Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2002, Blaðsíða 19
19
FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002
DV Tilvera
lí f iö
F 1 I R V I N N U
• T ónleikar
■Stvrktartónleikar____fvrlr__Evu
Blörk Elríksdóttur
í kvöld verða haldnir stórtónleikar með
nokkrum af helstu poppsveitum landsins á
Gauki á Stöng. Tilefnið er að afla fjár til Evu
Bjarkar Eiriksdóttur sem hefur átt við
langvarandi veikindi að striöa vegna sykursýki
á háu stigi. Hún mun innan skamms fara til
Svíþjóðar í nýrnaskiptiaðgerð og því er þetta
verðugur máistaður að styrkja. Meðal þeirra
sem fram koma í kvöld er Buttercup, írafár, á
mótl sól, Gelr Ólafsson ásamt Furstunum en
kynnir veöur Slgurður G. Tómasson. Húsið
oþnar kl. 21 og kostar 1000 krónur inn.
•Krár
■Pl Sólev á Priklnu
Þaö er engin önnur en Dj Sóley Kristjánsdóttlr
sem verðurvið þlötuspilarana á Prikinu I kvöld.
Dansað verður við taktfasta tóna fram á kvöld
eins og vant er þegar Sóiey er í góðu stuði.
■Þyrnirós spilar á Sportkaffi
Það er hljómsveitin Þyrnirós sem heldur uppi
stemningunni á Sportkaffi í kvöld.
■Tommi White á Vegamótum
Það verður fjör á Vegamótum í kvöld en þaö er
plötusnúðurinn og tónlistarmaðurinn Tommi
White sem verður í búrinu. Hann mun leika
fallega tóna eitthvað fram eftir kvöldi.
•Sýningar
■Myndllstarsýning Öldu Brynju
í gær var oþnuð myndlistarsýning sem ber
heitiö Út í veður og vind en þar sýnir
myndlistarkonan Alda Brynja afrakstur síðustu
ára. Verkin sem prýða sýninguna samanstanda
af alls konar verkum sem hafa safnast upp hjá
listamanninum síðustu 4 árin en sýningin er
einnig haldin á nokkuð sérstökum stað eða á
heimili listakonunnar í kjallaranum að
Reynimel 43. Sýningin verður opin fram á
föstudag frá kl. 17-20.
■Helgl og Kristinn í 18
Þeir Helgl Þorgils Friðjónsson og Kristinn G.
Harðarson opna sýningu á verkum sinum í i8 i
dag klukkan 17. Til sýnis verða vatnslitaverk
og útsaumaðar myndir eftir Kristin G. Harðar-
son og leirskúlptúrar eftir Helga Þorgils Friö-
jónsson. Aö auki verður til sýnis myndbands-
verk sem listamennirnir unnu i sameiningu
ásamt söngvaranum Sverri Guðjónssyni sér-
staklega fyrir sýninguna. Verkið heitir Aftur-
göngur og er að formgerð eins konar brúðuleik-
húsópera i fjórum þáttum sem verður til i leik-
herbergi barna. Öll umgerðin er brúðuleikhús,
s.s. leikmunir, persónur og umhverfi og textinn
er frumsaminn bræðingur með aðfengnum
textabrotum. i8 er opið þriöjudaga til laugar-
daga frá kl. 13 til,Í7 og stendur sýningin til 12.
október.
ISýnLnXá.Akureyri
Um helgina voru opnaðar myndlistarsýningar í
Deiglunni á Akureyri. Meðal þeirra er sýningin
Öld vatnsberans - minni konunnar en lista-
maðurinn er Benedikt Sigurðsson Lafleur.
Öllum er velkomið að líta inn og skoða verkin
en sýningin hefur hlotið talsvert lof.
■Verk Jóhannesar Jóhannessonar í
Listhúsi Ófeigs
Um helgina var opnuð sýningin Úr fórum geng-
ins listamanns þar sem verk Jóhannesar Jó-
hannessonar (1921-1998), vatnslitamyndir,
þastelmyndir og teikningar, eru til sýnis. Jó-
hannes nam gull- og silfursmíöi hjá Guðlaugi
Magnússyni og lauk sveinsþrófi 1945.1 fram-
haldi af því sótti hann nám í myndlist til Banda-
rikjanna, Frakklands, Rúmeníu og seinna til
Danmerkur og Kína. Jóhannes var frumkvöðull
að nýsköpun í íslenskri gull- og silfursmíði. Frá
árinu 1973 helgaði hann starf sitt eingöngu
myndlist.
Lárétt: 1 glampa,
4 geð, 7 nú,
8 karlmannsnafn,
10 tæp, 12 brún,
13 ágeng, 14 harma,
15 gagn, 16 fljótu,
18 vaða, 21 kjaftæði,
22 félaga, þrátta.
Lóðrétt: 11 gegnsæ,
2 reykja, 3 tilhlaupið,
4 íþróttagrein, 5 naut,
6 úrskurð, 9 árstið,
11 orðrómur, 16 liðug,
17 kærleikur,
19 þykkni, 20 hraða.
Lausn neðst á síöunni.
Hvítur á leik!
Við vorum 3 íslendingamir sem
tefldum á opnu alþjóðlegu skákmóti í
Vlissingen, Hollandi. Viö stóðum okk-
ur ekki nógu vel, Jón Garðar hlaut
5,5 v. af 9, Sævar Bjamason hlaut 5 v.
og Gylfi Þórhallsson fékk 4 v. Jón
Garðar var þama nýkominn af al-
þjóðlegu skákmóti í Amsterdam þar
sem hann náði sínum lokaáfanga að
alþjóðlegum meistaratitli. En hann
þarf þó að hækka um 10 alþjóðleg
Umsjón: Sævar Bjarnason
FIDE- stig áður en titillinn er í hendi.
Lokastaðan á mótinu varð annars
þessi: 1.-2. Nijboer (2567) og Gyimesi
(2580) 7,5 v. 3.-7. Tiviakov (2628),
Tregubov (2599), Glek (2590),
Ikonnikov (2527) og Iordachescu
(2555) 7 v.
Hvítt: Jón G. Viðarsson (2378)
Svart: P. Pouw
Biskupsleikur.
Vlissingen, Hollandi (8), 10.8. 2002
1. e4 e5 2. Bc4 Rc6 3. c3 Rf6 4.
De2 Be7 5. d3 0-0 6. Bg5 Ra5 7. Rd2
Rxc4 8. Rxc4 d6 9. Re3 He8 10. g4
Be6 11. Df3 Rd7 12. Bxe7 Dxe7 13.
h4 c6 14. Re2 d5 15. Rf5 Bxf5 16.
gxf5 d4 17. Hgl dxc3 18. bxc3 Had8
19. Hdl f6 20. h5 h6 21. De3 Kh8
22. f3 c5 23. Kf2 Df7 24. c4 b6 25.
Hg4 Rf8 26. Hdgl Rh7 27. Hxg7
Dxg7 28. Hxg7 Kxg7 29. f4 exf4 30.
Rxf4 Rg5 31. Re6+ Rxe6 32. fxe6
Hxe6 33. Dg3+ Kf8 (Stöðumyndin)
34. Dg6 Hed6 35. Dxh6+ Kf7 36.
Dg6+ Ke6 37. e5 Kxe5 38. De4+ og
mát! 1-0.
Lausn á krossgátu______________________
•BSB 02 ‘Ai[S 61 ‘}sb LI ‘unj 91 ‘[Bjum n
‘jnjaA 6 ‘uiop 9 ‘uxn e ‘jp[Q)s§ire[ \ ‘Bunuuaj[B g ‘bso z ‘æ[§ i :))9JQOr[
■B)X>j £Z ‘B)Bui ZZ ‘w;us 12 ‘E[SO 8[ ‘UEJJ 9t ‘)ou st
‘B)ns \\ ‘ui)A g[ ‘§§a zi ‘mnBU ot ‘JUAgy 8 ‘xbj)s l ‘pun[ \ ‘bo[§ t :))ajBj
Dagfari
Meö hælsæri
í fyrra hét ég sjálfum mér því í
laumi að ég skyldi sko taka þátt í
Reykjavíkurmaraþoni að ári,
hvað sem það kostaði, og endur-
taka þar með leikinn frá því um
árið þegar ég lenti í þriðja sætinu
í Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar.
Ég var meira að segja staðráð-
inn í að hlaupa heilt maraþon
eins og gríski sendiboðinn gerði
forðum og hefja markvissar æf-
ingar strax og veður leyfði.
Svo leið tíminn og ekkert ból-
aði á góða veðrinu, þannig að
þegar líða tók á vorið fór ég að
efast um heila maraþonið og
ákvað í staðinn að stefna á það
hálfa. Síðan leið vorið án þess að
góða veðrið kæmi og ekki var það
enn komið um mitt sumar. Ég
ákvað því að stefna frekar á tíu
kílómetrana en hafa það hálfa í
bakhöndinni ef úr veðrinu
rættist.
Það má með sanni segja að E1
Nino hafa víða áhrif, því aldrei
kom góða veðrið og aldrei hóf ég
undirbúninginn fyrir Reykjavík-
urmaraþonið. Um síðustu helgi
stóð ég síðan frammi fyrir því að
ákveða hvort ég tæki bara þátt í
skemmtiskokkinu, eða frestaði
endurkomunni í langhlaupin um
heilt ár. Ég valdi fyrri kostinn og
ákvað að taka nokkrar upphit-
unaræflngar á hlaupabrautinni
svona rétt til aö kanna þolið.
En það hefði ég ekki átt að
gera, því nú er ég með það versta
hælsæri sem ég hef nokkru sinni
fengið og verð þvf að sitja heima
með sáran hælinn.
Svona eftir á að hyggja, þá ætti
ég kannski að láta minninguna
um bronsið í Hafnarflrði duga
mér og hætta á toppnum eins og
einhver sagði. Umrætt hlaup var
nefnilega ekki tekið út með sæld-
inni og ég man ekki betur en ég
berðist hetjulegri baráttu með
æluna í hálsinum síðustu metr-
ana. En það var allt f lagi því það
hlupu bara þrír.
Erlingur
Kristensson
blaöamaöur
Myndasögur
£
1
I
Herra Fjárdai er nýr leiðtogi
ejöttu herdeiUar f
Vatnöleysu ...
Pú berð mikla ábyrgð, herra
Fjárdal! - Pú átt að móta ungar
etúlkur og gera pær að
heilsteyptum konum!
5jö þúöund
fyrir kökubox?!!
GÆ LUDYRABUÐ
klukkan
lautuna
HUNDAFLAUTA
Hven vcqna að
pirra nágrann-
ana.
MannseyraB
gre'mlr ekki
hljóðiðl