Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Side 7
sýna fjölbreytni í sjónvarpi. „Hjartsláttur í strætó" sam-
anstendur af minnihlutahópum samfélagsins þar sem
ég er femínisti, Maríkó er blendingur og pródúsentinn
okkar er hommi ... Það vantar bara grænmetisætu í
hópinn,“ segir Þóra Karítas ánægð.
CAMAN í SKÓla
I vetur hafa stelpumar báðar verið í háskólanámi.
Maríkó var í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík
og hefur séð um að kenna nemendum Versló þýsku og
stærðfræði í aukakennslu. Þóra var fram að jólum í guð-
ffæðinámi og starfaði fyrir UNIFEM. Eftir áramótin var
hún öflug með Stúdentaleikhúsinu auk þess að vera að
skrifa B.A.-ritgerð um anorexíu og trú, og þýða á ís-
lensku norska bók sem gefin verður út í september. „Það
er gaman að vera í skóla. Eg vildi óska að maður gæti
notað þetta líf til þess að læra og næsta líf til þess að
vinna,“ segir Þóra Karítas sem er greinilega með allt of
mörg jám í eldinum.
„Mig langar til þess að læra leiklist og vinna við það í
nokkur ár. En um leið langar mig líka að læra svo margt
annað. fCannski byrja ég bara á leiklistinni en síðan væri
ég til í að vinna fyrir einhver mannréttindasamtök eða
verða prestur,“ segir Þóra Karítas hugsi.
„Þótt ég sé í viðskiptafræði núna þá er það ekkert
langþráður draumur hjá mér að verða einhver viðskipta-
fræðingur en ég tel að þetta nám muni gagnast mér vel
í öllu því sem ég tek mér fyrir hendur í framtfðinni,“
segir Marikó spurð um sín framtíðarplön og bætir við að
hún eigi ömgglega eftir að læra eitthvað meira.“ Eg hef
mikinn áhuga á þvt að vera meira í Asíu og jafnvel læra
kínversku í framtíðinni," segir Maríkó en hún var síð-
asta sumar í skóla í Japan að læra að skrifa málið. „Eg
gæti líka vel séð mig fyrir mér sem kennara,“ segir
Maríkó sem er komin af mikilli kennarafjölskyldu.
Ætlarðu svo ekki að giftast Ama?
Maríkó bara roðnar við þessa spurningu, en eins og
flestir vita þá er Maríkó í sambúð með Áma Þór Vigfús-
syni, sjónvarpsstjóra á Skjá einum, en það er greinilegt
að tilhugsunin er henni ekkert á móti skapi. Hvað hjú-
skaparstöðu Þóm Karítasar varðar er svarið hins vegar
eitthvað loðið eða eins og hún sjálf orðaði það: „Næsta
spuming, takk!“
Hvað sumarið sjálft varðar þá ætla þær stöllur ekki að
gera mikið annað en vinna við þáttinn en það er aldrei
að vita nema þær skelli sér á þjóðhátíðina í Vestmanna'
eyjum og á Skátamót á Akureyri á strætónum.
„Og svo verðum við bara þar sem eitthvað er um að
vera, svo hringið endilega í okkur og bjóðið okkur á stað-
inn,“ segir Þóra að lokum og Maríkó tekur undir: „VB
mætum á allt sem vekur hjartslátt."
Guðný Hrund Sigurðardóttir er ein af 13 útskriftarnemum Ljós-
myndaskóla Sissu þetta vorið. Dagsdaglega vinnur hún við það að
sortera tímarit í Eymundssyni Kringlunni en dreymir um frekara
Ijósmyndanám í Svíþjóð og hefur gripið til örþrifaráða til þess að
gera þann draum að veruleika.
Blautar Ijosmyndir
„Þeir ætluðu ekkert að hleypa mér inn í skólann og voru eigin-
lega búnir að segja nei við mig en þegar ég mætti til þeirra um
páskana og sýndi mig og myndimar mínar þá skiptu þeir um
skoðun, svo ég fæ að byrja í haust,“ segir Guðný Hrund um til-
raunir sínar við að fá inni í ljósmyndanámi í Lundi í Svíþjóð. „Eg
sagði þeim líka að ég væri á sænskunámskeiði hér á Islandi sem er
nú ekki alveg satt. Ætli ég verði ekki að fara að fara niður í Nor-
ræna hús, leigja mér einhverjar spólur og reyna að bæta sænsku-
kunnáttuna," segir Guðný sem er greinilega með bein í nefinu og
er ekkert á þvf að gefa sig ef það er eitthvað sem hún hefur hug á
að gera.
Kunni ekki að setja filmu í
Guðný Hrund er tvítugur vesturbæingur sem dagsdaglega
vinnur í verslun Eymundsson í Kringlunni. Hún útskrifaðist frá
MR í fyrravor og ákvað þá að skella sér í ljósmyndanám hjá Sissu.
„Ég fékk þessa hugmynd í gegnum vinnu mína í Eymundsson
er þar sé ég um tímaritin. Eg hef unnið þar í þrjú ár og er náttúr-
lega alltaf að skoða glanstímaritin," segir Guðný sem hafði aldrei
komið nálægt ljósmyndun áður en hún fór að læra hjá Sissu.
„Nei, ég hafði varla snert ljósmyndavél að undanskilinni pol-
aroidvél systur minnar. Ég kunni ekki einu sinni að setja filmu í
þegar ég byrjaði í náminu," segir Guðný Hrund sem er heldur bet-
ur komin með ljósmyndabakteríuna því að loknu eins árs námi í
Lundi stefnir hún á þriggja ára ljósmyndanám í Gautaborg.
Les bara barnabækur
Eitthvað hefúr Guðný Hrund lært í vetur hjá Sissu því á út-
skriftarsýningunni vöktu blautar myndir hennar sérstaka athygli
gesta en þær voru settar fram á nýstárlegan hátt. Þemað í mynd-
unum er vatn og hafði hún plastað eitthvað af þeim og stungið í
vasa fulla af vatni og einnig látið þær fylla út í botninn á fiska-
búri úr plexigleri. Á flestum myndunum má sjá fimm vinkonur
hennar sprella í sundi. „Eg er opin fyrir öllum tilboðum," segir
Guðný sem er greinilega ánægð með útskriftarverkefnið og bætir
við:
„Mér finnst skemmtilegast að mynda stemningu. Ég er ekki
hrifin af uppstilltum myndum. Þessar myndir eru allar teknar í
Neslauginni en ég fer þangað svo til daglega, bara til að stíga á
vigtina og fara í pottinn."
Það er varla hægt að sleppa Guðnýju án þess að spyrja hana út
í það hvaða lestrarefhi hún mæli með í Eymundsson og svarið er
þetta: „Ég les aðallega bamabækur þvf þær eru svo skemmtileg-
ar og lausar við þunglyndi. Eftirlætisbækurnar mínar eru Mói
hrekkjusvín og Blíðfinnur. Hvað tímaritin varðar held ég mest
upp á ID, ítalska Vouge og franska Photo“.
Áð hennar sögn eru það þó bresku slúðurblöðin Hello og Now
sem virðast vera hvað mest keypt hjá henni auk Marie Clarie.
„Konur yfir fertugt elska að lesa um bresku konungsfjölskylduna,"
upplýsir Guðný Hrund, stolt af snyrtilegum tímaritarekkanum.
Guðný Hrund með fiskabúrið góða sem vakið
hefur mikla athygli á útskriftarsýningu Ljós-
myndaskóla Sissu.
Myndir Guðnýj-
ar eru glettnar
og gáskafultar
en hún hafði
aldrei snert
Ijósmyndavél
áður en hún fór
ískólann hjá
Sissu.
Anna Ósk Löwe er atferlisfræðingur sem
skrifar um málefni líðandi stundar í Fókus.
J
Vinsældakosning
morgundagsins
Einhver leiðinlegasti dagur
ársins rennur upp á morgun. Þá
göngum við að kjörborðinu og
veljum okkur nýjar bæjar-
stjómir.
I sveitarstjómarkosningum
snúast kosningamar sjaldnast
um málefnin heldur fyrst og
fremst um persónumar sem í
ffamboði eru. Ég nenni þess
vegna ekkert að pæla í málefn-
unum og kýs því bara eftir því
hverjir mér finnast vera
skemmtilegir og vel útlítandi. —
Og nú ætla ég að deila skoðun-
um mínum á nokkrum fram-
bjóðendum í Reykjavfk með
ykkur lesendum.
Ingibjörg Sólrún er fín kerl-
ing. Yfirleitt vel til fara og ber
framandi skartgripi sem henni
hafa líklega áskotnast á ferðum
um Affíku. Hún er samt frekar
þurr á manninn og hefur enn
þá dálítið Kvennalistayfirbragð
yfir sér, sem er slæmt. Þess
vegna minnir hún mig einna
helst á ljónynju. Ber sig vel og
veiðir í hópum ásamt hinum
konunum. ElNKUNN: 6
Bjöm Bjamason er líka ágæt-
ur. Lftur út eins og api í jakka-
fötum en ber það vel. Hann
kemur líka ágætlega fyrir, virð-
ist meira að segja vita um hvað
hann er tala (sem er kostur hjá
stjómmálamanni) en hann
vantar þennan hroka sem heið-
bláir leiðtogar þurfa að bera.
ElNKUNN: 6
Litlu strákamir f slagnum eru
skemmtilegastir. Þeir Gísli
Marteinn og Dagur B. hafa báð-
ir ákveðna útgeislun sem leiðir
til þess að ég þarf að skipta um
nærbuxur þegar ég sé þá. Gísli
lfkist helst litlum hundi. Sætur
en bítur hressilega frá sér þegar
þannig ber undir. Dagur á aftur
á móti meira skylt með köttum.
Hárprúður og sakleysislegur en
hefur samt eitthvert leyndar-
dómsfullt og lævíst yfirbragð.
BÁÐIR FÁ ÞEIR 9 í EINKUNN.
Guðlaugur Þór minnir mig
mest á páfagauk. Endurtekur
allt sem honum hefur verið
kennt í Valhöll af mikilli list og
brosir svo framan f viðmælend-
ur sína lfkt og hann sé sá eini
sem hefur rétt fyrir sér. Sem
sagt frekar slappur en brosmild-
ur. ElNKUNN: 5,5
Stefán Jón hefúr sjarma, það
má hann eiga. Þvottavélin hef-
ur sem sagt ekki við að þvo af
mér nærfatnaðinn þegar hann
er á skjánum en hann er þó
ekki algóður. Hýenan lýsir hon-
um kannski best. Stekkur á flest
sem býðst og rífur það í sig með
látum. Hýenur eru samt ljótar
og veiða í hópum en á þó alls
ekki við Stefán. Lúkkið hjálpar
honum f einkunnagjöfinni og
ÞESS VECNA FÆR HANN 7.
Boðskapur: Vonandi hugsa
fæstir eins og ég. - Annars gætu
Frikki Weis eða Fjölnir Þorgeirs
sest f borgarstjórastólinn.
Kournikova sú kynþokka-
FYLLSTA
Hið virta karlatímarit FHM fær árlega
lesendur sfna til að velja kynþokkafyllstu
kvenmenn heims og birtir svo lista yfir
100 efstu. í ár mun það vera hin 21 árs
gamla rússneska tennisstjarna Anna
Kournikova sem trónir á toppnum. Hún
tekur gífurlegt stökk upp á við því í fyrra
var hún einungis í 32. sæti. Nú nýverið
komst hún í heimsfréttirnar á ný þegar
Penthouse birti myndir af henni nakinni
og kærði hún klámblaðið í kjölfarið og
vann. Ljósmyndari og fyrirmenn Pent-
house hafa viðurkennt „mistök" sín. Ým-
issa grasa kennir á þessum lista, meðal
annars að hin kryddlausa Geri Halliwell
situr í 100. sæti listans.
Leitað að þátttakendum í
Strætóleikinn.
Þátturinn “Hjartsláttur í strætó" á
SkjáEinum leitar nú logandi Ijósi að fólki
sem vill taka þátt í Strætóleiknum en sá
leikur er útlistaður nánar hér í blaðinu í
viðtalinu við Þóru Karítas og Marfkó.
Þátttakendur þurfa að vera eldri en 18
ára. Áhugasamir geta sent umsóknir á
hjartslatt@sl.is fyrir 28. maí.
Umsækjendur verða að senda inn 1-2 mín.
videosketch þar sem þeir gera eitthvað
sem heillar þáttastjórnendur og vekur
áhuga þeirra á viðkomandi. Ef fólk hefur
ekki tök á þvf að taka upp er möguleiki á
því að mæta upp á Skjá einn og láta taka
1-2 mín. skot af sér.
24. maÍ2002 fókus
7