútu
fyrri hálfleiks.
Manchester United er nú tveimur
stigum á eftir Arsenal sem á einn
leik tU góða og vonast Alex Fergu-
son tU að fá hjálp frá Bolton í kvöld
en þá taka Guðni Bergsson og félag-
ar hans hjá Bolton á móti Arsenal.
„Arsenal á leik á mánudaginn (í
kvöld) gegn Bolton á útiveUi og það
getur aUt gerst. Við þurftum á
heppni að halda gegn Ipswich, við
þurftum á sterkum einstaklingum
að halda og ég er mjög sáttur við
sigur okkar þrátt fyrh- að ég eigi
erfítt með að ímynda mér að
Arsenal fari að klikka núna. Ég
þekki þó knattspyrnustjóra Bolton,
Sam Allardyce, og veit að hann mun
sjá tU þess að sínir menn leggi sig
alla fram. Ég treysti á að Bolton
komi á óvart og taki stig af Arsenal
og þá geta menn farið að búa sig
undir einn af stærstu leikjum sög-
unnar þegar við tökum á móti
Arsenal á Old Trafford," sagði Alex
Ferguson eftir leikinn gegn Ipswich.
Sálfræðistríð
Ferguson hefur beitt sálfræðUeg-
um þrýstingi á Arsene Wenger,
knattspyrnustjóra Arsenal, að und-
anfornu tU að koma honum og leik-
mönnum hans úr jafnvægi. Hann
hefur talað um hversu gott Arsenal-
liðið sé og varla sé möguleiki á að
það misstígi sig.
Wenger segist bera mikla virð-
ingu fyrir Ferguson en að hann
muni jafnframt láta öU ummæli
hans um Arsenal sem vind um eyru
þjóta. Wenger hefur þó ekkert verið
að fela þá skoðun sína að Arsenal sé
með besta lið deUdarinnar.
-ósk