Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 9
+
íslensku sveitaböllin eru einstakt fyrirbrigði. Á þeim er kynslóðabilið að
engu gert, allir skemmta sér við undirleik misgóðra hljómsveita í mismun-
andi ástandi. Algengir fylgifiskar eru ofurölvun, slagsmál og minnisleysi í
kjölfarið. Það er æðsti draumur margra að standa uppi á sviði á sveitaballi,
skemmta landanum og sigra í árlegri keppni ballsveitanna. Af þeim sökum
fer allur veturinn í æfingar inni í skúr og á menntaskólaböllum. Menn verða
að vera klárir fyrir sumarið, klárir fyrir vertíðina. Miklar breytingar hafa
orðið á landslagi sveitaballamarkaðarins, margir eru hættir og nýir komnir
í þeirra stað. í ár eru Greifarnir og Sálin í fríi en tvær nýjar sveitir hafa bæst
við í staðinn. Fókus spáir í spilin fyrir sumarið.
Dreifarar wr Nýtt lag í útvarpsspilun
ÍSLANDSMEISTARAR Á FERLINUM r Drjúpandi kynþokki
Kombakksveit T Bikarúrslit á Þjóðhátíð
JÚRÓVISJÓNFAR1 UM BORÐ Breytt um ímynd á ferlinum i
Grúppíur m Aðdáendur á fermingaraldi
Reynt FYRIR sér í útlandinu © Frumsamið prógram t
ÖRYRKJAVÆN TÓNLIST Kvenkyns meðlimur
Plata á síðasta ári sf Með „sól“ í nafni
tr $ > ó t *
Á MÓTI SÓL
Strákamir í Á móti sól voru mjög áberandi efitir að þeir gáfu út
plötuna sína fyrir jólin. Hvert lagið á fætur öðru komst í spilun í út-
varpi og á Popptfví og mega drengirnir fyrir vikið búast við því að
verða vinsælir á sveitaböllunum í sumar.
Platan fékk reyndar ekki góða dóma hér í
Fókus en það er ekki spurt að því þegar
dmkkin ungmenni keppast um að syngja
með á böllunum. Á móti sól virðast mikið í
mun að halda stöðu sinni því á dögunum
hrintu þeir í gang átakinu Björgum sveita-
böllunum. Þó þeir verði í toppbaráttu í
Nýliðamir ( Ber eru þegar komnir með vinsælt lag í spilun,
týpiskan slagara sem auðvelt er að læra viðlagið við. Ber er auðvitað
afsprengi frægasta uppgjörs hjá íslenskri hljómsveit síðan Palli Rós-
inkrans sagði skilið við sukkið og hefúr af þeim sökum fengið ágætis
forskot á aðra nýliða. Þau íris og Egill eru þrælsjóuð í bransanum en
hinir meðlimimir em algerlega óskrifað blað.
Það skiptir kannski heldur engu máli enda er
fris fronturinn. Sumarið verður þó erfitt fyrir
Ber og þau verða f harðri fallbaráttu. Það efast
enginn um að þau geta spilað á böllum en það
verður erfitt að halda uppi stemningu á einu
eða tveimur lögum, fólki finnst miklu
skemmtilegra að heyra frumsömdu slagarana
en erlendu kóverlögin.
wr sf <+ t
Buttercup
Buttercup áttaði sig á því fyrir nokkrum
ámm að það væri ekki nóg að Valur væri eini
söngvari sveitarinnar. Það var því nauðsynlegt
að fá strax inn arftaka Irisar þegar hún yfirgaf
bandið. Til starfans var fengin Rakel Sif Sig-
urðardóttir sem áður hafði sungið f nokkrum
Verslósýningum. Buttercup sendi ffá sér plöt-
una Oll ljós kveikt fyrir sfðustu jól og náði að
gera nokkur lög vinsæl. Sveitin var mjög vinsæl síðasta sumar en
virðist ekki líkleg til að blanda sér eins mikið í toppbaráttuna þetta
sumarið. Bæði er kemistrían sem var á milli Vals og írisar augljós-
lega dáin og svo virðast mörg önnur bönd einfaldlega sterkari í sum-
ar. Engu að sfður sterk ballsveit sem fyrr.
wr -1
Englar
Einar Ágúst er mættur aftur á rúntinn,
nú með nýtt band sem skartar meðal ann-
ars syni Grétars Örvarssonar úr Stjóm-
inni. Englar komu fyrst fram á Tónlistar-
verðlaunum FM957 og fluttu lagið Halm
fast. Síðan þá hefur það lag verið f fastri
spilun á Popptíví sem er kannski ekki
skrýtið þegar fólk pælir aðeins f málinu.
Englunum er ekki spáð mikilli velgengni
þetta fyrsta ár þó bandið eigi vissulega sfna möguleika. Lagið þeirra
er ágætt en engan veginn nógu mikill slagari til að bræða hjörtu
unga fólksins. Englamir verða f botnbaráttunni að öllu óbreyttu.
Enn er þó ekki komin mikil reynsla á böll þeirra þannig að það er
vonlaust að útiloka þá alveg. Þeir hafa kynþokkann en þurfa að slfpa
Sumarið 2002 verður sumar írafárs.
Hlutirnir fóru fyrst að ganga hjá
krökkunum eftir að Birgitta Haukdal
gekk í bandið þegar Iris fór yfir f
Buttercup um árið. Fram að þvf hafði
írafár verið óskilgreind hringavit-
leysa. Gmnnurinn að velgengninni
var lagður í fyrrasumar. Þá ungaði
sveitin út nokkrum slögumm sem
enn ganga vel í mannskapinn. Sumarið fer svo sérstaklega vel af
stað með laginu Ég sjálf sem komið er í spilun. Myndbandið við það
lag er hin besta smíð og fær eflaust að lifa í allt sumar nema að Ira-
fár bæti sjálf um betur með öðru lagi. Fókus spáir írafári íslands-
meistaratitlinum í ár. Sveitin verður að vísu í harðri baráttu um tit-
ilinn við Svörtu fötin og kóngana í Landi og sonum en það er kom-
inn tími á íslandsmeistaratitil hjá hljómsveit með kvenmann sem
aðalmann. Svo hjálpar auðvitað að gamli trommarinn úr Skímó er
kominn í bandið. Éf rétt er haldið á málum er írafár í oddastöðu.
Hver veit nema þau spili svo á Þjóðhátíð á næsta ári.
*
Siglufjöröur
Reykjanesbær
Grindavík
ípröur
Njálsbúö
Húsavík
Ydalir
Sauöárkrokur Akureyri
Miögaröur
Akranes
Uthliö
JBiskupstungum
Höfn
Vestmannaeyjar
I SVÖRTUM FÖTUM
Þrátt fyrir að Buttercup hafi verið spáð
titlinum í fyrra voru það nýliðamir I svört-
um fötum sem komu flestum á óvart og
stálu senunni. Strákamir náðu að rífa sig
upp eff ir herfilega plötu sem þeir gáfu út
fyrir jólin 2000 og með lagið Nakinn að
vopni fóru þeir sigurför um landið. Eftir að
Fókus benti þeim á að kynþokkann vantaði í sams konar úttekt í
fyrrasumar tóku þeir sig á og söngvarinn Jónsi er nú einn af þeim
eftirsóttari í bransanum. I svörtum fötum var að klára nýtt lag,
Losti, sem vonast er til að kyndi upp í mannskapnum eins og Nak-
inn í fyrra. Það eina sem enn er gagnrýnt við sveitina er að þeir velji
sér misgóð kóverlög á böllunum, mörgum finnst að þeir ættu að vera
með eilítið ferskara lagaval. Hvað sem því líður verða I svörtum föt-
um í harðri baráttu um titilinn í ár. Fókus spáir að þeim reynist erfitt
að verja titilinn en lendi þess í stað í öðm sæti.
ir T wO « t
Land oc synir
Land og synir eru orðnir stærstir á
sveitaballamarkaðnum. Þeir áttu sumarið
2000 eins og það lagði sig og í fyrra voru
þeir kóngar þar sem þeir fóru. Sveitin er
orðin það stór að hún þarf ekki að harka
eins mikið og aðrir og fyrir vikið lét hún
eftir toppsætið í fyrra. Það sama er uppi á
teningnum í ár enda L&S farin að banka talsvert á dyr heimsfrægð-
arinnar. Nýtt lag, If, er komið í spilun og hefur verið lagt mikið f
myndbandið. Lagið er greinilega ætlað fyrir erlendan markað enda er
nettur Bon Jovi-keimur af því og myndbandið er í stíl við það sem
Enrique Iglesias hefur verið að gera. Strákamir verða í toppbarátt-
unni en láta minni spámönnum eftir titilinn eins og áður segir.
w* m «• Ó t *
SÓLDÖGG
Strákamir í Sóldögg eru búnir að festa
sig nokkuð vel í sessi í deildinni. Þeir hafa
þó aldrei blandað sér í toppbaráttuna og
gera það ekki í ár. Nýja lagið þeirra er orð-
ið nokkuð vinsælt en þar em áhrifin ffá
Creed mjög áberandi. Það verður að teljast
fúrðulegt að íslensk hljómsveit skuli vera
að stæla Creed en íslenskar sveitaballasveitir hafa svo sem verið
svolítið í þvf að apa upp eftir misgóðum erlendum rokksveitum. Sól-
dögg líður svolítið fyrir vöntun á kynþokka þó þeir fari ekki varhluta
af áhuga yngstu kynslóðarinnar á poppstjömum. Stóri plúsinn er
stemningin á böllum sem klikkar aldrei. Strákamir kunna að
skemmta, en herslumuninn vantar til að fleyta þeim í hæstu hæðir.
f TwO^- At^
Stuðmenn
Flestir em sammála um að Stuðmenn séu hljómsveit sem ætti fyr-
ir löngu að vera farin að spila í deild
Old Boys. Því verður þó ekki neitað að
Stuðmenn kunna enn að spila á böll-
um og em reyndar manna bestir í því
þegar þeim tekst vel til. Fólk þekkir
íögin og syngur með en hinu er ekki
að neita að ekkert markvert hefur
gerst hjá bandinu í fjöldamörg ár.
Stuðmenn ættu þó að geta mjólkað
beljuna um ókomin ár því þó Fókus
spái þeim falli í ár er það staðreynd að ef menn em á annað borð
komnir inn geta þeir haldið áfram nokkurn veginn eins lengi og
þeir vilja.
T T A t dfr
SSSÓL
Helgi Bjömsson er á svipuðu reki og Stuðmenn, búinn að vera
endalaust í bransanum og ganga í gegnum allar útlits- og fmyndar-
breytingar sem því fylgir. Helgi er líklega skýrasta dæmið um að
menn geta tollað endalaust inni ef þeir vilja því SSSól í dag er alls
ekki sama bandið og það var f eina tíð. Nú eru þetta strákar úr Ens-
ími, Skímó og Nasistamellunum sem plokka hljóðfærin meðan
Helgi þeysist um sviðið. SSSól get-
ur þó enn búið til gott ball en er að
mörgu leyti á niðurleið, að minnsta
kosti í samanburði við margar af
yngri sveitunum. Helgi og félagar
em nefhilega ekki í þessu á fullu,
þeir grípa bara í eitt og eitt ball á
meðan hinir stunda þetta af kappi.
Og þar liggur munurinn. Fyrir vik-
ið eru þeir í fallsæti í ár.
Islonds-—
meistarar
sfSustu
ára
2002 ????
2001 í svörtum fötum
2000 Land og synir
1999 Sálin
1998 Skítamórall
1997 Skítamórall
1996 Greifarnir
1995 GCD
1994 Vinir vors og
blóma
1993 Todmobile/
Jet Black Joe
1992 Ný dönsk
1991 Sálin
1990 SSSól
UIIl
1. írafár
2. í svörtum fötum
3. Land og synir
4. Á móti sói
5- Buttercup
6. Sóldögg
7. Ber
8. Engiar
9- Stuðmenn
io. SSSói
24. maÍ2002
24. maf2oo2 f ó k u s
+