Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2002, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2002
Tilvera DV
List í Lóuhreiðri
Vilborg Eggertsdóttir myndlistar-
kona er með sýningu á verkum sín-
um í Lóuhreiðrinu, Laugavegi 61, 2.
hæð. Myndimar málar hún með
vatnslitum og olíu. Þetta er þriðja
einkasýning Vilborgar og mun hún
standa til 10. september.
Merk örnefni
„Myndimar mínar tengjast flest-
ar einhverjum merkum örnefnum,"
segir Valdemar Bjarnfreðsson sem
hefur sett upp sýningu að Granda-
vegi 101. Þar eru 15 myndir hans,
smáar og stórar, mest landslags-
myndir og fylgja sögur sumum
þeirra. Risaeðlurnar eru listamann-
inum líka hugstæðar og þeim sést
bregða fyrir. Valdemar notar lista-
mannsnafnið Vapen.
Útsaumur
og skúlptúr
Þeir Helgi Þorgils Friðjónsson og
Kristinn G. Harðarson opnuðu í
gær sýningu í i8. Þar getur að líta
vatnslitaverk og útsaumaðar mynd-
ir eftir Kristin og leirskúlptúra eftir
Helga Þorgils. Að auki er til sýnis
myndbandsverk sem þeir lista-
mennirnir unnu i sameiningu,
ásamt söngvaranum Sverri Guð-
jónssyni, sérstaklega fyrir sýning-
una. Verkið heitir Afturgöngur og
er formgerð brúðuleikhúsópera í
fjórum þáttum.
—
Minningabrot
í Kompunni á Akureyri stendur
yfir sýning Nini Tang sem ber yfir-
skriftina „Fragmentarium".
Hún hóf listferil sinn með áherslu
á málverk en hefur síðan fengist við
ýmsa miðla, svo sem klippi- og
vatnslitamyndir, stimpla, ljósmynd-
ir og leirmuni. Verk Nini tengjast
gjaman íslandi og oft gengur hún út
frá persónum eða atburðum. Sýn-
ingin „Fragmentarium" sam-
anstendur af öllum þessum atriðum
og er eins og minningabrot í bland
við viðburði líðandi standar.
Bíógagnrýni
Frumsýningar í kvikmyndahúsum um helgina:
Maöur eins og ég, músin knáa snýr
aftur og hryðjuverk í Bandaríkjunum
Sam-bíóin - Eight Legged Freaks
F i ölskylduhryllingur
KJ C/ 4/ C J um kvikmyndir.
Maður eins og ég verður frumsýnd
um helgina og er það fagnaðarefni
þegar íslenskar kvikmyndir eru tekn-
ar til sýninga í kvikmyndahúsum.
Myndin hefur á að skipa leikurunum
Jóni Gnarr, Stephanie Che og Þor-
steini Guðmundssyni. Jón lék áður í
íslenska draumnum og þeir Þorsteinn
eru að góðu kunnir úr Fóstbræðra-
þáttunum. Leikstjóri myndarinnar,
Robert Douglas, á að baki myndina ís-
lenska drauminn og fjölda stutt-
mynda. Maður eins og ég fjallar um
Júlíus, Jón Gnarr, sem á í mikilli til-
vistarkreppu. Hann er starfsmaður
hjá póstinum og lifir fremur litlausu
og venjulegu lífi. Hann verður svo ást-
fanginn af ungri, asískri stúlku sem
starfar á núðluhúsinu og upphefst ást-
arsamband þeirra á milli sem er held-
ur stormasamt. Þau byrja og hætta
saman á víxl en vinir Júlíusar telja
honum trú um að honum verði betur
ágengt með hitt kynið ef hann skipti
um vinnu og gjörbreyti lifsstíl sínum.
Hann fer að ráðum félaganna en fljót-
lega fer allt úr böndunum í lífi hans.
Fyrrverandi kærastan er þá farin til
Kína og Júlíus er einn og yfirgefinn.
Hann ákveður þá að freista gæfunnar,
kaupir sér flugmiða til Kína og ætlar
að reyna að vinna hylli stúlkunnar á
nýjan leik.
Hryöjuverk í Bandaríkjunum
The Sum of All Fears er spennu-
mynd þar sem Jack Ryan, leikinn af
Ben Affleck, starfar sem sérfræðingur
hjá CIA. í slagtogi við forstjóra CIA,
sem er leikinn af Morgan Freeman,
kemst hann að því að kjamorkuvopn
eru framleidd í löndum sem gætu vilj-
að skaða Bandaríkin. Dag einn spring-
ur kjarnorkusprengja í Bandaríkjun-
um og er Rússum kennt um verknaö-
inn. Ekki bætir úr skák að rússneski
forsetinn deyr skyndilega og stjórn-
Maöur eins og ég
Jón Gnarr og Stephanie Che í hlutverkum sínum.
leysi ríkir. Stórveldin eru á barmi
styrjaldar án þess að vita að það eru
hryðjuverkamenn sem eru að etja
löndunum saman. Mikil ringulreið og
múgæsing upphefst í löndunum. Jack
þarf að finna hver stendur að baki
hryðjuverkunum og sannfæra ráða-
menn þjóðarinnar um að þar séu ekki
Rússar að verki sem reynist þrautin
þyngri. Myndir sem fjalla um hryðju-
verk eru nokkuð vinsælar vestanhafs
þessa dagana enda ekki langt um lið-
ið frá atburðunum 11. september.
Þessar myndir ná undantekningalítið
hylli áhorfenda þar sem einhver sál-
arró er fengin með þvi að sýna á hvíta
tjaldinu bandarískar hetjur hafa bet-
ur gegn skúrkum heimsins. Myndin
er byggð á bók Toms Clancys sem er
með þekktari spennusagnahöfundum
samtímans.
Litla músin snýr aftur
Litla sæta músin, Stúart litli, er
komin aftur í kvikmyndahús. Stúart
verður skotinn í fuglinum Margolo og
þarf að bjarga henni úr ýmsum hætt-
um stórborgarinnar. Marga vini á
hann og eru þeir flestir kostulegir.
Ber hæst að nefna þar köttinn Snjó-
bolta en leikarinn Nathan Lane ljær
honum rödd sína og fer á kostum.
Margir stórleikarar ljá persónum
myndarinnar raddir sína og glæða þá
lífi. Þar er fremstur í flokki hinn knái
Michael J. Fox sem talar fýrir Stuart,
Litla músin snýr aftur
Stuart litli og fuglinn Margolo ienda í ýmsum ævintýrum.
Hryöjuverk í USA.
Ben Affleck og Morgan Freeman veröa fýrir baröi hryöju-
verkamanna.
James Woods er fálkinn og Melanie
Grifflth er fuglinn Margolo. Myndin
er fjölskyldumvnd i hæsta gæðaflokki
en hún hefur verið með aðsóknar-
mestu myndunum vestanhafs undan-
farið.
Fjölbreytni í fyrirrúmi
Óhætt er að mæla með mörgum af
þeim myndum sem eru núna til sýn-
ingar í kvikmyndahúsum borgarinn-
ar. Þar er hægt að velja úr flóru kvik-
mynda og alli** ættu að geta fúndið sér
eitthvað við hæfi. Það er sérstakt
ánægjuefhi að Maður eins og ég er
kominn í sýningu en myndarinnar
hefur verið beðið með mikilli eftir-
væntingu enda í anda myndarinnar
íslenska draumsins sem var gríðar-
lega vinsæl. Það er ekki úr vegi að
minnast á að islenska heimildar-
myndin Leitin að Rajeev er í sýningu
í kvikmyndahúsum borgarinnar, er
þar á ferð vönduð og skemmtileg
mynd sem enginn sem hefur gaman af
góðum heimildarmyndum ætti að láta
fram hjá sér fara. Myndin Fálkar í
leikstjórn Friðriks Þór Friðrikssonar
verður svo tekin til sýninga í septem-
ber en í henni eru stórleikararnir
Ingvar E. Sigurðsson og Keith Carra-
dine. Það er mikið aö gerast í kvik-
myndalífi íslendinga um þessar
mundir sem er hið besta mál.
-HÞG
Risakönguló á bilþaki
Þær koma víöa viö risaköngulærnar í leit aö fæöu.
Köngulær í yfirstærðum eru aðal-
persónur hinnar ágætu hryllings-
myndar, Eight Legged Freaks, sem
ekki aðeins hræðir áhorfendur held-
ur hefur ágætan húmor sem bland-
ast vel saman við sögu sem gæti
verið tekin úr ódýrri b-hryllings-
mynd frá miðri síðustu öld þegar í
tísku var að gera nógu groddalegar
hryllingsmyndir fyrir lítinn pening,
sem höfðu það eitt markmið að
hræða. Hafa sumar þeirra orðið að
„cult“ kvikmyndum og sýndar víða
í litlum kvikmyndahúsum. Þar á
meðal er Tarantula, sem gæti alveg
eins hafa verið fyrirmynd þeirra
stórmyndabræðra, Rolands Emmer-
ich og Deans Devlins (Godzilla,
Independence Day) sem standa að
gerð Eight Legged Freaks. Það sem
Eight Legged Freaks hefur fram yfir
fyrmefndar b-myndir er er fyrst og
fremst góður húmor og frábærar
tæknibrellur
í myndinni er ekki verið að gera
einfaldan söguþráð flókinn á kostn-
að tækninnar heldur er tæknin að-
eins hjálpartæki til að einfaldleik-
inn njóti sín sem best. Eight Legged
Freaks gerist í smábæ. Þegar eitur-
efni fara í vatn eitt þar sem köngu-
lóarbú er í nágrenninu fara að ger-
ast ótrúlegir hlutir. Vatnið virkar
sem hormónar á köngulæmar sem
fara að stækka og verða um leið
herskárri. Köngulóarbúið nægir
þeim að sjálfsögðu ekki og þær gera
sér hreiður í gamalli námu en sögu-
sagnir segja að þar sé gull að finna.
Það líður ekki á löngu þar til bæjar-
búar verða áþreifanlega varir við
köngulæmar sem þurfa að sjálf-
sögðu að matast og stór skrokkur
innbyrðir mikinn mat. í myndinni
höfum við hinar hefðbundnu per-
sónur. Ungur eigandi námanna
kemur til bæjarins eftir tíu ára fjar-
vem og verður ástfanginn af lög-
reglustjóranum, sem er fónguleg
kona. Bæjarstjórinn, sem er að
reyna fyrir sér í strútarækt, hefur
ill áform um framtíð bæjarins, ung-
ur sonur lögreglustjórans er sér-
fræðingur í köngulóm og er bjarg-
vættar þegar á reynir og svo höfum
við útvarpsmann, sem er alltaf að
telja íbúum bæjarins trú um að
geimverur séu um það bil að her-
taka bæinn.
Ef hægt er að tala um fjölskyldu-
trylli þá er Eight Legged Freaks slík
mynd. Segja má að fólk á öflum
aldri (ef það á annað borð hefur
gaman af að láta sér bregða af og til)
geti átt ánægjustund yfir Eight
Legged Freaks. Myndin er létt þegar
haft er í huga viðfangsefnið. Persón-
ur em einfaldar og skýrar, köngu-
læmar em sannfærandi tölvufigúr-
ur og ekki líður svo eitt atriði að
einhver húmor sé ekki í því. Eight
Legged Freaks er því vel heppnuð
hryllingsgamanmynd.
Lelkstjóri: Ellory Elkayem. Handrit: Jesse
Alexander og Ellory Elkayem. Kvikmynda-
taka: John Bartley. Tónlist: Austin
Powers. Aóalleikarar: David Arquette,
Kari Wuhrer, Scott Terra og Scarlett Jo-
hansson.