Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Side 28
Stefnuskrá R-listans:
Engin heild-
artala nefnd
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri segir að Reykjavíkurlistinn hafi
ekki slegið tölu á heildarkostnaðinn af
stefnuskrá sinni með sama hætti og
frambjóðendur hans hafa nefnt tölur
um heildarkostnað af stefiiu Sjálfstæð-
isflokksins.
„Tölumar eru hins vegar allar í
þriggja ára áætlun borgarinnar, hún
liggur fyrir, þar er okkar stefiiumörk-
un,“ segir borgarstjóri og segir að til
viðbótar þessum kostnaði felist í
stefiiuskránni útgjöld upp á um það bil
2,5 milljarða.
í yfirheyrslu í DV í dag segir Ingi-
björg Sólrún m.a. að fráleitt sé að bera
saman biðlista leikskólanna nú og þeg-
ar R-listinn kom til valda. Þeir einu
sem hafi getað skráð sig á biðlista eftir
heilsdagsvistun þegar sjálfstæðismenn
skildu við hafi verið einstæðir foreldr-
ar og námsmenn. „Þeir biðlistar voru
bara bull, bara fals, og sögðu ekkert um
það hver þörfin var fyrir þessa þjón-
ustu,“ segir borgarstjóri. -ÓTG
Sjá yfirheyrslu bls. 6
Smárabíói
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
var kallað að Smárabíói í gærkvöld til
þess að slökkva eld sem kviknaði í
poppkomsvél biósins. Um 750 bíógest-
ir voru í bíóinu þegar eldurinn kom
upp. Þegar slökkviliðið kom á staðinn
höfðu vaktmenn á svæðinu náð að
slökkva eldinn í poppvélinni og voru
byrjaðir að rýma bæði bióið sem og
aðra hluti hússins.
Mikinn reyk lagði bæði inn í bíó-
sali og Vetrargarðinn og að sögn Con-
standin Mikaels Mikaelsonar, rekstr-
arstjóra Smárabíós, var bíógestum að
vonum mjög brugðið við þessa uppá-
komu en þeir fá að sjálfsögðu miðana
sina endurgreidda. Slökkviliðið
reykræsti húsið en aðalskemmdimar
eru vatnsskemmdir en sjálfvirkt slök-
kvikerfi bíósins fór í gang þegar reyk-
skynjarar létu í sér heyra. Stefnt er að
því að opna bíóið í dag klukkan hálf-
Veður vikunnar:
Hlýindi af suðri
í dag má búast við 10-15
sekúndumetrum af suðri og
suðvestri og víða skúrum.
Veður verður hægara og létt-
skýjað norðaustan tfl. Hiti 5 til 13 stig
og þá hlýjast austanlands. Á þriðjudag
og miðvikudag má búast við 5 til 10
metram á sekúndu af suðri og suð-
vestri. Léttskýjað verður á Austur-
landi. Hiti verður 7 til 13 stig, hlýjast
austanlands. Þegar kemur fram á
fimmtudag og undir vikulok verður
fremur hæg breytileg átt, skýjað með
köflum og úrkomulítið. Þá daga verð-
ur hiti á bilinu 5 til 10 stig.
47 AF STÖPINNI!
Eldur í
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
Allianz©
- Loforð er loforð
MANUDAGUR 6. MAI 2002
DVJHYND HH
Eldur í poppvél
Allt er gott sem endar vel segir máltækiö og þaö átti svo sannarlega við í Smárabíói í gær þegar eldur kviknaöi í poppvél. Mikill viöbúnaöur var í bíóinu og var
allt tiltækt slökkvilið kallaö á staöinn. Um 750 gestir voru í bíóinu sem var rýmt en auk þess voru um 300 manns á veitingastööum í Vetrargaröinum. Engin
slys uröu á fólki og tókst slökkvistarf vel en nokkurt tjón varö vegna vatnsskemmda.
I
Stórhertar öryggiskröfur við komu utanríkisráðherra NATO og samstarfsríkjanna:
Lögga en ekki leigubílstjóri
undir stýri hjá ráðherrunum 47
Leigubílstjórar í Reykjavík eru
ekki allir ánægðir með þá þróun
mála að lögreglumenn munu annast
um akstur utanríkisráðherranna 46
sem hingað eru væntanlegir í byrj-
un næstu viku. Frami, stéttarfélag
leigubilstjóra, ritaði utanríkisráðu-
neytinu bréf þar sem óskað var
skýringa. Ráðuneytið hefur svarað
og útskýrt hvers vegna lögreglan er
fengin til aksturs ráðherranna.
Stjóm Frama mun koma saman á
morgun og ræða málið.
1 bréfi utanríkisráðuneytisins
kemur í ljós að lögreglan mun bera
ábyrgð á öryggi ráðherranna meðan
þeir dvelja á íslandi. Ríkislögreglu-
stjóri fór fram á að lögreglumenn
yrðu undir stýri í bílunum sem
flytja ráðherrana á milli staða, en
bílarnir eru BMW-glæsibifreiðir
sem B&L hefur flutt inn í tilefni
vorfundar utanríkisráðherra NATO
og samstarfsríkjanna. Þá bíla mun
lögreglan fá til að aka ráöherrun-
um.
Auðunn Atlason sendiráðsritari
DVWYND HARI
Skotheldur fyrir NATO-ráðherra
Þessi glæsibifreiö þolir sitt af hverju, skothelt farartæki sem lögreglumaöur
mun stjórna. Bifreiöar og landbúnaöarvélar flytja inn 30 BMW-bíla vegna vor-
fundarins og útvegar 16 glæsibíla til viöbótar.
sagði í gær að hingað væri von á
um þúsund gestum í tilefni fundar-
ins sem stendur 13. til 15. maí.
„Það sem verið er að gera með
þvi að láta lögregluna aka bílunum
er tvennt. Aðalatriðið er að auka ör-
yggið, lögreglan ber ábyrgð á öryggi
ráðherranna, og lögreglumaður í
bílnum er ekki aðeins ökumaður
heldur jafnframt öryggisvörður við-
komandi ráðherra. Verið er að gera
auknar kröfur um öryggi, sem rekja
má til atburðanna sem urðu 11.
september. Auk þess næst fram um-
talsverður spamaður með þessari
tilhögun,“ sagði Auðunn.
Auðunn sagði að mikinn fjölda af
bílum þyrfti til að annast um gest-
ina, þeir kæmu meðal annars frá
sendiráðum i borginni. Auk þess
mundu leigubílstjórar sinna akstri
og án efa hafa mikið að gera dagana
sem fundurinn stendur. Utanríkis-
ráðuneytið hefur þannig gert samn-
ing um leigu á 50 leigubílum fyrir
allar sendinefndir þátttökuríkja.
-JBP
Ráðuneytismaður með 90 þúsund á mánuði fyrir aukavinnu:
Eins og bókhaldari á bílaverkstæði
Hákon Sigurgrímsson, deildcU-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu,
fær rétt um 90 þúsund króna
greiðslu í hverjum mánuði frá
Áformum - átaksverkefni um sölu
íslenskra landbúnaðarafurða und-
ir merkjum hreinleika og hollustu.
Verkefnið er starfrækt af landbún-
aðarráðuneytinu og fjármagnað úr
ríkissjóði. Laun óbreyttra stjóm-
armanna í verkefninu, sem til-
nefndir eru af Bændasamtökun-
um, Samtökum bænda í lífrænni
ræktun og umhverfisráðuneyti,
eru 23.215 krónur á mánuði. For-
maðurinn, Haukur Halldórsson,
sem er tilnefndur af ráðuneyti land-
búnaðarmála, fær tæpar 70 þúsund
krónur í laun mánaðarlega.
Hákon Sigurgrímsson hefur
starfaö sem ritari verkefnisins og
laun hans er sú tala sem að fram-
an greinir. „Æi, eru vinir mínir í
Bændahöllinni nú að koma þessu
af stað,“ sagði Hákon Sigurgríms-
son í samtali við DV þegar blaðið
innti hann skýringa á þessum
greiðslum. Hákon var um áralangt
skeiö framkvæmdastjóri Stéttar-
sambands bænda en þegar það var
lagt niður fyrir sjö árum var hann
á lausum kili um nokkurt skeið.
Kveðst hann þá hafa tekið að sér
störf ritara Átaks, það er að halda
utan um fjárreiður og pappíra
verkefnisins. Síðar hafi hann farið
til starfa í landbúnaðarráðuneyt-
inu, en engu að síður haldið þessu
starfl. Það hafl verið gert með
fullu samþykki ráðandi manna
þar.
„Ég hef unnið þetta alveg fyrir
utan minn vinnutíma í ráðuneyt-
inu. Þetta er líkt því að ég myndi
til dæmis sjá um bókhald fyrir
bílaverkstæði úti í bæ,“ sagði Há-
kon. Hann telur ástæðu þess að
málið er komið í umræðuna nú
vera hefnd sér á hendur í refskák
í æðstu stjóm landbúnaðarmál-
anna. -sbs
Brother PT-2450 merkivélin er
Mögnuövét
sem, með þinnl hjálp,
hefur hlutina (röð
og reglu.
Snjöll og góð lausn á
óreglunni.
Rafporf
Nýbýlavegi 14 • s(mi 554 4443 •
BFRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALOREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert
I fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
| greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
I er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555