Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Side 4
Fréttir
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002
J3V
Kjúklingaskortur í
verslunum borgarinnar
- eftirspurn hefur aukist, segir Kristinn Gylfi Jónsson á Móiun. Bændur spá vaxandi framleiðslu í sumar
Kjúklingaframleiöendur hafa
lent í miklum hremmingum und-
anfarin misseri. Matvara sem nýt-
ur vaxandi eftirspumar nær varla
að fylla kælana i stórmörkuðum.
Kaupmenn og kúnnar þeirra
kvarta. Jarðskjálftarnir á Suður-
landi sumarið 2000 eru partur af
óhappaferli í kjúklingarækt. Þeir
urðu til þess að Reykjagarður,
langstærsta kjúklingabú landsins,
varð fyrir búsifjum. Afraksturinn
af stofhinum varð slakur i kjölfar-
ið. En fleira fylgdi á eftir, bann við
innflutningi frjóeggja til landsins
vegna Newcastle-veiki í hænsfugli
i Svíþjóð - og þegar banni var
aflétt kom upp gin- og klaufa-
veikifaraldur sem tafði enn fyrir
framleiðslunni.
„Það er skelfilegt að geta ekki
boðið kjúkling nema endrum og
eins, svo vinsæll sem hann er.
Þannig er ástandið núna og hefur
verið talsverðan tíma,“ sagði Guð-
mundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónus-búðanna, í
gærkvöld. Skortur á kjúklinga-
kjöti kemur einmitt þegar mikil og
vaxandi eftirspurn er eftir vör-
unni. Bónus og fleiri verslanir
hafa oft boðið sérstök tilboð á
kjúklingum þegar toppar hafa ver-
ið á framleiðslunni. Nú er því ekki
fyrir að fara. Þá sést frosinn
kjúklingur ekki lengur, aðeins
ferskur.
Kristinn Gylfi Jónsson við-
Stóraukln eftirspurn
Kjuklingabændur stefna ab því ab
stórauka frambob á kjúklingi
á næstunni.
skiptafræðingur sem rekur m.a.
fuglabúið að Móum á Kjalarnesi
sagði í gærkvöld að kjúklinga-
framleiðslan hefði gengið í gegn-
um ótrúlega erfiðleika.
„En það skemmtilega er að núna
er framboð okkar ekki minna en
það hefúr verið - en eftirspumin
hefrn- stóraukist. Það er ekki
leyndarmál að ætlunin var að stór-
auka framleiðslu á kjúklingakjöti
en það tókst ekki um sinn. En
kjúklingurinn kemur, sannaðu
tÚ,“ sagði Kristinn Gylfi.
„Það stefnir núna hraðbyri í að
framboðið vaxi á ný,“ sagði Geir
Gunnar Geirsson á Vallá í gær-
kvöld en bú hans selur vöruna i
Bónusbúðunum. -JBP
DV-MYND HARl
Olíuboranlr vlð Geldinganes?
Afþessari mynd ab dæma er engu
líkara en olíuboranir séu ab hefjast
milli Reykjavíkur og Geldinganess.
Þetta mannvirki hefur í þab minnsta
vakib athygli margra sem hafa litib
út á sjó í bjartvibrinu sem var á
subvesturhorninu fyrir helgi. Hinn
meinti borpallur er þó ekkert meira
en einhvers konar vísir ab bryggju
enda litla olíu ab fmna á þessum
slóbum.
Athugun heilbrigðisráðuneytis og landlæknis:
Notkun sterkra
verkjalyfja eykst ört
Notkun morfíns og annarra sterkra
verkjalyfja hefur farið ört vaxandi á síð-
asta áratug, samkvæmt upplýsingum
frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neyti og landlækni. Þannig hefúr notk-
un morfins farið jafiit og þétt vaxandi á
tímabilinu. Þar er einkum um að ræða
lyfið Contalgin.
Notkun kódeíns í blöndum, svo sem
íbukód sterkar, Panacod og Parkótín
forte hefur farið ört vaxandi, en virðist
þó örlítið hafa slaknað síðustu árin.
Notkun lyfseðilsskyldra lyfja sem
innihalda kódeín, svo sem Kódímagnyl,
Parkódín og Parakód, hefur farið mjög
minnkandi eftir 1995 en notkun sömu
lyíja í þeim pakkningastærðum sem eru
undanþegnar lyfseðilsskyldu, svo sem
parkódín og parakód, bæði töflur og stil-
ar, hefur farið ört vaxandi.
Nýtt á markaði er fentanýl í
plástraformi. Norkun þess fer nokkuð
ört vaxandi. Lyfið tramadól kom á
markað 1994 og hefur notkun þess
einnig farið mjög vaxandi. Notkun
methýlfenídats tók að aukast mjög eftir
1955 og virðist ekkert lát á þeirri þróun.
Öll eru þessi lyf eftirritunarskyld nema
tramadól. -JSS
Landburður af fiski á Flateyri:
Sumir tvíhlaða í sama róðri
- fimm tonna bátur með 100 tonn á steinbítsvertíð
DV-MYND GS
Aflamaðurinn
HaraldurÁmi Haraldsson, skipstjóri og útgerbarmaöur,
hefur verib fengsæll á steinbítinn á Vestfjarbamiðum.
„Það er mjög gott fiskirí héma fyrir
vestan,“ sagði Haraldur Ámi Haralds-
son, útgerðarmaður og skipstjóri á Mar-
gréti ÍS 42 frá Flateyri, þar sem hann
var að landa nær fuilum báti annan dag-
inn í röð á laugardag. Afli Margrétar,
sem er fimm tonna plastbátur,
reyndist vera sjö og hálft tonn
en daginn áður landaði hann
átta og hálfu tonni.
Afar góð aflabrögð hafa ver-
ið hjá trillunum á Flateyri það
sem af er steinbítsvertíðinni
og hefur iðulega komið fyrir
að bátamir gætu ekki dregið
alla línu sína þar sem of mik-
ill afli hefur verið á henni til
að koma honum í bátana.
Sumir hafa því tvihlaðið báta
sina í sama róðrinum.
„Ég er búinn að fiska 100
tonn frá því að steinbítsver-
tíðin byrjaði í mars. Það er
fiskur um allt, sama hvort verið er á
línu eða handfærum. Það var einn bát-
ur hjá mér að byija á færunum í dag og
hann var með rúmlega þijú tonn eftir
daginn, einn maður á,“ segir hann.
Haraldur gerir út sex smábáta og eru
þeir ýmist á þorskaflahámarki eða i
dagakerfinu þar sem einungis má róa 23
daga á ári. „Maður verður sifellt að laga
bátana að þeim reglum sem era hverju
sinni. Núna er ég að láta smíða nýjan
Sómabát fyrir mig hjá Bátasmiðju Guð-
mundar í Hafnarfirði. Þeir bátar henta
langbest í dagakerfið. Það verður að
nýta tímann til veiða og vera fljótur á
miðin og í land aftur því allur sá tími
dregst frá þessum 23 dögum. Þessi nýi
bátur hefur þann kost að komast á yfir 20
sjómílna hraða, jaftivel þótt komin séu í
hann liðlega þijú tonn af fiski," segir
þessi ungi athafiiamaður sem er að bæta
sjöunda bátnum við flota sinn. -GS
Jóga fyrir stirða og
stressaða karlmenn
Viltu sofa betur?
Losa um vöðvabólguna?
Eiga auðveldara með að slaka á?
Þá er þetta 4 vikna námskeið fyrir þig.
8. maí til 5. júní.
Kennari: Guðjón Bergmann. Verð: 9.900
Jóga hjá Guðjóni Bergmann, Ármúla 38, 3. hæð
Sími: 690-1818 Tölvupóstur: gbergmann@strik.is
www.gbergmann.is
Líkamsárás í
Breiðholtinu
Ráðist var á karlmann á sextugs-
aldri aðfaranótt sunnudags við
Gerðuberg i Breiðholti. Árásarmað-
urinn var 15 ára gamall piltur. Ekki
er vitað hver ástæða árásarinnar
var en að sögn lögreglunnar var
ekki um rán að ræða. Pilturinn var
handsamaður af lögreglunni en
maðurinn sem hann réðst á var
fluttur ökklabrotinn á slysadeild.
Lögreglan flutti piltinn á meðferðar-
heimilið á Stuðlum þar sem ekki
náðist í foreldra hans þar sem ekki
er leyfílegt að handtaka ólögráða
unglinga. -snæ
Bílvelta
í Reyðarfirði
Betur fór en á horfðist þegar
fólksbíli valt í gær viö sunnanverð-
an Reyðarfjörð. Ökumaður, sem var
einn í bílnum, var á leið frá Reyöar-
firði til Fáskrúösfjarðar þegar hann
velti bilnum móts við Hafnames og
endaði bíllinn á toppnum. Ökumað-
urinn slapp lítiö meiddur en fólks-
bíllinn er talsvert skemmdur. -snæ
—' ........."
Framsókn á Hornafirði:
Varamaður
í sæti oddvita
Framsóknar-
menn á Homa-
firði hafa kynnt
framboðslista
sinn og þar er
Elín Magnús-
dóttir fótaað-
gerðafræðingur í
fyrsta sæti,
Reynir Amarson
sjómaður er ann-
ar á listanum og
Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustu-
bóndi þriðji.
Önnur sæti listans skipa: 4. Frið-
rik Þór Ingvaldsson, 5. Þóra Vil-
borg Jónsdóttir, 6. Aðalheiður
Fanney Björnsdóttir, 7. Margrét
Ingólfsdóttir, 8. Gunnar Ingi Val-
geirsson, 9. Gunnar Öm Reynis-
son, 10. Elísabet Einarsdóttir, 11.
Reynir Gunnarsson, 12. Olga Frið-
jónsdóttir, 13. Sigurlaug Gissurar-
dóttir og í heiðurssæti listans er
Hermann Hansson. -Jl
Elín
Magnúsdóttir.
Mjölskip
strandaði í
Grindavíkurhöfn
Mjölskipið Svanur strandaði í
innsiglingu Grindavíkurhafnar að-
faranótt laugardagsins. Skipið var
á leið út frá Grindavík þar sem ný-
búið var að lesta það með 1260
tonnum af loðnumjöli. Sterkur
hliðarvindur var á skipið sem olli
því að það rak upp í vesturkant
innsiglingarinnar og sat þar fast.
Betur fór þó en á horfðist þvi drátt-
arbát tókst að draga skipið aftur á
flot eftir aðeins 10 mínútur og lagð- "
ist það aftur að bryggju við höfn-
ina I Grindavík. Kafari var sendur
niður til þess að kanna skemmdir
en þær voru á við kattarklór, að
sögn starfsmanns við Hafharvigt-
ina i Grindavík, engar beyglur og
stýri og skrúfa í góðu lagi. Skipið
beið því rólegt eftir næsta flóði og
lagði út um kaffileytið á laugardag.
-snæ
Réttindalaus
í bíltúr
Piltur án ökuréttinda skellti sér
í bíltúr á Húsavík aðfaranótt
sunnudagsins. Drengurinn, sem
enn hefur ekki náð aldri til þess að
bera ökuskírteini, var ekki bara
undir áhrifum áfengis þegar hann
rúntaði um bæinn heldur stal p
hann einnig ökutækinu. Ekki
komst hann þó langt áður en hann 1
var stöðvaður af lögreglunni.
-snæ