Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2002, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2002, Blaðsíða 7
Síðasta ár hefur verið viðburðaríkt hjá Ouarashi. Hljómsveitin kláraði plötuna Jinx sem kom út í Bandaríkjunum á dögunum og er nú á tónleikaferðalagi þar í landi. Þetta ár hefur að sama skapi verið viðburðaríkt fyrir nýjasta meðlim Ouarashi. Ómar Örn Hauksson dundaði sér við að búa til teikni- myndasögur og safna alls kyns drasli heima á íslandi en nú er hann hvíti rapparinn Swarez sem ferð- ast um öll Bandaríkin og boðar fagnaðarerindi Ouarashi-liða. Maður er bara kjötflikki íaugum krakkanna „Þetta tónleikaferðalag hefur ekki verið laust við óhöpp hjá okkur. Snillingurinn hann Steini tognaði á báðum fótum og spilaði í hjólastól þegar við vorum í Washington DC á dög- unum. Það voru stærstu tónleikamir okkar til þessa, Eminem var að heddlæna og það voru 35.000 manns þegar við spiluð- um. Þetta gekk samt ótrúlega vel þótt Steini sé búinn að skakklappast eins og Ólíver Twist á hækjum síðan. Svo meiddist Sölvi (bakinu þegar við vorum að taka upp fyrir þátt Carsons Dalys á NBC, hann datt af stólnum sínum. Þetta er því búinn að vera óhappatúr, sannkallaður Jinx-túr,“ segir Ómar Öm Hauksson þegar hann er fyrst beðinn að lýsa því helsta sem drifið hefur á dagana. Ómar var staddur á hóteli í New York á mánudagskvöldið þegar Fókus ræddi við hann og fram undan var kærkomin afslöppun í nokkra daga. „Yo, WaZup" frá gaurnum í OutKazt Quarashi-liðar fóru út um miðjan maf og hafa því verið á tónleika- ferðalagi í mánuð. Undanfarið hafa þeir spilað á þrennum tónleikum um hverja helgi en átt frí á milli. Ómar segir ferðalagið ekki hafa ver- ið mjög erfitt og þetta undirbúi þá í raun ekki fyrir Warped-tónleika- ferðalagið sem hefst (næstu viku og verður stanslaus keyrsla. „Það erfiðasta við þennan túr er að við fljúgum bókstaflega allt og það er eitt það leiðinlegasta sem maður ger- ir. Við þurfum að vakna um miðjar nætur og stysta flugið tók til dæmis ekki nema kortér. Það var á milli Detroit og Cleveland og þá flugum við yfir eitthvert vatn. Við þurftum að bíða á flugvellinum í meira en klukkutíma fyrir þetta stutta flug en hefðum verið um fimm tíma að keyra þetta. Það verður ekkert þannig vesen á Warped, þá förum við allt í rútu og spilum á hverjum degi í 40 stiga hita.“ Hvað með fræga fólkið, eru Quarashi famir að tjilla með því? Nei, við höfum eiginlega ekki hitt neinn frægan. Að vísu sagði gaurinn úr OutKazt „Yo, Wazup“ við mig í dag. Svo höfúm við verið að spila nokkrum sinnum með Tenacious D sem Jack Black er í. Eg hef ekki enn hitt hann en er búinn að vera að byggja upp þor til að fara upp að honum. Svo sér maður fullt af fólki eins og til dæmis Strokes-nördana en eina liðið sem við höfum eitthvað verið að hanga með er Ash-fólkið,“ segir Ómar, einlægnin uppmáluð. Hann er spurður af hverju þeir séu að hanga með Ash, eru þau ekki rokkarar og þeir rapphljómsveit? „Við hittum þau fyrst á einhverj- um hótelbar og duttum í það með þeim. Síðan fórum við á Casino og þetta endaði í einhverri bölvaðri vitleysu. Svo hafa þau verið að spila mikið til á sömu stöðum og við, annaðhvort á undan okkur eða eftir og þessi evrópsku tengsl hafa virkað ágætlega. Það sést best hvað þetta er allt annar markaður en Evrópa þar sem þau eru mjög vinsæl, að þau eru stundum minna númer en við. Þau eru samt frábær á sviði.“ YFIR 50.000 EINTÖK SELD „Við höfum fengið frekar góðar viðtökur héma úti. Tónleik- amir hafa oftast verið mjög vel sóttir og þegar við höfúm ver- ið snemma á dagskrá eru oft fleiri að horfa þá en síðar um kvöldið.“ Og bíða krakkamir í röðum eftir áritunum? „Það er misjafnt, í Cleveland var til að mynda fáránlega löng röð í að fá áritanir hjá okkur en venjulega er það ekki mjög tímafrekt." Sala á plötunni Jinx hefúr gengið mjög vel og þegar þetta er skrifað hafa um 50.000 eintök selst í Bandaríkjunum en Ómar telur þau vera fleiri þótt það hafi ekki fengist staðfest. „Við vorum að fá mjög góðar tölur frá Japan þar sem 20.000 eintök hafa verið seld. Okkur hafa svo borist óstaðfestar frétt- ir að Stick’em up sé mjög vinsælt ( Ástralíu og það eru bundnar miklar vonir við þann markað.“ JlMMY EAT WORLD MEÐ HOR í NEFINU Tónleikaferðalögum eins og þeirra Quarashi-manna fylgja venjulega skemmtilegar sögur og Ómar er ekki lengi að muna eftir einni slíkri. „1 gær var ég að horfa á Jimmy Eat World í Boston og þá var mér bent á að söngvarinn var með stærðarinnar hor- köggul í nefinu. Það voru stórir skjáir á þessum tónleikum þannig að maður horfði á þennan horköggul í nefinu á hon- um í nærmynd allan tímann," segir hann og bætir við í fimmauragríni að hljómsveitin ætti að heita Jimmy Eat Hor. „Svo er fólkið sem er baksviðs alltaf mjög skrýtið. Héma tekur maður vel eftir grúppíunum þó við höfúm lítið fengið af þeim pakka á okkur. En þetta eru oft fáránlegar píur, strípilufsur og þess háttar. Um daginn vorum við baksviðs þegar Rob Zombie var að spila og þá var þar hópur af strípi- gellum sem fóru fram og gerðu mjög dónalega hluti fyrir framan áhorfendurna! Krakkamir sækja líka mikið í að fá að komast baksviðs og hitta fræga fólkið. Þeir eru alltaf að biðja mann um baksviðs- passana eftir tónleika. Þau kalla jafnveí á mann með skírnar- nafni, fara að spjalla voða kammó við mann og biðja svo um passann. Maður gerir sér alveg grein fyrir því að maður er bara kjötflikki í þeirra augum hérna úti!“ Þó flestallt hafi gengið að óskum, ef áðurnefnd óhöpp eru frátalin, segir Ómar þá oft eiga erfitt með að venjast hugsun- arhættinum og vinnulagi Bandaríkjamanna. „Það hefur alveg komið skýrt í ljós héma úti að við kunnum ekki nógu vel á „The American Way“, hvemig hlutimir ganga fyrír sig hér. Heima er viðhorfið þannig að allt reddast fyrir rest en það bara virkar ekki hér. Það er auðvitað mikið um ýmis stéttafélög (skemmtanaiðnaðinum hér og þegar við vor- um að taka upp fyrir Carson Daly var þvílíkt vesen að fá að skipta um staðsetningu fyrir gítar- og bassamagnarana. Það eru nefnilega svo mikil læti í Smára á sviði að nálin hoppar oft á spilaranum hjá Galdri og því vildum við færa hann til. Þetta var heldur betur meira en að segja það því það þurfti að halda fund um málið áður en þetta var gert. Svo tók það ein- hvem gaur hálftíma að stafla þremur kössum á sviðinu. Heima gera menn bara hlutina og maður á frekar erfitt að koma sér inn í þennan hugsunarhátt." OUARASHI EKKI INN HJÁ „KEEPING IT REAL“-LIÐINU Ómar Öm Hauksson er Breiðhyltingur, gettóbam eins og hann segir sjálfur. Á sínum yngri árum var hann hálftýndur í tónlistinni, ef svo má segja, þv( í fyrstu hlustaði hann á dauðarokk. „Eg var í dauðarokkhljómsveitinni Den Danske D0de sem margir könnuðust við en fáir sáu. Það var ansi töff að geta sagt að maður væri í dauðarokkssveit og planið hjá hljómsveitinni var að spila danskt dauðarokk. Við spiluðum samt bara einu sinni, á tónleikum með Strigaskónum í Undirheimum FB.“ Eins og svo margir aðrir fór Ómar úr dauðarokkinu yfir í grunge-ið þegar það tröllreið öllu, hlustaði á Pearl Jam, Soundgarden og allt það. „Svo heyrði ég í Anthrax og Public Enemy og fannst það ógeðslega töff. Síðan kom Ice Cube og þá varð eiginlega ekki aftur snúið, maður klippti af sér hárið og hætti þessu rugli." Ómar segist hafa verið að dútla í nokkrum misgóðum rapp- hljómsveitum eftir það. Hann tók þátt í Músíktilraunum með Tríói Óla skans og náði öðru sætinu. „Við gerðum það sem síðan hefúr sýnt sig að er skotheld leið til að ná langt í Músíktilraunum, fluttum framsækna tónlist og sungum á ís- lensku. Við vorum ógeðslega lélegir á undanúrslitakvöldinu en komumst áfram í gegnum dómnefndina. Á úrslitakvöld- inu gekk þetta betur og við náðum öðru sætinu og unnum tíma í stúd- íói. Eftir þetta kynntumst við Erpi og Eyjó og stofnuðum Supasyndical og þá notuðum við stúdíótímana, tók- um upp fjögur lög sem heppnuðust að vísu ekki nógu vel en fóru engu að síður ( spilun á Skratz. Þetta var samt frekar stutt gaman og þetta dæmi dó frekar hægum dauðdaga. Á þessum tíma var Sölvi að biðja mig um að koma í Quarashi en ég sagði nei við hann enda hélt ég að Supasyndical væri málið. Eg rappaði samt í einu lagi á Egginu (fyrstu stóru plötu Quarashi) og var dissað- ur fyrir það af vinum mínum, enda hefur Quarashi aldrei verið vel liðin af „keeping it real“-liðinu í íslensku hip hoppi. Svo rappaði ég (tveimur lögum á Xeneizes og var eftir það með annan fótinn í Quarashi þar til árið 2000 þegar ég kom á fúllu inn í sveitina." Hendir helst engu Omar hefúr það orð á sér að vera safhari af guðs náð og hann viður- kennir það fúslega. Hann segist til dæmis geyma alla passa og hót- ellykla sem hann fær á ferðalögum sínum með Quarashi en auk þess safnar hann myndasögum, DVD- myndum og Godzilla-dóti, svo eitt- hvað sé nefnt. „Ég hendi helst engum sköpuðum hlut. Þegar ég var krakki lét ég und- an þrýstingi og eyðilagði alltaf dótið mitt og til að vinna það upp hendi ég varla pakkningunum í dág. Vanda- málið er að ég hef alltaf minna og minna pláss fyrir draslið sem ég safna og nú er ég með það í geymslu á þremur stöðum úti í bæ. Ég var einmitt að kaupa íbúð um daginn og hún er þegar alltof lítil fyrir allt draslið mitt.“ En hvað segir fólk við þessu, kærastan til dæmis? „Hún er að vissu leyti sátt, alla vega ef þetta fer ekki út í öfgar, sem þetta er að vísu löngu komið út (.“ Engir peningar eins og er Quarashi-menn halda áfram tónleikaferðalagi sínu næstu vikur og mánuði. Eins og áður segir hefst Warped-túrinn í næstu viku og þar leika þeir upp á hvern dag fram í miðjan ágúst. Eftir það fara þeir til Japan þar sem þeir spila á tvenn- um tónleikum og á öðrum þeirra spila hinir ævafomu Guns ‘n Roses líka. Þá tekur við átta daga ferðalag á Ástralíu og svo fá þeir stutt frí. Því næst eru tónleikar í London og smá frí áður en fyrsti Evróputúrinn tekur við. Strákarnir í Quarashi em sem sagt fúllbókaðir fram í desember. Verðið þið moldrikir á þessu? „Nei, við fáum ekki neitt fyrir það sem við erum gera núna. Við fórnuðum laununum fyrir að fá bassaleikara með okkur á túrinn til að Kfga upp á sjóið. Það eru engir peningar í þessu eins og er, okkur var boðið í þetta tónleikaferðalag til að kynna plötuna okkar og það hefur virkað því alls staðar sem við höfúm farið heíúr salan hækkað. Seinna meir getum við fengið tekjur af því að selja boli og fleira þannig en það verð- ur eina innkoman okkar. Við höfúm til dæmis oft verið spurð- ir um boli á þessu tónleikaferðalagi og ættum því að geta selt eitthvað af þeim á Warped-ferðalaginu.“ Það virðist allt vera á réttri leið hjá rappstrákunum ffá Is- landi og Ómar segist vera sáttur. Áhugasamir geta fylgst með ferðum strákanna á heimasíðu þeirra, www.quarashi.net, og á ýmsum aðdáendasíðum þeirra, svo sem www.quarashi.tk. texti: Höskuldur Daði Magnússon fókusmynd: Hari I4.júní2002 fókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.